Morgunblaðið - 24.03.1991, Side 14

Morgunblaðið - 24.03.1991, Side 14
 ‘M_______________________MORGUNBLAÐIÐ SUKNUDAGUK 24. MARZ 1991_ Palestínumenn f Jerúsalem: eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur „AYMAN FÓR óvenju árla til Ai Aqs-moskunnar til að biðjast fyrir þennan morgun. Hann fór á hverj-, um morgni. Við höfðum vitneskju um að ísraelar ætluðu að koma þangað til að storka okkur af því þeir vilja eigna sér alla helga staði í Jerúsalem. Því höfðu þúsundir Palestínumanna ákveðið að koma og veija helgan dóm okkar og biðjast fyrir. Jafnskjótt og Pa- Iestínumennirnir voru komnir streymdu ísraelskir hermenn á staðinn og hófu skothríð eftir að hafa umkringt hópinn. Herþyrla sveimaði yfir og skotið var úr henni þó Israelar hafi mótmælt því og sagt að þyrlan hafi bara verið til eftirlits og til að taka myndir. Fáeinum minútum síðar voru sautján manns, tvær konur og fimmtán karlmenn, dánir og um þijú hundruð höfðu særst. Bróðir minn Ayman var einn þeirra sem varð píslarvottur." Eg sit í stofunni á heimili Shami-fjölskyldunnar í Jerú- salem, á veggjum eru myndir af syninum sem féll á Muster- ishæðinni í október. Moðirin Taghreed er hljóðlát, brosir öðru hveiju, leggur ekki margt til mála en segir þó frá þegar ég spyr. „Hann var átján ára og hafði ný- lokið menntaskóla og hugðist fara í háskólann og læra rafmagnsverk- fræði. Hann var góður námsmaður og hafði leitað fyrir sér um skólavist í ýmsum háskólum í Bandaríkjunum og Tyrklandi því hann langaði að sjá sig um. Hann var elstur fjögurra sona minna og dætumar eru elstar. Jú, ég hugsa hann hafi vitað að hann mundi deyja þennan dag, hann kvaddi okkur með þeim hætti. Faðir hans var við vinnu í Hebron og hringdi heim þegar fréttin barst út um fjöldamorðin. Þá vissum við ekki að hann væri dáinn, við höfðum haft spumir af því að hann hefði særst en hversu alvarlegt það var vissum við ekki.“ Hún þagnaði, stóð upp og gekk út úr stofunni, ég horfði spyijandi á dótturina Mohoy. „Hún er oft döpur og grætur," sagði hún. „Þegar við vissum að Ayman var dáinn fór móðir mín á sjúkrahúsið og hún tók líkama hans í fangið og bað Guð að blessa hann og þakkaði honum fyrir að hafa verið trúr og ókvíðinn. Hún fékk að fara heim með líkið, hann hafði verið skotinn í hálsinn og hefur dáið strax. Fjölskyldan safnaðist saman og við grétum, en móðir mín grét ekki; hún var eins og lömuð. Um nóttina fékk hún alvarlegan verk í handlegginn og var flutt á sjúkra- hús og læknir sagði hún hefði fengið snert af hjartaáfalli. Þeir létu hana vera á spítalanum yfir nóttina og það var ekki fyrr en eftir hún var komin heim að hún grét loksins. Þetta hef- ur breytt lífi okkar allra,“ heldur Mohey áfram. „Ég var ekki sérlega trúuð áður og ég bar aldrei höfuð- klút. Nú geri ég það. Stundum öf- unda ég bróður minn, ég veit að fyrst hann dó fyrir trúna fékk hann góða vist á himnum og honum líður vel. Jóhanna Kristjónsdóttir er komin til Jerúsalem og kynnir sér mslefni Palestínnmanna í ísrael sem hafa verift í ugp- reisn gegn stjórnvöldum undanfarin misseri Okkur líður ekki vel því við höfum enga von. Við erum fyrirlitin af ísra- elsku herrunum og kúguð og þeir nota hvert tækifæri til að lítilsvirða okkur. Nokkrum dögum eftir að þetta gerðist og margt fólk, vinir okkar og fjölskylda, safnaðist saman við húsið komu ísraelskir hermenn og skutu táragasi og fólkið varð að flýja inn í nærliggjandi hús. Fyrir utan veifuðu hermenn rifflunum og stigu dans af gleði yfír því að hafa hrakið syrgjendur á flótta.