Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 30

Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRIL 1991 Málþing* um fjöl- miðlun og fatlaða LANDSSAMTOKIN Þroska- hjálp og Öryrkjabandalag- ís- lands gangast fyrir málþingi um fjölmiðlun og fatlaða í Menning- armiðstöðinni Gerðubergi á morgun, föstudag. Samtökin hafa fengið marga fyrirlesara sem allir tengjast mál- Uppsagnir hjá Fiskimjöls- verksmiðju Hornafjarðar Höfn. SEM BETUR fer telst það nán- ast sögulegur viðburður að fyr- irtæki á Höfn hafi þurft að grípa til uppsagna starfsfólks. En nýverið var 19 starfsmönn- um Fiskimjölsverksmiðju Hornafjarðar sagt upp störfum. Flestar uppsagnimar koma til framkvæmda um næstu mánaða- mót þegar starfsmenn í síldar- vinnslunni (niðurlagningu) hætta störfum vegna verkefnaskorts. Ekki er neitt útlit fyrir að þessir starfsmenn eigi von á atvinnu hjá FH fyrr en þá á vertíð í haust. Reksturinn hjá Fiskimjölsverk- smiðjunni hefur verið afar erfiður undangengið og nam tap á síðasta ári um 9 milljónum króna. - JGG. Ríkisstjórnin: Grasköggla- verksmiðj- urfá 10 milljónir A FUNDI ríkisstjórnarinnar í fyrradag var samþykkt að veita 10 milljóna króna framlag til graskögglaverk- smiðja. Astæða þess er hve illa verksmiðjunum hefur gengið að selja framleiðslu síðasta árs. Fjórar grasköggiaverk- smiðjur eru nú í landinu, en verulegur samdráttur varð á sölu grasköggla í kjölfar þess að kjamfóðurgjald var lækkað um helming fyrir síðustu ára- mót. Framlagi ríkisstjómar- innar verður deilt á milli verk- smiðjanna fjögurra. efninu á einn eða annan hátt. Þingið hefst klukkan 13 og áætlað er að því ljúki klukkan 17. Fyrirlesarar verða Ama Böðv- arsson, íslenskufræðingur, Inga Jóna Þórðardóttir, formaður út- varpsráðs, Dr. Sigrún Stefánsdótt- ir, Sigmundur Ernir Rúnarsson frá Stöð 2, Ragnar R. Magnússon frá blindum og sjónskertum, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir frá heym- arlausum, Sylvía Guðmundsdóttir frá Námsgagnastofnun, Ámi Bergmann ritstjóri Þjóðviljans, Sigurdór Sigurdórsson frá DV og Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins. Lesið verður úr verkum Iðunnar Steinsdóttur og umræðuhópur þroskaheftra verður með innlegg á þinginu. Markmið þingisins er að vekja athygli fjölmiðlafólks og almenn- ings á rétti fólks til að fylgjast með fréttum og öðru efni á að- gengilegan hátt. Aðgangur er ókeypis og kaffi- veitingar verða á boðstólum í boði samtakana. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sala útsæðis hafin Sala kartöfluútsæðis hófst nú í vikunni hjá Ágæti hf. Faxafeni 12, og af því tilefni var kartöflublaðra fyrirtækisins sett á loft að viðstöddum hóp leikskóla- barna. Að sögn Kristins Vagnssonar, sölustjóra Ágætis, er kartöfluútsæðið nú selt á sama verði og í fyrra, en boðið er upp á sex tegundir útsæðis. Hann sagði að eingöngu væri um að ræða útsæði frá viðurkenndum framleiðendum, sem skoðað hefði verið af sérfræðingum Rannsóknastofnunar land- búnaðarins, og væri laust við alla sjúkdóma. Hugmyndir viðskiptaráðherra um að breyta Búnaðarbanka í hlutafélagsbanka: Fáir einstaklingar gætu ráðið peningastefnunni í landinu * - segir Guðni Agústsson, formaður bankaráðs. Einkavæðing bankans má ekki vera pólitísk flýtiverk, segir Halldór Blöndal, bankaráðsmaður GUÐNI Ágústsson, formaður bankaráðs Búnaðarbankans og Halldór Blöndal, bankaráðsmaður, telja að menn verði að fara sér hægt í hugmyndum um breytingu bankans úr ríkisbanka í hlutafélagsbanka. Guðni telur að verði ríkisbankarnir seldir eignist örfáir einstaklingar hlutabréfin og geti þannig ráðið peningastefnunni í landinu. Þá sé atvinnulíf hér á landi sé með þeim hætti að halda eigi í ríkisbankana og hafa a.m.k. einn öflugan ríkisbanka. Halldór kveðst fylgjandi einka- væðingu rikisbankanna, en ítrekar að hún megi ekki vera pólitískt flýtiverk. Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, sagði í ræðu á ársfundi Seðla- bankans á þriðjudag að næsta skref í þróun bankakerfisins ætti að vera að breyta Búnaðarbanka íslands í hlutafélagsbanka. Fyrst um sinn yrði bankinn þó í eigu ríkisins, en síðan ætti að selja ríkishlutinn smátt og smátt. „Ég tel að menn eigi ekki að flýta sér í þessum málum. Atvinnulíf okk- ar er með þeim hætti að við eigum að halda í ríkisbankana," sagði Guðni Ágústsson, formaður banka- ráðs Búnaðarbankans, í samtali við Morgunblaðið. „Þó einhver breyting verði á því þá tel ég að við verðum alla vega að hafa einn öflugan ríkis- banka. Ég tel að það eigi að leyfa bankakerfínu að jafna sig eftir stofn- un íslandsbanka og sjá hver reynslan af þeirri bankasameiningu verður. Við íslendingar höfum ekki efni á því að færa fjármagnið í hendur örfárra aðila. Það er enginn vafi á því að verði ríkisbankarnir seldir eignast örfáir einstaklingar hluta- bréfin og geta þannig ráðið peninga- stefnunni í landinu,“ sagði Guðni. Halldór Blöndal, bankaráðsmað- ur, sagði að þetta væri mál sem þyrfti ítarlegan undirbúning og um- fjöllun. „Búnaðarbankinn hefur ver- ið vel rekinn og eiginfjárstaða hans er sterk,“ sagði Halldór. „Við stönd- um nú frammi fyrir vaxandi sam- keppni frá erlendum peningastofn- unum, sem viðskiptabankamir eru ekki nægilega vel búnir undir að mæta. Eins og afstaða ríkisstjórnar- inar hefur verið til viðskiptaban- kanna getur verið stórhættulegt að færa yfirstjóm þeirra frá þingkjörnu bankaráði til ráðherra og er nærtæk- ast að minna á orðaskipti Steingríms Hermannssonar og Jóns Sigurðsson- ar í því sambandi. Á hinn bóginn er ég sammála því að nauðsynlegt sé að einkavæða ríkisbankana, en ítreka að það má ekki vera pólitískt flýtiverk, heldur vel undirbúin breyt- ing og aðlögun að þeirri samkeppni, sem fylgir ftjálsum fjármagnsmark- aði,“ sagði Halldór Blöndal. Tónleikar í Hafnarborg Kannaðir möguleik- ar á vatnsútflutningi héðan í tankskipum A NÆSTU mánuðum mun áhugahópur um vatnsútflutning kanna möguleika á stofnun fyrirtækis hér á landi. Að sögn Þórhalls Gunn- laugssonar, forsvarsmanns hópsins, eru uppi hugmyndir um að flytja vatnið út í 250 þús. til 400 þús. tonna tankskipum. Vatnið verður feng- ið úr Kapelluhrauni í landi Hafnarfjarðar. Hafa bæjaryfirvöld í Hafnar- fírði veitt hópnum sex mánað frest til undirbúnings og stofnun fyrir- tækisins. ÁSDÍS Kristmundsdóttir sópran- söngkona og Kristinn Om Krist- insson píanóleikari halda tónleika í Hafnarborg, Hafnarfirði, fimmtudaginn 11. apríl kl. 20.30. Ásdís lauk einsöngvaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 1987. Það haust hóf hún nám við tónlistardeild Boston University og lauk þaðan meistaraprófi (Master of Music) í desember síðastliðnum. Hún hefur komið fram sem ein- söngvari við ýmis tækifæri, bæði hér heima og erlendis og sungið í sjón- varpi og útvarpi. Kristinn Öm Kristinsson lauk lokaprófi frá Tónlistarskóla Akur- eyrar. Hann stundaði síðan fram- haldsnám við University of Southem Illinois og University of Saint Louis. Á efnisskránni í kvöld verða flutt lög eftir Mozart, Schubert, Mus- grave, Fauré og Strauss. Kristinn Örn Kristinsson og Ásdís Kristmundsdóttir. Þórhallur sagði, að um 30 milljón- ir króna þyrfti til að stofna hlutafé- lagið og vinna áfram að undirbún- ingi en hann hófst fyrir rúmum tíu árum og hefur áhugahópurinn til þessa greitt allan kostnað úr eigin vasa. Búið er að kanna markaðs- möguleika erlendis og hafa einkum bandarískir gosdrykkja- og djús- framleiðendur og heilsuhæli sýnt áhuga á að kaupa vatnið. „Þessi sala mun því ekki hafa nein áhrif á útflutning á því vatni sem er pakkað hér,“ sagði Þórhallur. „Þarna er um allt annan markað að ræða.“ Sagði hann, að niðurstöður rann- sókna á vatninu lofuðu góðu. Þær sýndu að um gott vatn væri að ræða og nær ótakmarkað. Fyrirhugað er að bora eftir vatninu og koma upp öflugri dælustöð, sem gæti dælt 6 þús. sek. lítrum á klst. Reiknað er með að dælan kosti um kr. 400 millj. Þegar vatnið er komið urh borð er flutningur þess á ábyrgði kaup- enda og bera þeir einnig ábyrgð á gæðunum en nýlega hefur tæknin gert mönnum kleift að flytja vatn með þessum hætti án þess að það mengist. Um fimm daga tekur að fylla hvert skip og er reiknað með að hægt verði að afgreiða fjögur til sex skip á mánuði. „Málið snýst um að stofna öflugt íslenskt fyrirtæki um þennan út- flutning," sagði Þórhallur. „Þetta er okkar auðlind og kaupendur eru fyr- ir hendi. Við höfum sent völdum ein- staklingum bréf og boðið þeim að vera með og höfum fengið nokkarar fyrirspurnir. Bankar, opinberir sjóðir og fjárfestingafélög halda enn að sér höndum en bankar eru tilbúnir að styðja okkur ef okkur tekst að afla hlutafjárs og nægra trygginga."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.