Morgunblaðið - 04.09.1990, Síða 48
ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Vildi borga
með tómat-
sósubréfum
NORSKUR sjóliði úr fastaflota
NATO sem gestkomandi er í
Sundahðfn taldi eðlilegt og sjálf-
sagt að leigubílstjóri sem ekið
hafði honum að skipshlið frá
skemmtistað aðfaranótt sunnu-
dagsins sætti sig við að fá greitt
með tómatsósubréfum.
Þegar leigubílstjórinn bað um
greiðslu í reiðufé fauk í sjóliðann
og virtist leigubílstjóranum og ná-
lægum lögreglumönnum sem hann
teldi að tómatsósan væri gefin út
af Seðlabanka íslands.
Dátinn tók þó loks tómatsósu-
■ bréfin til baka og greiddi farið í
norskum krónum en lét jafnframt
óánægju sína í ljós með því að
stugga við bílstjóra og beija í bíl
hans. Þegar lögregla reyndi að róa
manninn brást hann hinn versti
við og þurfti að fiytja hann hand-
járnaðan á lögreglustöðina og láta
hann sofa þar úr sér.
Skoðar að-
stæður fyrir
málmsteypu
FULLTRÚAR þýska risafyrirtæk-
isins Thyssen eru væntanlegir
hingað til lands á fimmtudag í
stutta heimsókn. Þeir ætla að
kynna sér ýmsar aðstæður hér,
meðal annars til starfrækslu
málmsteypu. Þeir kynna sér starf-
semi ISAL, Islenska járnblendifé-
lagsins, Alpan og fleira.
Að sögn Aðalsteins Karlssonar,
fulltrúa Thyssen á íslandi, er frum-
kvæðið að heimsókninni af hálfu
Thyssen. Hingað koma meðal ann-
ars stjórnarmaður og tæknilegur
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Þeir munu ræða við fulltrúa Lands-
virkjunar og fyrrnefndu fyrirtækj-
anna, auk þess sem þeir ræða við
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra.
Thyssen er eitt af stærstu fyrir-
tækjum Evrópu og er starfsemi
þess einkum á sviði járn- og stál-
framleiðslu. Aðalsteinn segir að
áhugi þeirra á íslandi sé að líkindum
til kominn vegna raforkufram-
leiðslu hér.
Skólastarf að hefjast
Morgunblaðið/RAX
Þessa dagana eru framhaldsskólarnir að taka til starfa að loknu sumar-
leyfi og grunnskólarnir taka til starfa síðar í vikunni. Myndina tók
Ijósmyndari Morgunblaðsins af fjórum nemendum Menntaskólans
Reykjavík að bera saman bækur sínar við upphaf skólaársins.
A
Ovíst hvort Arnarflug tekur aftur við fluginu af Flugleiðum;
Bæði félögin verða að hafa
áætlun fyrir nóvember
ÖVÍST er hvort ílugfélagið, Arn-
arfiug eða Flugleiðir, annast áætl-
unarfiug til Amsterdam eftir 1.
nóvember næstkomandi, en þá
rennur út leyfi Flugleiða til að
fijúga þangað. Vegna þessa er
nauðsynlegt að bæði fiugfélögin
hafi áætlun fyrir nóvember svo
að farþegar geti bókað sig vand-
ræðalaust. Þetta segir Magnús
Oddsson ferðamálastjóri, sem ver-
ið hefur oddamaður samgöngu-
ráðherra í nefnd Arnarfiugs og
Flugleiða. Nefndin fjallaði um
helgina um ýmis mál, sem upp
hafa komið vegna tímabundinnar
yfirtöku Flugleiða á áætlunarflugi
Arnarflugs.
Magnús sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að þar sem enginn
væri í raun með áætlunarflugleyfið
til Amsterdam í nóvember, gæti
reynzt erfitt að leysa úr málum far-
þega, sem ætluðu til dæmis utan í
Svínakjöt hækkaði um
5% um mánaðamótin
Verðlagsstofnun gerir ekki athugasemdir
AFURÐAVERÐ til svínabænda
hækkaði um u.þ.b. 5% um mán-
aðamótin. Má gera ráð fyrir að
hækkunin skili sér í sama hlut-
falli til ncytenda á næstunni, en
að sögn Kristins Gylfa Jónssonar
hjá Svínaræktarfélagi íslands
hefur síðustu ár verið misræmi
í hækkun á almennu verðlagi og
hráefnum annars vegar, og
svínakjöti hins vegar, og sé þessi
hækkun greininni nauðsynleg.
Verðlagsstofnun telur hækkun-
ina óhcppilega, en fyrir henni
megi færa rök.
