Morgunblaðið - 04.09.1990, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
45
1
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Samband dýraverndunarfélaga íslands:
Ábyrgð kattaeigenda
Til Velvakanda.
Vegna þess hve mikið framboð
er alltaf af kettlingum biður stjórn
Sambands dýraverndunarfélaga ís-
lands þig fyrir eftirfarandi línur.
I könnun sem gerð var á hinum
Norðurlöndunum kom í Ijós að'innan
við 10% af þeim kettlingum sem
fæðast, ná því að lifa það sem við
getum kallað eðlilega fullorðinsævi.
Þetta þýðir að rúmlega 90% —
þ.e.a.s. nærri allir þeir kettlingar
sem fæðast, deyja á fyrstu mánuðum
ævi sinnar. Dánarorsakirnar eru
ýmis konar — slys eru þó í miklum
minnihluta. Það sem gerist í flestum
tilfellum er að dýrin eru aflífuð
vegna þess að hinir nýju eigendur
vilja, þegar allt kemur til alls, ekki
leggja það á sig að hafa köttinn;
það hefur e.t.v. ekki tekist að gera
dýrið hreinlegt eða kenna því að
brýna ekki klærnar á húsgögnunum,
eða fólk er einfaldlega að fara í
sumarfrí og getur ekki — eða vill
ekki — koma dýrinu sínu í fóstur.
Margir hálfstálpaðir kettlingar —
einkum fressin — villast að heiman,
þegar kynþroskaskeið hefst — vegna
þes að eigendur þeirra hafa ekki
haft hugsun á að láta gelda þá.
Þessir kettir lenda á flækingi —
ásamt þeim köttum sem bornir eru
út. Því miður þekkist það að köttum
er ekið í önnur borgarhverfi og þeir
skildir eftir. Þessir kettir sem lenda
á flækingi eiga oftast mjög slæma
ævi. Þeir hafa, fram að þessu, geng-
ið að mat sínum og mjúku horni í
sófanum vísu — og eru lítt undir það
búnir að bjarga sér. Þeir sem ekki
eru svo heppnir að vera teknir af
öðru fólki og eignast þannig ný
heimili — en þeir eru fáir, miðað við
allan fjöldann, eru á hrakhólum og
í svelti þangað til þeir eru aflífaðir
af yfirvöldum eða deyja úr hungri
og sjúkdómum.
Þessa staðreynd ættu kattaeig-
endur að hafa í huga og gera sitt
til þess að breyta þessu. Það er ekki
erfitt. Mikilvægast er að láta gera
dýrin sín ófijó. Það er hægt að gera
bæði kven- og karldýr ófrjó — og
er'hér með vísað á starfandi dýra-
lækna.
En sé skaðinn skeður og litla
læðan allt í einu farin að gildna og
einn morguninn uppgötvast að hún
hefur eignast heilan hóp af kettling-
um — sem auðvitað eru fallegri en
allir aðrir kettlingar, þarf fólk mjög
að hafa það í huga að gefa ekki
Best að vera á varðbergi
Ágæti Velvakandi.
Að gefnu tilefni skrifa ég vegna
vöruverðs í apótekinu hérna í
Hveragerði. Ég hef alltaf átt því
að venjast að vara væri ódýrari út
á lyfseðil. Ég fékk lyfseðil út á
Counterpain rub krem og greiddi
fyrir það 433 kr., þegjandi og
hljóðalaust. Vinnkona mín sem að
var með mér spurði hvað þetta krem
kostaði án lyfseðils. Stúlkan fletti
upp í verðskrá og sagði að það
kostaði 417 kr. Þá varð ég hálf
hissa og spurði hvernig stæði á
þessu. Hin svaraði því til að af-
greiðslugjald bættist ofaná og önn-
ur gjöld. Ég nennti ékki að gera
veður út af þessu þama enda að-
eins um 16 króna mismun að ræða.
