Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 26

Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991 A L Þ 1 N G S K O í 5 N 1 Umhverfis- og heilbrigðiseftirlit eftir Þórhall Halldórsson Umhverfis-, mengunar-, heilbrigð- is- og vinnueftirlit hafa þann sameig- inlega tilgang, að gera umhverfi heilsusamlegt, lífsskilyrði heilnæm- ari, auka almenna hollustu matvæla og vernda þau lífsskilyrði, sem felast í ómegnuðu umhverfí. Varla er ágreiningur um þessi áform, trúlega ekki heldur um að bætt heilsa og aukin velferð sé það takmark sem stefna beri að. For- senda þess að unnt sé að auka al- menna velferð íbúa landsins og tryggja þeim góða afkomu er að nýta legu landsins, auðlindir þess og náttúru og skapa íslandi sérstöðu. Framleiða þarf og selja, og þá ekki síst til útflutnings, neysluvörur í sér- stökum gæða-, hollustu- og verð- flokki. Einnig á að stórauka ferða- þjónustu, þar sem fagurt og hreint land ásamt ómengaðri náttúru nýtur sín til fulls, án þess þó að landið beri skaða af. Greinarhöfundur er ekki einn um þessa skoðun, en það eru hinsvegar skiptar skoðanir um hvernig bæta eigi lífsskilyrðin. Ennfremur hvaða leiðir eigi að fara til að skapa þá sérstöðu, sem áður er getið. Vinna þarf á breiðum vettvangi og tryggja samstöðu ríkis, sveitafélaga, fyrir- tækja og einstaklinga til að ná árangri. Ástand mála Ómengað neysluvatn, förgun sorps og fráveitukerfi, sem ekki stafar mengunar- eða sýkingarhætta af, eru grundvallaratriði í þessu sam- bandi, enda undirstöðuatriði í heil- brigðis- og mengunarvörnum hvers þjóðfélags og skilyrði fyrir góðu heilsufari. Hérlendis fellur það fyrst og fremst í hiut sveitarfélaga að sjá um þessi mikilvægu verkefni. í dag er landinu skipt í 13 heil- brigðiseftirlitssvæði, þar sem starf- andi eru 46 heilbrigðisnefndir sveit- arfélaga og 28 heilbrigðisfulltrúar, flestir í fullu starfi. Þessum aðilum er falið að framfylgja ákvæðum mengunar- og heilbrigðisreglugerða og er heilbrigðisnefndum gefið sjálf- stæði og veitt mikið vald til að knýja á um að sveitarfélög bæti úr ofan- greindum vandamálum. Auk þess er Hollustuvernd ríkisins ætlað að vinna að samræmingu og aðstoða nefndim- ar við úrlausn verkefna sinna. Þegar athugað er ástand þessara mála hér á landi, kemur í ljós að langflestir landsmenn hafa aðgang að ómenguðu neysluvatni. Þó er neysluvatn í nokkrum bæjarfélögum ófullnægjandi, sérstaklega á Vest- fjörðum. Á mörgum stöðum á landinu má sjá opna sorphauga og ijúkandi brennslugryfjur. Sem dæmi um góð- an gang mála má nefna að sorphau- garnir í Gufunesi verða aflagðir nú á næstunni og tekin upp böggun og urðun, auk þess sem spilliefnum verður fargað á viðunandi hátt. Fráveitumálin eru því miður ófull- nægjandi nær alls staðar á landinu og víða í slæmu ástandi. Nauðsyn- „í þessari kosningabar- áttu og í framtíðinni þarf að fara fram mál- efnalegri umræða um umhverfismál en verið hefur. Það er mat greinarhöfundar að stærsta stjórnmála- flokki landsins sé best treystandi til að leysa þessi mál farsællega, m.a. með því að virkja framtak einstaklinga í samvinnu við þá aðila, sem hafa það verkefni að vinna að lausn þeirra.