Morgunblaðið - 30.12.1990, Síða 17

Morgunblaðið - 30.12.1990, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 17 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, formaður Alþýðuflokksins: Meinsemdir í ríkisbú- skapnum kalla á uppskurð Ef koma á í veg fyrir að aukin skattheimta elti sívaxandi útgjöld ber brýna nauðsyn til þess að stöðva lögbundna útgjaldaþenslu ríkis og sveitarfélaga. Abyrgðarlausasta af- staðan í ríkisfjármálum er sú að hafna hvorutveggja í senn, tillögum um lækkun ríkisútgjalda og tillögum um aukna tekjuöflun, eins og ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins gerði í ríkisstjórn haustið 1988. Þá leiddi samdráttur í efnahagslífinu til skyndilegs tekjufalls ríkissjóðs og stefndi þar með í óviðunandi halla á ríkisbúskapnum. Slík afstaða, hefði hún náð fram að ganga, hefði koll- varpað vonum manna um hjöðnun verðbólgu og alið af sér vaxta- sprengingu. Yfirlýsingar um, að unnt sé að aflétta 13 milljarða skatt- heimtu og ná samt nauðsynlegum jöfnuði í ríkisbúskapnum, eru af sama toga. Bara „barbíbrellur" — fyrir kosningar. Það má heita gott, ef unnt er að halda tekjuöflun ríkis- ins innan núverandi marka (25,5%-28%) af VFL). Meinsemdin í ríkisfjármálum hef- ur verið að búa um sig á annan ára- tug. Stærsta átakið, sem mest mun- aði um til að ráða hér bót á, var skattkerfisbyltingin 1987/88. Hún styrkti tekjustofna og innheimtu- kerfi ríkis og sveitarfélaga, renndi traustari stoðum undir tekjujöfnun- arhlutverk skattkerfisins og dró úr óeðlilegum sveiflum í ríkisfjármál- um, eins og sérfræðingar OECD hafa staðfest. Sá árangur sem síðan hefur náðst er einkum fólginn í að- haldi að sjálfvirkri útgjaldaþenslu kerfisins og hefur dugað til þess að fjárlagahallinn er nú lægra hlutfall VLF en var í góðærinu fyrir 1987, aukafjárveitingar hafa verið afn- umdar og hallinn er fjármagnaður innanlands, til að spoma við þenslu- áhrifum. Hins vegar hefur ekki náðst pólitískt samkomulag inrtan núver- andi ríkistjórnar, frekar en í fyrri ríkisstjórnum á áratugnum, um að ráðast að rótum útgjaldavandans. Það mun taka a.m.k. heilt kjörtíma-. bil og þá því aðeins, að kjósendur gefi kost á myndun ábyrgrar ríkis- stjórnar eftir kosningar. Það þjóð- þrifaverk mun hins vegar ekki vinn- ast án þess að koma harklega við kaun háværra sérhagsmunahópa, sem munu að venju snúast til vamar forréttindum sínum með kjafti og klóm, innan þings sem utan. Fáum mun gefið það pólitíska þrek, sem til þarf. Til þess að svara spurning- unni undanbragðalaust skulu hér nefndar nokkrar meinsemdir í ríkis- búskapnum, sem kalla á uppskurð, ef verkið á að vinnast: * Landbúnaðarkerfið: Afnám útflutningsbóta, vaxta- og geymslugjalda, jarðræktar- og búfjárræktarstyrkja og framlaga til blýantsbænda. Breytileg jöfnunar- gjöld á innfluttar unnar matvörur til að standa undir beinum búsetu- styrkjum og framlögum í jarða- kaupasjóð. * Sjúkrahúsakerfið: Sameining hátæknispítala á SV- hominu í einn; öðrum verði breytt í hjúkranarheimili fyrir aldraða, þar sem þörfin er brýnust. * Lyfjasölukerfið: Afnám einokunar lyfsala. * Tryggingastofnun ríkisins: Stöðvun á sjálfvirkri reikningsút- skrift sérfræðinga. * Almannatryggingar og lífeyris- sjóðir: Samræming á lífeyrisréttindum frá almannatryggingum og lífeyris- sjóðum. Tekjutenging bótagreiðslna eftir