Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 31
• 410RCÍIÍ /1.<?h ARRÍb 4«9i FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 9. apríl. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verö verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 108,00 76,00 88,77 75,722 6.721.620 Þorskur(óst) 97,00 95,00 96,21 3,173 306.279 Ýsa 128,00 73,00 119,13 6,044 720.003 Ýsa (ósl.) 97,00 70,00 79,05 0,250 19.762 Blandað 36,00 36,00 36,00 0,302 10.872 Rauðmagi 107,00 107,00 107,00 0,091 9.737 Steinbítur(óst) 35,00 20,00 34,95 2,614 91.370 Skötuselur 500,00 500,00 500,00 0,008 4.000 Ufsi 51,00 41,00 49,07 12,039 590.773 Steinbítur 45,00 45,00 45,00 0,132 5.949 Skötuselur 215,00 215,00 0,274 58.910 Lúða 475,00 300,00 348,47 0,269 93.914 Langa 69,00 65,00 66,59 0,703 46.832 Koli 68,00 60,00 66,57 0,240 15.976 Keila 49,00 49,00 49,00 0,126 6.174 Karfi 35,00 33,00 34,84 19,732 687.433 Hrogn 205,00 205,00 205,00 3,634 745.073 Samtals 80,84 125,355 10.133.677 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur (sl.) 122,00 70,00 90,76 42,130 3.823.885 Þorskur (ósl.) 100,00 75,00 86,24 16,099 1.388.309 Þorskur (smár) 78,00 78,00 78,00 0,590 46.020 Ýsa (sl.) 120,00 75,00 90,01 6,062 545.647 Ýsa (ósl.) 123,00 112,00 121,91 0,848 103.380 Blandað 80,00 20,00 36,00 0,060 2.160 Hrogn 140,00 50,00 99,85 0,131 13.080 Karfi 38,00 30;00 31,16 74,412 2.318.918 Keila 47,00 47,00 47,00 0,548 25.756 Lúða 525,00 300,00 352,48 0,385 135.705 Rauðmagi 120,00 120,00 120,00 0,030 3.600 Skarkoli 70,00 57,00 61,16 1,898 116.075 Skötuselur 180,00 180,00 180,00 0,128 23.040 Steinbitur 55,00 41,00 43,35 3,329 144.330 Ufsi 47,00 44,00 45,51 16,534 752.545 Samtals 58,00 165,777 9.614.274 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 92,00 75,00 91,06 12,674 1.154.072 Þorskur (ósl.) 128,00 70,00 96,84 33,813 3.274.585 Ýsa 130,00 88,00 124,82 6,616 825.757 Ýsa (ósl.) 137,00 100,00 124,23 5,685 706.223 Karfi 47,00 15,00 40,73 6,123 249.405 Ufsi 49,00 15,00 44,09 20,320 895.871 Steinbítur 45,00 15,00 36,61 1,171 42.867 Hlýri/Steinb. 45,00 45,00 45,00 0,020 900 Langa 62,00 60,00 61,38 0,184 11.294 Blá/Langa 73,00 73,00 73,00 0,368 26.864 Lúða 595,00 40,00 270,09 1.474 398.110 Skarkoli 71,00 59,00 65,19 1,653 107.767 Svartfugl 85,00 85,00 85,00 0,007 595 Rauðmagi 82,00 82,00 82,00 0,030 2.460 Keila 46,00 30,00 45,43 1,488 67.593 Skata 90,00 90,00 90,00 0,030 2.700 Skötuselur 150,00 150,00 150,00 0,037 5.550 Háfur 5,00 5,00 5,00 1,088 5.440 Gellur Blandað 29,00 16,00 26,00 0,205 5.331 Samtals 83,69 93,471 7.822.264 Selt var úr dagróðrabátum og Þuríði Halldórs. í dag verður selt úr dagróðra- bátum. ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar 1. apríl 1991 Mánaðargreiðslur Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) ................. 11.819 '/z hjónalífeyrir ..................................... 10.637 Full tekjutrygging ..................................... 21.746 Heimilisuppbót .......................................... 7.392 Sérstökheimilisuppbót ................................... 5.084 Barnalífeyrirv/ 1 barns ................................. 7.239 Meðlag v/ 1 barns ....................................... 7.239 Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ............................4.536 Mæðralaun/feðralaun v/ 2ja barna ...................... 11 -886 Mæðralaun/feðralaunv/3jabarnaeðafleiri ................ 