Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 25
MORGUNBLíAÐIÐ( MUDVIKUUAGUR lO.'APRÍL .1991 ’ V:' 25 Morgunblaðið/KGA Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, ræðir við danska rithöf- undinn Hanne Vibeke Holst við opnun danskrar bókasýningar Máls og menningar á mánudag. Danskir vordagar: Fengur við bryggju í heilt ár Nægilegt fjármagn fæst ekki til að halda skipinu úti FENGUR, rannsóknarskip Þróunarsamvinnustofnunar íslands, hefur legið við bryggju í heilt ár vegna þess að nægilegt fé fæst ekki til að halda því úti. Svar fæst á næstunni um hvort skipið verður leigt til rannsókna við Alsír og Marokkó. Björn Dagbjartsson, forstöðumað- ur Þróunarsamvinnustofnunar ís- lands, sagði að það kostaði um 30 milljónir á ári að halda Feng úti og þá væru mannskapur, tryggingar og veiðarfæri í lágmarki. Þýska þró- unarsamvinnustofnunin óskaði ný- verið eftir því að leigja Feng til fiski- rannsókna við strendur Alsír og Marokkó. Ef af verður mun skipið leigt til eins og hálfs árs. Skipið var smíðað í Slippstöðinni á árunum 1983/84 og var sent til Grænhöfðaeyja vorið 1984 þar sem það var fram á mitt ár 1986. Þá var það kallað heim til breytinga og einnig vegna þess að ákveðin skil voru í verkefnum þess við Græn- höfðaeyjar. Þegar heim kom var það leigt til rækjuveiða á Kópaskeri í nokkra mánuði en var síðan sett í slipp til viðhalds og breytinga. Úr slipp kom skipið í lok nóvember 1987 og fór þá aftur til Grænhöfðaeyja þar sem það var í tvö ár. Fengur kom síðan hingað til lands til viðgerða síðastliðið vor og þegar þeim viðgerðum var hann bundinn við bryggju og liggur þar enn. Að sögn Björns barst stofnunni beiðni um að senda skipið til Nígeríu og Kamerún en knappur flárhagur leyfði það ekki. Síðastliðið haust barst beiðni um að senda Feng til Madagaskar en sama sagan var uppi á teningnum. Nægilegt ijár- magn fékst ekki. Áætlað var að Þróunarsamvinnustöfnunin þyrfti 140 milljónir á þessu ári en það var skorið niður í 94 milljónir. Hrollvekjandi gott úrval! úað er ísköld staðreynd að allir vilja eiga traust og örugg kæli- og frystitæki. En þau þurfa líka að vera falleg, hljóðlát og spar- neytin. Þess vegna eiga Electrolux og Ignis erindi til allra sem gera kröfur. Úrvalið í kælideildunum okkar er nánast hrollvekj- andi og verðið eins og það hafi legið í frysti í eitt ár. Veldu Electrolux eða Ignis. Við ábyrgjumst að þau endast og endast. Heimasmiðjan húsasmidjan Kringlunni • Sími 68 54 40 Skútuvogi 16 • Simi 68 77 10 Raufarhöfn: Hólmsteinn hættir hjá Jökli HÓLMSTEINN Björnsson fram- kvæmdastjóri Jökuls hf. og Fisk- iðju Raufarhafnar hf. hefur sagt starfi sínu lausu. Hólmsteinn sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri búinn að vera framkvæmdastjóri fyrir- tækjanna í sjö ár og sér þætti tími til kominn að breyta til. Hann sagðist ekkert vera farinn að hugleiða hvað hann tæki sér fyrir hendur enda væri nægur tími til stefnu. Hólmsteinn er stýrimaður og útgerðartæknir að mennt. Bókasýning opnuð hjá Máli og menningu BOKASYNING í tengslum við Danska vordaga var opnuð í verslun Máls og menningar á Laugavegi á mánudag. Jónfinn Joensen, deildarstjóri hjá Máli og menningu, segir að á sýn- ingunni sé að finna mikið úrval danskra bóka, nútímabókmenntir jafnt sem t.d. handbækur. Sýningin stendur á meðan Danskir vordagar verða í gangi eða fram í næstu viku. í tengslum við Danska vordaga bauð Mál og menning danska rit- höfundinum, Hanne Vibeke Holst, til Islands. Sagði Jónfinn ástæðuna fyrir því að hún hafi orðið fyrir