Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1991 MORGUNBLAÐIÐ tMIDVIKUÐAGUR 10.í APRIL'dðfl 1 29 JllnrpmM&ífrií Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Leiðin til bættra lífskjara Fram kemur í „Þjóðarbúskapn- um“, heimildariti Þjóðhags- stofnunar, að hallinn á viðskiptum við útlönd árið 1990 var 9.200 m.kr., sem svarar til 2,7% af lands- framleiðslu. Þar vegur óhagstæður vaxtajöfnuður hvað þyngst, en vaxtagreiðslur af erlendum lánum námu 14.600 m.kr. f fyrra. Landsframleiðsla dróst saman um 1% árið 1988, 3% árið 1989 en stóð í stað árið 1990. Þjóðartekjur dróg- ust saman um 0,5% í fyrra. Hagstæð viðskiptakjör valda því hins vegar, að spáð er 1% aukningu landsfram- leiðslu og 2% vexti þjóðartekna 1991: „Til lengri tíma litið er talið að hagvöxtur verði að jafnaði um 1,5-2% á næstu árum. Þetta er hægari hagvöxtur en gert er ráð fyrir í iðnríkjunum. Fjárfesting á borð við nýtt álver gæti breytt þess- um horfum verulega". Það jákvæðasta í skýrslunni rek- ur rætur til þjóðarsáttar aðila vinnu- markaðarins, þ.e. hjöðnun verðbólg- unnar. Stofnunin spáir 6-7% verð- bólgu frá upphafi til loka árs 1991, ef raunsætt mat á stöðu efnahags- mála ræður ferð í kjarasamningum á árinu - og ef fylgt verður aðhalds- samri efnahagsstefnu. Að óbreyttu telur Þjóðhagsstofnun að laun hækki um 8% [kaupmáttur um 2%] 1991: „í þessu felst,“ segir í mati stofnunarinnar, „að samkeppnis- staða íslenzkra atvinnuvega versnar á árinu miðað við að nafngengi krónunnar verði haldið óbreyttu." Innlend verðlagsþróun er þó háð ýmsum óvissuþáttum. Þjóðhags- stofnun varar til dæmis við hugsan- legri þenslu í þjóðarbúskapnum: „Til þess að sporna við þessari hættu er mikilvægt að aðhalds sé gætt í hagstjórn. Á undanförnum vikum hafa komið fram merki um nokkurn slaka í hagstjóm. Þessi slaki birtist meðal annars í vaxandi yfirdrætti ríkissjóðs hjá Seðlabanka íslands, rýmun gjaldeyrisstöðunnar og mikl- um lánsfjáráformum opinberra aðila á þessu ári ...“ Þenslan í ríkisbúskapnum, skattahækkanir, ríkissjóðshallinn, opinber skuldasöfnun og lánsfjár- hungur ríkisins hafa veikt þjóðar- sáttina og skert varanleika hennar. „Þannig nam lántaka opinberra að- ila á innlendum markaði 19 milljörð- um króna og erlendis 8 milljörð- um,“ segir í skýrslunni. Lánsfjár- hungur ríkisins hefur og þrengt að innlendum lánsfjármöguleikum at- vinnuveganna: „Með því að fjár- magna halla ríkissjóðs á innlendum markaði er sú hætta fyrir hendi að vextir verði spenntir upp. Ekki er gefið að þessi stefna leiði til þess að draga úr skuldasöfnun erlendis, því ef vextir innanlands verða um- talsvert hærri en á erlendum mörk- uðum er hætt við að einkaaðilar taki erlend lán.“ Á sama tíma og Þjóðhagsstofnun sendir frá sér álit sem þetta birtir ríkissjóður íslands áróðursauglýs- ingar, þar sem segir, að sá spamað- ur þjóðarinnar, sem opinberir aðilar seilast í, dragi úr „þenslu í þjóðfé- laginu og stuðlar að því, að verð- bólga haldist jafn lág og hún hefur verið undanfarið". Auðvitað dregur spamaður sem slíkur úr þenslu, en ekki ef hann er notaður nær einvörð- ungu til þess að fjármagna gegndar- lausan hallarekstur ríkissjóðs. Mergurinn málsins, þegar horft er til næstu framtíðar, er að varð- veita þann stöðugleika í efnahagslíf- inu, sem þjóðarsátt á vinnumarkaði hefur leitt til, og búa íslenzkum atvinnuvegum sambærileg starfs- og vaxtarskilyrði og samkeppnis- greinar í grannríkjum njóta. Við þurfum að laga þjóðarbúskap okkar og atvinnulíf að efnahagslegum veruleika í umheiminum; styrkja rekstrarstöðu undirstöðugreina [sjávarútveg, iðnað og landbúnað] og breyta óbeizlaðri orku fallvatna og jarðvarma í störf, verðmæti og lífskjörNSú leið verður ekki vörðuð með hafta-, miðstýringar- og milli- færzlu-„lausnum“ vinstri flokkanna. Þeim