Morgunblaðið - 11.04.1991, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRIL 1991
Löggæsla í Reykjavík
eftir Guðmund
Hermannsson
Hin frjálsa umfjöllun
Maður opnar ekki svo blað eða
leggur hlustir við útvarpsstöð að
ekki komi fljótt að umfjöllun um
lögreglumál. Ýmist af því að um-
ferðin gefi tilefni, slysin, ólætin í
miðborg Reykjavíkur, skemmdar-
verk, árásir og meiðsl og svo mætti
lengi telja.
Mín breytta staða
Ég er núna í þeirri aðstöðu að
geta ekki tekið þátt í umræðunni
við fundarborð lögreglustjórans í
Reykjavík þar sem ég hefi verið
meðal yfirstjómar um áratuga-
skeið. Ég segi heldur ekki álit mitt
á fundum yfirlögregluþjóna með
ráðuneytismönnum, en ég gerði svo
oft áður fyrr og í þessum pistli
verður trúlega sami tónninn þó ég
líti málið núna frekar með augum
hins almenna borgara, þ.e. frá báð-
um hliðum séð. Kannske mun ég
kveða fast að orði ef allt fer á blað
sem ég hugsa, því mér er löngu
farið að blöskra hve margra ára
barátta lögreglustjórans í Reykja-
vík hefír borið lítinn árangur um
fjölgun í lögregluliði Reykjavíkur.
Stækkun lögregluumdæmisins
Reykjavíkurlögreglan sinnir auk
löggæslu í Reykjavík, vegalöggæslu
upp í Hvalfjörð, löggæslu í Mosfells-
bæ og á Seltjamarnesi. Talað hefur
verið fyrir daufum eyrum stjómar-
herra um nauðsyn á auknu fé svo
nokkru nemi til fjölgunar í lögreglu-
liði. Þess ber þó að geta sem vel
er gert og þar á ég við aukinn bíla-
flota lögreglu, bætta fjarskiptaþjón-
ustu og tölvuvæðingu. Lögreglan
er þessum hluta mála þakklát.
Minni yfirbygging er
eina lausnin
Til að mæta þessu hefi ég oft
sagt að það eigi að minnka yfir-
bygginguna og til að skýra betur
hvað ég meina vil ég raða lögregl-
unni í pýramída, sem er toppur efst
en breiður neðst eins og allir þekkja.
Þegar ég var orðinn einn af þrem
yfírlögregluþjónum í Reykjavík sá
ég vel hve röng sú tilhögun var.
Ég hefí haldið því fram í ræðu á
fundi yfirlögregluþjóna með ráðu-
neytismönnum, að efst í pýramídan-
um ætti að tróna einn yfirlögreglu-
þjónn. Þá nafngreindi ég vin minn
Bjarka Elíasson í þá stöðu. Þetta
hefír aðeins breyst til batnaðar.
Stöður yfirlögregluþjóna almennrar
löggæslu og umferðarlöggæslu
hafa verið sameinaðar. Enn tróna
þó tveir yfirlögregluþjónar á hinum
mjóa tindi pýramídans.
Hvað með aðstoðar-
y firlögr egluþj óna?
Böðvar Bragason lögreglustjóri
hefir sagt opinberlega að hann ætli
að leggja niður eina stöðu aðstoðar-
yfirlögregluþjóns og ég veit að hann
stendur við það. Ég er honum hjart-
anlega sammálá því störf þess
manns hafa flust á aðra yfirmenn.
Er lögreglustjórinn í Reykjavík
sjálfum sér samkvæmur þegar hann
hefír á rúmlega fímm ára ferli sín-
um sem lögreglustjóri í Reykjavík,
aukið tölu aðstoðaryfirlögreglu-
þjóna úr þrem í sex n.b. sem verða
þó senn fímm. Pýramídinn má ekki
breikka of snöggt hátt uppi.
Parkinsonlögmálið að verki
Sumir aðstoðaiyfirlögregluþjón-
anna hafa aðstoðarmenn en
kannski er þörf á því. Vill það ekki
oft verða svo að því fleiri sem starfs-
menn verða hjá stofnun, hækkar
krafa um fleiri vegna verkefnafjölg-
unar, oft heimatilbúinna. Kannske
veð ég hér í villu vegna þess að
auðvitað er verið að spá i framtíð-
ina og breytingar á starfsháttum.
Nóg um það.
Deildarstjórar, aðalvarðstjórar,
varðstjórar, aðstoðarvarðstjórar eru
alltof margir miðað við heildartölu
lögreglumanna nema viðurkennt sé,
að stöðuhækkun sé dulbúin kjara-
bót og þessir menn sinni meira al-
mennri löggæslu úti á meðal fólks-
ins en áður var.
