Morgunblaðið - 30.12.1990, Blaðsíða 48
KJÖRBÓK
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLADIÐ, AÐALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Þyrla Gæsl-
unnar bilaði
sjúkraflugi
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, bilaði á Þingeyri í fyrri-
nótt, en þangað hafði hún verið
send í sjúkraflug eftir manni, sem
klemmst hafði á milli vörubíls og
húss. Maðurinn var fluttur með
varðskipi á sjúkrahúsið á Isafirði,
og var komið með hann þangað
um klukkan 9 í gærmorgun. Að
sögn lögreglunnar á Isafirði var
maðurinn í fyrstu talinn alvarlega
slasaður, en meiðsli hans reynd-
ust þó ekki eins alvarleg og á
horfði. Samfelld snjókoma var á
Vestfjörðum i fyrrinótt, og að
sögn lögreglunnar kom því aldrei
_^til greina að senda sjúkrabíl eftir
manninum, og eins þótti ekki fært
að senda flugvél frá Isafirði.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar barst ósk frá
heilsugæslustöðinni á Þingeyri um
sjúkraflug klukkan rúmlega eitt í
fyrrinótt, og var þá ákveðið að senda
varðskipið Ægi þangað, en það var
statt við Isaíjarðardjúp. Hálftíma
síðar var óskað eftir því frá Þing-
eyri að sjúk stúlka yrði einnig flutt
á sjúkrahús í sömu ferð. Laust fyrir
< _«fjilukkan hálf þrjú var hætt að snjóa
á Þingeyri, og var þyrla Gæslunnar
þá send þangað, en þar lenti hún
laust fyrir klukkan hálf fimm. Þegar
þyrlan átti síðan að fara í loftið kom
í ijós að dæla var biluð við annan
hreyfilinn, og var þá ákveðið að
senda varðskipið, sem komið var til
hafnar á Þingeyri, með sjúklingana
til Isaíjarðar.
Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar
héldu vestur til Þingeyrar í gær-
morgun til að reyna viðgerð á þyrl-
unni, en þeir varahlutir sem þarf eru
að sögn Landhelgisgæslunnar ekki
til í landinu, og því óvíst að þyrlan
verði komin í gagnið fyrr en eftir
áramót.
Skautasvellið slær ígegn
Morgunblaðið/RAX
Nýja skautasvellið í Laugardalnum hefur slegið í gegn hjá yngstu kynslóðinni í höfuðborginni. Hefur verið mikil aðsókn að svellinu síðan það
var opnað, bæði um miðjan dag og á kvöldin.
Tilmæli utanríkisráðuneytisins:
íslendingar fari brott
af átakasvæðunum
Ellefu íslendingar í Jórdaníu og tveir á Persaflóasvæðinu
ÍSLENSKA utanríkisráðuneytið
hefur beint þeim tilmælum til
Islendinga sem búsettir eru við
hugsanleg átakasvæði í Mið-
Austurlöndum að þeir haldi á
brott frá svæðinu fyrir 15. jan-
úar.
Flest ríki hafa gert svipaðar
ráðstafanir, til dæmis hafa
bandarísk stjórnvöld gert áætlun
um brottflutning 30.000 banda-
rískra þegna frá Mið-Austurlönd-
um fyrir 15. janúar nk. en þann
dag rennur sá frestur út, sem Irak-
ar hafa til að hverfa með innrásar-
lið sitt frá Kúvæt.
Benedikt Ásgeirsson hjá ut-
anríkisráðuneytinu sagði aðspurð-
Hagvangur kannar áramótavenjur:
Um 80% Islendinga kaupa
flugelda fyrir áramótin
MIKILL meirihluti íslendinga, eða tæplega 80%, kveður gamla árið
og fagnar því nýja með því að kaupa og skjóta upp flugeldum. Þá
^fer um helmingur landsmanna á brennu á gamlárskvöld, flestir eft-
./ ir að hafa snætt kvöldverð heima hjá sér. Um áramótin strengja 10%
landsmanna áramótaheit en einungis 17% fagna nýja árinu með því
að fara á dansleik, helst þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins.