hefur hvarvetna verið lagt fyrir róða. Leiðin til bættra lífskjara liggur hér sem annars staðar um veg fijálsræðis, framtaks og mann- úðar, sem dæmin sanna í öllum vel- ferðarríkjum heims. Fiskveiði- stefnan og yfirlýsing1 Davíðs Davíð Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, lét orð falla í sjonvarpsþætti sl. sunnudag á þann veg, að viðurkenna þyrfti á borði, ekki bara í orði, eignarrétt þjóðar- innar að fiskimiðunum. Þegar Morg- unblaðið spurði Davíð Oddsson hvað hann ætti við með þessum orðum sagði hann: „Ég tel fyrir mitt leyti að rétt sé að nota tímann sem fram- undan er til þess að endurskoða lög- in um stjórnun fískveiða og móta heildstæða sjávarútvegsstefnu. Ég hef á þessu stigi ekki nákvæma útfærslu á því, hvernig mögulegt verður að tryggja virkni lagaákvæð- isins um, að fiskimiðin umhverfis ísland eru sameign íslenzku þjóðar- innar, en það verður að nást slík trygging, því ella er þetta marklaus setning og þjóðin tapar yfirráðum yfir fískimiðunum. Það má aldrei gerast.“ Hér talar formaður Sjálfstæðis- flokksins um grundvallaratriði í fiskveiðistefnunni á þann veg, að athygli og ánægju vekur. Morgun- blaðið ætlar sér ekki að gera Davíð Oddssyni upp skoðanir en ljóst er af þessum ummælum, að hanr. tek- ur undir þau sjónarmið, að ekki megi afhenda fámennum hópi manna auðlind þjóðarinnar allrar. Þetta er því veigameiri yfirlýsing um fiskveiðistefnuna, en nokkur forystumaður í Sjálfstæðisflokknum hefur treyst sér til að gefa fram til þessa. Þessi ummæli Davíðs Odds- sonar lofa góðu um stefnumörkun Sjálfstæðisflokksins á þessu sviði á næstu mánuðum og misserum. Þrálátur hallarekstur ríkissjóðs eitt erfiðasta vandamálið - sagði Jóhannes Nordal á ársfundi Seðlabankans í gær Jóhannes Nordal Hér fer á eftir í heild ræða Jóhannesar Nordals, seðlabanka- stjóra, formanns bankastjórnar Seðlabankans, á ársfundi bankans í gær: Fyrir hönd bankastjómar Seðla- bankans er mér það sérstök ánægja að bjóða yður öll velkomin á þennan 30. ársfund bankans, en nú um helg- ina voru rétt þijátíu ár liðin, síðan Seðlabankinn var endanlega skilinn frá Landsbankanum og gerður að sjálfstæðri stofnun, en áður hafði hann haft sérstaka stjórn innan Landsbankans frá árinu 1957. Það er því tilefni til þess að ræða þau efnahagsvandamál, sem nú er við að glíma í víðara_ sögulegu samhengi en venja er til. Á það má minna, að stofnun Seðlabankans í núverandi mynd var í rauninni einn þáttur víð- tækrar endurskipulagningar ís- Ienzkra efnahagsmála, sem hófst á árinu 1960 og hafði það að mark- miði að ijúfa íslendinga út úr ára- tuga gömlu kerfí innflutnings- og viðskiptahafta og beina þeim inn á braut fijálsari markaðsbúskapar, en mikilvægasta forsenda þess var að taka upp raunhæfa gengisskráningu og traustari stjórn íjármála og pen- ingamála. Mikill hagvöxtur í þrjá áratugi Þótt margir efuðust um það þá og lengi síðan, að skynsamlegt væri að opna hið litla íslenzka hagkerfi fyrir óheftri erlendri samkeppni, hef- ur reynslan bæði hér á landi og ann- ars staðar í heiminum sannað yfir- burði markaðshagkerfis í saman- burði við miðstýringu og ríkisforsjá. Hér á landi hefur þróunin í þeesa átt haldið áfram þessa þijá áratugi, þótt mishratt hafi farið, og oft hafí þurft að veijast gagnsóknum þeirra, sem fremur hafa trúað á forsjárhlut- verk ríkisins. Meðal stærstu áfang- anna á þessari braut má nefna afnám innflutningshafta árið 1960 og síðan aðildina að EFTA og samninga við Efnahagsbandalagið í upphafi átt- unda áratugarins, en með þessum aðgerðum var afnumin hafta- og tollvemd íslenzkrar framleiðslu á öðrum sviðum en í landbúnaði, en um hann gilda víða um lönd sérstak- ar reglur. Og um miðjan síðasta ára- tug var hafizt handa um afnám verð- lagshafta og miðstýringar á vöxtum, en síðan hefur