Morgunblaðið - 11.04.1991, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR '11. APRÍL 1991
Geir H. Haarde:
Segðum nei
við aðild að
EB ef spurt
væri núna
GEIR H. Haarde sagði á fundi
frambjóðenda í Reykjavík í Há-
skólabíói í gær að hann segði
fyrir sig og sjálfstæðismenn, að
ef þeir ættu að svara í dag
spurningunni um það hvort Is-
land ætti að ganga í Evrópu-
bandalagið, yrði svarið „nei“.
Mágus, Félag viðskiptafræði-
nema við Háskóla íslands,
gekkst fyrir fundinum.
„Ég segi fyrir mig og sjálfstæðis-
menn, ef við ættum í dag að svara
spurningunni um það hvort við vild-
um ganga í EB, þá segðum við
nei. En það væri auðvitað óskyn-
samlegt að gera það sem Framsókn
og Alþýðubandalag vilja gera að
segja að það nei gildi um aldur og
ævi,“ sagði Geir H. Haarde.
Sjá Dagbók - stjórnmál í
miðopnu.
Davíð hafn-
ar áskorun
Jóns Baldvins
Fyrstu ærnar bornar á Vatnsleysuströnd
SAUÐBURÐUR er hafinn á Vatnsleysuströnd. Þann 8. apríl voru 7 ær bornar hjá Þorkeli Kristmunds-
syni á Efri-Brunnastöðum, en hann segir algengt að burðurinn hefjist um þetta leyti árs. Á meðfylgj-
andi mynd eru nágrannar úr Vogunum, Sigvaldi Þórisson, Kristinn Sigvaldason og Gunnar Rúnar
Eyjólfsson að líta á fyrstu lömbin sem minna okkur á að vorið nálgast. Að Efri-Brunnastöðum er lang-
stærsta Ijárbúið í Vatnsleysustrandarhreppi. _ eq.
Morgunblaðíð/Eyjólfur M. Guðmundsson
Meiddist á
höfði í bif-
hjólaslysi
Unglingspiltur var fluttur á
slysadeild vegna höfuðáverka er
hann hlaut eftir að hafa ekið
skellinöðru á hús í Seljahverfi í
gærkvöldi. Hann var með meðvit-
und en ekki var ljóst hve alvar-
legir áverkar hans laust fyrir
miðnætti.
Bensíngjöf hjólsins mun hafa fest
í botni, að sögn lögreglu, og missti
pilturinn vald á hjólinu.
Hjólið var óskáð og pilturinn rétt-
indalaus, að sögn lögreglu.
Strokukon-
ur fundnar
KONURNAR tvær sem struku
úr fangelsinu í Kópavogi í fyrra-
dag eru báðar komnar í leitirn-
ar. Þær fundust hvor í sínu lagi
í húsum í Reykjavík.
Önnur hafði falið sig inni í skáp
þegar lögreglan knúði dyra síðdegis
í gær.
Hina hafði lögreglan fundið í
húsi við Vatnsstíg í fyrrinótt.
Þær eru nú komnar aftur í fangels-
ið.
Mjólkurframleiðslan um 3,8 milljónum lítra meiri en á sama tíma í fyrra:
Kostnaður bænda gæti orðið
175 milljónir á verðlagsárinu
DAVÍÐ Oddsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur
svarað kappræðuáskorun Jóns
Baldvins Hannibalssonar, for-
manns Alþýðuflokksins þannig
að hann líti á áskorunina eins
og hvern annan vandræðagang
í kosningabaráttu Alþýðu-
flokksins og hann geti því miður
ekki aðstoðað Jón Baldvin við
aðjgreiða úr þeim vandræðum.
I bréfi sem hann hefur ritað Jóni
Baldvin segir Davíð einnig að það
hafi ekki verið neitt vandamál fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að fá fólk til
að koma á fundi hjá sér og hann
hafi ekki þurft að leita til annarra
flokka um aðstoð í þeim efnum.
Davíð sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að hann hefði svarað
samskonar áskorun frá Flokki
mannsins á svipaðan hátt.