“ lega þarf að bæta úr þeim í áföngum á næstu árum, líkt og unnið er að á höfuðborgarsvæðinu og víðar, með góðum árangri, því ástand neyslu- vatns, sorps- og fráveitumála hefur áhrif á heilsufar manna, engu að síður en á náttúru og dýralíf. Á undanförnum misserum hefur verið mikil umræða um hvernig eftir- lit með umhverfismálum skuli hagað. Á síðustu dögum Alþingis vorið 1990 var gerð grundvallarbreyting á lög- um um hollustuhætti og heilbrigði- seftirlit frá 1981. Mengunarmál voru Þórhallur Halldórsson flutt frá heilbrigðisráðuneyti til um- hverfisráðuneytis. Þar með er hætta á, að rofin verði tengsl heilbrigðis- og mengunareftirlits. Ekki verður hér farið nánar út í ókosti þessarar ákvörðunar, það hefur greinarhöf- undur gert áður, m.a. í grein í 3. tbl. Sveitarstjórnarmála, sl. sumar. í stað þess verður lítillega farið yfír stöðu þessara mála eins og þau koma fyrir sjónir í dag og Kvemig þau gætu þróast. Skipan umhverfismála Tveimur dögum fyrir lok síðasta þings lagði umhverfisráðherra fram frumvarp til laga um umhverfis- vemd. Þar er m.a. gert ráð fyrir nýrri ríkisstofnun, umhverfisstofnun, með fastri ráðgjafarnefnd, fram- kvæmdastjóra, fjórum deildum og fjórum forstöðumönnum. Stofnun þessi á að heyra undir umhverfisráð- uneyti og ein af deildum hennar á að stjórna mengunareftirliti í landinu. í athugasemdum við fmm- varpið segir að umhverfisráðherra og umhverfísstofnun fari með yfir- stjórn mengunarvama og að tillögur um mengunarvamaeftirlit á svæðum landsins skuli háðar staðfestingu umhverfisráðherra. Óleyst verkefni á sviði neysluvatnsöflunar, sorpförg- unar og fráveitumála, brenna mest á íbúum sveitarfélaga landsins. Þau hafa mestra hagsmuna að gæta og þeim er best treystandi til að leysa þessi mál. Það verður vart gert á skynsamlegan eða hagkvæman hátt við skrifborð í Íteykjavík, þannig að sú mikla miðstýring, sem boðuð er í frumvarpinu, er tímaskekkja. Eitt af mörgum erfiðum málum sem bíða úrlausnar næsta Alþingis og nýrrar ríkisstjórnar verður endur- skipulagning á stjórnkerfi umhverf- ismála. Við þá endurskoðun ætti að mati greinarhöfundar að hafa m.a. eftirfarandi í huga: • Að yfirstjórn umhverfis-, mengunar- og heilbrigðiseftirlits verði í höndum eins ráðuneytis, ráðu- neytis umhverfis- og heiíbrigðismála. • Að ijárhagur sveitarfélaga verði efldur og þeim þannig gert kleift að sinna sínum skyldum og axla þá ábyrgð sem á þeim hvílir, varðandi lausn á neysluvatns-, sorp- og fráveitumálum. • Að starfssvið heilbrigðisnefnda verði aukið og þeim breytt í umhverf- is- og heilbrigðisnefndir. Þeim verði fækkað úr 46 í 13 á landinu öllu, þannig að ein nefnd starfi á hveiju eftirlitssvæði, sem myndi leiða af sér faglegri vinnubrögð og aukna sam- ræmingu. Nefndirnar væru skipaðar fulltrúum sveitarfélaga á svæðinu. • Að menntun heilbrigðisfulltrúa verði aukin, m.a. vegna aukinna verkefna á sviði umhverfis- og meng- unarvarna. Ennfremur verði heil- brigðisfulltrúum fjölgað og aðstaða þeirra bætt. Lokaorð Þegar til lengri tímna er litið þarf Aukaaðild eða ekki aukaaðild eftir Gunnar Helga Kristinsson í Morgunblaðinu 6. apríl sl. held- ur utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson, því fram að ekki sé verið að semja um aukaaðiid að Evrópubandalaginu í yfirstandandi viðræðum um Evrópska efriahags- svæðið. Raunar sé ekkert til sem heiti aukaaðild. Tilefni þessara ummæla var grein eftir undirritað- an í sama blaði daginn áður, þar sem því var haldið fram að íslend- ingar tækju um þessar mundir þátt í samningaviðræðum um aukaaðild að EB. Hér skal sú skoðun áréttuð. 