Þetta eru meðal annars niður-
stöður í könnun Hagvangs þar sem
tæplega 800 Islendingar svöruðu
spurningum um áramótasiði. I ljós
tkom að flestir hafa mjög fastmótað-
ar venjur um áramót og þótt könn-
unin væri gerð snemma í desember
höfðu nær allir svör á reiðum hönd-
um.
í ljós kom að fólk minnkar flug-
eldakaup og fækkar brennuferðum
þegar börn þeirra vaxa úr grasi og
á það við hvort sem fólk býr á höf-
uðborgarsvæðinu eða úti á landi.
Áramótavenjur fólks virðast raunar
vera svipaðar hvar á landinu sem
það býr, nema hvað landsbyggð-
arbúar virðast frekar sækja ára-
mótadansleiki en höfuðborgarbúar.
Þá kom lítill munur fram á ára-
mótavenjum miili kynja. Þó virðist
sem konur strengi frekar áramóta-
heit en karlmenn. Slíkum heit-
strengingum virðist einnig fækka
þegar aldurinn færist yfir.
Sjá nánar bls. 30.
ur um áform íslenskra stjórnvalda
í þessum efnum að all nokkuð
væri síðan send hefðu verið til-
mæli til Islendinga á sjálfu Persa-
flóasvæðinu um að halda á brott
þaðan vegna styijaldarhættu.
Væri nú einungis vitað um eina
íslenska konu sem búsett væri í
Qatar auk Steinars Bergs Björns-
sonar en hann er staðsettur í
Bagdad á vegum friðargæslu-
sveita Sameinuðu þjóðanna.
Á föstudag var einnig haft sam-
band við Stefaníu Reinhardsdóttur
Khalifeh, ræðismann íslands í
Jórdaníu og þeim tilmælum beint
til Islendinga þar að þeir hefðu sig
á brott. Hún sagði að ekki væri
nákvæmlega vitað hversu margir
íslendingar væru staddir í Mið-
Austurlöndum en í Jórdaníu væru
nú ellefu íslendingar. Tveir væru
nýfarnir í burtu.
Þeir íslensku ríkisborgarar sem
enn eru í Jórdáníu eru auk Stef-
aníu og sonar hennar Amars Qa-
is, Guðrún Guðfinnsdóttir Baara,
Rami Baara eiginmaður hennar,
sem nýlega fékk íslenskan ríkis-
borgararétt og tvö börn þeirra
Achmed og Tamara; Birna Hilm-
arsdóttir Hassan, eiginmaður
hennat' Samir Hassan og þtjú
þeirra Amin Ægir, Amanda Kol-
brún og Amal.
Rýrnun
krónunnar
á árinu
1990.
Rýrnun
nýkrón-
unnar á 10
árum, frá
upphafi
árs 1981.
9,8 aurar
eftir af ný-
krónunni
MINNSTA rýrnun krónunnar
frá því er hún var tekin í
notkun í ársbyijun 1981, varð
á árinu, sem er að líða, en
rýrnunin er að þessu sinni
aðeins 9,24%. Næstminnsta
rýrnun krónunnar á þessu 10
ára tímabili varð á árinu 1986,
en þá nain hún 14,7%. Mesta
rýrnunin mun hins vegar hafa
orðið á árinu 1983, er hún
nam 35,5%.
Utreikningar þessir eru gerð-
ir á grundvelli byggingavísitölu,
en hún hækkaði á árinu 1990
um 11,52%. í upphafi árs 1981
var tekin í notkun nýkróna, sem
jafngilti 100 gömlum krónum. Á
þessum 10 árum, sem nýkrónan
hefur verið í notkun, hefur verð-
bólgan leikið hana grátt og er
hækkunin samkvæmt bygg-
ingavísitölu 1.013,11%, sem
þýðit' að krónan hefut' rýrnað
um 90,2%. Eftir standa 9,8%
nýkrónunnar. Með öðrum orðum
má segja, að 90,2 aurar hafi
glatazt, en eftir standi 9,8 aur-
ar. Byggingavísitalan, sem nú
er 173,2 stig, var í ársbytjun
1981 15,56 stig.