Morgunblaðið - 30.12.1990, Side 28

Morgunblaðið - 30.12.1990, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 Félagsheimilið Sæborg upplýst í kvöldhúminu. Morgunbiaðið/Amór ^Nýtt samkomuhús í Garðinum: Verkalýðsfélagið opnar nýtt félagsheimili Garði. Helgina 15.-16. des. sl. bauð Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps bæjarbúum og öðr- um velunnurum félagsins í kaffi og meðlæti í tilefni af formlegri opnun nýs félagsheimilis sem hlotið hefir nafnið Sæborg. Hátt í 300 manns komu báða dagana en dagskrá helgarinnar var fjöl- breytt, m.a. var málverkasýning í húsinu og ýmsar tónlistaruppá- komur. Bygging hússins hefir gengið mjög vei. Það var á haustdögum í fyrra að hafist var handa og var öll frumhönnun og teiknun hússins gerð af stjórn og trúnaðarmanna- ráði félagsins. Að sögn formanns félagsins, Jóhannesar Guðmunds- sonar, náðist með þessum vinnu- brögðum sá árangur sem til var ætlast í upphafi. Slegið var upp fyrir byggingunni um mánaðamótin apríl/maí í vor og reis húsið með ógnarhraða og var tilbúið undir tréverk í júlí. Nær allir verkhlutar voru í höndum heimamánna. í nyrðri hluta hússins verður Tónlistarskóli Gerðahrepps með aðstöðu og hefir verið samið við verkalýðsfélagið til 10 ára um leigu á tæplega 90 fermetrum. Var sá samningur gerður áður en endan- legri hönnun hússins lauk og eru hurðir og milliveggir í þeim hluta hússins sérstaklega hannaðir að kröfum tónlistarskólans. ■ Jóhannes Guðmundsson sagði að húsið væri hannað fyrir fjölbreytta starfsemi og væri stefnt að því að byggja upp eins fjölbreytt félags- starf og mögulegt væri. Nú þegar hefir húsið verið pantað nokkra daga vikunnar en vonandi verður eitthvað að gerast fiest kvöld og um helgar. Félagsheimilið Sæborg er um 275 fermetrar og er byggingar- kostnaður um 18 milljónir króna. Arnór Jóhannes Guðmundsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Gerðahrepps á hinni nýju skrifstofu félagsins. Kraftur og áræði formannsins og góðra samstarfsmanna skilaði húsinu upp á mettíma. ■'— Garðmenn flykktust í hundruðatali í nýja húsið um helgina. Boðið var upp á kaffi og menningu. Oþekktarormur og afleitt fólk Kvikmyndir Scebjöm Valdimarsson Laugarásbíó: Prakkarinn - „Problem Child“ Leiksljóri Dennis Dugan. Að- alleikendur John Ritter, Mic- hael Oliver, Jack Warden, Amy Yasbeck, Gilbert Gottfri- ed. Bandarísk. Universal 1990. Það gengur hvorki né rekur hjá þeim hjónakornum Ritter og Yasbeck að eignast -erfingja, báðum til mikillar mæðu sem stafar af ólíkum ástæðum. Ritter Vill verða fyrirmyndarfaðir en Yasbeck sér í afsprenginu að- göngumiða að tilverurétti I aug- um ríkisbubba hverfisins — sem allir eiga sæg erfingja — í gegn- um barnaafmæli og jólaboð. Þau grípa því til þess ráðs að ættleiða frísklegan, átta ára strákpatta þegar fokið hefur í öll skjól. En hann er ekki allur þar sem hann er séður, heldur snaróður hrek- kjalómur sem engu eirir, vantar eiginléga ekkert annað en hornin og halann og er nú farinn að gera þrítugustu stjúpforeldrun- um lífið leitt. Fer vel af stað en fljótlega missir myndin jafnvægð, gama- nið verður heldur stórkarlalegt án þess að skerpa ádeilubroddinn á ástleysi og eigingirni uppalend- anna. En myndin á nokkra góða spretti, strákhvolpurinn er skemmtilega andstyggilegur, Ritter er bærilegur gamanleikari sem kemst nokkuð vel frá föður- hlutverkinu en Yasbeck er afleit leikkona. Lífleg barna- og ungl- ingaskemmtun. Disney á dönskum skóm Bíóhöllin/Bíóborgin Litla hafmeyjan — „The Little Mermaid“ Leikstjóri John Musker. Bandarisk. Walt Disney 1989. Eftir árabil er loksins komin löng teiknimynd frá Disney og er biðarinnar vel virði. Að þessu sinni er efnið sótt í smiðju ævin- týraskáldsins danska H.C. And- ersen því ævintýrið um Litlu hafmeyjuna er haft til grundvall- ar þessari samnefndu mynd þó ýmsu sé sleppt og annað fegrað. Sagan af litlu hafmeyjunni sem varð ástfangin af mennska prinsinum er eitt frægasta ævin- týri góðskáldsins ljúfa og hér fær það sígilda Disney-meðhöndlun. Hvergi er veikan punkt að finna ef undan eru skilin heldur líflítil átök góðs og ills, ef miðað er við ævintýrið einsog það er á pappímum og mörg hliðstæð verk Disney-fyrirtækisins. En það er aukaatriði. Sagan rennur listilega áfram í hrífandi tónum og teikningum. Litla hafmeyjan, dóttir sjávarsjólans Trítons, er hugfangin af mannheimum, sem birtast þegar hún stelst uppá yfirborðið í fylgd með vini sínum, humrinum Sebastian. Og ekki dofnar áhuginn er hún sér prins- inn fagra sem hún bjargar svo úr lífsháska. En nornin illa hefur annað á pijónunum hafmeyjunni til handa en' farsælan endi þó hún selji henni fætur og þijá daga á þurru til að ná ástum prinsins ... Að venju eru persónurnar lit- skrúðugar og Sebastian sér um fjörið. Mörg atriðin eru bæði undur falleg og bráðskemmtileg og Óskarsverðlaunatónlistin hin listilegasta. Allir þættirnir renna saman á hrífandi hátt í nokkrum afburðagóðum atriðum einsog undir laginu „Kiss the Girl“, hápunkti á yndislegri fjölskyldu- skemmtun, sannkallaðri jóla- mynd. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Skáparnir sem útvegsbændurnir gáfu varðveita skipslikönin. Útvegsbændur í Eyjum færa Byggðasafninu gjöf Gjöfin sem Útvegsbændafélagið færði safninu voru glerskápar utan um skipslíkön sem á safninu eru. Líkönin gaf Grímur Karlsson, skip- stjóri og útgerðarmaður í Njarðvík, og eru þau af Eyjaskipum sem settu svip á Eyjaflotann á árum áður. Sigmundur Andrésson safnvörð- ur þakkaði útvegsmönnun gjöfina og sagði að hún gerði mögulegt að varðveita bátslíkönin á þann hátt sem nauðsynlegt væri. Grímur Vestmannaeyj u m. ÚTVEGSBÆNDAFÉLAG Vestmannaeyja færði Byggða- safni Vestmannaeyja gjöf fyrir skömmu, í tilefni 70 ára af- mælis félagsins. Hilmar Rós- mundsson, formaður félags- ins, afhenti Sigmundi Andrés- syni safnverði gjöfina við smá athöfn á Byggðasafninu. Hilmar Rósmundsson, formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, afhendir Sigmundi Andréssyni, safnverði Byggðasafnsins, gjafabréfið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.