það m.v. ákveðið tekjumark. * LÍN: Afnám framfærsluviðmiðunar, vextir á lán, örari endurgreiðsla lána. Afnám skerðingar lánsréttar vegna eigin aflafjár á móti. * Húsnæðislánakerfið. Stöðvun sjálfvirkra lánsloforða skv. gamla kerfinu og hækkun vaxta. Húsbréfakerfið taki við og tekju- og eignatengdar vaxtabætur. * Skólakerfið: Einn háskóli í stað 13 og lokun skóla þar sem nemendafjöldi er und- ir lágmarki rekstrarhæfrar einingar. * Ríkisstofnanir: Rannsókna- og menningarstofn- anir verði sjálfstæðar og gert að selja þjónustu sína (umfram lág- marksframlög). Þetta myndi fyrst og fremst skila sér í sparnaði í mannahaldi. * Sjávarútvegur: Veiðileyfagjald í stað ókeypis kvótaúthlutunar ti útvalinna. * Einkavæðing. Sala ríkisfyrirtækja, t.d. breyting banka og fjárfestingarsjóða í hluta- félög og sala á hlut ríkisins í áföng- um. Þetta mundi duga til að hemja síþenslu ríkisútgjalda og-mannafia- notkun hins opinbera. Þetta myndi hins vegar kosta pólitíska stórstyij- öld við fyrirferðarmikla sérhags- munahópa og ekki heiglum hent að vinna það stríð. Þetta er hins vegar skylduverk ef veija á velferðarkerfi fólks fyrir forréttindakerfi sérfræð- inga og forða því frá greiðsluþroti í framtíðinni. Þetta ætti líka að vera skylduverk þeirra sem vilja í alvöru koma í veg fyrir að skattheimtan elti stjórnlausa útgjaldaþörf. Því að þarfir kerfisins eru óseðjandi. Menn geta svo dundað sér við að krossa við einstaka liði til þess að finna út hvaða flokkar, fyrir utan Alþýðu- flokkinn, muni treysta sér til að gera það sem gera þarf til að koma í veg fyrir sívaxandi skattheimtu á komandi áram. 2. Eftir vandlega umhugsun og að fenginni reynslu er ég andvígur því að afnema heimild til útgáfu bráða- birgðalaga, þegar brýna nauðsyn ber til. Þess gerist ekki þörf þar sem ráðherrar bera ábyrgð gagnvart Al- þingi og þingið á því síðasta orðið um útgáfu laganna. Hins vegar mætti skilgreina betur skilyrði hinn- ar brýnu nauðsynjar til að fyrir- byggja misnotkun og kveða skýrar á um það, hvernig með bráðabirgða- lög skuli farið á Alþingi. T.d. með því að lögfesta að bráðabirgðalög skuli lögð fram strax eftir setningu þjóðþingsins og afgreidd svo skjótt sem kostur er. 3. Ég kýs að gefa mér það að baki spurningar um kauphækkun ráð- herra búi það jákvæða hugarfar að erfitt kunni að reynast í framtíðinni að laða hæfíleikafólk til starfa á Alþngi og í ríkisstjórn, vegna bágra kjara. Af því tilefni skal upplýst, skv. heimild fjármálaskrifstofu ut- anríkisráðuneytisins, að mánaðar- legar launagreiðslur (að meðaltali) til t.d. utanríkisráðherra, að viðbætt- um dagpeningagreiðslum, námu á árinu 1990 kr. 285.490 kr./mán. eftir skatta (þingfarakaup og ráð- herralaun samtals). Svo geta hæfi- bráðabirgðalaga. Innan stjómar- skrárnefndar hef ég flutt tillögur um slíkar breytingar á stjórnarskrá lýð- veldisins. Þær hafa hins vegar strandað á afstöðu fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins og Framsóknar- flokksins. Vald til útgáfu bráða- birgðalaga er arfleifð frá stjórnar- háttum sem nú eru úreltir og þjóðfé- lagsskipan sem fyrir löngu heyrir sögunni til. Á okkar tímum er lítill vandi að kalla þing saman með litlum fyrii-vara. í reynd væri skynsamlegt að breyta þingstörfum á þann veg að Alþingi sæti frá septemberbyrjun til jóla og fjárlög væra lögð