Morgunblaðið - 11.04.1991, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.04.1991, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRIL-1991 39 A L N G S K O N G A R Sameiginlegur framboðsfundur í Ólafsvík: Tekist á um fiskveiðastefnuna og jöfnun húshitunarkostnaðar Fjölmennt var í félagsheimili Ólafsvíkur á framboðsfundinuin. Á FJÖLMENNUM kosningafundi sem haldinn var í félagsheimilinu í Ólafsvík sl. þriðjudagskvöld kom fram í fyrirspurnum fundar- gesta að fiskveiðastefnan og jöfnun húshitunarkostnaðar eru þau mál sem einna mest virðast brenna á kjósendum í Vestur- landskjördæmi. Átta flokkar og samtök bjóða fram í kjördæminu og hófst fundurinn á framsögu- erindi fulltrúa flokkanna. Fyrstur á mælendaskrá var Sig- urður Þórólfsson sem skipar annað sæti B-lista Framsóknarflokks. Hann fór nokkrum orðum um þau mál sem helst yrði kosið um í kom- andi kosningum og sagði að þar yrðu störf og góður árangur núver- andi ríkisstjórnar í efnahagsmálum ofarlega á lista. Hann sagði að af- staða Framsóknarflokksins til Evr- ópumáianna væri skýr — flokkurinn hafnaði inngöngu í EB. Með inn- göngu í EB myndi þjóðin afsala sér yfirráðum yfir auðlindum lands og sjávar og það yrði ekki aftur snúið. Tvö þrep í vsk Díana Dröfn Olafsdóttir, sem skipar 5. sæti F-lista Fijálslyndra, sagði að helstu stefnumál fram- boðsins væri að persónuafsláttur maka verði fullnýtanlegur og skatt- leysismörk verði hækkuð í 87.335 kr. Þessu verði náð án lækkunar á tekjum ríkissjóðs með því að leggja hærri skatta á tekjur umfram 170 þúsund kr. Þá legði F-listinn til að tekin yrðu upp tvö þrep í virðisauka- skatt, það lægra 6% og það hærra 20%. Kjarnfóðurgjald yrði afnumið, fullvirðisréttur framseljanlegur milli lögbýla og bændum heimilað að leggja inn afurðir sínar hvar sem er á landinu. Hún sagði að Fijáls- lyndir vildu valddreifingu á þann hátt að heimastjórnir tækju í sínar hendur verkefni sem nú eru leyst hjá stjórnvöldum í Reykjavík. Islandsmet í skattheimtu Sturla Böðvarsson, efsti maður á D-lista Sjálfstæðisflokksins, sagði að Evrópumálefnin væru mikils- verðustu viðfangsefni sem íslenskir stjórnmálamenn hafa fengist við. Hann lýsti vandlætingu sinni á þeim vinnubrögðum Steingríms Her- mannssonar að lýsa því yfir að efna eigi til þjóðaratkvæðagreiðslu um EB, en áður hefði utanríkisráðherra haft fullt umboð til að semja um þessi mál. Hann sagði að Sjálfstæð- isflokkurinn legði á það áherslu að það komi ekki til greina að ganga inn í Evrópubandalagið og gangast þar með undir Rómarsáttmálann. Islendingar geti ekki sætt sig við óheftan aðgang erlendra ríkja að auðlindum Iandsins. Guðjón Guð- mundsson, sem skipar 2. sæti G- lista, sagði að viðskilnaður núver- andi ríkisstjórnar væri íslandsmet í skattheimtu, hrikalegur ríkissjóðs'- halli, verulegt atvinnuleysi, stór- aukin gjaldþrot og flótti af lands-' byggðinni. Stöðva yrði sjálfvirka útþenslu ríkisbáknsins og draga úr miðstýringu sem færi stöðugt vax- andi. Koma yrði í veg fyrir skatta- hækkanir sem boðaðar hafa verið og lækka skatta. Virðisaukaskatt mætti lækka með því m.a. að af- nema allar undanþágur. Réttlætis- mál væri að fólk gæti notað skatt- kort maka að fullu og að foreldrar unglinga sem fara langan veg í skóla gætu notað skattkort þeirra að hluta. Guðjón sagði að sjálfstæð- ismenn vildu nýta tímann fram að endurskoðun kvótalaganna í árslok 