Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1991 Morgunblaðið/Sigurgeir Skipverjar og sprengjusérfræðingar skoða trollið við skipshlið. Emma fékk dufl í trollið við Eyjar Vestmannaeyjum. EMMA VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum á þriðjudagskvöld með tundurdufl sem skipveijar fengu í trollið á Karganum vestan við Eyjar. Duflið var virkt en sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunn- ar sem komu til Eyja gerðu það óvirkt og eyddu því síðan. Kristján Óskarsson, skipstjóri, Þeir komu til Eyja og sáu að duflið sagði að þeir hefðu verið að toga á Karganum, sem er hraun 10 mílur vestan við Eyjar. „Ég var að prófa að toga inn í hraunið, eftir asdik- inu, og duflið hlýtur að hafa komið í þar því ég veit ekki til að það hafi áður verið togað þama,“ sagði Kristján. Hann sagði að duflið hefði verið í miðjum beig trollsins og þeir hafí séð það strax og það kom upp í skutrennuna. „Við hífðum trollið inn og náðum duflinu síðan úr því og festum úti í síðu. Ég hafði samband við Land- helgisgæsluna og þeir sögðu okkur að fara strax í land með þetta. var virkt. Þeir kiipptu síðan á ein- hveija víra í því og gerðu það óvirkt en síðan var því eytt einhvers stað- ar austur á hrauni,“ sagði Kristján. Grímur Tillög*ur að Ósbraut yfir Elliðaárvog lag*ðar fram TVÆR tillögur að Ósbraut er tengja mun Sæbraut og Höfða- bakka, hafa verið lagðar fram í borgarráði. í greinargerð Sigurð- ar I. Skarphéðinssonar aðstoðargatnamálastjóra, er jafnframt borinn saman kostnaður við tvöföldun Vesturlandsvegar frá Reykjanesbraut að Höfðabakka og lagningu Ósbrautar. í tillögu 1 er gert ráð fyrir samfelldri hárri brú yfir smábáta- höfnina í Elliðaárvogi og ósa Ell- iðaáa, með möguleikum á tveggja hæða gatnamótum og aðkomu að fyrirhuguðu hafnarsvæði um Kjalarvog. Verður ekið_ undir brúna á lóð Olíufélagsins. Áætlað- ur kostnaður er kr. 556 milij. I tillögu 2 eru brýr styttar eins og unnt er og tengingar við þær eins brattar og unnt er miðað við kröfur um stofnbraut. Ef tillagan verður fyrir valinu, verður hafnar- svæðið tengt með ljósastýrðum gatnamótum við Kjalarvog. Áætl- aður kostnaður er kr. 449 millj. Mælt er með að fyrsti áfangi verði boðinn út haustið 1991 og að honum ijúki ári síðar. í honum felist gerð undirganga undir Höfðabakka ásamt syðri akbraut Ósbrautar frá Breiðhöfða að und- irgöngum. Enn fremur að lokið verði við gróffyllingu í vegstæði frá Sævarhöfða að smábátahöfn. Annar áfangi, brúargerð, verði boðinn út í ársbyijun 1992 og að verklok verði haustið 1993. Þriðji áfangi fari í útboð í ársbyijun 1993 og að honum ljúki haustið 1993. Þá verði lokið við vegagerð vestan Sævarhöfða. Áætlaður kostnaður við tvö- földun Vesturlandsvegar frá Reykjanesbraut að Höfðabrekku er um kr. 683 millj. eða rúmlega 20% hærri en gerð Ósbrautar. Fram kemur að kostnaðartölur og greinargerð Þórarins Hjalta- sonar yfirverkfræðings umferðar- deildar, styðji þá ákvörðun að leggja Ósbraut áður en hafíst er handa við breikkun Vesturlands- vegar. Þá hefur gatnamálastjóri leitað eftir því við vegamálastjóra að Ósbraut verði þjóðvegur í þétt- býli og kostnaður greiddur úr ríkissjóði. Tillaga að Ósabraut, vegtengingu yfir Elliðavog Næsta skref að breyta Búnaðar- bankanum í hlutafélagsbanka — sagði Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra á ársfundi Seðlabankans Jón Baldvin vill kappræð- ur við Davíð JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, hefur skorað á Davíð Odds- son, formann Sjálfstæðis- flokksins, að mæta sér á opn- um fundi í Reykjavík þar sem rætt verði um stefnu flokk- anna tveggja í sjávarútvegs- málum, landbúnaðar- og neytendamálum, skatta- og ríkisfjármálum og húsnæðis- málum. Einnig segist Jón Baldvin Hannibalsson reiðubúinn til að ræða stefnu flokkanna tveggja í Evrópumálum. Þetta kemur fram í grein Jóns Baldvins, sem birt er á blaðsíðu 22 í Morgun- blaðinu í dag. JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra, lýsti því yfir á ársfundi Seðla- bankans, sem haldinn var í gær, að næsta skref í þróun bankakerf- isins ætti að vera að að breyta Búnaðarbanka íslands í hlutafélags- banka, sem fyrst um sinn yrði þó alfarið í eigu ríkisins, en selja ætti síðan ríkishlutinn smátt og smátt jafnframt því sem bankinn aflaði sér eiginfjár með útboði nýrra hluta. „Slík breyting á Búnaðarbank- anum er eðlilegra upphafsskref en að