Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 38
! MÓRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR llJ'ÁPRÍL 1991
Velheppnað-
ir vetrar-
leikar Léttis
Frá Vetrarleikum íþróttadeildar Léttis.
VETRARLEIKAR íþróttadeild-
ar Léttis voru haldnir um pá-
skana og tókust þeir vel, að
sögn Guðlaugar Hermannsdótt-
ur gjaldkera deildarinnar. Fjöl-
margir tóku þátt í leikunum og
var keppni á stundum hörð,
einkum í flokki unglinga. Leik-
arnir stóðu yfir í þrjá daga og
var í boði fjölbreytt dagskrá
allan tímann. Sigríður Stefáns-
dóttir forseti bæjarstjórnar
setti leikana.
„Vetrarleikarnir mæltust mjög
vel fyrir og voru vel sóttir. Við
sem að þessu stóðum teljum að
ótrúlega vel hafi tekist til þrátt
fyrir að við höfum ekki til umráða
sérstakt sýningarsvæði. Áhugi á
hestamennsku er mikill hér á
Akureyri, líklega eru það um
1.300 manns sem hana stunda
og því þykir brýnt að hér verði
til staðar gott sýningarsvæði mið-
svæðis í bænum,“ sagði Guðlaug.
í töltkeppni urðu úrslit þau að
í flokki fullorðinna sigraði Guð-
mundur Hannesson á Vin, Birgir
Árnason á Hetju varð annar og
Sigmar Bragason á Feng varð
þriðji.
í flokki barna 12 ára og yngri
sigraði Þórir Rafn Hólmgeirsson
á Feidi, Sveinn Ingi Kjartansson
á Eldi varð annar og Elvar Jón-
steinsson á Júní varð þriðji.
Keppnin varð einna hörðust í
flokki unglinga, en þar fór Börkur
Hólmgeirsson á Sabínu með sigur
af hólmi, Þór Jónsteinsson áKviku
varð annar og Erlendur Oskarsson
á Stubb varð þriðji. í flokki ung-
menna varð Sigrún Brynjarsdóttir
á Glitni í fyrsta sæti, Hólmfríður
Bima Björnsdóttir á Kremi í örðu
og Friðdóra Friðriksdóttir á
Blossa í því þriðja.
í 150 metra skeið sigraði Jó-
hann G. Jóhannesson á Hörpu,
Matthías Eiðsson á Prúð varð
annar og Olafur Örn Þórðarson á
Litla-Jarp varð þriðji. I gæðinga-
skeiði sigraði Sveinn Jónsson á
Krumma, Sigmundur Siguijóns-
son á Hvassi varð annar og Ólaf-
ur Öm Þórðarson á Litla-Jarp
varð þriðji.
Viking-Brugg:
Pilsnerinn einnig
kominn í flöskur
VIKING-Brugg á Akureyri hefur
sett á markað Viking Pilsner bjór
í nýjum umbúðum. Bjórinn er
boðinn bæði í flöskum og dósum
Skráningu
á Pollamót
að ljúka
HIÐ árlega „Pollamót“ Þórs og
Sjallans verður haldið i þriðja
sinn í sumar, en þátttöku ber að
tilkynna fyrir 15. apríl næstkom-
andi.
Mótið verður haldið dagana 5.
til 7. júlí næstkomandi. Þau félög
sem áður hafa verið með í mótinu
sitja fyrir ef þátttökulið verða of
mörg. Vænst er þátttöku 20 til 25
liða hvaðanæva af landinu og fara
mótsslit fram í Sjallanum á laugar-
dagskvöidi. Mikilvægt er að lið verði
skráð til keppni eigi síðar en 15.
apríl, en skráning fer fram hjá
Knattspyrnudeild Þórs og gefur
Benedikt Guðmundsson nánari upp-
lýsingar.
og eru umbúðirnar hvítar með
rauðri og gylltri rönd.
Mikil eftirspurn var eftir þessum
bjór í eldri umbúðunum, sem voru
grænar dósir. Þótti rétt að neytend-
ur hefðu val um umbúðategund og
því er Viking Pilsner nú einnig boð-
inn í flöskum. Bjórinn er 4,6% að
styrkleika sem er samsvarandi þeim
bjór sem mest er drukkið af, t.d. í
Danmörku og er verðið með því
lægsta á markaðnum um þessar
mundir.