1992 til að móta heildarstefnu í fiskveiðistefnu og að um þá stefnu takist víðtæk samstaða meðal þeirra sem starfa að sjávarútvegi. Kvótakóngar Jóhann Ársælsson, efsti maður á G-lista Alþýðubandalagsins, sagði að alþýðubandalagsmenn hefðu sett fram skýrar tillögur um stjórn fisk- veiða. Hann sagði að þessar tillögur hefðu orðið til vegna þess að aug- ljóst væri hvernig kvótastefnan væri að fara með byggðarlögin um allt land. Að hægt væri að versla með kvóta hefði leitt til þess að veiðiheimildir færast milli byggðar- laga og skipa og til yrðu kvótakóng- ar. Reynslan sýndi að kvótinn safn- aðist saman á örfá fyrirtæki. Jó- hann hvatti viðstadda til að kynna sér tillögur G-listans í fiskveiðimál- um. Launamunur karla og kvenna Danfríður K. Skarphéðinsdóttir, efsti maður á V-lista Samtaka um kvennalista, sagði að störf kvenna utan og innan heimilis væru lítt metin að verðleikum í samfélaginu. Hún sagði að konur í fullu starfi utan heimilis fengju 62% af launum karla í fullu starfi og heimilisstöf væru ekki talin þess virði að þau væru metin í þjóðarbúskapnum. Kvennalistinn hefði lagt fram margar tillögur sem miðuðu að því að bæta kjör hinna lægstlaunuðu, sjálfsögð krafa væri að einstakling- ur gæti framfleytt sér af dagvinnu- launum. Hún sagði að ríkisstjórnar- flokkarnir hefðu stært sig mikið af stöðugleika í efnahagsmálum en hins vegar mætti hann ekki verða á kostnað hinna lægstlaunuðu. Snjólaug Guðmundsdóttir, sem skipar 2. sæti V-lista, sagði að Kvennalistinn hefði lagt fram á Alþingi breytingartillögu um stjórn fiskveiða sem felur m.a. í sér að 80% heildaraflans verði skipt á milli byggðarlaga, betri nýtingu sjávar- aflans og treysta innlenda fisk- vinnslu og hlúa betur að starfsfólki í sjávarútvegi. Hún sagði að Kvenn- alistinn vildi styttingu vinnuvikunn- ar, hækkun skattleysismarka, tvö skattþrep og afnám virðisauka- skatts á matvælum. Makalaus umræða um Evrópumál Eiður Guðnason, efsti maður á A-lista Alþýðuflokks, sagði að mak- alaus umræðá ætti sér stað um Evrópumálefnin. Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra vissi allt sem þar væri að gerast og hníf- urinn hefði ekki gengið á milli hans og Jóns Baldvin Hannibalssonar í þessum málum. Umræðan snerist alls- ekki um inngöngu í EB heldur evrópska efnahagssvæðið. Hann sagði að tvennar-þrennar alþingis- kosningar myndu líða áður en hugs- anlega yrði höfð þjóðaratkvæða- greiðsla um inngöngu í EB. Hann sagði það ódrengilegan málflutning af hálfu Steingríms Hermannssonar og óheiðarleg vinnubrögð þegar fólki væri sagt að það ætti að taka afstöðu til EB núna. Staðan væri einfaldlega sú að þjóðin væri ekki nógu upplýst um málið. Friðhelgi heimilisins Helga Gísladóttir, sem skipar efsta sæti á Þ-lista Þjóðarflokks- Flokks mannsins, sagði að helstu stefnumál framboðsins tengdust lífsgæðum, frelsi og þátttöku ein- staklingsins, sjálfstæði þjóðarinnar og ábyrgð stjórnmálamanna. Grundvallaratriði væri hækkun skattleysismarka og að lágmarks- laun verði ekki undir þeim mörkum, afnám virðisaukaskatts á matvæli og nauðsynjavörur og stöðvun lán- töku ríkissjóðs á innlendum og er- lendum mörkuðum til að koma í veg fyrir vaxtahækkanir og hækkandi verðbólgu. Framboðið myndi beita sér fyrir útvíkkun hugtaksins frið- helgi heimilisins á þann hátt að ekki yrði unnt að bjóða upp heimili fólks. Stofnaðar verði sérstakar