valinu vera að bækur hennar væru mikið notaðar við dönskukennslu í framhaldsskólum hérlendis. Þá hefði hún einnig skrifað handritið að kvikmyndinni Nútímakonan sem sýnd var í Háskólabíói í tengslum við Danska vordaga. Hanne Vibeke Holst hélt fyrir- lestur um bækur sínar í Norræna húsinu á mánudag og Einnig var hún viðstödd opnun bókasýningar- innar í Máli og menningu. Keramikhúsið í nýju húsnæði: Fylgjandi að ríkis- bankar greiði arð - segir fjarmalaraðherra ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, kveðst vera fylgjandi því að ríkisviðskipta- bankar greiði eigendum sínum arð. Þá segist hann einnig vilja að bankarnir greiði hærri skatta. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær sagði Brynjólfur Bjarnason, _ fráfarandi formaður bankaráðs íslandsbanka, í ræðu á aðalfundi bankáhs á mánudag að íslandsbanki væri eina innláns- stofnunin sem greiddi eigendum sínum arð og að sömu lögmál ættu að gilda um alla keppinauta á fjár- magnsmarkaðnum. Þá sagði Brynj- ólfur, að afnema bæri ríkisábyrgð á skuldbindingum ríkisviðskipta- bankanna. Ólafur Ragnar tók fram, í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði ekki séð umrædda frétt blaðsins, en sagði að hann hefði löngum verið fylgjandi arðgreiðsl- um ríkisviðskiptabankanna og í raun einnig viljað að bankarnir greiddu hærri skatta af miklum gróða sínum. „Varðandi ríkis- ábyrgðina þá tel ég að spurningin snúist fremur um form hennar,“ sagði hann. „Ríkið er eftir sem áður í raun ábyrgt fyrir skuldbind- ingum banka sem er alfarið í eigu þess, þó formleg ríkisábyrgð sé af- numin.“ Námskeið í leirmótun og postulínsmálun KERAMIKHÚSIÐ hefur flutt sig um set og er nú til húsa í Faxa- feni 10. Að sögn Kolbrúnar Svein- björnsdóttur eins eiganda fyrir- tækisins er sem fyrr boðið upp á ýmsa leirmuni til kaups auk nám- skeiða í leirkeragerð og málun. _ Kolbrún sagði, að fyrirtækið hefði sérhæft sig í mótun listaverka og muna í sérstökum mótum. Munirnir eru ýmist seldir fullbúnir eða sem svokölluð hrávara en þá á eftir að ganga endanlega frá þeim, slípa og mála. „Við framleiðum allt milli him- ins og jarðar," sagði Kolbrún. „Bara að nefna það, styttur og matarílát, ýmist fíngerð eða úr grófum leir. Við eigum um 4.000 mót sem fólk getur valið úr. Margir kaupa muni beint úr mótunum og vinna þá áfram, ganga frá samskeytum og slípa en koma síðan með þá til okk- ar í lokabrennslu. Einriig er hægt að fá munina einbrennda og pússaða niður en ómálaða og loks seljum við tilbúna leirmuni. Hér er því hægt að fá munina á ýmsum stigum auk þess sem við litum leirinn í öllum þeim litum sem óskað er eftir, til dæmis blómapotta í sama lit og gardínur eða húsgögn." Morgunblaðið/Sverrir Frá námskeiði í Keramikhúsinu, Sigríður Fjóla Þórðardóttir nem- andi, Lúðvík Jóelsson og Kolbrún Sveinsbjörnsdóttir eigendur fyrir- tækisins og Guðrún Árnadóttir nemandi. Á vegum fyrirtækisins eru haldin námskeið í keramik- og postulíns- gerð og málun auk þess sem þar er starfandi keramikkennari, sem kennir meðhöndlun leirs á renni- bekk. Keramikhúsið selur einnig brennsluofna fyrir keramik og allan annan leir. í nýja húsnæðinu hefur verið kom- ið upp sýningaraðstöðu fyrir lista- menn og er hún endurgjaldslaus. Þar stendur yfir sýning á verkum Hall- dórs Péturssonar og eru það myndir af leikurum í hlutverkum sínum. Fyr- jKið er 20 ára og í eigu Sigi .c Pétursdóttur og fjölskyldu og Kolbrúnar Sveinbjörnsdóttur og fiölskvldu oe- eru starfsmenn fimm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.