Morgunblaðið - 30.12.1990, Síða 35

Morgunblaðið - 30.12.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1990 35 Afmæliskveðja: Valgerður Þorsteinsdóttir Valgerður, amma mín, verður 80 ára á gamlársdag. Hún fæddist í Gröf í Kirkjuhvammshreppi V-Hún. Foreldrar hennar voru Sigríður Pálmadóttir og Þorsteinn Jónsson. Amma var þriðja í röðinni af fjórum systkinum. Elstur var Hrólfur, sem fórst með b/v Péturey á stríðsárun- um, þá Hansína, gift Agli Ólafi Guðmundssyni á Hvammstanga, og yngstur er Jon, giftur Lovísu Berg- þórsdóttur, búsettur á Seltjarnar- nesi. Engrar skólagöngu naut hún umfram barnaskóla eins og almennt tíðkaðist í þá daga, en þrátt fyrir það hefur mér aldrei fundist það há henni neitt, því hún er vel lesin og hefur alla tíð fylgst vel með þjóð- málum og hefur ákveðnar skoðanir á málefnum líðandi stundar. Þar sem tækifæri til menntunar voru almennt fá, þá varð hún ung að fara að vinna fyrir sér. Tvítug réðst hún í vist til Hannesar, kaup- félagsstjóra á Hvammstanga, og vann þar öll hin algengustu þjón- ustustörf. Þann 29. október 1932 giftist amma honum afa, Guðmundi Gísla- syni brúarsmið, fæddum 25. mars 1907 á Klömbrum í Vesturhópi. Þau stofnuðu heimili á Hvammstanga og hafa búið þar síðan. Þar sem afi var langdvölum að heiman fyrstu hjúskaparár þeirra við brú- arsmíðar, þá drýgði hún heimilis- tekjurnar með því að taka að sér að svíða hausa fyrir fólk í smiðj- unni hans afa, sem margt eldra fólk á Hvammstanga man eftir. Einnig voru þau lengi með eina kú og nokkrar kindur. Árið 1950 gerðist amma ráðs- kona í brúarvinnuflokki afa og vann við það næstu 32 árin. Þá þekktust ekki nútímaþægindi eins og raf- magn og rennandi vatn og ekki var búið í upphituðum húsum heldur í þunnum tjöldum sem hituð voru upp með olíuofnum. Margir ungir menn, síðar lands- þekktir, hafa unnið í brúarflokki afa og notið góðrar matseldar hjá ömmu. Ófáa vini og kunningja eign- aðist hún á þessum árum, t.d. bílstjórana hjá Vegagerð ríkisins sem komu margar ferðir á sumri með efni til brúargerðar og matar- gerðar. Árið 1978 tók elsti dóttursonur ömmu og afa við brúarvinnuflokkn- um en þau voru samt viðloðandi flokkinn í nokkur ár til viðbótar. Eg man aldrei eftir ömmu að- gerðarlausri, annaðhvort er hún með sauma eða pijóna í höndunum. Amma og afi eignuðust þijár dætur, Ásu, gifta Sigurði Sigurðs- syni, Þorgerði, gifta Kristjáni Björnssyni og Halldóru, gifta Sig- urði P. Björnssyni. Barnabömin em tíu og langömmubörnin eru orðin fimm. Ég sendi ömmu mínar innileg- ustu hamingjuóskir og óska henni alls hins besta um ókomin ár. Gerður /7'OFN^\\ /oni GÖMLU DANSARNIR OKKAR SÉRGREIN Kennsla hefst mánudaginn 7. janúar 1991 í Þarabakka 3, Mjódd. Gengið er inn gegnt kirkjunni. Kl. 19.30 Gömlu dansarnir, framhald. Kl. 20.30 Gömlu dansarnir, byrjendur. Grunnspor eru kennd ítarlega. Kl. 21.30 Opinn tími (90 mín.) fyrir lengra komna, þú mætir þegar þér hentar. 7. janúar: Rælar, stjörnupolki. 14. janúar: Polkar, Óli skans, svensk maskerade. 21. janúar: Skottís, mars, skoski dansinn. BARNANÁMSKEIÐ MÁNUDAGA 3-4 ára kl. 16.25 5- 6 ára kl. 17.00 6- 8 ára kl. 17.35 9-11 ára kl. 18.25 Systkinaafsláttur er 25%. Bjóðum, kennslu fyrir hópa og starfsmannafélög eftir samkomulagi. Höfum kennt dans frá 1951 og stuðlað að útbreiðslu hans með kennslu í barnadönsum, þjóðdönsum og gömlu dönsunum. ÞJÓDDANSAFÉLAG REYKJAVÍKUR, símar 681616,656286 og 675777. GLEÐILEGT NYTT AR VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármula 13a, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30. Telefax 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.