Hvaða togaraskipstjóri er með
fulla brúna af stýrimönnum en há-
setalaust skipið?
Ólætin í miðborginni eru ekki
lögreglunni að kenna
Lögreglustjórinn Böðvar Braga-
son er mjög frambærilegur, hógvær
og kurteis. Hann vill ráða bót á
slæmu ástandi þegar það kemur
upp, en hann skortir fé og mann-
skap. Hann krefst úrbóta á fundum
í ráðuneytum en það ber engan
árangur, loforð og efndir fara ekki
saman en það berast oft bréf frá
ráðuneyti þar sem krafíst er niður-
skurðar og lögreglustjórinn fer ekki
fram úr fjárlögum. Dregið er úr
aukavinnu lögreglumanna.
Lögreglustjórinn kemur vel fram
í Ijölmiðlum, er kurteis í svörum.
Hann er hógvær þegar hann lofar
eða segir það vera í athugun að
Ijölga gangandi lögreglumönnum,
auka löggæslu í úthverfum, herða
eftirlit með umferðarlagabrotum
o.s.frv. en það skortir fólk. Samn-
ingar um styttri vinnutíma og leng-
ingu leyfa hafa aukið vandann þeg-
ar ekki fæst aukið starfslið.
Breytt fyrirkomulag
Lögreglustjórinn gæti tekið upp
fyrirkomulag að erlendri fyrirmynd
sem vakti athygli við svipaðar að-
stæður. Það felst í því að hætta að
kæra fólk og láta þá menn sem
annars sitja við skýrslugerð og
rannsóknir, út á meðal fólksins til
að sinna fyrirgreiðslustörfum,
greiða fyrir í umferðinni og halda
uppi reglu þar sem fólk safnast
saman.
En í þessari aðferð felst hótun
og þarf mikinn kjark til að grípa
til hennar.
Fámennt lið þarf að vera
skipað úrvalsfólki
Það má aðeins ráða lögreglu-
menn á aldrinum 20-30 ára. Sá
aldurshópur er ekki stór. Margir
eru komnir í önnur vænleg störf
áður en þeir verða tvítugir. Auk
þess eru ströng inntökuskilyrði.
Þeir sem ekki eru efni í lögreglu-
menn eru t.d. þeir sem hafa hlotið
dóm fyrir ölvun við akstur, fengið
sektir fyrir alvarleg umferðarlaga-
brot, gist fangageymslur fyrir
drykkjuskap, neytt eyturlyfja svo
vitað sé, orðið uppvísir að árásum
og meiðslum og alvarlegri glæpum.
Fjársvikamenn koma ekki til
greina. Auk þessa þurfa menn að
hafa hlotið vissa menntun, standast
líkamsskoðun og e.t.v. ýmislegt
fieira.
Lágmarkshæð karla mætti fara
að hækka úr 1,78 m í 1,80 m og
konur í 1,68 m úr 1,65 m.
Valnefnd
Sérstök nefnd ákveður endanlega
hveijir eru ráðnir í Iögreglu lands-
ins. Þessi nefnd er skipuð skrifstof-
ustjóra dómsmálaráðuneytis,
stjórnarmanni Landssambands lög-
reglumanna, bæjarfógetanum í
Vestmannaeyjum, skólastjóra Lög-
regluskólans og lögreglustjóranum
í Reykjavík.
Svona fyrirkomulag mundi ég
vilja leggja niður en treysta þess í
stað lögreglustjórum og bæjarfóg-
etum í hvetju lögregluumdæmi fyr-
ir því að fara að settum reglum og
ráða sér lögreglumenn. Endanleg
ráðning færi svo fram að loknu
prófi frá Lögregluskólanum.
Miða ég þá við að skipstjóri ræð-
ur sér skipveija eða ég veit ekki
betur.
Rýmri reglur, meira úrval
Þá vildi ég sjá rýmri reglur svo
úr fleirum væri að velja. Nemendur
í Lögregluskólanum mættu vera
18-20 ára og þeir ynnu með öðrum
sem „aðstoðarlögreglumenn“ að
sumri. Hækkup og á aldursmarki
t.d. í 35 ára. Ég vil fá fleiri menn
í lögregluna sem hafa difið hendi í
kalt vatn, menn sem hafa farið
ungir að vinna í sveitinni, á sjónum
og í iðnaðargreinum, því Lögreglu-
skólinn á að vera svo góður að
hann fullnægi menntunarkröfum.
