Morgunblaðið - 30.12.1990, Page 18

Morgunblaðið - 30.12.1990, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 Málmfríður Sigurðardóttir alþingismaður, formaður þingflokks Kvennalistans: Afnema ber rétt til útgáfii bráðabirgðalaga i. Eins og á öðrum heimilum er mikilvægt að á þjóðarheimilinu haldist tekjur og útgjöld í hendurj að ekki sé eytt um efni fram. I ríkiskerfinu er víða hægt að draga úr útgjöldum en á mörgum sviðum- þarf hins vegar meira fjármagn. Má í því sambandi minna á mennta- og menningarmál. Sívax- andi halli ríkissjóðs er vandi sem verður að ráða fram úr og verður varla hjá því komist að enaurskoða bæði tekju- og útgjaldahlið þess dæmis. Og þá skipta áherslurnar öllu máli. Kvennalistakonur telja t.d. fráleitt að auka skattheimtu af almennum launatekjum en hins vegar nauðsynlegt að breyta skattlagningunni í réttlætisátt. Skattbyrði þeirra sem hafa meðal- tekjur eða minna er of þung. Hana þarf að létta en ætla hinum tekju- hærri stærri hluta byrðarinnar. Kvennalistakonur hafa ávallt talið það réttlætismál að skattþrep væru tvö eða fleiri. Sömuleiðis teljum við að skattleggja beri fjár- magnstekjur þegar aðstæður í efnahagslífinu leyfa, en í því efni þarf að fara með gát þar eð slík skattlagning leiðir að líkindum til hækkunar vaxta. Loks má nefna að kvennalistakonur telja eðlilegt að skattleggja mengandi atvinnu- starfsemi sérstaklega. Ekki er síður þörf á að ráðast að rlkisút- gjöldunum, endurskipuleggja þau og breyta áherslum. Endurskoða verður tilgang og starfshætti ríkis- stofnana með hagsýni og sparnað að leiðarljósi. Við slíka endur- skipulagningu verður velferð heimilanna að vera í fyrirrúmi. Undir því er velferð þjóðfélagsins í heild fyrst og fremst komin. 2. Kvennalistakonur hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um að afnema rétt til útgáfu bráðabirgðalaga. Þannig hefur af- staða okkar komið skýrt í ljós. Þó að ekki séu allir á því að. afnema beri þennann rétt með öllu munu flestir aðhyllast þá skoðun að þrengja beri verulega vald ríkis- stjórna til útgáfu slíkra laga. Ýmsar leiðir má benda á í því sambandi. Breyta mætti þingsköp- um í þá veru að Alþingi sé ekki slitið að vori eins og nú tíðkast, heldur sé því frestað til hausts og ekki slitið fyrr en daginn áður en nýtt þing er sett. Sé þessi háttur hafður á er auðvelt að kalla þing- ið saman með stuttum fyrirvara hvenær sem upp koma mál sem þarfnast skjótrar afgreiðslu. Sam- göngur eru nú með þeim hætti að telja má þetta auðvelt mál, en ein helsta ástæða þessarar lagaheim- ildar var sú að fýrr á tímum var ógerlegt að kveðja þing saman með skömmum fyrirvara vegna erfiðleika í samgöngum. Kvennalistakonur telja að heim- ild til útgáfu bráðbirgðalaga hafi verið freklega ofnotuð á seinni árum, einkum í sambandi við kjarasamninga. Að okkar mati er þessi heimild úrelt — leifar frá eldri þjóðfélagsháttum og skipu- lagi sem nú er liðið undir lok. 3. Dagpeninga á ekki að nota sem tekjuauka í gjaldeyri, hvort sem um er að ræða ráðherra, þingmenn eða aðra sem reka erindi þjóðar- innar erlendis. Núgildandi fýrir- komulag er óeðlilegt og býður upp á mismunun og spillingu, ýtir jafn- vel undir ónauðsynleg ferðalög eins og forsætisráðherra hefur sjálfur bent á. Til að leiðrétta út- breiddan misskilning er rétt að benda á að þingmenn og ráðherrar sitja ekki við sama borð hvað varð- ar slíkar greiðslur. Reglan er sú að þingmenn sem ferðast í opin- berum erindum greiði allan kostn- að vegna þeirra af sínum dagpen- ingum nema fargjöldin. Eðlilegt Málmfríður Sigurðardóttir er að útlagður kostnaður sé greiddur en ferðalög opinberra aðila eiga ekki að vera þeim tekju- lind. Miðað við launataxta opin- berra starfsmanna sé ég engin efni til þess að hækka laun þing- manna og ráðherra. 4. Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, verða augljóslega veikari ef Svíar fylgja dæmi Austurríkis- manna og sækja um aðild að EB og ganga í bandalagið á næstu árum. Þrátt fyrir þetta er ekki tímabært að dæma EFTA úr leik. Andstaða almennings í Noregi fer nú sífellt harðnandi gegn því að Norðmenn gerist hluti af EB og er jafnvel talað um að svipað ástand sé að skapast og varð árið 1972 þegar Norðmenn höfnuðu Júlíus Sólnes umhverfisráðherra, formaður Borgaraflokksins: Enginn viröist ráða við ríkisijármálin 1. Mikil umræða hefur átt sér stað um skattamál að undanförnu. Að venju hefur stjórnarandstaðan tal- að um mikla skattpíningu, sem núverandi ríkisstjórn standi að, á meðan sumir ráðherrar í ríkis- stjórninni benda á, að nauðsynlegt sé að hækka skatta til að standa undir því velferðarkerfi, sem við höfum komið okkur upp. Hefur í því sambandi verið bent á, að flest ríki OECD séu með hærra skatt- hlutfall. en gerist á íslandi. Ef litið er til baka hafa skattar ríkisins sem hlutfall af þjóðar- framleiðslu hækkað hægit og sígandi hin seinni ár. Á yfirstand- andi kjörtímabili er áberandi sú aukning, sem varð milli áranna 1987 og 1988 í tíð ríkisstjómar Þorsteins Pálssopar, en þá voru skátttekjúr ríkisins auknar um nærri 50% og skatthlutfallið hækkaði úr 22,1% í 23,8% af vergri landsframle.iðslu, VLF. Aft- ur varð aukning á tekjum ríkisins milli áranna 1988 og 1989 hjá fyrri ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar og komst skatthlut- fallið þá í 25,3% af VLF. Eftir myndun seinni ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar með þátttöku Borgaraflokksins varð samkomulag um, að heildarskatt- ar ríkisins yrðu ekki auknir. Eru fjárlög ársins 1991 miðuð við, að skatttekjur ríkisins aukist ekki, en þar sem samdráttur þjóðar- framleiðslu hefur átt sér stað, hefur hlutfallið hækkað í 26,2%. Þrátt fyrir síauknar tekjur ríkisins sígur á ógæfuhliðina og útgjöld halda áfram að vaxa hrað- ar en tekjurnár. í raun er svo komið, að enginn virðist fá við neitt ráðið og skiptir engu máli hver stjómar landinu. Útgjöld ríkisins aukast meira eða minna sjálfvirkt og þyrfti stöðugt að hækka skatta til að halda í við þau. Það myndi ekki hjálpa mikið þótt skattar eitt árið yrðu hækk- aðir svo mikið, að ríkissjóðshallan- um yrði eytt. Þá myndi aðeins slakna á útgjaldsbremsunni og fljótlega yrði aftur kominn veru- legur ríkissjóðshalli. Aftur yrði farið að tala um að hækka þyrfti skatta og svo koll af kolli. Eina leiðin út úr þessum vanda er því að endurskoða allan ríkis- reksturinn. Það kann svo að fara, að íslendingar verði að sætta sig við eitthvað ófullkomnari þjónustu en nágrannalöndin í Vestur-Evr- ópu, sem hafa míiljónir skatt- þegna tii að standa undir sam- neyzlunni. Það er til ansi mikils ætlazt, að 250 þúsund manns haldi uppi fullkomnasta velferð- arríki á Vesturlöndum, reki marga háskóla, tónlistarhallir m.fl. Hugsanlega er hægt að ná fram sparnaði og meiri aðhaldssemi í ríkisrekstrinum með því að gera ríkisstofnanir sjálfstæðari og draga úr miðstýringunni. Færa bæði völd og verkefni út í Iands- hlutana og gera heimastjórnir ábyrgar fyrir fjármálalegum rekstri, bæði heilbrigðiskerfis, skóla og samgöngukerfa innan þess fjárlagaramma, sem Alþingi setur. Þessa leið ber skilyrðislaust að fara fremur en hækka skatta. 2. Ég held, að tími sé kominn til að endurskoða stjórnarskrána með tflliti til setningar bráða- birgðalaga. Svo virðist sem setn- ingu bráðabirgðalaga hafi verið beitt í ríkara mæli á íslandi en ■tíðkast á hinum Norðurlöndunum. Fyrir þessu voru gildar ástæður svo sem stutt þinghald, erfiðar samgöngur og fleira, sem gerði það nauðsynlegt að setja bráða- birgðalög, þegar aðstæður í þjóð- félaginu kölluðu á slíkt. Ég er þeirrar skoðunar, að ekki eigi að afnema þennan rétt ríkisstjórnar á hverjum tíma, en þó athugandi að þrengja hann verulega. Til dæmis má hugsa sér að kalla Al- þingi frekar saman yfir sumar- ttmann ef nauðsyn krefur. Alltaf geta þó komið aðstæður í þjóðfé- iaginu, sem kalla á bráðabirgðalög til að forðast stórtjón og standa vörð um almenningsheill. 