Sjá frétt á miðopnu
FRAMLEIÐSLA mjólkur það
sem af er yfirstandandi verð-
lagsárs, þ.e. á tímabiiinu frá 1.
september til 1. apríl, er um 3,8
milljónum lítra meiri en á sama
timabili í fyrra, og miðað vjð
óbreytta framleiðslu er talið að
heildarframleiðslan á verðlags-
árinu geti orðið á bilinu 105-107
milljónir lítra. Áætlað er að
endanlegur fullvirðisréttur í
mjólkurframleiðslu á verðlags-
árinu verði um 103,5 milljónir
lítra, en það er um 1 milljón
lítra minna en var á síðasta
yerðlagsári. Umframfram-
leiðsla mjólkur gæti því orðið á
bilinu 1,5-3,5 milljónir lítra, en
það gæti kostað framleiðendur
allt að 175 milljónir króna.
í skýrslu, sem Jóhann Guð-
mundsson, deildarstjóri í landbún-
aðarráðuneytinu, og Pálmi Vil-
hjálmsson, starfsmaður Samtaka
afurðastöðva í mjplkuriðnaði, hafa
unnið, kemur fram að upphaflegur
fullvirðisréttur til framleiðslu
mjólkur á yfirstandandi verðlags-
ári er 107 milljónir lítra. Af því
eru um 3,1 milljón lítra á ábyrgð
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
og um 2,5 milljónir lítra voru njdt-
ir á síðasta verðlagsári. Ovíst er
hve mikill hluti fullvirðisréttar
næsta verðlagsárs verður nýttur á
yfirstandandi verðlagsári, en
heimilt er að nýta 5% réttarins. Á
síðasta verðlagsári var hins vegar
heimilt að nýta 15% af rétti yfir-
standandi verðlagsárs.
Talið er líklegt að sala mjólkur-
afurða innanlands verði um 100
milljónir lítra á verðlagsárinu.
Framleiðsla mjólkur á tímabilinu
frá 1. september síðastliðnum til
1. mars var 49,324 miiljónir lítra
á móti 45,940 milljónum lítra á
sama tímabili síðasta verðlagsárs,
og samkvæmt bráðabirgðatölum
fyrir mars varð um 6,2% fram-
leiðsluaukning miðað við sama
mánuð í fyrra, en það eru um 470
þúsund lítrar. Framleiðsluaukn-
ingin milli ára nemur því um 3,8
milljónum lítra á sama tíma og
vænta má þess að réttur til fram-
leiðslu minnki um 1 milljón lítra á
verðlagsárinu.
Heimilt er að taka svokallað
framleiðendagjald af þeim sem
framleiða þá mjólk, sem flytja
þarf út utan verðábyrgðar ríkis-
sjóðs, og má gjaldið að hámarki
nema grundvallarverði mjólkur á
hvetjum tíma. Fram kemur í
skýrslunni að ef framleiðsla mjólk-
ur verður með sama skapi og ver-
ið hefur til þessa á verðlagsárinu
gæti framleiðslan orðið á bilinu
105-107 milljónir lítra, sem leiddi
til þess að umframmjólk gæti
numið 1,5-3,5 milljónum lítra, en
sú umframmjólk myndi kosta
framleiðendur allt að 175 milljón-
um króna. Auk þess gætu mjólkur-
búin tapað mismuni á vinnslu- og
dreifingarkostnaði og skilaverði
mjólkurinnar, sem hefur verið afar
lágt undanfarið.
Guðmundur Lárusson, formað-
ur Landssamtaka kúabænda,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að ljóst væri að mjög alvarleg
staða væri framundan fyrir kúa-
bændur ef þeir drægju ekki úr
framleiðslunni það sem eftir er af
verðlagsárinu.
Smáfuglar
valda deilum
*
í Arbæjar-
hverfínu
LÖGREGLAN hefur verið
kvödd til afskipta af deilum
nágranna í Árbæjarhverfi
þar sem annar kvartar und-
an því að hinn hæni til sín
smáfugla, sem valdi átroðn-
ingi á eignum sínum.