“ Þær mæðgur færðu mér appelsín- usafa að drekka en fjölskyldan fastar til sólarlags vegna ramadans. Móðir- in gaf mér mynd af syni sínum en baðst undan því að ég tæki mynd af þeim konunum. Mohey sagði að þau væru ákaflega reið út í fjol- miðla. „Það var gert lítið úr þessu og fréttamenn sem komu hingað eft- ir morðið virtust eiginlega ekki hafa neinn áhuga á að skrifa um þetta. Útlendir fréttamenn drógu í efa að skotið hefði verið úr herþyrlunni og aðrir skrifuðu beinlínis að fólkið hefði ekki átt betra skilið, því Palestínu- mennimir hefðu ögrað ísraelsku her- mönnunum og hent í þá grjóti." Dr. Wahib Dajani yfirlæknir á gjörgæsludeild Markessahsjúkra- hússins í austur-Jerúsalem sagðist varla muna einn dag síðan uppreisn Palestínumanna hófst að ekki hefði verið komið með særða eða látna á sjúkrahúsið. Hann kom með kúlur sem teknar höfðu verið úr þeim og sýndi mér meðal annars gúmmíkúl- umar margnefndu. Þegar að er gáð er þetta málmkúla með gúmmíhúð og plastkúlur sem sagðar hafa verið hættulitlar fara að sögn Dajanis með þúsund metra hraða á sekúndu og „splundra öllu þar sem þær lenda“. Hann sýndi mér nokkrar röntgen- myndir sem höfðu verið teknar síðustu daga, sú nýjasta frá því í dag, fímmtudag, þar sem skotið hafði verið í kynfæri mannsins. Hann sagði að frá því intifada hófst hefðu fímm þúsund komið til meðferðar á sjúkrahúsið — að frá- töldum þeim sem hefðu dáið — og þar af hefðu 1.200 þurfti að gangast undir skurðaðgerð og margir væru örkumla og bæklaðir, heilaskaddaðir og ósjálfbjarga fyrir lífstíð. „Fimmti hver sem við höfum sinnt er innan við sextán ára aldur,“ sagði læknir- inn. _ „Eg veit ýmislegt um Jsland," sagi Dajani. „Ég veit að fundur Reagans og Gorbatsjovs var í Reykjavík og þið viljið hafa friðsamleg samskipti við allar þjóðir. Þið reynið að leysa ykkar ágreiningsmál á friðsamlegan hátt. Getið þið skilið hvað það er að búa undir þessum jámaga sem við verðum að sæta? Börnin okkar fá ekki að fara í skóla nema með höpp- um og glöppum, við megum stundum ekki fara út fyrir hússins dyr svo dögum skiptir og eigum á hættu að vera skotin af því við ógnum öryggi „ríkisins“ ef við reynum að fara milli húsa og ná okkur í mat og tala nú ekki um að fara í sjúkravitjanir til fólks sem við vitum að þarf á hjálp eða lyfjum að halda. Hugsaðu þér að Palestínumenn voru best menntaðir araba, þeir nýttu margir menntun sína og hæfileika til að byggja upp Kúveit þegar þeim var ekki vært hér. Og hvað er nú að gerast þar? Palestínumenn eru ofsóttir og myrtir eða í besta falli vísað úr landi. Palestínumenn tóku þátt í að hjálpa Saudum þegar þeir þurftu fólk til leiðbeiningar eða hvers kyns vinnu. Og við fáum ekki þakk- ir. Það er eins og við séum líkþráir. Allt þetta sem við höfum gengið í gegnum — og ég tel upphafið hafi verið með Balfour-samþykktinni 1917 — verður til að við fyllumst beiskju og beiskja leitar útrásar í einhverri mynd. Ofbeldi elur af sér ofbeldi. Það hlaut að koma að því að uppreisn hæfist, það hafði kraum- að lengi undir og ísraelsku stjórnar- herrarnir hafa með grimmd og öfg- um kallað fram allt sem við viljum ekki að búi með okkur.