3. Sú umræða, sem hefur átt sér stað um dagpeninga ráðherra og alþingismanna, er táknræn fyrir þann tekjusamdrátt sem orðið hefur hjá launþegum vegna hlut- Júlíus Sólnes fallslega minnkandi þjóðartekna og er því ofureðlileg. Hún á sér gjaman stað þegar illa árar í þjóð- félaginu. Hins vegar gætir mikils tvískinnungs í umræðinni. Þeir stjórnarandstöðuþingmenn, sem nutu góðs af dagpeningakerfi og bílafríðindum ráðherra fyrir stuttu síðan og þögðu þá þunnu hljóði fyllast nú heilagri vandlætingu yfir þessum fríðindum ráðherra í ríkisstjórn Islands, sem hafa verið óbreytt um margra ára eða ára- tuga skeið. Svo er um ráðherra og þing- menn sem flesta aðra ríkisstarfs- menn, að laun þeirra eru orðin frekar lág miðuð við hinn almenna vinnumarkað. Sem alþingismaður getur einstaklingur aflað sér við- bótartekna á ýmsan hátt, sem reyndar er nauðsynlegt, miðað við, að laun þeirra eru um 150 þúsund kr. á mánuði. Það getur ráðherra ekki, þar sem hann verð- ur að sinna vinnu sinni nótt sem nýtan dag og vera til taks hvenær sem er. Ráðherralaunin eru nú um 260 þúsund kr. á mánuði með þingfararkaupi. Þau eru því.aðeins því í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga í Efnahagsbandalagið. Af- staða Finna er enn óráðin. Greini- legt er að íslendingar eru æ betur að átta sig á að hagsmunum smá- þjóðar eins og okkar er best borg- ið með fijálsum viðskiptum við sem flest markaðssvæði í stað þess að lokast af innan Evrópu- bandalagsins. Norrænt samstarf þarf í sjálfu sér ekki að breytast eða bíða alvar- legan hnekki þótt þeim Norður- löndum fjölgi sem eru aðilar að EB. Samstarf Norðurlanda hefur verið mjög takmarkað á sviði efna- hagsmála en þeim mun þýðingar- meira á sviði menningar- og fé- lagsmála. 5. Sú jákvæða þróun sem orðið hefur í lýðræðisátt í Austur-Evr- ópu verður vonandi ekki brotin á bak aftur af þeim öflum sem telja einræði og miðstýringu nauðsyn- lega stjórnarhætti. Þó að miklar og örar breytingar hafí orðið á síðasta ári í Áustur-Evrópu er óllk- legt að þróunin verði sú að sov- éska ríkjasambandið liðist í sundur á árinu 1991. Vissulega má búast við að Sovétríkin breytist. Ómögu- legt er að segja fyrir um hvort öll lýðveldin muni krefjast fullveldis eins og Eystrasaltslöndin hafa þegar gert eða hvort þau sjá hag sínum betur borgið innan Sov- étríkjanna, en það fer eftir því hvernig stjórnarhættir þróast á næstu mánuðum. Ljóst er að óbreytt Sovétríki munu ekki lifa lengi. Almenningur í Sovétríkjun- um hefur hafnað þeim stjórnar- háttum sem ríkt hafa og vill breyt- ingar. Hver svo sem þróunin verð- ur er mikilvægast að vilji fólksins fái að ráða. um þriðjungur þeirra launa, sem t.d. bankastjórar ríkis- og við- skiptabankanna hafa. Flestir for- stjórar einkafyrirtækja, margir iðnaðarmenn og sjómenn myndu fussa og sveia við þeim launakjör- um sem ráðherrar og þingmenn búa við. í því ljósi virkar umræðan um dagpeninga ráðherra fremur hjátkátleg. Eg er þó fylgjandi því, að laun ráðherra og þing- manna verði hækkuð og í staðinn verði útlagður ferðakostnaður greiddur. 4. Það hlýtur að vera ljóst, að umsókn Svía um aðild að EB veik- ir fríverzlunarbandalagið EFTA enn frekar. Virðist nú margt benda til þess, að það kunni að flosna upp nema takist að ná samningum um hið evrópska efna- hagssvæði. EFTA fær þá lykil- hlutverk, sem er að fylgjast með yfirstjórn mála innan efnahags- svæðisins fyrir hönd aðildarríkja sinna, þótt þeim kunni að fækka. Annars getur vel farið svo, að hagur EFTA kunni að vænkast með samstarfi við Austur-Evr- ópuríkin, sem knýja nú dyra hja EFTA. Fríverslunarbandalagið er talið hentugur biðsalur fyrir þau ríki, sem hyggjast ganga í Evr- ópubandalagið. Hvað varðar hið norræna sam- starf er ekki séð, að það þurfi að breytast þótt fleiri Norðurlönd en Danmörk gangi í Evrópubanda- lagið. Norrænt samstarf byggist fyrst og fremst á samvinnu um menningarmál og samskiptum íbúa Norðurlandanna, sem þurfa ekki breytast þótt hluti þeirra eigi einnig aðild að Evrópubandalag- inu. 5. Þótt erfitt sé að átta sig á þró- un mála í Sovétríkjunum verður ekki annað séð en þau muni verða til áfram, þótt einhver ríkjanna kunni að geta rifið sig laus frá ríkjasambandinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.