Svínaræktendur benda á, að
markaðsverð á svínakjöti hafi
hækkað um 30% síðan í janúar
árið 1988, á móts við 54% hækkun
framfærsluvísitölu og 66% hækkun
á kjarnfóðri. „Verð á svínakjöti
lækkaði mjög fyrri hluta ársins
1989,“ sagði Kristinn Gylfi í sam-
tali við Morgunblaðið. „I kjölfar
verðlækkana hefur átt sér stað
mikil framleiðniaukning í svína-
ræktinni, sem gerir það að verkum
að svínabændum er kleift að haida
lífi í greininni þrátt fyrir að afurða-
verð hafi ekki haldist í hendur við
almennar verðhækkanir. Nú sjáum
við fram á að jafnvægi milli fram-
boðs og eftirspurnar sé að nást í
þessari grein, en neysla á svína-
kjöti hefur þrefaldast hérlendis
síðustu 10 árin.“
„Þessi hækkun er óheppileg, en
svínaræktendur geta fært fyrir
henni nokkuð viðsættanleg rök,“
sagði Guðmundur Sigurðsson hjá
Verðlagsstofnun í samtali við
Morgunblaðið, þegar hækkunin var
borin undir hann. Hann taldi ekki
líklegt að stofnunin myndi grípa
til ráðstafana vegna þessa máls.
október en heim aftur í nóvember.
Þeir færu út með Flugleiðum en vissu
ekki með hvoru félaginu þeir flygju
heim.
„Til þess að tryggja að farþegar
geti bókað sig í nóvember er í raun
engin framkvæmanleg leið önnur en
sú að bæði félögin séu með áætlun
í nóvember þangað til samgöngu-
ráðuneytið hefur veitt einhverjum
leyfið," sagði Magnús. „Það er verk-
efni nefndarinnar að sjá til þess að
þetta verði helzt sama áætlun. Nú
bíðum við eftir áætlunum beggja, og
svo þarf að reyna að samræma þær
þannig að þær verði eins líkar og
mögulegt er. Þegar þar að kemur
verður svo flogið samkvæmt annarri
áætluninni og farþegar færa sig þá
einfaldlega á milli." Magnús sagði
að nefndin hefði gert tillögu til sam-
gönguráðuneytisins og flugfélag-
anna um þessa tilhögun.
Flugleiðir hafa samþykkt að taka
gilda alla farseðla útgefna af Arnar-
flugi fyrir 31. ágúst, aðra en frímiða
og svokallaða hluthafamiða, en þeir
fylgdu í kaupbæti er fólk festi sér
hlut í félaginu. Allir verða þó fluttir
til síns heima, sem hófu ferðina fyr-
ir mánaðamótin, þótt þeir séu með
slíka farseðla. Jafnframt hefur náðst
samkomulag um að Flugleiðir ábyrg-
ist að farmiðar sem Arnarflug hefur
gefið út á KLM og önnur erlend flug-
félög verði virtir. „Þeir sem eru með
farseðla á erlend flugfélög, útgefna
af Arnarflugi, þurfa ekki að óttast
að þeir fái ekki sinn flutning," sagði
Magnús Oddsson.
A föstudag tilkynntu Flugleiðir að
félagið tæki ekki við farseðlum út-
gefnum af Arnarflugi lengur en til
5. september. Aðspurður um orsakir
þessa sagði Einar Sigurðsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða, að aldrei hefði
staðið til að flytja ekki fólk, sem
haft hefði farseðla frá Arnarflugi.
Ætlunin hefði verið að biðja fólk að
fá miðana endurgreidda og endurút-
gefna á nafni Flugleiða. Flugleiðir
hefðu þá fengið greiðsluna fyrir far-
seðlana. Fallið hefði verið frá þessu,
þar sem líklega hefði aldrei náðst til
allra, sem haft hefðu farseðla frá
Arnarflugi. „Það er kveðið á um
uppgjör á þessum miðum í samkomu-
lagi félaganna, en við gerum þetta
að miklu leyti í góðri trú. Við tökum
að okkur flutning á fólki á farseðl-
um, sem er búið að greiða, en við
höfum enga tryggingu fyrir því að
við fáum greiðsluna, og menn hafa
haft áhyggjur af því,“ sagði Einar.
Héðinn efstur
á Skákþinginu
HEÐINN Steingrímsson vann
Björgvin Jónsson í 6. umferð
Skákþings íslands á Höfn í gær,
og er einn efstur með 5 vinninga.
Margeir Pétursson kemur næstur
með 4 Yz vinning en hann vann
Árna Árnason í gær. Björgvin er í
3. sæti með 4 vinninga og Hannes
Hlífar Stefánsson er með 3 'A vinn-
ing en hann vann Halldór G. Einars-