starfemi ijármagns- markaðsins verið gefin æ fijálsari. Með tilliti til efnahagslegs árang- urs þessara áratuga skiptir þó vissu- lega í tvö hom. Annars vegar hefur hagvöxtur verið mikill yfir tímabilið í heild, svo sem sést af því, að lands- framleiðsla hefur aukizt að meðal- tali á ári hveiju um 4,3%, en þjóðar- tekjur á mann um 3,3%. Á hinn bóg- inn hefur hagvöxtur farið minnk- andi, einkum síðustu tvo áratugina, sem einkennzt hafa bæði af þrálátri verðbólgu og miklum óstöðugleika í þróun tekna og viðskiptajafnaðar. Vonandi hillir nú undir bjartari tíma í þeim efnum, þra sem ótvíræður árangur hefur náðst til lækkunar á verðbólgu á því rúmlega ári, sem lið- ið er, síðan febrúarsamningarnir 1990 voru gerðir. Ein áleitnasta spurningin á sviði efnahagsmála í dag er því, hvernig tryggja megi áframhald þessa stöð- ugleika eftir að þeir kjarasamningar renna út, þannig að slefnt verði að enn lækkandi verðbólgu á komandi árum. Hliðstæðar spurningar sækja á um þessar mundir vegna þeirrar þróunar, sem nú á sér stað til efna- hagslegs samruna Evrópuríkja. Hver sem niðurstaðan verður í þeim samn- ingum, sem Island tekur nú ásamt öðrum EFTA-ríkjum þátt í varðandi stóraukin efnahagstengsl við Evr- ópubandalagið, er óhjákvæmilegt, að sífellt nánari samræming í efnahags- þróun _ annarra Evrópuríkja knýi einnig íslendinga til að fylgja í öllum meginatriðum sömú efnahagsstefnu og þau, ef þeir eiga að varðveita samkeppnisstöðu sína og skilyrði til hagvaxtar. Mikilvægt skref í átt til þeirrar samræmingar hefur þegar verið tekið með því að ákveða að afnema í áföngum á næstu tveimur árum öll höft, er gilt hafa um fjár- magnshreyfingar milli íslands og annarra landa. Mun sú ákvörðun ein út af fyrir sig gjörbreyta forsendum hagstjórnar hér á landi. Skuldastaða þjóðarbúsins En lítum þá fyrst á helztu drætti efnahagsþróunarinnar hér á landi undanfarið ár og horfurnar framund- an. Þjóðarbúskapur íslendinga hefur gengið í gegnum mikla hagsveiflu síðustu sjö árin. Eftir öran hagvöxt á árunum 1984—1987, sem skilaði samtals um 25% aukningu lands- framleiðslu, urðu snögg umskipti árið 1988, er leiddu til nálægt 4% framleiðslusamdráttar á árunum 1988 og 1989. Þótt fyrstu ummerki um endurbata hafí farið að koma fram á síðasta ári, m.a. vegna hækk- andi útflutningsverðlags og batnandi viðskiptakjara, nægði það ekki til að koma hagvexti aftur af stað, og reyndist landsframleiðsla óbreytt frá fyrra ári. Vegna áframhaldandi fólksfjölgunar lækkaði þjóðarfram- leiðsla á mann þriðja árið í röð, og nemur þá lækkun hennar samtals á þessum þremur árum 8% á mann. Óhjákvæmilegt er, að atvinnuleysi hafí nokkuð aukizt á þessu tímabili, en aukningin virðist þó minni en við hefði mátt búast, þar sem samdrátt- urinn hefur komið fram bæði í stytt- ingu vinnutíma og minni atvinnu- þátttöku. Á árinu 1990 hafði aukn- ing atvinnuleysis stöðvazt nálægt 2% af vinnandi fólki, sem er mjög lágt hlutfall á alþjóðlegan mælikvarða. Þrátt fyrir nokkurn samdrátt í rauntekjum hélzt einkaneyzla óbreytt á síðasta ári, en samneyzla jókst um 1,7% og íj'ármunamyndun um 4,5% og munar þar mest um mikil flugvélakaup Flugleiða á árinu. Vegna stöðnunar hagvaxtar kom öll þessi aukning þjóðarútgjalda fram í meiri halla á viðskiptajöfnuði, en miðað við landsframleiðslu jókst við- skiptahallinn úr 1,6% á árinu 1989 í 2,7% í fyrra. Gjaldeyrisverðmæti vöruútflutnings jókst um 3,7% frá fyrra ári, en verðmæti vöruinnflutn- ings jókst um 8,4%. Kom aukning innflutnings öll fram á síðustu mán- uðum ársins, sem bendir til þess, að innlend eftirspurn hafi farið vax- andi, er leið á síðara hluta ársins. Innstreymi lána til langs tíma um- fram afborganir varð verulega um- fram viðskiptahallann og jókst því gjaldeyrisforðinn enn um fjóra millj- arða á árinu. Hrein skuldastaða þjóð- arbúsins var í árslok 48,1% af lands- framleiðslu og reyndist óbreytt frá fyrra ári og er því enn mjög há. Þótt árið 1990 hafi þannig hvorki orðið þjóðarbúinu gjöfult vegna framleiðsluaukningar né hagstæðari viðskiptajafnaðar, verður þess sérs- taklega minnzt vegna hins mikla árangurs í lækkun verðbólgu, sem þá náðist. Hefur verðbólgan á tólf mánaða tímabili nú komizt í fyrsta skipti síðan árið 1971 í eins stafs tölu og jafnframt náð því að vera u.