Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 20
20 'MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 10. APRÍL 1991 ALÞINGISKOSNINGAR Sj ávarútvegsráðherra kastar steinum úr glerhúsi eftirEinarK. Guðfinnsson Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra var sýnilega felmtri sleginn. Þegar hann flutti ræðu sína á miðstjómarfundi Framsóknar- flokksins um miðjan síðasta mánuð. Hann vék í máli sínu að þeirri kröfu sjálfstæðismanna, að setja á odd- inn, að sjávarútvegsráðuneytið kæmi í hlut Sjálfstæðisflokksins, ætti hann aðild að stjórnarmyndtan- arviðræðum að afloknum kosning- um. Svo var að heyra að þessi krafa kæmi illa við sjávarútvegsráðherr- ann og kannski ekki nema von. Þau fara senn að telja átta árin sem hann hefur verið hæstráðandi til sjós og lands í þessum málaflokki. Og ef til vill bara mannlegt að una því illa, að það sé orðað að tími sé kominn til mannaskiþta í þessu þýðingarmikla ráðuneyti. Eðlileg krafa Engum ætti þó að koma á óvart að slík krafa sé uppi hjá stærsta stjómmálaflokki landsins. Okkar bíða ótalin og óþijótandi verkefni á vettvangi þessarar starfsgreinar á næstu árum. Þó hæst beri vitaskuld mótun heildstæðrar sjávarútvegs- stefnu, er taki bæði til veiða og vinnslu. Halldór Ásgrímsson kvartaði mjög undan því að þjóðin fengi lítið að vita um stefnu Sjálfstæðismanna í sjávarútvegsmálum. Auðvitað veit ráðherrann betur. Stefna sjálfstæð- ismanna í þessum máiaflokki hefur glögglega komið fram í landsfund- arályktun, í skrifum formanns mál- efnanefndarinnar að loknum lands- fundi, í afstöðu fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í sjávarútvegsnefndum Alþingis og málflutningi þing- manna flokksins við umræður um fiskveiðistjómun, sem tíðum hafa farið fram á Alþingi. Þær umræður hefur ráðherrann jafnan verið við- staddur og veit því betur. Ekki úr háum söðli að detta Sjálfur hefur hann ekki úr ýkja háum söðli að detta. Því sannleikur- inn er sá að hann hefur á ferli sín- um sem sjávarútvegsráðherra, fylgt stefnu í fiskveiðistjórnun sem er gagnstæð því, sem hann og flokkur hans boðaði fyrir kosningarnar 1983, en það ár tók hann við emb- ætti sjávarútvegsráðherra. Ég tel nauðsynlegt allra hluta vegna að rekja það mál hér nokk- uð. Ekki síst vegna þess að minni sumra hrekkur stundum skammt. Því er ekki vanþörf á að hressa svolítið upp á það. Hvað sagði Steingrímur? Höfum það í huga að framsókn- armaðurinn Steingrímur Her- mannsson var sjávarútvegsráðherra næst á undan Halldóri Ásgríms- syni. Það er á ámnum 1980 til 1983. Hann var þá, ekki fremur en nú, ekki banginn að hafa uppi yfir- lýsingar. Okkur Vestfirðingum (en hér var hann í framboði í þá tíð) sagði hann til dæmis tæpitungu- laust: „Eg er ekki hlynntur kvótakerfi og sé á því ýmsa annmarka." Þetta var á því herrans ári 1980 og sjávarútvegsráðherrann var að flytja sitt pólitíska testamenti í sjáv- arútvegsmálum yfír vestfirskum sveitarstjómarmönnum. Og hann sagði meira: „Kvótakerfið tryggir ekki nauðsynlega samræmingu veiða og vinnslu ... Þá sýnist mér þó nokkuð flókið að ákveða kvóta fyrir hvert einasta fiskiskip, bæði togara og báta.“ Þeim sem vilja lesa nánar um afstöðu ráðherrans, er bent á að lesa kafla úr ræðu hans, sem birt- ist í framsóknarmálgagninu hér vestra, ísfírðingi; slegið upp yfir þvera forsíðuna. Stefna Framsóknar: Enginn kvóti! En það er ekki nóg með þetta. Téður Steingrímur Hermannsson fylgdi í sjávarútvegsráðherratíð sinni, kerfi fískveiðistjórnunar, sem sjálfstæðismaðurinn Matthías Bjarnason hafði þróað og Kjartan Jóhannsson, Alþýðuflokksmaður, einnig nýtt sér. Og allt gekk vel. Raunar svo vel, að þeir framsóknar- menn boðuðu sérstaklega í stefnu- yfirlýsingu sinni árið 1983: „Framsóknarflokkurinn telur að stýring fiskveiða hafi þróast á réttan hátt á undanförnum árum. Lögð er áhersla á að unn- ið verði áfram að þróun þessarar stýringar í ljósi reynslunnar." Með öðrum orðum: Það var mat framsóknarmanna að ekki ætti að söðla um við