Morgunblaðið - 30.12.1990, Page 9

Morgunblaðið - 30.12.1990, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 9 Við áramót eftir sr. HJÁLMAR JÓNSSON Ár líður, annað tekur við. Þessi eðlilegi og sjálfsagði atburður vekur upp hugsanir um hraðferð tímans og ævinnar. Það er ekki óeðlilegt að hugsa um tímann og hugsanlega eilífð í nánd áramó- tanna. Engu verður þó ráðið um þessa ferð í tímanum. Ekkert er gert með það þótt hrópað sé eins og Francois Sagan: Stöðvið heim- inn, — nú stekk ég af! Við hljótum að halda áfram ferðinni áfram um lífíð. Lífsferðin er þó eins og önnur ferðalög. Eftirtektin er misjöfn hjá ferðalöngum og ólíkt að hveij- um efnum áhugi béinist. Barnið og unglingurinn reyna að hraða sér áfram og þykir seint ganga fram til fullorðinsára. Langt í fjarri framtíð séu árin þar sem hægt sé að láta til sín taka. Upp- vaxtarárin eru jafnvel skoðuð sem bið eftir alvörulífi, sem vænst er í framtíðinni. Margur reynir að þreyja af með afþreyingu. Það getur svo orðið að vanahugsun að bíða eftir þvf að eitthvað merki- legt gerist í framtíðinni. Allt geti snúist á betri veg og gangan til hagsældar og lífshamingju verði létt og fyrirhafnarlaus í fyllingu tímans. Til eru þeir í hópi elstu sam- ferðafhannanna, sem horfa með eftirsjá til gömlu áranna, sem aldrei koma til baka. Sumum finnst jafnvel að ekkert sé lengur að lifa fyrir. Ævihlutverkinu hafi lokið þegar börnin eru uppkomin eða þegar ekki er lengur um virka þátttöku í atvinnulífinu að ræða. _ Það er líklega nokkuð algengt að fólk telji sig ekki vera á réttu æviskeiði og lifi í fortíð eða framtíð, en ekki í nútíðinni. Þó verður naumast sagt að eitt ævi- skeið sé öðru merkara. Ævin er ein heild og hver einstaklingur hefur hlutverki að gegna. Verk- efni ævinnar eru hins vegar ekki hin sömu ævina alla. Þau eru jafn- vel ólík, en ekkert þeirra er ástæða til að líta smáum augum. Öldungurinn hefur hlutverk í lífinu þótt hann sitji sjóndapur í stól sínum á skjólsömum stað ætluðum ellimóðum. Það er ekk- ert ómerkara hlutverk heldur en þess sem er í blóma lífsins, sem svo er kallað. Ævin er ferð með fyrirheiti. Tækifærin eru aldrei að baki, jafnvel þótt mörgum finnist þeir glata þeim einu af öðru og séu slyppir og snauðir að lokinni ferð- inni. Þeir hafa ekki misst tækifær- in og möguleikana á því að afla þess sem hefði varanlegt gildi. í jólabókaflóðinu skolast jafnan til okkar ágætar bækur. Minn- ingabækur hafa löngum verið áberandi í flóðinu. Fólk hefur tek- ið að rifja upp og vinna úr liðnum ævidögum. Það beitir lífsreynslu sinni til þess að sjá ævina í heild sinni og lýsa atburðum í sam- hengi. Þar má glöggt sjá að leitað er orsaka og afleiðinga, jafnvel afsakana og ásakana. Hvað sem því líður er gott um það að segja að sjá samhengið, heildina ög til- ganginn með lifuðu lífi. Reynslan kemur að góðu haldi þótt langt sé liðið á ferðalagið. Fæstir gefa þó út minningar sínar á prenti. Nöfnin okkar fæstra verða f minningabókum. En þau eru skráð í lífsins bók. Þar er líka fullkomnun og tilgang æviferilsins að finna. Áramót eru kaflaskil í veraldlegu umhverfi okkar. En stærstu kaflaskilin urðu þegar Drottinn ritaði nöfnin okkar í lífsins bók og kallaði okkur til eilífs samfélags við sig. Hann hefur fengið lífi okkar tilgang. Hvern dag ber að þakka en leggja framtíðina í hönd hans, sem hefur tök á tíma og eilífð. BRÉFA- BINDIN frá Múlalundi... ... þar eru gögnin á góðum stað. 2 3 3 £ i 3 z 5 Múlalundur SÍMI: 62 84 50 Jólahappdrætti Sjálfsbjargar 1990 Dregið hefur verið í jólahappdrætti Sjálfsbjargar 1990. Vinningar og útdregin númer eru sem hér segir: 1. vinningur: Bifreið: Ford Econoline eða Mercedes Benz að verðmæti kr. 3.500.000. Vinningsnúmer: 135086. 2.-83. vinningur: Macintosh tölvubúnaður eða Siemens heimilistæki eða Echostar gervihnattadiskur og Nordmende sjónvarpstæki hver að verðmæti kr. 250.000. «► Vinningsnúmer: 768 64832 129562 191329 3980 67131 130871 197466 7078 69252 ' 132374 199062 7993 69531 134276 200057 10274 72964 138398 200538 10777 86814 141175 201348 12913 89955 145566 203474 22911 91192 145623 205972 26798 92308 150391 206735 27595 99490 150632 210442 32941 107356 157917 211291 39585 107543 161263 211511 41204 108549 164476 212366 41511 109951 174969 221061 44943 113299 174981 222469 55960 116113 176898 222827 57158 120068 178674 229547 58449 122466 182488 231200 58525 124023 182910 235049 63909 127360 185272 235091 190065 239037 Vinningar eru skattfrjálsir. Vinninga ber að vitja á skrif- stofu Sjálfsbjargar í Hátúni 12, 105 Reykjavík, sími 29133. Sjálfsbjörg þakkar landsmönnum stuðning nú sem fyrr. Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra Hátúni 12 - Sínii 29133 - Pósthólf 5147 - 105 Reykjavík - tsland FAXAFENI 7 SÍMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.