Maðurinn segi>- fuglana,
sem nágranni sinn fóðri ótæpi-
lega, valda sér ónæði og tjóni.
Meðal annars driti þeir svo á
þak húss síns að þakjárn liggi
undir skemmdum.
Lögreglan hefur gert
skýrslu um deilu þessa, sem
sá sem kvartað er undan seg-
ir að eigi rætur að rekja til
eldri kytra milli sín og kvart-
andans.
Sighvatur Björgvinsson um skiptingu hafnarfjár:
Ákvörðun fjárveit-
inganefndar stendur
Samgönguráðherra lætur kanna lagalega hlið málsins
TILLÖGUR fjárveitinganefndar AJþingis um skiptingu 100 milljóna
króna stuðnings vegna loðnubrests standa óbreyttar. Formaður
nefndarinnar segir að reynt verði að halda annan fund fyrir kosning-
ar, að beiðni samgönguráðherra, en efast um að það takist. Ríkis-
stjórnin vísaði málinu í fyrradag til fjárveitinganefndar á ný og tók
jafnframt undir tillögur Steingríms J. Sigfússonar sámgönguráð-
herra um skiptingu fjárins. Samgönguráðherra hefur falið lögfræð-
ingi ráðuneytisins að kanna lagalega hlið þessa máls.
„Við erum búnir að ráðstafa
þessu fé og sú ákvörðun stendur.
Ég var að vísu að fá bréf frá sam-
gönguráðherra þar sem hann spyr
hvort unnt sé að halda annan fund
í_ fjárveitinganefnd fyrir kosningar.
Ég tel litlar líkur til að það takist
og á meðan nefndin ákveður ekki
annað stendur fyrri ákvörðun,"
sagði Sighvatur Björgvinsson,
formaður fjárveitinganefndar.
„Páll Pétursson, formaður fjár-
hags- og viðskiptanefndar neðri
deildar, sagði þegar hann mælti
fyrir meirihlutaáliti nefndarinnar,
að hér væri um að ræða fé til auk-
inna framkvæmda og aðstoðar við
byggðalög sem hefðu orðið fyrir
tjóni af völdum loðnubrests, eða
örðugs atvinnuástands. Það var
ekki talað um hafnarmál, heldur
aðeins um almennar framkvæmd-
ir,“ segir Sighvatur.
„Páll sagði einnig að fjárveitinga-
nefnd skyldi ráðstafa þessu fé,
hvorki ríkisstjórn né ráðherra. Við
erum búnir að ráðstafa þessu fé,“
sagði Sighvatur.
Sighvatur sagði að venjulegur
gangur í málum sem þessu væri
að ef fénu væri ekki skipt af Al-
þingi léti formaður fjárveitinga-
nefndar þess getið hvernig skipta
ætti. Ef um lánsfjárlagamál væri
að ræða, eins og þetta, léti formað-
ur fjárhags- og viðskiptanefndar
koma fram í sinni ræðu hvernig
með féð skuli fara og síðan er farið
eftir því.
„Ef einhver sérstök viðfangsefni
eru, sem ber að snúa sér að lætur
hann þess getið í framsögu sinni.
Hann taldi sérstaklega upp fjóra
staði sem ætti að sinna. Það voru
Seyðisfjörður, Siglufjörður, Raufar-
höfn og Blönduós. Við í fjárveit-
inganefnd töldum okkur skylt að
taka tillit til þessa, eins og venja
er,“ segir Sighvatur.
Samkvæmt hugmyndum sam-
gönguráðuneytisins átti Seyðis-
fjörður að fá 5 milljónir króna, en
fjárveitinganefnd leggur til að
þangað fari 3 milljónir. Siglufjörður
átti að fá 18 milljónir en fjárveit-
inganefnd úthlutar 12 milljónum.
Raufarhöfn átti að fá 7 milljónir
en fjárveitinganefnd leggur til að
þangað fari 2 milljónir. Samgöngu-
ráðherra ætlaði ekki að setja neitt
til Blönduóss en fjárveitinganefnd
leggur til að þangað renni 16 millj-
ónir króna.