stjórn fískveiða. Fyrr- greind orð Steingríms um kvótann áttu greinilega enn við. Kjósendum landsins var fluttur sá boðskapur, að kæmist Framsóknarflokkurinn til valda og áhrifa í sjávarútvegs- málum, yrði fylgt sömu stefnu áfram. Um kvótakerfi yrði sýnilega ekki að ræða. Stefnan svikin En hvað gerðist? Halldór Ás- grímsson, fór í sjávarútvegsráðu- neytið; nauðugur að eigin sögn. Og árið var ekki liðið er hann sveik stefnumörkun Framsóknarflokks- ins. Kvótakerfið var orðið lögfest fyrir áramót .1983/1984. Þetta er lærdómsrík saga. Svo lærdómsrík, að ég tel fyllilega tíma- bært að rifja hana upp nú í ljósi ummæla Halldórs Ásgrímssonar á miðstjórnarfundi Framsóknar- flokksins. Það situr síst á Halldóri Ásgríms- syni, svo ágætur maður sem hann annars er, að tala í þeim dúr, sem hann gerði á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins. — Hann, sem sagði eitt fyrir kosningar 1983, en framkvæmdi svo allt annað að þeim loknum, í einu mikilvægasta máli síðustu áratuga, er varðar alla þjóð- ina. Þegar hann talar á þessa lund er hann sem steinkastari í glerhúsi. Framferði þeirra framsóknar- manna í þessu máli er og verður dæmi um makalausan pólitískan „Framferði þeirra framsóknarmanna í þessu máli er og verður dæmi um makalausan pólitískan tvískinn- ungshátt. Og það sæmir þeim því illa að hreykja sér hátt þegar kemur til málefna fiskveiði- stjórnar í þessu landi.“ tvískinnungshátt. Og það sæmir þeim því illa að hreykja sér hátt þegar kemur til málefna fiskveiði- stjórnar í þessu landi. Höfundur er varaþingmaður og skipnr 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum. Einar K. Guðfinnsson Að standa vörð um það gamla og úrelta eftir Finn Ingólfsson Miðvikudaginn 13. mars sl. birt- ist í Morgunblaðinu um margt at- hyglisverð grein eftir Ólaf F. Magn- ússon lækni. Ólafur kemst í grein sinni að þeirri niðurstöðu, reyndar þeirri sömu og einn fundarmanna á fundi í Læknafélagi Reykjavíkur komst að 20. febrúar sl., að lítill munur væri á íhaldi og kommum í heilbrigðismálum. Því það hafí sýnt sig að þegar þessir flokkar hafi ráðið í heilbrigðisráðuneytinu hafí ríkt algert stefnuleysi. Harður dómur Þetta er harður dómur yfír verk- um eigin flokks, en Ólafur er vara- borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ólafur kemst að þeirri niðurstöðu í grein sinni að í heil- brigðisráðherratíð Guðmundar Bjamasonar hafi orðið veruleg umskipti varðandi stefnumörkun í heilbrigðismálum. Af orðum vara- borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins H vað er ArmaHex Það er heimsviðurkennd pípueinangrun í hólkum, plötum og límrúllum frá P. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 - Múlatorgi - Sími 38640 í Reykjavík verður ekki annað ráðið en að Sjálfstæðisflokkurinn sé stefnulaus í heilbrigðismálum og sú stefnumörkun, sem orðið hafí í þeim málum á undanförnum árum sé komin frá framsóknarmönnum. Þetta er alveg hárrétt hjá Ólafi. Það hefði því verið viðkunnanlegra hjá honum að minnast á nokkur atriði í þeirri viðamiklu stefnumótun, sem orðið hefur á undanfömum 4 árum í heilbrigðis- og trýggingamálum, heldur en að fara með rangtúlkanir og dylgjur. Stefnumótun Hér vil ég minnast á örfá atriði en sem þó eru homsteinar stefnunn- ar í heilbrigðis- og tryggingamál- um. 1. Fyrir fáum dögum var sam- þykkt á Alþingi tillaga til þings- ályktunar um íslenska heilbrigðis- áætlun. Hér erum að ræða fyrstu heildarstefnumótunina í íslenskum heilbrigðismálum, sem tekur til allra þátta heilbrigðisþjónustunnar. Áætlunin er i samræmi við stefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar um heilbrigði allra árið 2000. Að þessari stefnumótun hafa marg- ir unnið og úr hinum ýmsu stéttum heilbrigðisþjónustunnar ásamt émbættismönnum og stjórnmála- mönnum. Hér er um pólitíska stefn- umörkun að ræða og það ánægju- lega átti sér stað að á Alþingi var þingsályktunin samþykkt sam- hljóða. 