Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 32

Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991 SPARIÐ BENSÍN AKIÐ Á Hrun kommúnismans og sameining Þýskalands; Þrýst var á sovéska ráða- menn um að beita hervaldi GOODfYEAR HEKLA LAUGAVEG1174 * 695560 & 674363 GOODfYEAR 60 ÁR Á ÍSLANDI „Charme" Gæði og góð þjónusta PFAFF Borgartúni 20, sími: 626788 - segir Shevardnadze, fyrrum utanríkisráðherra Sovétríkjanna Moskvu. Reuter. EDÚARD Shevardnadze, fyrrum utanríkisráðherra Sovétríkjanna, segir í viðtali sem birtist í gær í vikuritinu Literatúrnaja Gazeta að ráðamenn í Kreml hafi sætt miklum þrýstingi um að grípa inn í rás atburða er valdakerfi kommúnismans hrundi eins og spila- borg í Austur-Evrópu haustið 1989. Shevardnandze lætur að því liggja að harðlinukommúnistar sovéskir, þeir sem ákafast hafa gagnrýnt slökunarstefnuna Shevardnadze og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga á vettvangi utanrikismála, hefðu verið reiðubúnir til að hefja styijöld til að koma í veg fyrir sameiningu Þýska- lands hefðu þeir verið einráðir Shevardnadze, sem sagði af sér í desember í fyrra, segir að vald- hafar í leppríkjum Sovétríkjanna og sovéskir harðlínukommúnistar hafi ákaft hvatt sovésk stjórnvöld til að beita valdi til að beija niður uppreisn alþýðu manna í Austur- Evrópu. Hann kveður afstöðu þessara afla hafa verið hina sömu og þá er réði því að Sovétmenn beittu hervaldi í Austur-Þýska- landi 1953, Ungveijalandi 1956 og í Tékkóslóvakíu 1968. íhlutun- arstefna þessi var kennd við Leo- níd Brezhnev, fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, sem kvað upp úr um það að réttlætanlegt væri að Sovétmenn beittu valdi væri só- síalismanum ógnað í leppríkjun- um. Þessari kenningu höfnuðu þeir Gorbatsjov og Shevardnadze og er það almennt talið eitt helsta skilyrðið fyrir því að almenningur í Austur-Evrópu reis upp gegn valdaeinokun kommúnista. Shevardnadze segir í viðtalinu að hann hafi þegar árið 1986, skömmu eftir að hann varð ut- Sovétríkjunum. Edúard Shevardnadze Reuter anríkisráðherra, gert sér ljóst að sameining Þýskalands væri óhjá- kvæmileg. Viiji þýsku þjóðarinnar til sameiningar hafí verið öldungis óvefengjanlegur, og aðskilnaður í krafti hugmyndafræði, vígtóla og steinsteypu óveijandi. Shevardnadze víkur að gagn- rýni sovéskra harðlínukommúnista sem þráfaldlega hafa sakað foryst- usveit Kommúnistaflokksins so- véska um að hafa fylgt óábyrgri stefnu í utanríkis- og öryggismál- um er kommúnisminn hnmdi í Austur-Evrópu. Hann segir að íhlutun Rauða hersins hefði getað kostað styijöld, þriðju heimsstyij- öldina. Hann kveður það sjónarmið harðlínumanna að stefna sú sem Gorbatsjov hefur boðað og kennd hefur verið við perestrojku hafi orðið til þess að skapa ólgu og óánægju í Austur-Evrópu ekki fá staðist. Þvert á móti sé það sögu- leg staðreynd að andóf gegn vald- höfum hafi verið hafið löngu áður en Gorbatsjov hófst til valda í Moskvu. Vísar Shevardnadze til Póllands og hreyfingar Samstöðu snemma á síðasta áratug