Morgunblaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991 35 spretti EES-viðræðnanna er í hönd- im Austurríkismanna og reynir nú nikið á samningaleikni þeirra. Það ;r ekki úr vegi hér að benda á þá ikondnu staðreynd að á einhveiju bðkvæmasta samningsstigi viðræðn- mna skuli forysta EFTA falla í skaut Austurríkis, sem hefur þegar sótt nn aðild að EB (17. júlí 1989). Lúx- ;mborg veitir ráðherraráði EB for- itöðu á sama tíma og ætti það að auðvelda EES samkomulag og sætta ivokölluð suður-norður viðhorf innan aandalagsins hvað EES-viðræðurnar íhrærir. Síðastliðið haust gætti vaxandi svartsýni í EFTA-hópnum um fram- hald viðræðnanna, og yfirlýsing Sví- þjóðar um að ætla að leggja fram umsókn um inngöngu í EB vorið 1991 bætti ekki andrúmsloftið og veikti samningsstöðu EFTA enn frekar. Ekki er ólíklegt að Noregur og jafnvel Finnland fylgi fordæmi Svíþjóðar. Það gæti leitt til þess að EB semji við ijögur EFTA-landa samtímis um inngöngu í EB. Þá væri EB búið að ná kjörstærð að mati margra áhrifamanna innan EB og eftir í EFTA væru þá Sviss, Liec- htenstein og ísland. Skipan mála í Evrópu hefur leitt til þess að ríki sem áður lutu stjórn kommúnista vilja nú ganga í Evrópu- bandalagið. EB á í viðræðum við Tékkóslóvakíu, Ungveijaland og Pól- land um aukin tengsl og mun að öll- um iíkindum verða samið við þessi ríki á breiðari grundvelli en t.d. þeg- ar Fríverslunarsamningarnir voru gerðir milli EFTA og EB á árunum 1972-1973. Búist er við að þessi lönd fái greiðan aðgang að innri markaðn- um og að EB veiti þeim allt að tíu ára aðlögunartíma til að bæta sam- keppnisstöðu sína. Þessir samningar munu greiða fyrir efnahagslegum og ekki síst pólitískum samruna Evrópu, en það þýðir ekki endilega að Evr- ópubandalaginu væri akkur í að fá þessi lönd sem fullgild aðildarríki. Þessi mál í heild eru risavaxin að umfangi, en ef samningar takast, annars vegar um EES og hinsvegar á milli EB og kommúnistaríkjanna fyrrverandi í Austur- og Mið-Evrópu, mun komast á laggirnar evrópskt efnahagssvæði sem ekki einungis nær til ríkja Vestur-Evrópu. Samtímis þessari þróun í Evrópu eru í gangi samningaviðræður milli Bandaríkjanna og Mexíkó um frí- verslun og er reiknað með að Frí- verslunarsvæði Norður-Ameríku (Mexíkó, Bandaríkin og Kanada) verði að veruleika um líkt leyti og Innri markaður EB. Á Norður-Amer- íkusvæðinu eru um 360 milljónir íbúa. Allar þessar viðræður austan hafs og vestan endurspegla þróunina í heimsviðskiptunum í átt til stærri viðskiptaheilda og skýra um margt tilveruvanda EFTA. Leiðir þátttaka í EES til aðildar að EB? Svarið við þessari spurningu ræðst mikið til af niðurstöðu samn- inga um ákvarðanatökuna innan EES. Nái niðurstaðan of skammt fyrir EFTA-ríkin þá er ekki ólíklegt, að viðræðurnar renni út í sandinn_ eða EES verði biðstofa fyrir væntan- leg aðildarríki bandalagsins. Komi EB á hinn bóginn til móts við óskir EFTA í ákvarðanatökumálinu dregur úr þörf meirihluta EFTA á að sækja um fulla aðild að EB. Málið snýst um sameigin-lega ákvarðanatöku í sameiginlegum málum. 