Ég vildi heyra lögreglustjórann í
Reykjavík beita sér fyrir þessu sem
lausn á vandamálinu, sem fámennt
Iið hefur í för með sér.
Ég held að slys hendi í lögregl-
unni oft og tíðum af því að lögreglu-
menn eru of rýrir, veikburða og
lágvaxnir.
Yfirmenn sýni fordæmi
Yfirstjórn lögreglunnar í Reykja-
vík á að sýna gott fordæmi og draga
úr kostnaði sem af mörgum utan-
ferðum leiðir, á meðan þörf er á
auknu fé til löggæslunnar. Ég efa
ekki að samskipti eru nauðsynleg
við erlenda kollega, en það er rangt
að láta það ganga fyrir þörfínni
heimafyrir.
Gæti ekki borgarsjóður tekið
þátt í kostnaði við löggæsluna í
Guðmundur Hermannsson
„Deildarstjórar, aðal-
varðstjórar, varðstjór-
ar, aðstoðarvarðstjórar
eru alltof margir miðað
við heildartölu lögregl-
umanna nema við-
urkennt sé, að stöðu-
hækkun sé dulbúin
kjarabót og þessir
menn sinni meira al-
mennri löggæslu úti á
meðal fólksins en áður
var. Hvaða togaraskip-
stjóri er með fulla
brúna af stýrimönnum
en hásetalaust skipið?“
miðborg Reykjavíkur á föstudags-
og laugardagskvöldum? Eins eiga
þeir sem halda stórsamkomur hvort
heldur úti eða inni, að halda uppi
reglu og þá má oft grípa til íþrótta-
hreyfingarinnar með starfsfólk.
Vandamál uppalenda
Stríðástand í miðborginni um
helgar er ekki vandamál lögregl-
unnar, þó lögreglan leiki stórt hlut-
verk. Það er foreldravandamál að
12-15 ára unglingar skuli vera að
flækjast úti fram undir morgun í
tilgangs- og eirðarleysi, drukkið
sem ódrukkið, skemmtandi sér við
skemmdarverk og árásir á minni
máttar eða storka fámennri lög-
reglu.
L
BARNATAN
ÁHRIFARÍKT GEGN TANNSKEMMDUM
— ÞRÓAÐ AF FÆRUSTU
TANNHIRÐUSÉRFRÆÐINGUM
Bangsa barnatannkremiö frá Sensodyne
er gæöatannkrem, sérstaklega ætlað
börnum. Þaö inniheldur fluor til varnar
tannskemmdum.
Bangsa barnatannkremið freyðir minna en
venjulegt tannkrem. Of mikil froða gerir
það gjarnan aö verkum að barniö spýtir fyrr
en ella og flúorinn nær ekki að leika nógu
lengi um tennurnar.
Bangsa barnatannkremið er með mildu og
góðu myntubragði sem börnunum llkarvel
og gerirtannburstunina skemmtilega! Sér-
staklega ef þau nota mjúkan tannbursta
frá Sensodyne.
SENSC&m
Tennurnar eiga að endast alla ævi —
gættu þeirravel — gerðu tannburstunina
skemmtilega fyrir börnin.
KEVHKAllA
HÖRGATÚNI 2, GAROABÆ
SÍMI 40719 „ ^SOCÖ (fö) IMIcl • Þf
Landið og
miðin á Hót-
el Islandi
SÖNGELSKIR Eyjamenn munu
stíga á fjalir Hótel íslands næst-
komandi föstudagskvöld 12.
apríl.
Skemmtun þessi ber nafnið
Landið og miðin. Meðal þeirra sem
fram koma eru feðgarnir Hermann
Ingi og Hermann Ingi yngri, Einar
Klink, Tóti Óla, Sveinni Tomm,
Steini Lýðs o.fl., o.fl. Söngvarar
sem rifja upp gömul gullaldarlög
frá árunum 1950 til dagsins í dag.
Nú er tækifærið fyrir Eyjamenn
og aðra velunnara að taka fram
fínasta pússið og beija þessa lista-
menn augun, því sjón er sögu rík-
ari.
Þríréttaður matseðill og
skemmtiatriði kosta kr. 3.900.
Hljómsveitin Papar leikur fyrii'
dansi.
(Fréttatilkynning)
■ HLJÓMS VEITIN Galíleó
heldur á föstudags- og laugardags-
kvöld dansleik í Edinborg, Kefla-
vík. Söngvarinn Eyjólfur Kristj-
ánsson skemmtir með hljómsveit-
AJUMU(4htíi*bæði kvöldin.