Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.04.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 80. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 10. APRIL 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tillaga um griðasvæði fyrir Kúrda: Bretar útiloka ekki að hervaldi verði beitt gegn Irökum Nikosíu, Sameinuðu þjóðunum, Amslerdam, Washington. Reuter, The Daily Telegraph. TILLAGA um griðasvæði fyrir kúrdíska flóttamenn í norðurhlutji Iraks undir vernd Sameinuðu þjóðanna fékk góðar undirtektir meðal leiðtoga Vesturlanda í gær. Stjórnvöld í Bagdad brugðust hins vegar ókvæða við og kváðust ætla að beita öllum ráðum til að hindra framgang hennar. Talsmaður bresku stjórnarinnar sagði ekki útilokað að beita þyrfti hervaldi til að koma á griðasvæði fyr- ir flóttainennina, sem hafa flúið grimmdarlegar ofsóknir hersveita Saddams Husseins íraksforseta. Francois Mitterrand Frakklandsfor- seti kvaðst telja að koma þyrfti hugmyndinni í framkvæmd innan nokkurra daga. Saadoun Hammadi, forsætisráð- herra Iraks, sagði að tillagan mið- aði að því að grafa undan sjálf- stæði landsins og væri liður í sam- særi bandarísku leyniþjónustunnar CIA gegn íröskum stjórnvöldum. írakar myndu beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir slíka íhlutun í innanríkismál þeirra. Douglas Hogg, talsmaður breska utanríkisráðuneytisins, sagði að breska stjórnin vildi ekki stofnun sérstaks ríkis Kúrda. Búast mætti við því að senda þyrfti fjölmennt herlið á vegum Sameinuðu þjóð- anna til að vernda flóttamennina. Sir David Hanney, sendiherra Bretlands hjá Sameinuðu þjóðun- um, sagði að tillagan nyti mikils stuðnings innan öryggisráðs SÞ en hann hefði þó ekki beitt sér fyrir því að ákvörðun yrði tekin þegar í stað. Thomas Pickering, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, sagði að stjórn sín styddi tillöguna. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi að senda 1.440 manna eftirlitssveit til að fylgjast með hlutlausu svæði beggja vegna landamæra íraks og Kúveits. Helmut Kohl, kanslari Þýska- lands, fór hörðum orðum um of- sóknirnar gegn Kúrdum og sagði að ekki kæmi ti! greina að aflétta viðskiptabanni Sameinuðu þjóð- anna á íraka fyrr en endi yrði bund- inn á harðstjórnina í írak. Turgut Aziz, forseti Tyrklands, sakaði írösk stjórnvöld um að reyna að hrekja alla íbúa norðurhluta ír- aks úr landi. Hann sagði að 200.000 Kúrdar væru þegar komn- ir til Tyrklands, 150.000 væru við landamærin og 300.000 til viðbótar á leiðinni til landsins. íranir segja að 800.000 íraskir flóttamenn séu komnir til írans. Embættismenn í bandaríska varnarmálaráðuneytinu sögðu í gær að áætlað væri að brottflutn- ingi bandarískra hermanna frá suð- urhluta íraks lyki í lok mánaðar- ins. Allt að 100.000 hermenn eru í landinu. Sjá „Mjög erfitt getur reynst...“ á bls. 26. Reuter Kúrdísk móðir í flóttamannabúðum í tyrknesku fjallahéraði við landa- mærin að Irak heldur á mánaðar gömlu barni sínu, sem brann illa á andlitinu vegna sólskins á flóttanum frá írak. Barnið hefur ekki fengið aðhlynningu lækna frá því það kom til Tyrklands 1. apríl. Mið-Austurlönd; Samkomulag næst um svæð- isbundna frið- arráðstefnu Jerúsalem. Reuter. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum og ísrael hafa náð um það sam- komulagi í öllum helstu grund- vallaratriðum að efnt verði til svonefndrar svæðisbundinnar ráðstefnu um frið í Mið-Austur- löndum. Háttsettur bandarískur embættismaður greindi frétta- mönnum frá þessu í Jerúsalem í gær eftir að James Baker, ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, hafði átt fundi með ísraelskum ráðamönnum og fulltrúum Pal- estinumanna. Embættismaðurinn sagði að samstaða héfði náðst um að boða bæri til ráðstefnu í þessu skyni. Hann tók hins vegar fram að enn væru öll atriði er lytu að fram- kvæmd slíkra fundahalda óákveðin. Ætti þetta jafnt við um skipulag ráðstefnunnar sem þátttökuríki hennar auk þess sem ekki hefði verið ákveðið hvenær og hvar hún yrði haldin. Baker ræddi í gær við