“ Dajani lærði í Jerúsalem en var síðan við framhaldsnám í Hollandi og Þýskalandi. Hann sagði að stund- um fýsti hann helst að fara í burtu og setjast að annars staðar. „Allir læknir hvar sem þeir vinna lenda í glímu og eiga í togstreitu innra með sér. En oft geta læknar glaðst inni- legar en aðrir ef lífi er' bjargað og við eygjum von um að sjúklingum famaðist vel. Við hrósum happi ef við getum bjargað særðu fólki sem er komið með. En við vitum að kannski verður sá hinn sami, lítið barn, þunguð kona, ungmenni í svo- kölluðum blóma lífsins, fluttur hing- að aftur nokkru seinna og þá enn verr á sig kominn. Við eigum ekki vonina. Það er mikið böl.“ Sabria er hreingemingarkona og býr í leiguhúsnæði í austur-Jerúsal- em við rætur Olíufjallsins. Hún var ekki heima þegar ég kom í fyrra skiptið. „Hún er í réttinum“, sagði Manel, 19 ára dóttir hennar. Tveir synir Sabriu, Muner 21 árs og Nimer 22 ára, eru í fangelsi. Nimer hefur verið dæmdur í 21 árs fangelsi eftir að hafa setið inni án þess að ákæra væri birt í ellefu mánuði. Hann var fundinn sekur um að hafa starfað í andspymuhópi. Muner var tekinn við eftirlitsstörf í Ramallah og ástæða, fyrir handtökunni var ekki gefín enda er ísraelski herinn ekki skyldugur til að gefa upp ástæður þegar Palestínu- menn eiga í hlut. Hann hefur setið inni í fjóra mánuði og nú átti að hefja réttarhöld í máli hans. Þegar ég kom síðdegis sagði Sabria að rétt- arhöldunum hefði verið frestað um óákveðinn tíma. Auk þess eru tveir bræður hennar í fangelsi og þriðji sonurinn hefur setið inni í nokkra mánuði en var sleppt og var ekki ákærður. „Þú sérð hvað við hljótum að vera vinsæl“, sagði hún og hló við. „Það er alveg óhugsandi fyrir þá að hafa ekki einhveija úr fjöl- skyldunni í fangelsi." Hún sagði að þeir væm í fangels- um vítt og breitt um landið allt niður í Negev-eyðimörk svo Sabria hefur nóg að gera að komast í heimsóknir og einu sinni þegar hún hafði ferð- ast í þijá tíma niður til Negev var henni sagt að heimsóknartímanum hefði verið breytt. Sabria hefur 350 sikla á mánuði, þar af borgar hún 80 í leigu og má hafa sig alla við að hafa í sig og sína. Samt hlær hún og segir: „Við höfum mörg orðið grænmetisætur skal ég segja þér, við eigum ekki annarra kosta völ.“ Það er allt kyrrt á yfírborðinu en hvert sem maður snýr sér heyrir maður nýjar og nýjar sögur. Menn segja frá, yppa svo öxlum. „Það nennir náttúrlega enginn að hlusta á þetta. Það eru allir svo uppteknir af því hvað írakar gerðu í Kúveit. Við erum ekki að mæla því bót en fréttir þaðan eru bara blávatn hjá því sem við höfum búið við svo árum skiptir og það af hálfu þessa „sívilis- eraða“ lýðræðisríkis sem ísrael á að vera.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.