238. grein Rómarsáttmálans Aukaaðild geta ríki utan Evrópu- bandalagsins fengið að bandalaginu á ggundvelli 238. greinar Rómar- sáttmálans, sem er einn af stofn- sáttmálum bandalagsins. Sú grein er ekki löng og því hægt að birta hana hér í heilu lagi. Hún hljóðar svo: „Bandalagið getur með samning- um við ríki sem standa utan þess, samband ríkja eða' alþjóðastofnun, stofnaði til aukaaðildar þeirra að bandalaginu, sem felur í sér gagn- kvæm réttindi og skyldur, sameig- inlegar aðgerðir og sérmeðferð mála. Slíkir samningar þurfa ein- róma staðfestingu Ráðherraráðsins eftir að hreinn meirihluti Evrópu- þingsins hefur gefíð samþykki sitt. “ Eins og ég benti á í grein minni 5. apríl er í samningsumboði vísað til þessarar greinar Rómarsáttmál- ans sem grundvöll samningavið- ræðnanna um Evrópska efnahags- svæðið. Niðurstaðan er því einföld. Aukaaðild er til, og íslendingar eru nú að semja um slíka aðild. Deilur um aukaaðild 1961-63 Á fyrstu árum sjöunda áratugar- ins urðu hér á landi heilmiklar deil- ur um aukaaðild íslands að Evrópu- bandalaginu. Þær stóðu ekki um hvort aukaaðild væri til eða ekki, um það efaðist enginn þá. Þær stóðu um hvort æskilegt væri að ísland gerðist aukaaðili. Viðreisnarstjórnin taldi að hyggi- legt væri að kanna hvort það væri hagstætt fyrir íslendinga að gerast aukaaðilar að EB. Ekkert fer milli mála um það að þar hafði stjórnin í huga 238. grein Rómarsáttmál- ans. Þannig segir t.d. í skýrslu ríkis- stjómarinnar til Alþingis um ísland og EB, sem Gylfí Þ. Gíslason flutti 12. nóvember 1962: „í 238. gr. Rómarsáttmálans er ráð fyrir því gert, að ríki geti leitað aukaaðildar að Efnahagsbandalag- inu, en hvorki sú grein né aðrar greinar samningsins kveða nánar á um, hvað í aukaaðild felist. Ljóst er af ummælum forystumanna Efnahagsbandalagsins, að þeirtelja aukaaðildarsamninga geta verið með ýmsum hætti og geta falið í sér mikil tengsl eða lítil tengsl, eft- ir því sem ástæður þykja til.“ Ekki voru allir jafn hrifnir af áformum Viðreisnarstjómarinnar í þessum efnum, og á flokksþingi Framsóknarflokksins í apríl 1963 mælti t.d. Steingrímur Hermanns- son — sem nú er forsætisráðherra í sömu stjórn og Jon Baldvin er utanríkisráðherra í — fyrir ályktun þar sem sagði: „Aukaaðild að EBE eins og ríkisstjómin sjálf í skýrslu sinni og málflutningi hefur skil- greint, myndi leiða til yfirráða út- lendinga yfir helstu atvinnuvegum og auðlindum þjóðarinnar. Með þvi yrði sjálfstæði hennar og þjóðerni stefnt í beinan voða.