Morgunblaðið - 04.09.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
39
Minning:
IngólfurA. Jónsson
Fæddur 9. apríl 1931
Dáinn 17. ágúst 1990
Ingólfur A. Jónsson vinur minn
er dáinn. En þótt hann hafí átt við
heilsuleysi að stríða í áratugi, kom
mér fregnin um andlát hans á óvart.
Mér fannst hann hafa átt það eftir
að lifa hér unaðsstundir laus við böl
og þraut sjúkdómanna. En svo var
hann allt í einu hrifinn burt.
Ég kynntist Ingólfi fyrst þegar
hann var bifvélavirki hjá Land-
símanum. Það var mál manna, að
enginn þekkti Lapplander-Volvo-
jeppana þeirra þar betur en hann.
Blómastofa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öllkvöid
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
m
En ég er viss um, að hann þekkti
hvert smáatriði í Volvo-íjölskyld-
unni allri. Og það má heldur ekki
gleyma Bénzanum. í þeim var hann
jafn kunnugur hverjum krók og
kima og hann væri stadddur í stof-
unni heima hjá sér. Ingólfur var
afburðar nákvæmur bifvélavirki, og
aldrei naut hann sín eins og þegar
hann ræddi þau fræði sín og gat
miðlað fáfróðum úr sjóði þekkingar
sinnar. Hann stundaði iðn sína alla
tíð af þeirri trúmennsku og ár-
vekni, sem einkennir störf hins sam-
viskusama manns. Þannig var hann
á öllum sviðum, hann mátti hvergi
vamm sitt vita í viðskiptum sínum
við aðra, hann var traustur og áreið-
anlegur svo af bar. Þetta hef ég
sannreynt eftir tveggja áratuga við-
kynningu og vináttu, sem hvergi
bar skugga á.
Ingólfur var enn ungur að árum,
þegar bliku dró upp á ævihimin
hans. Heilsunni hnignaði smátt og
smátt, og hann varð að hætta bíla-
^viðgerðum og gerðist hann þá
leigubílstjóri um skeið. Þar kom að
hann varð að draga úr þeirri starf-
semi líka uns hann að lokum hætti
allri keyrslu.
Þrátt fyrir líkamlegar þjáningur
veikindaáranna, var Ingólfur í raun-
inni mjög gæfusamur maður. Hann
átti mörg mannvænleg börn með
fyrri konu sinni og hann bjó 12 ár
í hamingjusömu hjónabandi með
eftirlifandi eiginkonu sinni, Aðal-
björgu Jónsdóttur. Sú sambúð var
honum ómetanlegur styrkur þessi
erfiðu ár. Þau áttu fallegt heimili
og studdu hvort annað svo fagur-
lega að aðdáun vakti. Það var un-
aðslegt að koma heim til þeirra og
njóta þar gestrisni og vináttu, sem
var auðsýnd af svo mikilli einlægni
og svo miklum hlýleika. Ég þakka
þeim báðum fyrir þessar samveru-
stundir, sem mér fínnst nú að hafi
verið alltof fáar.
Og nú er Ingólfúr vinur minn
horfinn þangað, sem við fáum ekki
greint nein kennileiti. En í minning-
unni sjáum við hann lausan við sjúk-
dóma og áhyggjur ganga styrkum
fótum mót rísandi sól í átt til fram-
tíðarlandsins á vit þeirrar tilvistar,
sem við, innst inni, trúum flest á.
Guðsteinn Þengilsson
Leiðrétting
í minningargrein um Svövu Guð-
mundsdóttur í blaðinu á sunnudag
féll niður nafn dóttur hennar, Guð-
laugar Bertu. Hún á dóttur með
fyrrum eiginmanni sínum, Ingvari
Elíassyni. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
NÝJASTA DANSKA ORÐABÓKIN
887 bla5síður - kr. 2.200
ORÐABOKAUTGAFAN
+
Föðurbróðir okkar,
KRISTJÁN JÓNSSON
frá Snorrastöðum,
Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Kolbeinsstaðakirkju föstudaginn 7. septem-
ber kl. 14.00. Bílferð verður frá Bifreiðastöð íslands kl. 11.00
þann dag.
Systkinin frá Snorrastöðum.
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
LEIFS ÁSGEIRSSONAR
prófessors,
verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. september
kl. 10.30.
Hrefna Kolbeinsdóttir,
Kristín Leifsdóttir,
Ásgeir Leifsson, Helga Ólafsdóttir,
Einar Indriðason, Hrefna Indriðadóttir,
Leifur Hrafn Ásgeirsson, Ylfa Sigríður Ásgeirsdóttir,
José Antonio De Bustos Martin.
+
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNSTEINN JÓHANNSSON,
Þórufelli 12,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
5. september 1990 kl. 15.00.
Sigrún Gunnsteinsdóttir Head, Stephen P. Head,
Sigurður Gunnsteinsson, Guðmunda Jóhannsdóttir,
Egill Gunnsteinsson, Svanhildur Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTINN FRIÐRIKSSON
verkstjóri,
Stykkishólmi,
lést föstudaginn 31. ágúst.
Jarðarförðin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 8. sept-
ember kl. 14.00.
Þóra Sigurðardóttir,
Ellert Kristínsson, Jóhanna Bjarnadóttir,
Marinó Kristinsson, Margrét Halldórsdóttir,
Friðrik S. Kristinsson, Þórdís Helgadóttir,
Jón Steinar Kristinsson, Sigrún Hansdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SVAVA VALDIMARSDÓTTIR
frá Súgandafirði,
Kleppsvegi 50,
andaðist í Landakotsspítala föstudaginn 31. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 7. september
kl. 10.30.
Jóhannes Þ. Jónsson,
Aðalheiður Jóhannesdóttir,
Þórður Jóhannesson, Jóhanna Björk Bjarnadóttir,
Guðrún Kristín Jóhannesdóttir,
María Þrúður Weinberg, Arthur Weinberg
og barnabörn.
+
Hjartkær sambýlismaður minn, faðir, fósturfaðir, bróðir, afi og
langafi,
TORFI BJÖRN LOFTSSON,
Álfaskeiði 78,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 5. septem-
ber kl. 13.30.
Anna Kalmansdóttir,
Dagbjört Hildur Torfadóttir,
Guðrún Finnsdóttir,
systkini, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
JÓNS FRIÐRIKSSONAR
á Hömrum.
Aðstandendur.