fram mun fyrr en nú er. Slíkar hugmynd- ir hef ég kynnt á síðustu tveimur árum á Alþingi, en þær hafa því miður ekki notið nægilegs stuðnings. Síðan kæmi Alþingi aftur saman seinni hluta janúarmánaðar og sæti fram í miðjan apríl. Þá yrði, tekið mánaðarhlé og þingstörf hafín að nýju frá miðjum maí til júníloka. Sumarleyfi Alþingis yrði þá eingöngu í júlí og ágúst. Ef setja þyrfti lög í þinghléum væri hægt að kalla þing- menn saman með litlum fyrirvara. Það er tími til kominn að Alþingi breyti starfsháttum sínum í takt við nútímann. 3. Það er rangt að dagpeningar til ráðherra og þingmanna eigi að vera tekjuauki. Dagpeningar eiga ein- göngu að vera greiðslur fyrir þann kostnað sem hlýst af dvöl við skyldu- störf erlendis. Núverandi skipan þarf að breyta, en sú breyting á ekki aðeins að taka til ráðherra og þing- manna, heldur einnig til embættis- manna, bankastjóra og starfsmanna Seðlabankans og viðskiptabanka sem eru í eigu ríkisins sem og stjórnenda annarra ríkisstofnana og ríkisfyrir- tækja eða sameignarfyrirtækja ríkis og sveitarfélaga eins og Landsvirkj- unar. Ef laun eiga að ákvarðast af lög- máli framboðs og eftirspurnar þarf ekki að hækka laun þingmanna og ráðherra því að framboðið er greini- lega meira en eftirspurnin. Jafnvel aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins er reiðubúinn að lækka verulega í laun- um til að ná því takmarki að setjast á þing. 4. Ákvörðun Svía að sækja um aðild að Evrópubandalaginu breytir vissu- lega eðli samstarfsins innan EFTA og hefur áhrif á samninga EFTA og Evrópubandalagsins. Þegar viðræður EFTÁ og Evrópubandalagsins hófust var ætlunin að þróa sjálfstætt sam- starf tveggja viðskiptabandalaga. Ákvörðun Svíþjóðar og Austurríkis að sækja um aðild að Evrópubanda- laginu hefur breytt eðli viðræðna EFTA og EB. Þær verða nú í aukn- um mæli æfingastöð fyrir þau ríki EFTA sem óska inngöngu í Evrópu- bandalagið. Þess vegna er nauðsyn- legt að Islendingar athugi rækilega að breyta um form á viðræðum okk- ar við Evrópubandalagið. Rökin fyrir tvíhliða viðræðum eru nú sterkari en áður. Hagsmunir íslendinga sem fiskveiðiþjóðar eru allt aðrir en iðnr- íkjanna Svíþjóðar og Austurríkis, sem keppa um aðild að Evrópubanda- laginu við fyrsta tækifæri. Þátttaka íslendinga í viðræðum EFTA og EB var rétt á sínum tíma til að styrkja samningsstöðu Islands og enn eigum við að halda áfram þátttöku í þeim viðræðum. Hins veg- ar væri það skortur á raunsæi að neita að horfast í augu við það að innan tíðar gætu tvíhliða viðræður orðið hagkvæmasti kosturinn fyrir íslendinga. Þátttaka okkar í viðræð- um EFTA og Evrópubandalagsins um nýtt evrópskt efnahagssvæði má ekki verða að trúarbrögðum þótt ein- stakir stjórnmálamenn hafi fjárfest mikið í því ferli. Raunsætt mat á hagsmunum íslendinga er það sem hlýtur að ráða för. Samstarfsþjóðir okkar innan EFTA hafa með sjálf- stæðum ákvörðunum sínum breytt eðli viðræðna EFTA og Evrópu- bandalagsins. Það er ekki víst að það þjóni íslenskum hagsmunum til lengdar að hengja okkar vagn aftan í aðildarkerru Svíþjóðar og Aust- urríkis. Ákvörðun Svía að sækja um aðiid að Evrópubandalaginu mun hins vég- ar í bráð ekki hafa mikil áhrif á Jón Baldvin Hannibalsson leikamenn með pólitískan áhuga gert sinn kjarasamanburð. Nú er mér ekki kunnugt um hver. era t.d. mánaðariaun