þ.b. hin sama og í öðrum OECD- ríkjum. Dýrkeyptum stöðugleika má ekkiraska Fróðlegt er að bera saman aðstæð- urnar nú og fyrir 20 árum, þegar verðbólga var síðast svipuð og nú, en sá samanburður leiðir í ljós ýmsar hliðstæður, sem draga má lærdóm af. Eins og að þessu sinni hafði þjóð- arbúskapurinn þá farið í gegnum mikið þensluskeið vegna síldveið- anna miklu á sjöunda áratugnum. Þegr síldarstofninn hrundi, var reynt að bregðast við minnkandi þjóðar- framleiðslu og auknum viðskipta- halla með aðhaldi í peningamálum og ríkisfjármálum, en fresta gengis- breytingum í lengstu lög, enda voru íslendingar þá bundnir af fastgengis- reglum Bretton Woods-kerfísins. Þegar meiri háttar gengislækkun varð ekki lengur umflúin seint á ár- inu 1968, hafði þegar dregið mjög úr innlendri eftirspurn og atvinnu- leysi aukizt, og skilyrði þannig skapazt til þess að ná á næstu árum hóflegum kjarasamningum innan ramma áframhaldandi aðhalds í fjár- málum og peningamálum. Því miður stóð þetta stöðugleikatímabil aðeins um tveggja ára skeið og var orsa- kanna að leita bæði í breyttri efna- hagsstefnu og þensluáhrifum erlend- is frá, sem náðu hámarki með marg- földun olíuverðs árið 1973. Þegar haft er í huga, hve langan tíma það hefur tekið að komast út úr þeirri verðbólguþróun, sem þá hófst hér á landi, ætti að vera augljóst, hve mik- ið getur verið í húfi að raska ekki að þessu dýrkeyptum stöðugleika sem nú hefur náðst í verðlagsmálum. Sé hins vegar litið á þróunina undanfarin þijú ár til samanburðar við þetta fyrra tímabil, eru hliðstæð- urnar augljósar. I stað þess að bregð- ast fljótt við fyrri hækkun raungeng- is og rýmandi samkeppnisstöðu, sem þenslan á árunum 1986 og 1987 hafði haft í för með sér, með því að fella gengið, eins og svo oft áður á undanförnum tveimur áratugum, var að þessu sinni reynt að fresta gengis- aðlögun eins og frekast var unnt. Jafnframt var leitazt við að styrkja ríkisbúskapinn og hamla gegn þensl- unni með hækkun vaxta, en þetta hvort tveggja leiddi til verulegs sam- dráttar í eftirspurn, sem kom fram í minni fjárfestingu og neyzlu og minnkandi spennu á vinnumarkaðn- um á árunum 1988 og 1989. Þegar þannig var komið reyndist unnt að leiðrétta raungengið og bæta sam- keppnisstöðu sjávarútvegsins á árinu 1989, án þess að sú aðgerð hefði þensluáhrif í för með sér, þótt henni fylgdu óhjákvæmilega tímabundnar verðhækkanir. í upphafi síðastliðins árs voru því skilyrði til lækkunar verðbólgu betri en um margra ára skeið. Annars vegar hafði komizt á jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar í þjóðarbú- inu í heild og á vinnumarkaði, en þó án verulegs atvinnuleysis. Hins vegar hafði samkeppnisstaða út- flutningsatvinnuvega batnað nægi- lega til þess að stöðugleiki í gengi var aftur orðin trúverðug stefna a.m.k. um sinn. Hversu fljótt þessi skilyrði nýttust réðst hins vegar af þeim raunsæu og vel útfærðu kjara- samningum, sem gerðir voru í febrú- ar á síðastliðnu ári, en með hóflegum launahækkunum á hálfs annars árs samningstíma, var með þeim lagður grundvöllur að þeirri miklu lækkun verðbólgu, sem síðan hefur átt sér stað. Hafa forsendur samninganna hingað til staðizt í öllum meginatrið- um, meðalgengi krónunnar hefur verið haldið óbreyttu og almennar verðhækkanir verið nálægt settum mörkum, þrátt