Að undanfömu hefur verið leitast
við að auka enn gæði þessa bjórs
frá því er var og nýta til fulls nýt-
ísku tækjabúnað verksmiðjunnar,
sérþjáifað starfsfólk og úrvals hrá-
efni. Eitt af aðalhráefnunum í bjór
er vatn og hefur bruggmeistari Vik-
ing Brugg talað um að hann hafi
aldrei á 30 ára ferli sínum víða um
lönd aldrei bruggað bjór úr jafngóðu
vatni og hér á landi.
Magnús Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri sagði að framleiðsla
væri í fullum gangi hjá fyrirtækinu
og menn fyndu fyrir uppsveiflu.
„Við höfum fundið mikinn meðbyr
með okkar framleiðsluvörum síð-
ustu vikur, sem er mjög ánægju-
legt,“ sagði Magnús.
v Kjötiðnaðarstöð KEA:
Birgðir af dilkakjöti duga
ekki til næstu sláturtíðar
Reiknað með að kaupa þurfi um 100 tonn til að mæta eftirspurn
REIKNAÐ er með að Kjötiðnaðarstöð KEA þurfi að kaupa um
100 tonn af dilkakjöti, þar sem ljóst er að birgðir stöðvarinnar
duga ekki fram að næstu sláturtíð. Óvenjulitlar birgðir eru nú til
í stöðinni af flestum tegundum kjöts, ekkert er til af svínakjöti,
eitthvað af nautakjöti og 260 tonn voru til af kindakjöti um síð-
ustu mánaðamót, sem er óvenjulítið. Skýringar á góðri birgða-
stöðu dilkakjöts eru annars vegar þær að minna sauðfé var slátr-
að þar gíðasta haust og eins hefur sala það sem af er árs verið
mjög góð.
Óii Valdimarsson framkvæmda-
stjóri Kjötiðnaðarstöðvarinnar
Leikfélag Menntaskólans
ó Akureyri sýnir
Grænfjöðrung
eftirCarlo Gozzi.
Leikstjóri er Jón St.
Kristjánsson.
2. sýn. fimmtud. 11. apríl kl. 20.30.
3. sýn. mánud. 15. apríl kl. 20.30.
4. sýn. þriðjud. 16. apríl kl. 20.30.
Miðapantanir í síma 24073 alla daga frá
kl. 16-20 nema lau. og sun. frá kl. 14-17.
Miðáverð kr. 800,600 fyrir skólafólk.
Leikfélag MA.
sagði að nokkru færra sauðfé hefði
verið slátrað í haust en árið áður,
en það þýddi að um 50 tonn minna
af dilkakjöti er þar til ráðstöfun-
ar. Rólegt var yfir sölunni fram
til áramóta, en í janúar og febrúar
tók hún kipp og kvaðst Óli ekki
muna svo góða sölu yfir þessa
mánuði áður. Hann sagði að
ákveðnir flokkar dilkakjöts væru
búnir og hefði hann þegar keypt
um 20 tonn frá öðrum stöðum af
þeim flokkum, en þar er um að
ræða kjöt í ódýrari flokkum. Þá
sagði Óli að kjöt í úrvalsflokki
væri rétt að verða búið. Frá ára-
mótum er búið að selja um 160
tonn af kindakjöti.
Um síðustu mánaðamót voru til
260 tonn af dilkakjöti hjá stöðinni
sem er miklu minna magn er áður
hefur verið þar tii í birgðum. Óli
sagði að salan væri að jafnaði frá
50 tonnum og upp í 70 á mánuði,
en fyrirsjáanlegt væri að mestu
sölumánuðirnir væru eftir, þ.e.
sumarmánuðirnar þegar lands-
menn grilla af kappi, en einn sum-
armánuðinn í fyrra seldust um 100
tonn af kjöti. „Það liggur alveg
ijóst fyrir að við verðum að kaupa
kjöt og við getum reiknað með að
það verði um 100 tonn sem við
þurfum til að anna eftirspuminni.