21.081 Ekkjubætur/ekkilsbætur6 mánaða ......................... 14.809 Ekkjpbætur/ekkilsbætur 12 mánaða ....................... 11.104 Fullur ekkjulífeyrir ................................... 11.819 Dánarbætur í 8 ár (v/slysa) ............................ 14.809 Fæðingarstyrkur ........................................ 24.053 Vasapeningarvistmanna ................................... 7.287 Vasapeningarv/sjúkratrygginga ........................... 6.124 Daggreiðslur Fullirfæðingardagpeningar ............................ 1.008,00 Sjúkradagpeningareinstaklings ........................ 504,40 Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ............... 136,90 Slysadagpeningareinstaklings ........................... 638,20 Slysadagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ................ 136,90 Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur, 28. jan. - 8. apríl, dollarar hvert tonn ÞOTUELDSNEYTI 450-...... -........ 425----------------- 400----------------- 375 1.F 8. 15. 22. 1.M 8. 15. 22. 29. 5.A SVARTOLÍA -t—i—i—i—i—i—i—h- 1.F 8. 15. 22. 1.M 8. 15. 68/ 67 H—H- 29. 5.A Þrálátur hallarekstur ríkissjóðs eitt erfiðasta vandamálið göngu náð á alllöngum tíma með markvissum aðgerðum til þess að draga úr opinberri lánsfjárþörf og með því að tryggja áframhald þess stöðugleika í verðlagi, sem til lengd- ar er mikilvægasta undirstaða trausts á fjármagnsmarkaðnum og aukins innlends sparnaðar. Of mörg efnahagsleg markmið Sá skoðanamunur bæði unj geng- isstefnu og stjórn peningamála, sem borið hefur á á undanförnu, á sér hliðstæðu víða um lönd um þessar mundir, ekki sízt í Evrópu, þar sem mjög er um það rætt, hvernig marka skuli peningamálastefnu sameiginlegs myntsvæðis alls Evr- ópubandalagsins. Þeirri skoðun vex æ fylgi, að mörg þeirra hagstjórnar- vandamála, sem við hefur verið að etja víða um heim á undanförnum tveimur áratugum, stafi m.a. af því, að reynt hafi verið að ná of ■mörgum efnahagslegum markmið- um samtímis án þess að gera sér grein fyrir því, að sumum markmið- um verður að ná fyrst, áður en varanlegur árangur getur náðst á öðrum sviðum. Þegar menn hafa t.d. reynt að tryggja allt í senn góðan hagvöxt, mikla atvinnu og stöðugt verðlag, hefur reyr.slan harla oft orðið sú, að þeir hafa fórn- að stöðugleika í verðlagi í þeirri von, að með því mætti halda uppi atvinnu og hagvexti, en upp skorið að lokum verðbólguþróun, sem stefnt hefur þessu hvoru tveggja í hættu. Vegna þessarar reynslu og margra annarra raka, sem hér skal ekki reynt að tíunda, hafa flestir komizt að þeirri niðurstöðu, að stöð- ugleiki í verðlagi rekist ekki til lengdar á önnur efnahagsleg mark- mið, heldur sé í raun forsenda þess, að hægt sé að ná öðrum markmið- um, svo sem örum hagvexti og háu atvinnustigi. Því beri að setja ákveðin, jafnvel ófrávíkjanleg, markmið um stöðugleika í verðlags- málum, sem seðlabönkum sé falið að ná með beitingu peningalegra stjórntækja án afskipta eða áhrifa frá öðrum stjórnvöldum. Öðrum efnahagslegum markmiðum verði stjórnvöld þá að ná með því að beita öðrum hagstjórnartækjum, og þá sérstaklega aðgerðum í ríkisfjár- málum. Enginn vafi er á því, að hug- myndir af þessu tagi eigi erindi til íslendinga. Vandamálin í stjórn efnahagsmála hér á landi á undan- förnum áratugum hafa ekki sízt stafað af því, að stöðugleika í verð- lagi og gengi hefur þráfaldlega ver- ið fórnað í þágu annarra markmiða, svo sem hagvaxtar, atvinnuaukn- ingar eða byggðastefnu. Afleiðingin