Morgunblaðið - 01.02.1991, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR í. FEBRÚAR 1991
y/ /Zeynum einu sjnn/ enn. það g&etí. -feh'st
í þriája sinn-"
IZ-J7
.. .þegar allt getur gerst.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reservad
© 1990 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
Liflínan er mjög stutt!
Það væri verra ef
það væri betra!
Þessi orð vinar míns, sem hann
notar gjarnan þegar hann er yfir
sig ánægður með eitthvað, voru
einu orðin sem náðu að lýsa ánægju
minni þegar ég kom frá því að sjá
Rocky Horror í Iðnó í annað sinn.
Já, reyndar annað sinn, því eftir
frumsýninguna var fyrsta hugsun
mín sú að ég ætlaði að sjá Rocky
Horror aftur.
Söngleikir eru yfirleitt ekki
flokkaðir sem auðveld verk, hvorki
í uppsetningu né flutningi. Leikfé-
lag MH réðst því ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur þegar
ákveðið var að taka Rocky Horror
til sýninga. En útkoman er hreint
út sagt frábær. Fæstir búast við
því að sjá hjá menntaskólakrökkum
jafn atvinnumannslegan blæ á leik-
sýningu og er á Rocky Horror.
Leikstjóranum Kolbrúnu Halldórs-
dóttur hefur tekist að fá krakkana
til að leggja sitt besta af mörkum.
Án þess að á nokkurn mann sé
hallað þá er stjarna leiksins Páll
Óskar Hjálmtýsson sem leikur
Frank-n-Furter, en hann stæði ekki
einn undir verkinu ef meðleikarar
hans væru ekki meiriháttar góðir
líka. Það er eins og þau byggi hvert
annað upp og myndi þannig stór-
kostlega heild. Maður hefur það líka
á tilfinningunni að þeim þyki ofsa-
lega gaman að því sem þau eru að
gera og þau smita ósjálfrátt áhorf-
endur með þessari gleði og ákafa.
Jón Ólafsson hefur útsett tónlistina
sem er mögnuð og vel leikin af
hljómsveitinni sem er á sviðinu allan
tímann. Hún kemur áhorfandanum
í slíkt stuð að hann er varla tilbúinn
til að yfirgefa salinn eða leikhúsið
að sýningu lokinni, enda hef ég
aldrei fyrr farið á leiksýningu þar
sem leikendum hefur verið jafn
Ljósmynd: Benedikt Guðmundsson
ákaft fagnað í leikslok og á Rocky
Horror. Við þetta bætist að bún-
ingar, dansatriði, söngur og allt
annað sem þarf til að gera sýningu
eins og þessa jafn afburða góða og
raun ber vitni, er allt frábært.
Kærar þakkir leikarar í Leikfé-
lagi MH fyrir að hafa svona mikinn
áhuga á því sem þið takið ykkur
fyrir hendur. Kærar þakkir fyrir
frábæra sýningu. Það væri verra
ef það væri betra!
Guðrún G. Bergmann
HINN RÉTTIVEGUR
Til Velvakanda.
Menn innan ólíkra kristinna safn-
aða eiga það til að deila um kenn-
ingar innan guðfræðinnar sem
kennd er við kristindóm. Jafnvel
hefur smávægilegur ágreiningur
orðið til þess að sundra kirkju
Krists. í þeim efnum er bréfritari
ekki undanskilinn.
Til Velvakanda.
Mig langar til þess að þakka tón-
listarstjóra Ríkisútvarpsins, Guð-
mundi Emilssyni, fyrir stórbætta
tónlistardagskrá í útvarpinu. Svo
frábrugðin er þessi dagskrá því,
sem við höfum átt að venjast um
hríð, að tala má um byltingu.
Lengi áttu Mantóvaní og félagár
stóran þátt í flutningi tónlistar í
útvarpinu. Þótt þeir séu alls góðs
maklegir þykir okkur mörgum gott,
að nú er öldin önnur. Við hlýðum
á klassiska tónlist, m.a. frá hljóm-
Einn daginn þegar ég sem svo
oft áður velti þessum guðfræðilegu
spurningum fyrir mér og bað Guð
um að sýna mér hveijir bæru gæfu
til að mega kallast sannir lærisvein-
ar fékk ég svarið. Ég var ekki fyrr
búinn að orða spurninguna en lítið
Biblíuvers hljómaði í hugskoti mínu.
í marga daga hafði ég beðið Guð
leikum erlendis, og fáum auk þess
að heyra fróðleg aðfararorð og
kynningar á undan flutningnum.
Um leið og ég þakka Guðmundi
Emilssyni, tónlistarstjóra, fyrir
þetta framtak hans og samstarfs-
fólks, leyfi ég mér að minna á, að
margir telja að Ríkisútvarpið skuli
vera fræðandi og menntandi fyrst
og fremst, en ekki einvörðungu til
afþreyingar.
