Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBMÐIÐ SUNNUDAGUR 30. PDBBMBí:R,1,990 anir háfa hljómað í marga áratugi. Vissulega er hættan ekki minni nú en áður. Eyðsluæði hins opinbera, ríkisins og ekki síður sveitarfélag- anna hefur haldið áfram á þessu ári sem aldrei fyrr. Ef þessari ó- ráðssíu hins opinbera í peningamál- um linnir ekki, þá mun öll viðleitni aðila vinnumarkaðarins til að koma hér á stöðugleika í efnahagslífinu verða að ösku. En ég held að það sé von. Ég held að skilningur þjóð- arinnar fari nú ört vaxandi - skiln- ingur á því að ekki er hægt að eyða sömu krónunni tvisvar. A meðan samneyslan vex hraðar en þjóðartekjurnar, þá fækkar þeim krónum sem fólk hefur handa á milli . Þetta er ekki flókið mál, heldur sára, sáraeinfalt. Margir stjórnmálamenn tala reyndar eins og þeim sé ljóst að stemma verði stigu við síþenslu hins opinbera. Þetta er mikið fagnaðar- efni. Hlutur stjórnarandstöðunnar á hveijum tíma í tillöguflutningi um ný ríkisútgjöld hefur löngum verið hvað verstur. Nú bregður svo við að helsta stjórnarandstöðuaflið, Sjálfstæðisflokkurinn, setur sér það markmið að flytja ekki nýjar tillög- ur um ríkisútgjöld. Þetta er ný- mæli og ekki minna fagnaðarefni. Þrátt fyrir allt er ofurlítið ljós í myrkrinu. Plestir líta eflaust til nýs árs með von um bættan hag og betri tíð. Ég hef sagt það áður og skal endur- taka það hér og nú að fátt er íslenskum atvinnuvegum mikilvæg- ara en að geta bætt starfskjör fólks á varanlegan hátt. En hvort það tekst á árinu 1991 - um það getur enginn fullyrt eða lofað. Það er því miður miklu meiri ástæða að vara við bjartsýni heldur en hitt. Það verður þungt fyrir fæti og erfitt að halda þokkalegri þjóðarsátt á næsta ári ef ekki tekst að bæta kjör fólks. En því miður er mjög fátt sem bend- ir til þess að kjör Islendinga batni á árinu 1991. Að vekja tálvonir í hugum efnalítils fólks er ekki gott. Illskárra er að segja hveija sögu eins og menn vita hana sannasta. Við skulum samt ekki örvænta. Góðærin hafa ekki gagnast okkur heldur sem skyldi. Vonandi færir forsjónin og eigin útsjónarsemi okk- ur sígandi lukku á komandi ári.“ Ásmundur Stefánsson, forseti Aljiýðusam- bands Islands: Tilraun sem tókst Fyrir ári var verðbólga yfir 20%, kaupmáttur 12-15% lægri en tveim- ur árum áður og sífellt fleiri sáu fram á atvinnuleysi. Kjarasamningarnir í byijuh febr- úar 1990 tóku mið af þessari stöðu. Fyrsta skrefið var að ná verðbólgu niður, stöðva kaupmáttarhrapið, koma á stöðugleika og auka at- vinnuöryggi. Markmiðin náðust Þegar staðan er metin nú, um það bil ári síðar,- má með réttu segja að tilraunin bafi tekist. Verðbólga er í meginatriðum sú sem gert var ráð fyrir. Vik frá áætluninni, sem var gerð í febrúar, má nánast alfar- ið skýra með áhrifum olíukreppunn- ar. Kaupmáttur hefur verið stöðugur i í ár. Kaupmáttur þessa árs víkur innan við einn fjórða úr prósenti frá því sem við áætluðum í febrúar. Ekkert varð úr því allsherjarat- vinnuleysi, sem við óttuðumst að yrði. Þrátt fyrir að