fyrir þær hækkanir, sem orðið hafa á olíuverði. Er nú útlit fyrir, að hækkun vísitölu fram- færslukostnaðar á samningstíman- um í heild verði nálægt 6% á ári. Það er því til mikils að vinna, að unnt reynist að tryggja áframhald- andi stöðugleika, eftir að núgildandi launasamningar renna út næsta september. Þótt mikið muni þá velta á mati launþega á gildi stöðugleikans fyrir hagstæða þróun lífskjara og atvinnu, er varanlegs árangurs því aðeins að vænta, að stjórnvöldum takist að treysta undirstöður jafn- vægis í efnahagsmálum með stefnu sinni á sviði fjármála ríkisins, pen- ingamála og gengismála. Skal nú nánar vikið að þessum þáttum, þróun þeirra að undanförnu og mörkun framtíðarstefnu. Gengisfesta hornsteinn efnahagsstefnu Er þá rétt að byija á síðasttalda þættinum, þótt gengismálin hafi að vísu verið minna á dagskrá að und- anförnu en oftast endranær. Eftir verulegt gengissig á árinu 1989, hefur meðalgengi krónunnar verið haldið óbreyttu frá því í desember á því ári, og hefur verið formlega stað- fest af stjórnvalda hálfu, að þeirri stefnu skuli haldið til loka gildandi launasamninga, en engar ákveðnar yfirlýsingar liggja fyrir um fram- haldið. Það er því þegar af þessari ástæðu biýnt, að sem fyrst verði úr því skorið, hvort nokkur breyting verður í þessu efni eftir 1. septem- ber, þar sem gengisstefnan hlýtur ætíð að verða ein mikilvægasta for- senda almennra kjarasamninga. Hér er þó meira í húfí en næsta samn- ingslota á vinnumarkaðnum, því að bæði reynsla og fræði hafa staðfest, að mörkun gengisstefnu sé í litlu opnu hagkerfi sú grundvallarfor- senda, sem beiting annarra stjórn- tækja verður að taka mið af. Auk þess hefur valið á milli fastgengis- stefnu og sveigjanlegs gengis orðið enn mikilvægara að undanförnu yegna samninga um nánari tengsl íslendinga við Efnahagsbandalagið, þar sem fastgengi er þegar orðið grundvöllur samræmingar í efna- hagsstjórn, en framtíðarmarkmiðið sameiginlegur gjaldmiðill. Áður en frekar verður rætt um þá kosti, sem íslendingar standa nú frammi fyrir í þessum efnum, getur verið lærdómsríkt að líta á helztu drætti í þróun gengismála hér á landi undanfarna þijá áratugi. Má reyndar skipta þeim í þijú afmörkuð tímabil með tilliti til gengisstefnu. Fyrsta tímabilið hófst árið 1960, þegar horfið var frá fjölgengi og haftastefnu og tekið upp fast gengi, sem bundið var reglum Álþjóðagjald- eyrissjóðsins um gengisbreytingar, sem aðeins mátti grípa til við sér- stakar aðstæður. Var þetta grund- völlur efnahagsstefnu íslendinga allt til ársins 1971. Á þessu tímabili tókst Iengst af að tryggja góðan stöðug- leika í efnahagsmálum samfara hóf- legri verðbólgu, en þó með einni veig- amikilli undantekningu. Eftir sex veltiár vegna mikilla síldveiða, hrundi stofninn á árunum 1967 og 1988, og leiddi það ásamt verðfalli botnfiskafurða til þess, að tekjur af vöruútflutningi lækkuðu um 44% á tveimur árum. Þótt reynt væri að forðast gengislækkun í lengstu lög varð hún að lokum ekki umflúin. Ekki var þó horfið frá markmiðum fastgengisstefnunnar, enda sannaði hún gildi sitt næstu árin, þegar sæm- ilegur stöðugleiki í verðlagi náðist að nýju, eins og þegar hefur verið vikið að hér á undan. Eftir 1972 verða mikil umskipti í þessum efnum bæði með breyttri efnahagsstefnu nýrrar ríkisstjórnar og hruni fastgengiskerfis Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, sem veitt hafði Islendingum umtalsverðan aga í þessum efnum. Við þetta bættust svo brátt áhrif olíuverðshækkana og aukin alþjóðleg verðbólga. Með ört vaxandi verðbólgu á næstu árum dró verulega úr peningalegu aðhaldi, þar sem ekki voru stjórnmálalegar for- sendur fyrir þeirri hækkun vaxta, sem hefði verið nauðsynleg til þess að hemja eftirspurn eftir lánsfé og viðhalda innlendum sparnaði. Þegar