ritstjóra eða aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, sem spyr þessarar spurningar. Laun hjá einkafyrirtækjum eru oftar en ekki meðhöndluð sem leyndarmál, en til þess að unnt sé að svara spurn- ingunni út frá marktækri viðmiðun væri hentugt ef fyrirspyijandi vildi- vera svo góður að upplýsa lesendur Morgunblaðsins um sín laun. BHMR-deilan var, eftir á að hyggja, um kjarasamanburð, annars vegar markaðslauna og hins vegar launa í opinbera geiranum. Eftir því sem mér var tjáð eru laun ritstjóra og fjölmiðlastjóra að jafnaði hærri en ráðherra. Vonandi verð ég leiðrétt- ur, ef það reynist rangt. Alla vega tek ég eftir því að ráðherralaun — dagpeningar meðtaldir — virðast vera frá þriðjungi til helmings for- stjóralauna (skv. heimild Fijálsar verslunar). Þau virðast einnig vera mun lægri en laun ríkisforstjóra, háembættismanna, bankastjóra, sveitarstjórnarmanna og verkalýðs- leiðtoga. Svo ekki sé nú minnst á lyfsala, sérfræðinga í læknastétt, tannlækna, endurskoðendur, skip- stjóra eða góðbændur, svo eitthvað sé nefnt. Fróðlegt væri að fá þennan kjarasamanburð brotinn niður í tímakaup m.v. vinnutíma, ótekin og ógreidd sumarleyfí o.s.frv. Nú tek ég eftir því að t.d. aðstoð- arritstjóri Morgunblaðsins, sem orð- ar spurninguna, er að því er virðist reiðubúinn að fórna sér til setu á Alþingi og hugsanlega í ríkisstjórn þótt það kosti hann e.t.v. hýrudrátt. Af því álykta ég að ekki sé endilega nauðsynlegt að hækka ráðherralaun til þess að störf af því tagi freisti atorkusamra hæfileika- og hug- norrænt samstarf. Það mun á næstu árum verða í föstum skorðum. Ef Noregur og Finnland ganga í hóp þeirra ríkja sem gerast aðilar að Evrópubandalaginu mun norrænt samstarf breytast allveralega. Sá tími hins vegar ekki kominn. 5. Stjórnkerfi Sovétríkjanna hefur á einu ári breyst í grundvallaratriðum. Einstök lýðveldi innan Sovétríkjanna eiga nú kost á að þróa efnahag- skerfi á sjálfstæðan hátt og fylgja í auknum mæli sjálfstæðri utanríkis- stefnu. Sovétríkin geta því hæglega á næstu misserum liðast í sundur á þann einfalda hátt að einstök lýð- veldi ákveði að ganga eigin braut og valdhafarnir í Kreml sýni þá skyn- semi að beita ekki hernum til að afstýra slíkri þróun. Sovétríkin í nú- verandi mynd gætu því vissulega verið úr sögunni við lok ársins 1991. Hins vegar gæti áfram verið til húsa innan gömlu keisarahallarinnar í Kreml samskiptamiðstöð fyrir sjálf- stæð lýðveldi sem áfram kysu að halda vissum tengslum. Eðli þeirra „Sovétríkja" væri þó orðið svo fram- andi leiðtogum októberbyltingarinn- ar að flestum fyndist sjálfsagt að flytja líkama Leníns af viðhafnarbör- unum í grafhýsinu framan við Kreml- armúrana og jarðsetja hann loksins í venjulegri moldargröf. sjónamanna, þrátt fyrir allt — og svara því spurningunni neitandi. Að því er varðar fyrri hluta spurn- ingarinnar skal tekið fram að um greiðslu dagpeninga í erindrekstri erlendis fer eftir reglum, sem settar voru í fjármálaráðherratíð Halldórs E. Sigurðssonar 1971. Sömu reglur hafa því gilt um alla ráðherra, að- stoðarráðherra, ráðuneytisstjóra etc. allar götur síðan, eða í tæpa tvo áratugi og þótti engum fréttnæmt fyrr en nú. Eina breytingin síðan er einmitt í tíð þeirrar ríkisstjórnar, í fjármálaráðherratíð Matthíasar Á. Mathiesen, en þann 22.05.75 var ákveðið 20% álag á dagpeninga ráð- herra. Einu afskipti mín af málinu eru hins vegar þau að sem fjármála- ráðherra kom ég því til leiðar að þessar greiðslur era skattskyldar og skattlagðar — eins og önnur laun. Áður voru þær skattfijálsar. 