Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRIL 1991 \ • ALÞINGISKOSNING Hagiir landsbyggð- ar og liöfuðborgar eftir Lárus Jónsson Þeir stjórnmálamenn, sem hæst tala um byggðamál, þrástagast gjarnan á þeim- áróðri að lands- byggðarfólk og höfuðborgarbúar eigi gagnstæðra hagsmuna að gæta. Stjórnmál snúast því ekki síst um það hvaða flokkur eða samtök séu vinir þéttbýlisfólks við Faxaflóa og hveijir styðji lands- byggðina. Þessi hugmyndafræði eða meinloka er af sama toga og kenningin um að hagsæld einnar starfsstéttar sé fyrst og fremst komin undir því að eiga í eilífum átökum og helst stríði við aðrar stéttir. Því miður hefur þessi neikvæða umræða um íslensk byggðamál oft og tíðum valdið miklum deilum. Þá eru því miður ekki spöruð stór- yrði á báða bóga svo engu er lík- ara en að tvær stríðandi þjóðir búi í landinu. Verst er að þessi um- ræða er ekki einungis ófrjó heldur má færa gild rök að því að hún hafi ómældan skaða í för með sér fyrir alla landsmenn. Hver er hagur íbúa höfuðborgarsvæðisins í byggðamálum? Spyija má hvort það sé hagur íbúa höfuðborgarsvæðisins að þangað flytjist á næstu 20 árum um 30.000 manns af landsbyggð- inni og bætist við þá eðlilegu fjölg- un fólks, sem þar býr? í heild yrði þá tæplega 54.000 manna fjölgun þar á þessu tímabili. Þetta er fjölg- un sem svarar íbúatölu Garðabæjar á rúmlega tveggja ára fresti. Þessi spurning er brennandi, vegna þess að horfur eru á að þróun byggðar í landinu verði svipuð þessu að öllu óbreyttu. Sú er niðurstaða sér- fræðinga Byggðastofnunar og taka þeir þá mið af þeim fólksflutn- ingum sem nú eiga sér stað milli byggðarlaga og líklegri fjölgun þjóðarinnar. (Sjá mynd.) Hér skulu tilfærð fáein dæmi og Wicanders Kork-o-Plast korkflísamerkin komin undirsama þak. ££ ármúla 29, Múlatorgi, síml 31649 Þ. ÞORGRÍMSSON & CO „Sjálfstæðisflokkurinn hefur mótað þá nýju stefnu að leggja verði áherslu á það í byggða- málum að efla vaxta- svæði á landsbyggð- • • LL ínm. um kostnaðarsamar lausnir, sem grípa þyrfti til vegna svo mikillar fólksfjölgunar á höfuðborgarsvæð- inu: Þar má m.a. nefna auknar mengunarvarnir, hreinsun á frá- rennsli og holræsagerð, sorp- hreinsun, vatnsöflun og byggingu skóla fyrir nemendur í skyldun- ámi, sumpart vegna aðflutninga nemenda af landsbyggðinni úr vannýttum skólum. Þá þyrfti einn- ig að hraða mjög framkvæmdum í umferðarmannvirkjum á svæðinu vegna bifreiðafjölgunar, sem gætu numið 22.000 bílum. Hag höfuðborgarbúa yrði ber- sýnilega mun betur borgið, ef þessi fjölgun yrði nokkru minni t.d. 30.000 manns í heild. Þá nægði — svo einungis dæmi sé tekið — að miða framkvæmdir á sviði umferð- armannvirkja við 10.000 færri bíla og skóla fyrir 3.000 færri nemend- ur. (Sjá mynd.) Hver er hagur Iandsbyggðarf ólks? Áðumefndir framreikningar benda til að búast má við að íbúum landsbyggðarinnar fækki að öllu óbreyttu um tæplega 11.000 manns, sem er álíka margt fólk og býr á Norðurlandi vestra. Þetta þýddi að öll fólksfjölgun á lands- byggðinni flyttist auk þess til höf- uðborgarsvæðisins. Þetta hefði óhjákvæmilega í för með sér stöðn- un og uppdráttarsýki í einstökum byggðarlögum og jafnvel stórum landsvæðum, ef af yrði. Augljós- lega er ekki við því að búast að atvinnugreinar landsbyggðarinn- ar, þ. á m. sjávarútvegurinn, eflist og dafni í slíku umhverfi. Það þarf ekki mörgum orðum að því að eyða að byggðastefna, sem megnaði að snúa þessu undanhaldi í viðnám og vöxt felur í sér mikinn og bein- an hag fyrir landsbyggðarfólk. Byggð með byggð - þjóðarhagur Sjálfstæðisflokkurinn hefur mótað þá nýju stefnu að leggja verði áherslu á það í byggðamálum