við þetta bættist almenn verðtrygg- ing launa, varð gengisstefnan brátt nánast óvirkur þáttur í keðjuverk- andi hækkun launa- og verðlags. Afleiðingin varð illvígasta verðbólgu- tímabilið í sögu Islendinga, sem hélt áfram að magnast allt til fyrri hluta ársins 1983, þegar verðbólguhraðinn komst um tíma upp fyrir 80%. Þriðja tímbilið hefst síðan með gagngerri stefnubreytingu vorið 1983, þegar ný ríkisstjórn tekur upp aðhaldssamari stefnu á grundvelli yfírlýsingar um gengisfestu ásamt afnámi verðtryggingar á laun. Þótt árangur þessarar stefnubreytingar kæmi þegar fram í mikilli lækkun verðbólgustigs miðað við árin á und- an, reyndist verðbólgan þó þrálátari næstu árin en vonir stóðu til. Var orsaka þess vafalaust að nokkru leyti að leita í gengisstefnunni. Þrátt fyr- ir yfirlýsingar stjórnvalda um geng- isfestu voru þær aldrei nægilega fyr- irvaralausar, og fastgengisstefnuna skorti þann trúverðugleik, sem hún hafði á sjöunda áratugnum, þegar hún laut aga frá reglum Álþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Hún skapaði því ekki þann ramma aðhalds að ákvörð- unum fyrirtækja og launþega, sem æskilegt hefði verið. Kom þetta fram bæði á árinu 1984, þegar óraun- hæfri launahækkun var mætt með gengislækkun, og svo aftur með gengislækkunum árin 1988 og 1989, þótt þá væri veitt meira viðnám eins og ég hef áður rakið. Mér virðist ótvírætt, að efnahags- þróunin hér á landi, sem ég hef nú stiklað á, ásamt reynslu annarra smáríkja, styðji þá skoðun, að Islend- ingum sé farsælast að velja gengis- festu sem hornstein efnahagsstefnu sinnar í framtíðinni. Takist að gera gengisfestu trúverðuga er hún tví- mælalaust öruggasta leiðin til þess að tryggja til langframa hliðstæða þróun verðlags og launa hér á landi og í viðskiptalöndum okkar. Breytilegt markaðsgengi Rökin, sem helzt hefur verið hald- ið fram gegn fastgengisstefnunni, eru hins vegar fólgin í því, að hún útiloki eða takmarki verulega notkun gengisins til þess að bregðast við óvæntum ytri sveiflum, svo sem miklum breytingum á viðskiptakjör- um, lokun markaða eða aflasveiflum. Sé þá frekar hætta á því, að slíkar breytingar valdi alvarlegri röskun á rauntekjum og atvinnustigi. Þótt hér sé um veigamikil vandamál að etja tel ég þau alls ekki vega upp á móti kostum þess stöðugleika í verðlags- þróun, sem gengisfestu getur fylgt. Athuganir benda auk þess til, að sveiflur í útflutningstekjum íslend- inga hafi farið minnkandi undan- farna tvo áratugi, og séu nú ekki að ráði meiri en meðal margra ann- arra þjóða, sem ýmist hafa þegar tekið upp fastgengi eða stefna að því á næstu árum. Stafar þetta af því, að fjölbreytni í útflutningsfram- leiðslu Islendinga hefur farið vax- andi og hún dreifist nú á mun fleiri og þróaðri markaði en áður. Sömu- leiðis hefur útfærsla landhelginnar og markviss stjórnun fiskveiða skap- að ný skilyrði tii að draga úr sveiflum í aflamagni. Hefur annað áfall svipað síldveiðibrestinum 1967—1968 ekki orðið síðustu fjörutíu árin, og er varla raunhæft að láta svo ósenni- lega möguleika ráða vali gengis- stefnu. Loks getur notkun jöfnunar- sjóða átt veigamikinn þátt í að draga úr áhrifum tekjubreytinga á þjóðar- búskapinn, en með nýjum lögum hefur Verðjöfnunarsjóður sjávarút- vegsins orðið öflugra og markvissara tæki til sveiflujöfnunar. Þar sem ljóst er, að nokkur ár hljóta enn að líða, áður en íslending- ar geta orðið aðilar að formlegu gengissamstarfi Evrópuþjóða, verður trúverðugleiki gengisfestu fyrst um sinn að byggjast á yfirlýsingum ís- lenzkra stjórnvalda einum saman. Er óhjákvæmilegt, að nokkurn tíma taki að afla slikri stefnu trausts, jafn- vel þótt hugur fylgi máli, með þá gengisbreytingasögu, sem íslending- ar eiga að baki sér. Jafnframt því að vilja standa að slíkri stefnumótun er Seðlabankinn