4. Fyrst ber að leiðrétta þann mis- skilning fyrirspyijanda að Svíar hafi sótt um aðild að Evrópubandalaginu. Það hafa þeir ekki gert. Sænska þingið hefur hins vegar samþykkt stefnumarkandi ályktun, þar sem þeim vilja er lýst, að uppfylltum viss- Um skilyrðum. Eitt skilyrðið er að aðild Svíþjóðar að EB samrýmist hlutleysisstefnu Svía, þ.e. að Svíþjóð verði áfram utan varnarbandalaga. Það er hins vegar yfirlýst stefna EB að pólitískt samstarf bandalagsríkja nái einnig til öryggis- og varnar- mála. Það erþví óséð, hvernig Svíum- tekst að semja sig inn í EB síðar a áratugnum, á grundvelli þessarar stefnuyfirlýsingar. Um áhrif þessarar stefnuyfirlýs- ingar er það fyrst að segja að sá ráðherra sænsku ríkisstjórnarinnar, sem fer með samskiptin við EB, Anita Gradin, hefur lagt á það ríka áherslu við samstarfsaðila sína innan EFTA, að þessi framtíðaráform Svía bréyti í engu fullri samstöðu Svía með hinum EFTA-ríkjunum í samn- ingum við EB á næsta ári um mynd- un evrópsk efnahagssvæðis. Að því er varðar viðbrögð annarra vakti það mesta athygli að Koivisto, Finn- landsforseti, frábað finnskum stjórn- völdum, að Svíar tækju ákvörðun fyrir þá í þessu efni. Svipuðum við- horfum var lýst af hálfu norskra og íslenskra stjómvalda. Út frá íslenskum hagsmunum er það mitt mat, að takist okkur að tryggja tollfijálsan aðgang sjávaraf- urða að mörkuðum hins evrópska efnahagssvæðis verði engin knýjandi nauðsyn fyrir íslendinga að sækja um fulla aðild að bandalaginu hvað svo sem Svíar kunna að gera. Hins vegar kann það að koma til álita síðar á áratugnum. Bandalagið er í örri þróun. Svo kann að fara að skipbrot hinnar sameiginlegu fisk- veiðistefnu knýi EB um það er lýkur til að falla frá verndarstefnu sinni í sjávarútvegs- og landbúnaðarmál- um. Þá ber að metá stöðuna að nýju, í ljósi breyttra aðstæðna. 5. Vera má að draumur Amalriks frá 1984 rætist á næsta ári. Samkvæmt frumvarpi því til sambandslaga, sem nú liggur fyrir sovéska þinginu, verður sambandsríki sósíalískra ráð- stjórnarlýðvelda skv. núv. stjórnar- skrá ekki lengur til, verðí frumvarp- ið að lögum. í staðinn kemur eins konar ríkjasamband fullvalda lýð- velda. Ennfremur eiga aðildarríkin að eiga lagalegan rétt, samkvæmt flóknum skilmálum, til að segja sig' úr lögum við sambandsríkið. Alla vega leyfi ég mér að láta í ljósi þá von að þau ríki, sem í upp- hafi seinni heimsstyijaldarinnaf voru hernumin ög innlimuð í ríkja- sambandið með ofbeldi verði ekki þvinguð til þess að vera þar áfram, gegn vilja sínum og gegn grundvall- arreglum þjóðaréttar. Hér á ég fyrst og fremst við Eystrasaltsríkin þijú, Eistland, Lettland og Litháen. Von- andi bera aðildarríki Ráðstefnunnai' um samvinnu og öryggi í Evrópu, og þá sérstaklega lýðræðisríki Evr- ópu og Ameriku, gæfu til að virða í verki grundvallarreglur Helsinki- sáttmálans og Parísar-yfirlýsingar- innar um sjálfsákvörðunarrétt þjóða og helgustu mannréttindi. Fyrr verð- ur ekki endir bundinn á þann langa hörmungarslóða, sem seinni heims- styijöldin leiddi yfír þjóðir Evrópu. ■

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.