1. „The European Community" er þýtt á íslensku sem „Evrópubandalagið", en það er röng þýðing og misvísandi um EC sem stofnun. Þegar íslenska heitið er þýtt orðrétt á ensku t.d. kemur villan greinilega í ljós. Eina tungumálið þar sem „The European Community" hefur verið þýtt sem „Evrópubandalagið“ er íslenska. Eðlilegast væri að taka upp heitið „Evrópusamfélagið" og væri for- vitnilegt að fá álit annarra á þessu. 2. Evrópubandalagið er samheiti þriggja bandalaga: Efnahagsbandalags Evrópu, Kola- og stálbandalags Evrópu og Kjarn- orkubandalags Evrópu. 3. Sú leið sem líklegast er að verði valin til lausnar þessu máli er tvíhliða viðræð- ur milli EB og einstakra EFTA-ríkja. Kom þetta fram á sameiginlegum ráð- herrafundi EFTA-EB 18. desember sl. I ljósi núverandi fiskveiðistefnu EB er ekki fráleitt að ætla að í lok viðræðn- anna um EES verði samið tvíhliða um lausn helsta hagsmunamáls íslands. Hvort EES-samkomulag standi eða falli ■ með viðunandi lausn á fríverslun með fisk innan EES má teljast hæpið, því af hálfu EB fellur þessi málaflokkur ekki undir fjórfrelsið innan EES. Það er aftur á rnóti krafa EFTA hópsins að svo verði. í vissum skilningi er Island í þessu máli á sama báti og suðræn ríki I EB, þ.e. ísland er fyrst og fremst fram- leiðsluland matvæla sem opnar markað sinn fyrir iðnaði og þjónustu frá EB. Höfundur starfar við nlþjóðateng-sl á vegvni umhverfismálastofnunar í Salzburg, Austurríki. (Grein þessi birtist í blaðinu 29. jan., en þá svo illa rugluð í upplím- ingu að hún er birt hér aftur. - Biðst blaðið velvirðingar á þessum mistökum.) STYRKIR TIL UMHVERFISMÁLA Á næstunni verður úthlutað styrkjum úr Pokasjðði Landveiildar. 1. Um styrk geta sótt: Félög, samtök og einstaklingar. 2. Úthlutun er bundin verkefnum ó sviði umhverfismála, svo sem land- græðslu, skógrækt, friðun, verndun, fegrun og snyrtingu lands og til fræðslu og rannsókna. Skilyrði eru að verkefnin séu í þágu almennings. 3. Verkefni, sem sótt eru um styrk til þurfa að vera vel afmörkuð og skil- greind. Styrkumsókninni þarf að fylgja: A. Verklýsing. B. Kostnaðaráætlun. 1. Heildarkostnaður. 2. Eigið framleg. 3. Upphæð umsóknar. 4. Farið er fram á að styrkþegar leggi af mörkum mótframlag, sem getur falist í fjárframlögum, vélum, tækjum, efni eða vinnu. 5. Styrkþegar skuldbinda sig til að skila skýrslu um framkvæmd og árangur verkefnisins fyrir lok úthlutunarárs. 6. Styrkumsóknir þurfa að berast skrifstofu Landverndar fyrir kl. 17.00, 20. febrúar 1991. Þeir, sem eiga eldri umsóknir í Pokasjóðinn, þurfa að endurnýja þær í sam- ræmi við þessa auqlýsinqu. . . . ^ a Landvernd, Skólavörðustíg 25, 101 Reykjavík. BÓKAMARKAÐUR V Ö K U HE LG A F E L L S Aílí J Verðfm , ) 95 1 krotuunJC SértUboÖ: Lffsspegitt Lffsspegitt er einstœÖ bók —annað og meira en venjuleg œvisaga. Venjulegt verð: 2.784.— Tilboðsverð: 495»“ MorgirtMar að seljast upp! VAKáO HELGAFELL (i^CUtíJi Útjjá^jCL Siíumúlo 6 • stmi 688300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.