nú að undirbúa að koma gjaldeyrisviðskiptum og geng- isákvörðunum í svipað horf hér á landi og annars staðar í Evrópu, þannig að komið verði á breytilegu markaðsgengi innan tiltekinna fastra marka. Hallarekstur ríkissjóðs Ég hef nú gerzt næsta langorður um gengismál, og því orðið tíma- bært að snúa sér að þróun ríkisfjár- mála og peningamála og því hlut- verki, sem þau þurfa að gegna til að tryggja stöðugleika í efnahags- málum. Betra samræmi hefur náðst milli stefnunnar í ríkisfjármálum og pen- ingamálum undanfarin tvö ár en oft áður. Engu að síður er þrálátur halla- rekstur ríkissjóðs orðinn eitt af erfíð- ustu vandamálum í stjórn efnahags- mála. Árið 1990 var sjötta árið í röð, sem rekstrarhalli var á ríkis- sjóði, en hann náði hámarki árið 1988, þegarhann nam 2,8% af lands- framleiðslu. Síðan hefur tekizt að þrýsta honum niður um rúman helm- ing í 1,3% af landsframleiðslu í fyrra, þrátt fyrir erfitt árferði. Jafnframt náðist það mikilvæga markmið á árinu að fjármagna alla nettólánslj'- árþörf ríkissjóðs, en hún nam um 2,1% af landsframleiðslu, með sölu verðbréfa og ríkisvíxla á innlendum markaði. Að vísu þurfti að endurfjár- magna skuld vegna halla ríkissjóðs frá árinu á undan með erlendu láni, en árangur innlendrar fjármögnunar kom m.a. fram í því, að lausaskuldir ríkissjóðs við Seðlabankann voru að meðaltali helmingi lægri miðað við landsframleiðslu en árið áður. Það greiddi verulega fyrir þessum ár- angri, að nýr peningalegur sparnað- ur jókst mikið frá árinu á undan, jafnframt því sem dró úr eftirspurn eftir lánsfé frá fyrirtækjum vegna lítillar fjárfestingar og stöðnunar í framleiðslu. Einnig greiddi Seðla- bankinn nokkuð fyrir sölu ríkisverð- bréfa og víxla með breyttum reglum um innlánsbindingu og lausafjárhlut- föll. Þrátt fyrir þetta náði þessi láns- fjáröflun ríkissjóðs ekki fram að ganga án áhrifa til hækkunar á raun- vexti á verðbréfamarkaði, en þar kom reyndar fleira til. Þótt ijárþörf ríkissjóðs vegi þungt, fer því fjarri, að hún ein sér sé not- hæfur mælikvarði á heildaráhrif að- gerða ríkisvaldsins á lánsfjármark- aðinn. Það er reyndar eitt af einkenn- um íslenzkra lánsfjármála, hve mikil afskipti ríkisvaldið hefur haft af öfl- un lánsfjár til fjárfestingar einkaað- ila, einkum atvinnufyrirtækja og húsbyggjenda. Hefur þessi fyrir- greiðsla ríkisins ýmist verið í formi lánsfjáröflunar til endurlána, ríkis- ábyrgða á teknum lánum eða beinna fjárframlaga. Hin síðari ár hefur smám saman dregið úr fyrirgreiðslu af þessu tagi við atvinnuvegina, bæði vegna þess að framboð lánsijár frá öðrum aðilum hefur aukizt og dregið hefur úr lánsfjáreftirspurn fyrirtækja a.m.k. að sinni. Þess í stað hefur fyrirgreiðsla ríkisins vegna húsnæðislána stóraukizt fyrir tilkomu nýrra lánakerfa og útfærslu annarra. Til dæmis um þetta má nefna, að lánsfjáröflun vegna íbúðal- ána jókst úr rúmum 4 milljörðum árið 1987 í rúma 16 milljarða 1990, sem jafngildir um 125% raunaukn- ingu á aðeins þremur árum. Árið 1990 reyndist heildarfjáröfl- un opinberra aðila á innlendum lána- markaði 26,5 milljarðar kr. Þar af var lánsfjáröflun ríkissjóðs sjálfs um tíu milljarðar, en lántökur vegna íbúðalánakerfísins á 17. milljarð. Jókst fjáröflun til íbúðalána frá fyrra ári um tæpa 7 milljarða og stafaði sú aukning mestöll af tilkomu hins nýja húsbréfakerfis. Þótt framboð innlends fjármagns á vegum lífeyrissjóða, banka og verð- bréfamarkaðs ykist mikið á árinu 1990 og verulega drægi úr lánsfjá- reftirspurn atvinnuveganna, reyndist markaðnum erfitt að melta þessa miklu innlendu lánsfjáröflun. Fóru því raunvextir hækkandi, eftir því sem á árið leið, fyrst vegna mikils framboðs á spariskírteinum ríkisins, en á síðasta ársljórðungi vegna auk- innar sölu húsbréfa. Einnig hefur það væntanlega haft