En þið skuluð, sem þetta lesið, vera
vel á varðbergi ot láta lækna ykkar
kanna hvort að þetta geti verið
raunhæft. Ég geri það næst því að
ég er reynslunni ríkari.
Hildur Kristín .Jakobsdóttir
kettlingana hveijum sem er. Það er
ekki hið rétta hugarfar að reyna að.
„koma þeim út“. Það þarf að vanda
valið þegar kattareigandi er valinn.
Og góður kattareigandi er ekki á
hveiju strái. Þess vegna er öllum
þeim, sem allt í einu eignast stóra
kattarfjölskyldu, ráðlagt að láta lóga
öllum kettlingunum nema einum,
strax og þeir eru allir fæddir. Það
er auðveldara að fínna einn góðan
kattareiganda en fímm. Það ætti
ekki að þurfa að taka það fram að
það er mjög miskunnarlaust að lóga
öllum kettlingunum — læðunnar
vegna. Læðurnar telja hins vegar
ekki afkvæmi sín — ef þær hafa
eitt eftir, sakna þær ekki hinna. Og
af mörgum ástæðum er það best að
kettlingunum sé lógað eins fljótt og
• kostur er — eftir að þeir eru allir
fæddir. Verið búin að hafa samband
við dýralækni, þannig að þið getið
komið með þá, sem ekki eiga að lifa,
eins fljótt og auðið er. Það er ekki
skemmtilegt verk að fara með litla,
undurfallega, mjúka kettlinga til
dýralæknis til þess að láta lóga þeim
- en það er margfalt betri kostur,
en að láta þá í hendurnar á hveijum
sem er og vita að það eru mestar
líkur á því að dýrinu verði lógað
síðar, þegar eigandinn er orðinn
þreyttur á því — eða það sem verra
er að það verði borið út.
F.h. stjórnar S.D.Í.,
Jórunn Sörensen.
STJÖRNUKORT
Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin,
Miðbæjarmarkaðinum,
Aðalstræti 9, sími 10377.
*NYTT*
M
UMBOND
FYRIR TRJAPLONTUR
í stað spotta og borða, í stað þess að hefta eða
negla, býðst nú lausn sem gerir uppbindingu
trjáa að léttum leik. Veðurþolnu límböndin frá
MAPA eru sterk, mjúk og þjál og særa ekki
viðkvæman börk.
Sölufél. garðyrkjumanna, Smiðjuvegi 5, Kóp.
Blomberq
KS364
/KS 328
/KS 335
KÆLISKA P A R
/KS314
370L kælir / 188L kælir/133 Lfrystir/ 248L kælir/79 L frystir / 226L kælir/70 L frystir
Iv/Iál:H185B60D60 cm / Mál:Hl85B60D60 cm / Mál:Hl85B60D60 cm / Mál:Hl63B60D60 cm
r'/m/x / ffi
Cí/tul. V / ' \ /
/KS 282 /KS 242
f 225 L kælir/55 L frystir / 194L kælir/52 L frystir
Mál:Hl57B55D58 cm / Mál:Hl42B55D58 cm
220 L kælir
Mál:Hl24B55D58 cm i
KS222
202 L kælir/18 L frystir
Mál:Hl24B55D58 cm
IKS 180
185L kælir
Mál:Hl09B50D58 cm ,
/ KS 182 /KS 140
169 L kælir/16 L frystir / 143 L kælir
I H109B50D58 cm / Mál:H85B50D58 cm
By
Hér sést hluti af úrvalinu,
sem við bjóðum af
BLOMBERG
kæliskápunum.
BLOMBERG er vestur-
evrópsk gæðaframleiðsla
á verði, sem fáir geta
keppt við.
BLOMBERG kæliskápur
er sönn kjarabótl!
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28,
simar 622900 og 622901
/KS 142
129L kælir/14 Lfrystir
Mál:H85B50D58 cm