2. í góðri samvinnu ríkis og sveitarfélaga tókst að komá á nýrri verkaskiptingu á milli þessara aðila á sviði heilbrigðis- og trygginga- mála með það að markmiði að gera hana skýrari og markvissari: 3. Breyting hefur verið gerð á lögunum um heilbrigðisþjónustu í kjölfar breytinga á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Mark- mið þeirrar breytingar var að draga úr miðstýringu og færa vaid og verkefni, sem áður voru inni í heil- brigðisráðuneytinu og á borði borg- arstjórans í Reykjavík, út til sjálf- stætt starfandi stjóma heilbrigðis- stofnananna. 4. Skipað hefur verið Sam- starfsráð sjúkrahúsanna { Reykja- vík, sem hefur það hlutverk að auka sérhæfíngu og samstarf sjúkrahú- sanna og ná þannig fram hagræð- ingu í rekstri. 5. Fyrir Alþingi var langt frum- varp til laga um almannatrygging- ar. Hér var um að ræða heildarend- urskoðun á almannatryggingalög- gjöfínni, sem er að stofni til frá 1971. I frumvarpinu er um grund- vallarbreytingar á almannatrygg- ingalöggjöfínni að ræða, sem hefur það megin markmið að færa frá þeim sem betur mega sín til hinna sem við erfíðari aðstæður búa. Lög- gjafínn tók ,ekki afstöðu til þessa frúmvarps, en stefna Framsóknar- flokksins birtist skýrt í frumvarp- inu. 6. Fyrir Alþingi var lagt frum- varp til laga um gjörbreytingu á lyfsölu og lyfjadreifíngu í landinu. Til þessa frumvarps hefur löggjaf- inn enn ekki tekið afstöðu, en stefna Framsóknarflokksins kemur þar skýrt fram. Með frumvarpinu er stefnt að stórkostlegum spamaði í lyfjamálum til að skapa forsendur Finnur Ingólfsson „Það er sorglegt til þess að vita að ungnr maður í læknastétt skuli í raun berjast gegn nýjungum og breyttum tímum.“ fyrir skattalækkunum. 7. Um mitt ár 1990 lagði heil- brigðisráðherra fram i ríkisstjórn- inni víðtæka stefnumótun um upp- byggingu heilsugæslunnar í Reykjavík. Markmiðið er að allir Reykvíkingar hafi aðgang að heilsugæsluþjónustu og þannig verði ekki lakar búið að Reykvíking- um í þessum efnum en öðrum lands- mönnum. 8. Með samningum við lækna hefur verið leitast við að draga úr kostnaði við sérfræðilæknishjálp. Tekist hefur með samstilltu átaki læknafélaganna, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Tryggingastofnunar ríkisins að lækka kostnað við sérfræðilæknis- hjálp á föstu verð lagi úr 979 millj- ónum króna árið 1988 niður í 800 milljónir króna árið 1990. Hér hefur verið minnst á fáa en afskaplega mikilvæga vegvísa á þeirri leið sem Framsóknarflokkur- inn hefur verið að varða til betra, hagkvæmara og ódýrara heilbrigð- is- og tryggingakerfis. Að standa vörð um það staðnaða Um útúrsnúning staðreynda, dylgjur og vísvitandi misskilning á ýmsum þeim atriðum, sem fram koma í grein Ólafs, mætti hafa mörg orð. En flest af því sem þar kemur fram hefur áður 4erið hrak- ið í blaðagreinum af heilbrigðisráð- herra, undirrituðum og fleirum. Ólafur F. Magnússon, varaborg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hef- ur sett sér það að standa vörðum gamalt, þjónustulítið og staðnað kerfi sjálfstætt starfandi heimilis- lækna. Á sama tíma er hins vegar verið að byggja upp þjónusturíkt og nútímalegt heilsugæslukerfí fyr- ir Reykvíkinga. En Ölafur vill auð- vitað, eins og sönnum sjálfstæðis- manni sæmir, standa vörð um hið gamla og úrelta. Heimilislæknum, sem vilja vinna í heilsugæsluþjón- ustunni, hefur fjölgað og þeir sem starfað hafa í einyrkjakerfinu hafa sóst eftir því að flytjast yfir og sá tilflutningur hefur átt sér stað. Þetta stafar af því að í eðli sínu vilja heimilislæknar veita víðtæka og góða þjónustu. Það er sorglegt til þess að vita að ungur maður í læknastétt skuli í raun beijast gegn nýjungum og breyttum tímum með því að þver- skallast við og neita að viðurkenna nýja og breytta tíma. Það sem verð- ur þó að virða honum til vorkunnar er það að hann er í forsvari fyrir stjórnmálaflokk sem stendur traustan vörð um það gamla, staðn- aða og úrelta. Ilöfundur skipnr efsta sœti frnmboðslista Framsóknarflokksins í Reykja vík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.