þá Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, Moshe Arens, varnarmálaráðherra, og David Levy, utanríkisráðherra. Sjá „Varað við óhóflegri bjart- sýni . . “ á bls. 26. Gorbatsjov vill banna öll verkföll í Sovétríkjunum Leggur fram neyðaráætlun til að afstýra efnahagslegu og pólitísku hruni Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph. MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, krafðist þess í gær að bann yrði lagt við öllum verkföllum í landinu í eitt ár til að afstýra efnahagslegu hruni og pólitískum glundroða í Lýst yfir sjálfstæði Georgíu Moskvu. Reuter. ÞING Sovétlýðveldisins Georgíu lýsti í gær yfir sjálf- stæði lýðveldisins en forseti þess, Zviad Gamsakhurdia, við- urkenndi að stefna þyrfti að fullu sjálfstæði í áföngum. Þingmenn hrópuðu „Jengi lifi Georgía" eftir að þingið hafði samþykkt samhljóða ályktun um að endurvekja sjálfstæðisyfirlýs- ingu lýðveldisins frá 1918. Þrem- ur árum síðar réðst Rauði herinn inn í höfuðborg lýðveldisins, Tbil- isi. Mikil fagnaðarlæti brutust út á götum höfuðborgarinnar, fólk faðmaðist og bílstjórar þeyttu flautur sínar. Gamsakhurdia viðurkenndi að yfirlýsing þingsins jafngilti ekki í raun úrsögn úr Sovétríkjunum. „Yfirlýsingin styrkir hins vegar Reuter Zviad Gamsakhurdia, forseti Georgíu, fagnar sjálfstæðis- yfirlýsingu þings lýðveldisins. lagalega stöðu okkar og gerir okkur kleift að gæða fullveldi okkar raunverulegri merkingu og beijast af meiri krafti fyrir fullu sjálfstæði í áföngum,“ sagði for- setinn. Yfirlýsingin var samþykkt er þess var minnst að tvö ár eru lið- in síðan sovéskir hermenn réðust á mótmælendur úr röðum sjálf- stæðissinna í Tbilisi og urðu 20 þeirra að bana. Samþykktin gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta og tilraunir hans til að koma í veg fyrir sundrungu Sovétríkjanna. Hart hefur verið lagt að Gor- batsjov að lýsa yfir neyðarástandi í héraðinu Suður-Ossetíu, þar sem tugir manna hafa beðið bana í átökum Georgíumanna og Osseta. Gamsakhurdia hefur hótað alls- heijarverkfalli í lýðveldinu ef sov- éskar hersveitir verða ekki fluttar úr héraðinu. Iandinu. Hann lagði einnig til að mótmælafundir yrðu bann- aðir á vinnutíma og mæltist til þess að þeim lýðveldum Sov- étríkjanna, sem hafna samvinnu um stofnun nýs ríkjasambands, sættu harðri refsingu. Gorbatsjov lagði tillögur sínar fram á fundi Sambandsráðsins, sem er skipað leiðtogum flestra leiðtoga Sovétlýðveldanna, og eru þær liður í „neyðaráætlun“, sem Sovétforsetinn hefur lagt fram og á að gilda í eitt ár. Krafa hans um bann við verkföllum virtist líkleg til að auka enn spennuna milli Gorbatsjovs og Borís Jeltsíns, leiðtoga Rússlands. Óljóst var hvernig bannið gæti orðið til þess að binda enda á verkfall náma- manna í Síberíu og Úkraínu, sem staðið hefur í rúma fimm vikur, án þess að beita þyrfti valdi. „Við okkur blasir efnahagslegt hrun með öllum þeim afleiðingum sem slíkt hefur fyrir alþýðuna og landvarnir okkar," hafði sovéska. fréttastofan TASS eftir Gor- batsjov. „Við verðum að binda enda á illdeilurnar. Við getum ekki horft aðgerðalaus upp á hrun Sovétríkjanna." Sovétforsetinn tók skýrt fram að grípa þyrfti til harðra aðgerða gegn þeim lýðveld- um, sem hafna samvinnu við Sov- étstjórnina um að koma á nýju ríkjasambandi. í neyðaráætlun Gorbatsjovs er kveðið á um að fijálsræði í gjald- eyrismálum verði aukið, hvatt verði til erlendra fjárfestinga, tek- in upp nánari samvinna við vest- rænar efnahagsstofnanir og stefnt að varfærnislegri einkavæðingu. I greinargerð með áætluninni er einnig dregin upp svört mynd af efnahagskreppunni í landinu. Framleiðslan minnkaði í nær öllum greinum atvinnulífsins á fyrsta fjórðungi ársins og þjóðartekjurn- ar minnkuðu um 12%. Verkamenn í 60 fyrirtækjum í Hvíta-Rússlandi efndu til þriggja stunda verkfalls í gær til stuðnings kröfum námamanna um að Gorb- atsjov segði af sér. Þeir sögðust staðráðnir í að halda baráttunni áfram og boðuðu mótmælafund í höfuðborg lýðveidisins, Mínsk, í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.