“ Sennilega hefðu margir sofíð ró- legri á þeim tíma ef þeir hefðu haft utanríkisráðherra sem hefði sagt þeim að aukaaðild væri ekki til. Orð og merking þeirra Það sjónarmið er fyrir löngu orð- ið ríkjandi að við þýðingu erlendra orða beri að leitast við að yfirfæra merkingu þeirra fremur en að þýða þau stafrétt. Engum dettur í hug að kalla utanríkisráðherra Breta útlenda ritarann (foreign secretary) eða bandarískan starfsbróður hans ríkisritara (secretary of state). Við notum einfaldlega orðið utanríkis- ráðherra. Orðið aukaaðild hefur frá upp- hafí verið notað hér á landi yfír enska orðið „association" eins og það kemur fyrir í Rómarsáttmálan- um. „Association" er reyndar ekki auðvelt að þýða. Stafrétt þýðing eins og „tengsl", sem Eyjólfur Konráð Jónsson hefur stungið upp á í Morgunblaðsgrein nýlega, er á flestan hátt verri en aukaaðild, þótt sakleysislegt yfirbragð heilli e.t.v. susma stjórnmálamenn. Tengsl seg- ir ekkert um eðli sambandsins. Frí- verslunarsamningur íslands við EB frá 1972 eru tengsl, en hann var ekki aukaaðildarsamningur á grundv.elli 238. greinar KómarsáU- Gunnar Helgi Kristinsson „Eins og ég benti á í grein minni 5. apríl er í samningsumboði vísað til þessarar greinar Rómarsáttmálans sem grundvöll samningavið- ræðnanna um Evrópska efnahagssvæðið. Niður- staðan er því einföld. Aukaaðild er til, og ís- lendingar eru nú að semja um slíka aðild.“ málans. Ef fara á inn á braut staf- réttra þýðinga mætti alveg eins nota orð eins og samband eða sam- eining, sem bæði koma fyrir í ensk- íslenskri orðabók Arnar og Örlygs sem þýðingu á orðinu „association". Færri myndu senniiega vilja nota „félag“ eða „kynni", hvað þá „hug- renningatengsl" eða „sameining jóna í sameind". Orðið aukaaðild lýsir ágætlega því sem um er að ræða. John Kinn- as og A. Groom, sem eru prófessor- 4 ar í alþjóðastjórnmálum, hafa lýst merkingu hugtaksins „association“ svo: „Aukaaðild (association) er sveigjanlegt fyrirbæri ... í vissum kringumstæðum kann ríki að vilja gerast aðili að alþjóðasamtökum hvað ákveðin atriði varðar, án þess að vera reiðubúið til að gerast full- gildur meðlimur vegna þess að það óskar ekki eftir að taka þátt í til- teknum þáttum starfseminnar eða í almennri samrunaþróun. Dæmi um þetta eru sum hlutlausu ríkin í Evrópu og Evrópubandalagið. Á hinn bóginn getur aukaaðildar- samningur einfaldlega verið skref í átt að fuilri aðild ...“ Aukaaðild hefur þannig ekki bara þann kost að vera rótgróið í Evrópuumræðunni, heldur nær það líka betur en önnur orð sem stung- ið hefur verið upp á merkingu orðs- ins „association“ eins og það kemur fyrir í Rómarsáttmálanum. Orðin og Evrópuumræðan Þeirrar tilhneigingar hefur nokk- uð gætt í Evrópuumræðunni að flækja hana meira en þörf er með því að skipta um þau orð sem notuð eru til þýðinga. Til dæmis vilja ýmsir taka upp Evrópusamfélagið sem þýðingu á „European Comm- unity“ í staðinn fyrir Evrópubanda- lagið. Slíkt er óráð. Það er alveg nógu erfitt fyrir almenning að átta sig á öllum þeim mismunandi heit- um og skammstöfunum (s.s. EB, EFTA, EBE, KSE, Evrópuráðið, Vestur-Evrópubandalagið o.s.frv.) sem notuð eru um samstarf Evrópu- þjóðanna án þess að umræðan sé flækt enn frekar með lausung varð- andi orðanotkun. Almenna reglan hlýtur að vera þessi: ef ekki eru þess brýnni rök til að breyta um orð sem fest hefur sig í sessi, þá á ekki að breyta til. Til þess liggja engin brýn rök að taka upp Evrópusamfélagið í stað- inn fyrir Evrópubandalagið, né orð- ið tengsl í staðinn fyrir aukaaðild. Höfundur er lektor í stjórnmálafræði við Félngsvísindndeild Háskóln íslnnds.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.