hefur orðið stórfelld verðbólga lang- tímum saman, sem síðan hefur spillt fyrir árangri á öðrúm sviðum. Jafn- framt hefur þrotlaus togstreita staðið um beitingu sjálfsagðra hag- stjórnartækja í peningamálum, svo sem vaxtabreytinga og innlánsbind- ingar, sem orðið hefur dragbítur á árangursríka stjórn peningamála. Af þessum ástæðum tel ég það fagnaðarefni, að nú skuli hafa verið ákveðið að hefja gagngera endur- skoðun Seðlabankalaganna, þar sem sérstaklega verði fjallað um hlutverk bankans með tilliti til þeirra gjörbreyttu aðstæðna, sem skapazt hafa í peningamálum hér á landi og víðar um heim. Einnig verður væntanlega sérstaklega fjallað um stöðu og sjálfstæði Seðla- bankans innan stjórnkerfisins í Ijósi nýjustu viðhorfa í þeim efnum. Eins og ég gat um í upphafi máls míns, var setning Seðlabanka- laganna 1961 þáttur í víðtækri stefnubreytingu, sem þá átti sér stað í efnahagsmálum. Sú lagasetn- ing átti áreiðanlega sinn þátt í að styrkja stefnuna í peningamálum við þær aðstæður, sem þá ríktu. En hún var óhjákvæmilega byggð á hugmyndum um miðstýringu vaxta og lánsfjárdreifingar, sem þá var alls ráðandi í þjóðfélaginu, en buðu jafnframt upp á vaxandi stjórnmálaleg afskipti af stjórn pen- ingamála. Þótt mikilvægt skref hafi verið tekið með breytingu Seðla- bankalaganna 1986 í því skyni að auka frelsi á fjármagnsmarkaðnum, er löggjöfin í meginatriðum óbreytt að því er skipulag bankans og stöðu hans gagnvart ríkisvaldinu varðar. Það er því þegar af þeirri ástæðu þörf á gagngerri endurskoðun hennar nú. Mestar breytingar á lánsfjármarkaðnum Þær breytingar, sem nú eru að ganga yfir í efnahagsmálum, eru sízt minni en fyrir þijátíu árum, en sá er helzti munurinn, að breyting- arnar eru að þessu sinni mestar á lánsfjármarkaðnum með auknu markaðsfrelsi innan lands og út á við. En auknu frelsi fylgir á þessu sviði sem öðrum krafan um réttlát- ar leikreglur og nauðsynlegan aga. Ella er hætt við því, að uppskeran verði glundroði í stað framfara, átök í stað gagnkvæms ávinnings. Ég hef gert hér að umtalsefni tvo þætti í stjórn peningamála, þar sem ég Höfn: Arsþing Ungmennasam- bandsins Úifljóts 1991 Höfn. 59. ÁRSÞING Úlfljóts var haldið í Holti á Mýrum fyrir nokkru og sátu það um 60 félagar úr flest- um félögum sambandsins. Enn- fremur sátu þingið þrír gestir, þeir Sigurður Þorsteinsson og Þórir Jónsson frá UMFÍ og Guð- mundur Gíslason frá ÍSÍ. í ávarpi fráfarandi formanns, Ara Hannessonar, kom fram að fjárhagur sambandsins væri all erf- iður á þessari stundu og taldi hann félagsstarfið almennt vera veikt og værr það ef til vill enn alvarlegri brestur i starfi sambandsins og fé- laganna er það mynda. Rekstrarreikningur USÚ 1990 hljóðaði uppá kr. 2.831.923,- og var hagnaður af starfsemi ársins kr. 372.583. Stærstu tekjuliðir voru styrkir kr. 760.000, lottó kr. 551.000, fjáraflanir stjórnar kr. 488.000 og ijáraflanir landsmóts- nefndar 414.000. Stærstu gjaldalið- ir voru vegna landsmóts kr. 667.000, laun ög launatengd gjöld kr. 547.000, húsnæði og rekstur skrifstofu kr. 315.000. Samkvæmt efnahagsreikningi var eigið fé sambandsins kr. 317.118. Eignir hljóðuðu uppá kr. 1035.130 en þar af voru birgðir kr. 508.900. Skuldir um liðin áramót voru kr. 718.021. Á þinginu voru ný lög samþykkt. Ungmennasambandið Úlfljótur verður 60 ára á næsta ári. Verður þess væntanlega minnst með ein- hveijum hætti og var ályktað um það ásamt fleiri ályktunum. Nýja stjórn USÚ skipa: Formaður er Bjarni M. Jónsson úr Sindra á Höfn. Aðrir í stjórn: Björn Guðbjörnsson og Svava Arnórsdóttir (Sindra), Björn Þorbergsson (Vísi) og Eiríkur Sigurðsson (Mána). Varamenn: Inga Kristín Sveínbjörnsdóttir (Sindra), Jón finnur Hansson (hest- amannafélag) og Ólafur Sigurðsson (Umf. Öræfinga). Tveir atorkusamir ungmennafé- lagar í gegnum tíðina voru sæmdir ___________________________(Ú§1 tel umbóta þörf, ef íslendingar eiga að njóta ávaxta þeirra miklu breyt- inga, sem nú eru að gerast hér á landi og í Evrópu. Annar þátturinn er stefnan í gengismálum, þar sem ég tel mikilvægt, að samstaða geti tekizt sem fyrst um gengisfestu sem grundvallarmarkmið efnahags- stjórnar á komadi árum. Hinn þátt- urinn varðar endurbætur á stjórn peningamála, m.a. með nýrri lög- gjöf um Seðlabankann, þar sem markmið stjórnar peningamála væri bundið við það meginverkefni að tryggja stöðugleika í verðlagi og gengi. Jafnframt yrði beiting pen- ingalegra stjórntækja gerð sem óháðust öðrum pólitískum sjónar- miðum, a.m.k. á meðan Seðlabank- inn gegnir hlutverki sínu á þessum sviðum með eðlilegum hætti. Ég er nú kominn að lokum þessa máls, en í því hef ég aðallega fjall- að um nokkra mikilvæga þætti hag- stjórnar, þar sem Seðlabankinn hef- ur sérstöku hlutverki að gegna. En ég get ekki skilið svo við þessi efni, að ekki sé drepið á aðra meginhlið- ina í starfsemi Seðlabankans, en það er að vera banki bankanna og stuðla að traustum rekstri fjármála- stofnana og’heilbrigðri starfsemi lánamarkaðsins. Með þeim breyt- ingum, sem orðið hafa á þessu sviði á undanförnum árum, svo sem frjálsum vöxtum, fjölbreyttari fjár- málaþjónustu og ört vaxandi verð- bréfa- og hlutabréfamarkaði, hafa verkefni Seðlabankans á þessu sviði farið ört vaxandi. Á fijálsum mark- aði hljóta fjármálastofnanirnar sjálfar að vera ábyrgar gerða sinna, hvort sem vel tekst til eða ekki. En hitt er jafn nauðsynlegt, að á markaðnum gildi öruggar reglur, er ti-yggi bæði hag stofnananna sjálfra og viðskiptamanna þeirra, svo og virkt eftirlit með því, að þeim reglum sé fylgt. Hér er ekki tækifæri til þess að ræða frekar um hin miklu umskipti, sem átt hafa sér stað á lánsfjármarkaðnum hér á landi á undanförnum árum, eða þátt Seðlabankans í þeim. Óhjá- kvæmilegt er, að svo örar breyting- ar hafi í för með sér aukna áhættu, sem leitt geti til slysa eða jafnvel alvarlegra áfalla, og vissulega hafa henni fylgt meiri útlánatöp lána- stofnana að undanförnu en um ára- tuga skeið. Flest bendir hins vegar til þess, að mestu erfiðleikarnir á þessu sviði séu senn að baki og ís- lenzkar fjármálastofnanir eigi fylli- lega skilið það traust, sem þær njóta hjá viðskiptavinum sínum. Á þessum tímamótum vil ég ljúka máli mínu með því að þakka það góða samstarf, sem Seðlabankinn hefur ætíð átt annars vegar við stjórnvöld, en hins vegar við foryst- umenn banka, sparisjóða og ann- arra fjármálastofnana. Aðeins með gagnkvæmum skilningi og sam- starfi þessara þriggja aðila er unnt að tryggja heilbrigði, vöxt og við- gang íslenzka lánsfjármarkaðsins. 'Ari Hannesson afhendir RE bik- ar seni íþróttamaður ársins varð- veitir í 1 ár. Albert Eymundsson og Ásmund- ur Gíslason hlutu starfsmerki UMFÍ. starfsmerki UMFÍ fyrir mikil og gæfurík störf að æskulýðs- og íþróttamálum, þeir Ásmundur Gísl- ason fyrrum formaður USÚ og Al- bert Eymundsson áhugamaður um knattspyrnu og fleira. - JGG. (
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.