að efla vaxtasvæði á landsbyggð- inni. Treysta verði daglegar sam- göngur milli þéttbýlisstaða, sjávar- plássa og sveita, sem þannig myndi heildstæð atvinnusvæði, þar sem iðnaður og þjónustugreinar geti náð fótfestu við hlið sjávarútvegs og landbúnaðar. Þessi stefna tekur mið af því að langflest ný störf sem verða til í atvinnulífmu eru iðnaðar- og þjónustustörf. Hún tekur mið af því að stórbæta þarf rekstrarum- hverfi sjávarútvegsins til þess að hann geti enn betur gegnt því lykil- hlutverki í þjóðarbúskapnum, sem nú er meiri þörf á en nokkru sinni fyrr. Þessi stefna tekur einnig mið af því að hún er hagkvæm fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. í henni felst þjóðarhagur. Kjörorðið byggð með=byggð var yfirskrift ályktunar landsfundar Sjálfstæðisflokksins þar sem þessi nýja byggðastefna var ítrekuð og undirstrikuð. Þar var vísað til þess að gamalt kjörorð flokksins, stétt með stétt, hafi sannað gildi sitt í skóla reynslunnar og hvatt til sam- stöðu fólks hvar sem það býr um ný markmið og leiðir í byggðamál- um. Þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins fluttu einnig tillögu til þings- ályktunar á síðasta þingi, þar sem þessi grundvallarstefna er útfærð. Höfundurer framkvæmdastjóri ogásæti í málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins um byggðamál. A R ÞRÓUN BYGGÐAR TIL ÁRSINS 2010 SKV. FRAMREIKNINGI BYGGÐASTOFNUNAR Þúsund manns Höfuöborgarsvæöi: 53.700 manns -20 - Höfuðborgarsvæði Landsbyggð FJÖLGUN BlLA OG GRUNNSKÓLANEMA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU TIL ÁRSINS 2010 FJÖLGUN 25 - Öbreyttar horfur í byggöaþróun 22.000 bílar "JAFNARI BYGGÐ" m.v. 30.000 manna fjölgun 6 svttðinu FÓLKSBlLAR ISSS GRUNNSKÓLANEMAR OBLEIKTAR OFNÆMISPRÓFAÐAR = MEÐ TEYGJU AÐ AFTAN STELPU BLEIUR : <r- * .ú íSífsril ifíjpfe MAXl ‘MKkg STRAKA I BLEIUR __________Brids_____________ Arnór Ragnarsson Bridsdeild Rangæinga Sl. miðvikudag hófst 3ja kvölda tvímenningur. Eftir fyrsta keppnis- kvöldið er staða efstu para þessi: Daníel Halldórsson - Ragnar Bjömsson 207 Bragi Jonsson - Rafn Kristjánsson 202 Jón St. Ingólfsson - Jón Björgvinsson 177 Jóhanna Guðmundsd. - Sveinn Sæmundsson 174 Birgirísleifsson- Gunnar Alexandersson 170 Bridsfélag Reykjavíkur Sl. miðvikudag hófst aðaltvímenn- ingur félagsins með þátttöku 40 para. Staðan eftir 6 umferðir: Hjördís Eyþórsdóttir — Asmundur Pálsson 81 Öm Amþórsson - Guðlaugur R. Jóiiannsson 81 Oddur Hjaltason—Eiríkur Hjaltason 78 Guðmundur G. Sveinsson - Valur Sigurðsson 63 Bjöm Amarsson - Jónas Elíasson 60 Þórarinn Sófusson — Friðþjófur Einarsson 59 Sævar Þorbjömsson - Guðm. Páll Arnarson 58 ÓlafurLárusson-HermannLárusson 53 Sveinn R. Eiríkss. - Steingr. Gautur Péturss. 41 Valgerður Kristjánsdóttir - Esther Jakobsdóttir 40 Guðmundur Sv. Hermannss. - Björn Eysteinss. 39 Guðmundur Baldursson - Guðbjörn Þórðarson 29 Júlíus Snorrason - Sigurður Siguijónsson 19 Sveinn Þorvaldsson - Hjálmar S. Pálsson 19 Bridsfélag Hornafjarðar 22 pör spila með aðaltvímennings- titilinn og spilað verður 3ja kvölda Butler. Staðan eftir fyrsta kvöldið er: JónGuðmundsson-JónNíelsson 49 SverrirGuðmundsson - Ragnar Björnsson 44 Jón G. Gunnarsson - Kolbeinn Þorgeirsson 38 Þórir Haraldsson — Hafliði Hjarðar 26 AmiStefánsson-JónSveinsson 25 Sigurpáll Ingibergsson - Guðm. Guðjónsson 16 Gunnlaugur Karlsson - Ari Kolbeinsson 12 Ólafur Jónsson—Kristjón Elvarsson 12 GesturHalldórsson-MagnúsJónasson 10 Guðbrandur Jóhannsson - Gunnar Halldórsson 8* Einar Jensson — Þorsteinn Sigjónson 7 BjömGíslason-JónG.Helgason 6 JGG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.