breyta Landsbankanum í hluta- félag. Þar kemur m.a. til að um- fang hans er minna og ekki síður að fjárhagsstaða Búnaðarbankans er betri en Landsbankans sem Borgin kaupir húsGunnars Giumarssonar BORGARRÁÐ hefur samþykkt að kaupa hús Gunnars Gunnars- sonar skálds við Dyngjuveg 8. Kaupverð er kr. 23 millj. í samkomulaginu felst að í hús- inu verði starfrækt menningarstarf- semi á vegum borgarinnar. auðvitað gerir hlutabréf í honum vænlegri kost fyrir Qárfestinga- raðila,“ sagði viðskiptaráðherra. . Hann greindi frá því á fundinum að Seðlabankinn hefði nýlega skil- að til sín greinargerð um kosti og galla og nauðsynlegan aðdrag- anda að því að ríkisviðskiptabönk- unum verði breytt í hlutafélags- banka. I henni væri meðal annars bent á að almennt sé stefnt að einkavæðingu ríkisbanka á Vest- urlöndum þar sem slíkir bankar eru á annað borð starfandi. „Við eigum að fylgja sömu stefnu og draga úr ríkisrekstri í bankakerf- inu. Það hafa engin haldbær rök verið færð fyrir því að skynsam- legt sé að ríkið eigi tvo viðskipta- banka af þremur hér á landi.“ Viðskiptaráðherra fjallaði einn- ig um væntanlegar breytingar á lagaákvæðum um verðtryggingu ljárskuldbindinga. Hann sagði ríkisstjórn og bankastjórn Seðla- bankans hafa í árslok orðið sam- mála um stefnumótun fram til ársbyijunar 1993 um minnkandi vægi verðtryggingar á fjárskuld- bindingum og opnun lánamarkað- arins. Fyrsti áfangi aðgerðanna væri þegar kominn til fram- kvæmda, næsti áfangi yrði stiginn um næstu áramót og lokaskrefið stigið í ársbyijun 1993 samtímis því sem síðustu ijárhæðartak- markanir á langtímahreyfingum íjármagns milli íslands og annarra landa falla úr gildi. „Er stefnt að því að lagaákvæði um verðtrygg- ingu fjárskuldbindinga falli úr gildi þann dag. Eftir sem áður er gert ráð fyrir að Seðlabankinn reikni í framtíðinni út lánskjara- vísitölu mánaðarlega vegna þeirra verðtryggðu fjárskuldbindinga sem í gildi verða. Frá ársbyijun 1993 á notkun verðtryggingar ijárskuldbindinga hér á landi al- farið að ráðast af fijáisu vali á fjármagnsmarkaðnum. Rétt er að geta þess að þetta fyrirkomulag er við lýði í 22 af 24 aðildarríkjum OECD.“ Nýr slökkviliðs- stj óri tekur við Þátttaka í Heimssýningunni á Spáni 1992: Ríkið ábyrgist 150 milljónir RÍKISSTJÓRNIN ákvað í gær að skipa framkvæmdanefnd til að sjá um þátttöku íslands í Heimssýningunni á Spáni á næsta ári og bygg- ingu sýningarskála. Jafnframt samþykkti ríkisstjórnin að tryggja 150 milljónir króna til verkefnisins, eftir að norski útgerðarmaðurinn Knut Utstein Kloster hafði boðið að tryggja fjármögnun 100 milljóna króna af kostnaðinum, en heildarkostnaður er áætlaður um 250 milljónir króna. Fyrir skömmu fóru þeir Helgi Pétursson og Baldvin Jónsson til viðræðna við Kloster í umboði for- sætisráðherra. Greinargerð þeirra um viðræðurnar var tekin fyrir á ríkisstjórnarfundi í gær. Jón Sveins- son aðstoðarmaður forsætisráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið að samkvæmt þeirri greinar- gerð væri þáttur Klosters sá, að hann hugsaði sér að ábyrgjast að framlag, sem nemur 90 til 100 milljónum króna, komi fram fyrir hans tilstuðlan. „Þá er hann reynd- ar með fleiri aðila inni í því dæmi, eftir því sem best verður skilið." Um ár er til stefnu og því segir . Jón Sveinsson að tíminn sé orðinn naumur og nefndin verði að vinna bæði hratt og skipulega til að þátt- takan í sýningunni geti orðið að raunveruleika. HRÓLFUR Jónsson vara- slökkviliðsstjóri hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri í Reykjavík frá 1. desember 1991. A fundi borgarráðs í gær var lagt fram bréf Rúnars Bjarnasonar slökkviliðsstjóra, þar sem hann segir starfi sínu lausu frá 30. nóvember 1991 að telja. Þá þegar samþykkti borgarráð, að ráða Hrólf Jónsson varaslökkviliðs- stjóra í hans stað. „Ég er þeirrar skoðunar að menn eigi ekki að gegna starfi slökkviliðsstjóra lengur en til sex- tugs og þeim aldri næ ég í nóvemb- er,“ sagði Rúnar. „Ég hef gegnt þessu embætti í 25 ár og tími til kominn að breyta til. Ennþá er ég Hrólfur Jónsson. ungur, hraustur og ágætlega menntaður verkfræðingur og ekki ólíklegt að einhveijir hafi áhuga á að njóta ráðgjafar minnar á þeim sviðum sem ég er sérfræðingur á.“ Krístín Á. Ólafsdóttir, Abl., lagði fram bókun á fundi borgar- ráðs um að auglýsa ætti stöðuna lausa til umsóknar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.