Þetta er stórt markaðssvæði, eða
um 20 þúsund manns, en helstu
skýringar á því hversu góð birgða-
staðan er núna eru þær að sauðfé
hefur fækkað í sýslunni og eins
hefur salan verið óvenju lífleg,“
sagði Óli.
Hann sagði það sína skoðun að
farsælt væri að lengja sláturtíðina,
en til að það væri unnt, þyrfti að
kenna fólki að snæða ófrosið
lambakjöt. Kæmist fólk upp á lag-
ið með það væri möguleiki á að
heija sláturtíð í ágúst og vera að
í rólegheitum fram til jóla.
HVað aðrar tegundir kjöts varð-
ar eru engar birgðir til af svína-
kjöti og er framleiðsla þess í jafn-
vægi, en slátrað er einu sinni í
viku. í byrjun febrúar voru til 14
tonn af nautakjöti og hafa birgðir
ekki verið minni í mörg ár.
5. Esso-mót KA
haldið í sumar
FIMMTA Esso-mót Knattspyrnu-
félag^s Akureyrar verður haldið
á Akureyri 4. til 6. júlí í sumar
fyrir 5. flokk með þátttöku a-,
b- og c-liða. Mikil þátttaka var á
mótinu á siðasta ári og þvi nauð-
synlegt að tilkynna þátttöku sem
fyrst, og eigi síðar en 1. maí
næstkomandi.
Ég þakka afheilum hug samstarfsfólki, vinum
og vandamönmim, fjœr og nœr, alla þá hlýju
og gleöi, sem mér var sýnd á áttræÖisafmœli
mínu þann 5. apríl s/.
Meö friöar- og farsældaróskum,
Áskell Jónsson.
Á síðasta ári var þetta fjölmenn-
asta knattspyrnumót fyrir einn
flokk sem haldið var á landinu, en
þá tóku 52 lið þátt, eða um 520
börn. Samhliða mótinu verður hald-
ið innanhúsmót í „bandí" með út-
sláttarfyrirkömulagi og verðlaun
veitt fyrir sigur í því móti.
Knattspymumótið verður haldið
frá fimmtudegi til laugardags og
þurfa þátttakendur því að koma til
Akureyrar á miðvikudegi en móts-
setning verður á miðvikudagskvöld
og keppni hefst á fimmtudags-
morgni. Mótinu lýkur á laugardags-
kvöld með kvöldvöku og mótsslit-
um.
Þátttöku skal tilkynna til Sveins
Brynjólfssonar, Magnúsar Magnús-
sonar eða Gunnars Kárasonar.
Ásprent hefur keypt þriggja lita
prentvél af gerðinn Morgan 905
fyrir um 20 milljónir króna.
Asprent fær
nýja prentvél
ÁSPRENT hf. á Akureyri hefur
fest kaup á Morgan 905 prentvél,
en kaupverðið er tæplega 20 millj-
ónir króna.
Vélin er nýkomin til landsins og
verður byijað að setja hana upp hjá
fyrirtækinu í næstu viku. Vélinni,
sem er þriggja lita er einkum ætlað
að framleiða tölvupappír.
Þórður Kárason hjá Ásprent sagði
að með tilkomu vélarinnar myndi
þjónusta og gæði aukast til muna,
og ekki síst yrði pappírinn ódýrari
en áður. Þórður sagði vélin þá full-
komnustu sinnar tegundar og þá einu
utan höfuðborgarsvæðisins. Vélin
getur höggvið pappír niður af rúllu
í arkir og einnig verður unnt að fram-
leiða tölvupappír með litmyndum, svo
eitthvað sé nefnt.
Ásprent á fyrir eina eins lits prent-
vél og aðra tveggja lita. Vélin verður
væntanlega komin í gang um næstu
mánaðamót.
------M-t------
Fyrirlestur
hjá sorgar-
samtökunum
GYÐA Haraldsdóttir sálfræðingur
flytur fyrirlestur um sorg í kjölfar
þess að eignast fatlað barn á fundi
Samtaka um sorg og sorgarvið-
brögð í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju í kvöld, fimmtudagskvöld kl.
20.30.