alvarleg vanda- mál blasi við í einstökum byggðar- lögum hefur atvinnuástand á landinu almennt verið gott. Ný von Stuttu eftir samningana í febrúar sýndu skoðanakannanir að fáir trúðu því að tilraunin tækist. Flest- ir voru þeirrar skoðunar að verð- bólga næstu 12 mánaða yrði yfir 20%. Vantrúin á aðrar leiðir til þess að bæta kjörin er líklegasta ástæð- an fyrir því að fólk var tilbúið að gera tilraunina. Einmitt þess vegna hefur árangurinn gefið nýja von. í nóvember sl. þegar kom að éndur- skoðun kjarasamningsins áttum við fundi með stjórnum stéttarfélag- anna. Á þeim fundum kom fram einhlít krafa: Höldum áfram á sömu braut. Samstaða skilaði árangri Víðtæk samstaða náðist um gerð samninganna í febrúar. Sú sam- staða hefur haldist. Árangurinn er afrakstur þeirrar samstöðu. ASI og BSRB hafa unnið vel saman og verkalýðsfélögin hafa veitt öflugt aðhald gegn verðhækkunum. í fyrsta sinn hafa samtök atvinnurek- enda rekið áróður gagnvart fyrir- tækjunum um aðhald að verðlagi. Að þessu sinni hafa rauð strik ekki verið notuð sem einfaldur mæli- kvarði á verðbætur. Rauðu strikin hafa fremur virkað sem aðhald gegn verðhækkunum. Jákvæð af- staða almennings og samstaða þjóðarinnar um að fylgja markmið- um samninganna eftir hefur ráðið úrslitum. Vegna alls þessa hafa samningarnir verið nefndir þjóðar- sátt. Tilraunin stendur enn Þó náðst hafi betri árangur en flestir bjuggust við er nauðsynlegt að muna að tilraunin stendur enn. Hvort árangur hennar verður var- anlegur á eftir að koma í ljós. Enn- þá er nauðsynlegt að fylgja mark- miðum samninganna vel eftir og veita aðhald. Tekst okkur að halda samstöðunni á komandi ári? Ég tel að við getum verið bjart- sýn. Auðvitað veldur margt áhyggj- um: Stríðshætta við Persaflóa, hall- inn á ríkissjóði og óvissa um loðnu- veiðar. En stöðugleikinn að undan- föfnu hefur opnað nýja möguleika sem má ekki vanmeta. Fjárfestingar undanfarinna ára hafa í of miklum mæli miðast við sókn í verðbólgugróða fremur en atvinnuuppbyggingu. Nú er fjárfest af meiri yfii-vegun og víða unnið að hagræðingu og bættum rekstri. Næsta skrefið á að vera öflug at- vinnuuppbygging. Nýtt álver dugar skammt eitt sér. Við verðum að sýna frumkvæði og framtak í at- vinnulífinu almennt. Öflug álmenn atvinnuuppbygging er líklegri til að leysa vanda okkar í atvinnumál- um til frambúðar en stór stökk á afmörkuðum sviðum. Einmitt þess vegna skiptir stöðugleikinn svo miklu. Láglaunafólk fái forgang Þó við tölum um þjóðarsátt þýðir það ekki að við séum sátt við ástandið eins og það er. Þótt kaupmáttur vaxi lítillega á næsta ári er fjárhagsvandi heimil- anna alvarlegur. Einn þriðji full- vinnandi landverkafólks í ASÍ- félögunum hefur innan við 75.000 krónur í mánaðartekjur samanlagt fyrir dagvinnu, yfirvinnu og bónus. Þetta ástand má ekki vera varan- legt. í kjarasamningum næsta árs verður að gefa þessum hópum for- gang. Áframhaldið ræðst þá af því hvernig tekst til. Hálaunahópar, einnig þeir sem tekja sig hafa dregist aftur úr öðr- um