og minnir á að herlög hafi ekki dugað til að bijóta Lech Walesa, leiðtoga stjómarandstöðunnar og núver- andi forseta Póllands, og stuðn- ingsmenn hans á bak aftur. Leið- togar leppríkjanna hafi undan- tekningarlítið ekki gert sér neina grein fyrir því hve undirstöður valda þeirra væru ótraustar. John Updike og Neil Simon hlutu Pulitzer- bókmenntaverðlaunin New York. Reuter. RITHÖFUNDARNIR John Updike og Neil Simon fengu Pulitzer-verð- launin fyrir bókmenntir sem afhent voru á þriðjudag. Updike vann verðlaunin fyrir skáldsögu sína „Rabbit at rest“ en Simon fyrir leik- rit sitt „Lost in Yonkers". Pulitzer-verðlaunin eru æðstu verðlaun Bandaríkjanna á sviði lista og blaðamennsku. Caryle Murphy, blaðamaður á Washington Post, sem sendi fréttir úr felum í Kúveit dagana eftir inn- rás fraka í landið fékk verðlaun fyrir erlend fréttaskrif ásamt Serge Schemann, blaðamanni á New York Times, sem fékk verðlaunin fyrir frásagnir sínar af sameiningu Þýskalands. Verðlaun fyrir rannsóknarblaða- mennsku hlutu Joseph Hallinan og Susan Headden, blaðamenn á Indi- anpolis Star fyrir skrif sín um SKÓLARITVÉLAR Þægilegar í notkun, íslenskur leiðarvísir og sérstaklega hljóðlátar. Sjáifvirk ieiðrélting, feitletrun og undirslrikun. 5 íslensk letur. SKRIFSTOFUVÉLAR sund hf NÝBÝLAVEGI16 - SÍMI 641222 -tækni og }>jónuHlu á IrauRtum grunni læknamistök í Indiana-fylki. Jim Hoagland á Washington Post fékk verðlaun fyrir stjórnmálaskrif fyrir dálkaröð um Persaflóastríðið og hina erfiðu stöðu Mikhaíls Gor- batsjovs, forseta Sovétríkjanna. Alls voru veitt 25 verðlaun og hlutu kvenmenn 11 þeirra. Er það hæsta hlutfall í sögu Pulitzer-verð- launanna. ■ HÖFÐABORG - Afríska þjóðarráðið, ANC, virtist í gær reiðubúið að láta af kröfum sínum um afsögn tveggja ráðherra. í yfir- lýsingu ANC kom fram að Nelson Mandela, leiðtogi ráðsins, hefði á lokuðum fundi í Höfðaborg á þriðju- dag sagt að kröfurnar hefðu verið settar fram til að „styrkja trú manna á friðarbaráttuna". ■ BELGRAD - Þingið í júgó- slavneska lýðveldinu Serbíu sam- þykkti í gær afsögn innanríkisráð- herra lýðveldisins, Radmilo Bogd- anovic. Hann sagði af sér vegna óeirða sem brutust út í Belgrad 9. mars sl. en í þeim féllu 9 manns. Afsögninni var ætlað að minnka spennu í Serbíu. Kommúnistar, sem fara þar með völd, eru undir miklum þrýstingi um að gera um- bætur í lýðræðisátt eftir að þús- undir námsmanna mótmæltu í mið- borg Belgrad í fimm daga eftir óeirðirnar. Síðasti Wartburginn Síðasti Wartburginn, eldrauður á lit, rúllaði af færibandinu í Wart- burg-verksmiðjunum í borginni Eisenach í gær. Brustu margir hinna 6.200 starfsmanna verksmiðjunnar, sem byggðar voru 1896, í grát við þetta tækifæri enda alls óvíst hvað tekur við hjá þeim. Til stend- ur að hefja framleiðslu á Opel-bifreiðum í Eisenach en það verður ekki fyrr en árið 1993. Síðasti Wartburginn verður ekki seldur held- ur sýndur á safni. Framleiðslu á Trabant-bifreiðum verður hætt síðar í þessum mánuði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.