Ágústa Ágústsdóttir,
Holti í Onundarfirði.
um að vísa mér á rétta veginn í
hinum stóra flokki ólíkra trúarsafn-
aða. Hver af þeim höndlar sannleik-
ann, spurði ég mig. Hvaða veg á
ég að ganga, hrópaði ég til Guðs.
Og svarið kom, með orðum Jesú
Krists: „Ég er vegurinn, sannleikur-
inn og lífið.“
Allir kristnir söfnuðir eiga sér
sama konung, sem er Kristur Jes-
ús. Þess vegna er enginn öðrum
æðri, því Guð fer ekki í manngrein-
arálit.
Vegur okkar liggur því ekki að
einum söfnuði, heldur liggja vegir
safnaðanna um eina sanna veginn,
sem er Jesús Kristur.
Einar Ingvi Magnússon
Látið úti-
ljósin loga
Blaðburðarfólk fer þess á leit við
áskrifendur að þeir láti útljósin loga
á morgnana núna í skammdeginu.
Sérstaklega er þetta brýnt þar sem
götulýsingar nýtur lítið eða ekki við
tröppur og útidyr.
Bættur tónlistar-
flutningnr í útvarpi
HÖGNI HREKKVÍSI
' *
Víkverji skrifar
Frá því var sagt í Morgunblaðinu
á dögunum, að Sigurður Þor-
steinsson hefði keypt flutninga- og
rannsóknaskip og gert samning við
bandaríska flotann um útgerð þess
í Karíbahafi. I fréttinni segir meðal
annars: „Sigurður varð á sínum
tíma landskunnur er hann keypti
varðskigið Maríu Júlíu og sigldi á
því frá íslandi ásamt konu og stór-
um barnahópi á vit ævintýra í fram-
andi löndum." í fréttinni kemur
einnig fram, að Sigurður sé skip-
stjóri á nýja skipinu og fjórir synir
hans séu meðal skipverja.
Allt er þetta gott og blessað nema
hvað það var ekki varðskipið María
Júlía sem Sigurður keypti á sínum
tíma og sigldi á til annarra landa.
Það skip var selt vestur á- firði og
hefur verið gert út þaðan í mörg
ár. Sigurður Þorsteinsson keypti
hins vegar varðskipið Sæbjörgu og
hélt á því til Spánar ásamt fjöl-
skyldu sinni. Síðár seldi Sigurður
Sæbjörgina og keypti varðskipið
Albert. Þá var Sigurður kominn til
Bandaríkjanna, þar sem hann er
enn að kaupa skip og að láta draum-
inn rætast.
xxx
Imörgum stórmarkaðanna er
hægt að losna við einnota flösk-
ur og dósir gegn endurgjaldi og er
það sjálfsögð og eðlileg þjónusta.
Kunningi Víkveija fór skömmu eft-
ir hátíðir í Hagkaup í Skeifunni
með nokkra flöskupoka og mataði
vélarnar. Stundum neituðu þær að
taka við flöskum þar sem á þær
vantaði tölvumerki. Kunninginn
velti þessu ekki mikið fyrir sér og
henti þessum fimmkölium í rusla-
körfu við hlið vélanna.
Svo mikið hafði safnast fyrir á
heimilinu af þessu drasli að maður-
innn þurfti að sækja fleiri flösku-
poka út í bíl. Þegar hann kom að
vélunum í annað skiptið, nokkrum
mínútum síðar, var þar kominn pilt-
ur klæddur í bláan samfesting,
merktan Hagkaup, og var í óða önn
að tína flöskur upp úr rusladallinum
og líma á þær tölvumerki. Hann
kom sér snarlega í burtu án þess
að svara er Víkveiji gusaði út úr
sér einhveiju um þjónustu við kúnn-
ann, lág laun verslunarfólks og
sj álfsbj argarviðleitni.
XXX
annast sagna verður Víkveiji
svolítið ráðvilltur er yfir hann
dembast fyrri hluta hvers mánaðar
fréttir um að þessi eða hin vísitalan
hafi hækkað um einhver prósentu-
stig. Svo er reiknuð út vísitala aft-
urábak og áfram og niðurstaðan
verður meiri eða minni verðbólga.
Þegar þessar vísitölur skullu á
skrifara hér áður fyrr seildist hann
gjarnan eftir tóbakinu og kaffilboll-
anum, en nú er fokið í þau skjól. í
staðinn er komið Nikorette-tyggjó
til að stemma stigu við reykingun-
um. Þar tók þó ekki betra við er
könnun á því hvort neytandi er
háður nikótíni eða ekki var lesin.
Fyrsta spurningin i könnunninni er
svohljóðandi: Hve margar sígarett-
ur reykir þú á dag (1 vísitöluvindill
ca. 2,5 sígarettur).
Það var þetta innan sviganna
sem Víkveiji staldraði við!