hálaunahópum, verða að virða þörf þeirra tekjulægstu. Sérstök hækkun til láglaunafólks samtímis sérstökum hækkunum til hátekju- fólks er í reyndinni almenn kaup- hækkun. Að sjálfsögðu þarf kaup almennt að hækka en við verðum að gera upp við okkur hveijir skuli njóta forgangs í næstu samningum. í mínum huga er ekki vafi: Lág- launafólkið verður að fá for- gang. Arnar Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva: Framtíðin ræðst af efnahags- umhverfinu Árið 1990 hefur verið íslenskri fiskvinnslu á margan hátt hag- stætt. Hækkandi verð á afurðum okkar erlendis, raunhæfir kjara- samningar, minnkandi verðbólga 39 og lækkun fj ármagnskostnaðar skipta þar mestu máli. I upphafí ársins urðu miklar breytingar á rekstrarskilyrðum fiskvinnslunnar. Gífurlegum halla- rekstri, sem staðið hafði í tvö ár og mætt hafði verið að verulegu leyti með miklum skuldbreytingum í gegnum Atvinnutryggingasjóð útflutningsgreina og aðrar lána- stofnanir, var ekki lokið. Verðbætur á frystar afurðir sem námu 2,5% haustið 1989 og útgreiðslur úr salt- fiskdeild Verðjöfnunarsjóðs sem námu 6% féllu út um áramót. Þá hafði endurgreiddur uppsafnaður söluskattur til fiskvinnslufyrirtækja einnig farið lækkandi haustið 1989, en hann féll niður með tilkomu virð- isaukaskatts frá 1. janúar 1990. Þá lá fyrir að frekari samdráttur væri fyrirsjáanlegur í veiðum átN þorski og grálúðu á þessu ári. Auk þess voru kjarasamningar lausir um áramót og fískverð í lok janúar. Langvarandi rekstrarerfíðleikar með tilheyrandi skuldasöfnun og samdráttur í fiskvinnslu í landi, vegna aflasamdráttar, aukins út- flutnings á ferskum fiski og stærri hiutdeild frystitogara í heildaraflan- um gaf ekki tilefni til mikillar bjart- sýni í ársbyrjun. Kjaiasamningar sem marka tímamót Undirbúningur kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins hófst tölu- vert áður en þeir runnu út um síðustu áramót. Baráttan við verð- bólguna var gerð að forgangsverk- efni þessara viðræðna allt frá upp- hafi. Samningamenn allra aðila sýndu mikinn kjark og áræði í þess- um kjarasamningum sem marka tímamót hér á landi. Nú eru liðnir 11 mánuðir af tæplega 20 mánaða samningstíma og verður ekki annað sagt en að ótrúlega vel hafí tekist til með framkvæmdina. Fólk hefur vaknað til vitundar um gildi þess að halda verðbólgu niðri og stöðugt SJÁ NÆSTU SÍÐU D AlMSSKOtl BORN (yngst 4 ára) - UNGLINGAR Samkvæmisdansar - Discodansar FULLORÐSMIR (einstaklingar og pör) Samkvæmisdansar - nýir og gamlir ROCK’IM ROLL Sértímar í rokki og tjútti HIP-HOP - SOCA DANCE EINKATÍMAR (einstaklingar, pör, smáhópar) ASTVAIDSSONAR Kennsla hefst föstudaginn 11. janúar. Síðasti innritunardagur er miðvikudagur 9. janúar. REYKJAVIK, Braútarholt4, Ársel, Foldaskóli, Ölduselsskóli. HAFNARFJÖRDUR, MOSFELLSBÆR, HVERAGERDI Innritun daglega frá kl. 13-19 í símum 91-74444 og 91-20345 KEFLAVÍK, GRINDAVÍK, GARDUR, SANDGERDI, NJARDVÍK Innritun daglega frá kl. 20-21 í síma 68680. INNRITUN HEFST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.