áhrif til vaxta- hækkunar, að framboð hlutabréfa jókst mjög á árinu, en vegna hækk- andi gengis á þeim markaði og hag- stæðra skattareglna jókst sala þeirra meira en nokkru sinni fyrr. Miðað við lánskjaravísitölu voru markaðs- raunvextir af opinberum verðbréf- um, spariskírteinum og húsbréfum, á bilinu 7-7,5% í lok ársins. Vaxandi þrýstingur á lánsfjármarkaðnum Það sem af er þessu ári hefur þiýstingurinn á lánsfjármarkaðnum farið enn vaxandi og virðist þar bæði vera að verki einhver samdrátt- ur í sparnaði heimila og meiri lánsfjá- reftirspurn. Vextir á verðbréfmark- aði hafa því haldið áfram að þokast upp á við, og hefur ávöxtun hús- bréfa verið leiðandi í hækkuninni. Þetta hefur einnig gerzt þrátt fyrir það, að vextir af nýjum spariskírtein- um og ríkisvíxlum hafa dregizt aftur úr öðrum vaxtakjörum og sala þeirra því orðið minni en ella. Hefur því lánsfjárþörf ríkissjóðs- frá áramótum verið að mestu mætt með skulda- söfnun við Seðlabankann, sem hefur mikla þensluhættu í för með sér. Þar sem hér getur ekki verið nema um tímabundið ástand að ræða, verður að reikna með verulega aukinni sölu ríkisbréfa síðar á árinu, sem vænt- anlega mun hafa áhrif til enn frek- ari hækkunar markaðsvaxta. Stefnan í vaxtamálum og þróun lánskjara hefur verið allmikið til umræðu að undanförnu, og er út af fyrir sig ekki annars að vænta, þeg- ar haft er í huga, hve háir vextir hafa verið hér á landi síðustu árin, eftir að þeim hafði verið haldið niðri með stjórnvaldsákvörðunum um langt árabil. Og þótt raunvextir séu nú hér á landi svipaðir og víðast í Vestur-Evrópu, eru þeir áreiðanlega nægilega háir til þess að verka letj- andi á ijárfestingu og atvinnustarf- semi við þær aðstæður efnahags- stöðnunar, sem nú ríkja hér á landi. Spurningunni um það, hvort og hvernig verði unnt að lækka vexti hér á landi á næstunni, verður hins vegar að svara með efnahagslegum rökum, en ekki með óskhyggju að leiðarljósi. Mér þykir ólíklegt að nokkur dóm- bær maður efíst lengur um það, að það hafi verið nauðsynlegt, ef ekki beinlínis óhjákvæmilegt, að taka upp fijálsa vexti og afnema hömlur á fjármagnsmarkaðnum, eins og gert hefur verið hér á landi á undanförn- um árum. Með þessum breytingum hafa íslendingar eingöngu tekið upp viðskiptahætti á fjármagnsmarkaðn- um, sem allar nágrannaþjóðir þeirra hafa lengi aðhyllzt og telja má nauð- synlegan hlekk nútíma markaðsbú- skapar, sem jafnvel fyrrum einræðis- ríki Austur-Evrópu stefna nú að. Hitt verður að horfast í augu við, að fyrstu afleiðingar þessarar stefnu- breytingar í auknum fjármagns- kostnaði hafa ekki ætíð verið þægi- legar, en þær hafa hins vegar leitt til stóraukinnar innlendrar fjár- magnsmyndunar, eytt lánsfjár- skömmtun og mismunun á lána- markaðnum og verið undirstaða þess peningalegajafnvægis, sem nú hefur borið ávöxt í stórlækkun verðbólgu. Því miður eru efnahagsskilyrði nú þannig, að aðgerðir Seðlabankans til þess að knýja niður vexti eru nánast útilokaðir. Annars vegar eru bein afskipti af útlánsvöxtum innláns- stofnana óeðlileg vegna þess, að raunvextir almennra bankaútlána eru ekki hærri en markaðsvextir af opinberum verðbréfum, sem þó ættu við eðlileg skilyrði að vera mun lægri en bankavextir. Hins vegar getur Seðlabankinn ekki haft áhrif til lækkunar á vexti á verðbréfamark- aði, nema með því að stórauka pen- ingaframboð í landinu, t.d. með mikl- um verðbréfakaupum á markaðnum, en allar aðgerðir af því tagi væru til þess eins fallnar að grafa undan efnahagslegu jafnvægi og auka bæði verðbólgu og viðskiptahalla. Væri slíkt sérstaklega varhugavert nú, þegar ýmis merki eftirspurnarþenslu hafa verið að koma fram. Allt bendir því til þess, að varan- legri lækkun raunvaxta verði ein- SJÁBLS. 31 ■■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.