stjórnsýslueiningar landshluta sem hafi ákvörðunarvald um sameigin- legar framkvæmdir og þjónustu og sett lög til að koma í veg fyrir hring- amyndanir. Fjármagrúð sé að fær- ast á æ færri hendur og með sama áframhaldi verði greið leið fyrir erlend stórfyrirtæki að hasla sér völl í íslensku viðskiptalífi. Efast um lestrarkunnáttu Júlíusar Sólnes Fjölmargar fyrirspurnir bárust utan úr sal að framsöguerindum loknum og snerust þær einkum um fiskveiðastefnuna og jöfnun húshit- unarkostnaðar. Spurt var hvort Framsóknarflokkur gerði núverandi kvótakerfi að úrslitaatriði í stjórn- armyndunarviðræðum. Ingibjörg Pálmadóttir, sem skipar efsta sæti B-listans, sagði að þjóðarsátt hefði orðið um kvótakerfíð þótt hún það væri ekki gallalaust. Hún vitnaði í Gallup-könnun þar sem fram kemur að 62% þjóðarinnar er meðmælt kvótakerfinu. Fyrirspurn var beint til Arnórs Péturssonar, efsta manns á F-lista, hvort hann væri sammála ummæl- um Júlíusar Sólnes um að F-listinn væri hægraframboð. Amór sagði sínum augum liti hver silfrið, sín skoðun væri sú að F-listinn væri jafnréttisframboð. Vildi Arnór efast um lestrarkunnáttu Júlíusar teldi hann þetta hægraframboð. Spurt var hvaða flokkur hefði jöfnun húshitunarkostnaðar á sinni stefnuskrá. Fram kom í máli Sturiu Böðvarssonar, efsta manns á lista sjálfstæðismanna, að frambjóðend- ur flokksins í Vesturlandskjördæmi myndu gera jöfnun húshitunar- kostnaðar að forgangsverkefni við næstu stjórnarmyndunarviðræður ef kjósendur veittu flokknum braut- argengi í þessum kosningum. Hann sagði að það væri talandi tákn um ringulreið þá sem ríkti innan ríkis- stjórnarflokkanna á síðustu dögum þings. að tillaga nefndár undir for- ystu Eiðs Guðnasonar um jöfnun húshitunarkostnaðar skyldi ekki ná fram að ganga. Sjálfstæðismenn hafi lagt til að Landsvirkjun lækki raforkuverð til húshitunar með þeim hætti að arðgreiðslur og greiðslur sem renna beint í ríkissjóð verði látnar greiða niður húshitun- arkostnaðinn. Eiður Guðnason, efsti maður á A-lista, kvaðst hafa lýst því yfir á sínum tima að yrðu lög um álver samþykkt ætti ekki að slíta þingi fyrr en búið væri að afgreiða lög um jöfnun húshitunarkostnaðar. Lög um álver hefðu ekki verið sam- þykkt vegna andstöðu Kvennalist- ans og Hjörleifa Alþýðubandalags- ins, eins og Eiður orðaði það. Alþýð- umenn hefðu tengt þessi mál sam- an. Hann sagði að þær tillögur sem lægju fyrir og yrðu vonandi af- greiddar á næsta þingi hefðu í för með sér mikla Jækkun hitunar- kostnaðar, niður í 5.000 kr. á vísi- töluíbúð miðað við verðlag í janúar. Jóhann Ársælsson var spurður hvað hann ætti við með því að veið- iálag margfaldist þegar veiðiheim- ildir eru færðar frá trillu til togara. Hann sagði að álagið tvöfaldaðist við þessa yfirfærslu. Þorskur sem veiddur væri á togurum væri um 2 kg að þyngd en að meðaltali 4 kg sá þorskur sem veiddur er á smærri bátum. Helmingi fleiri einstaklingar væru veiddir þegar kvóti væri flutt- ur frá trillu yfir á togara. Þetta skipti máli þegar nýliðun á þorski væri svo lítil sem raun bæri vitni. Hann sagði að aflagjald sem gert væri ráð fyrir í tillögum G-listans væri hugsað til þess að kaupa út úr flotanum þau skip sem væru óhagkvæm í rekstri og til þess að minnka hann. texti: Guðjón Guömundsson mynd: Alfons Finnsson Morgunblaðið/Árni Helgason Ibúðir aldraðra sem eru í byggingu I Stykkishólmi. Smíði íbúða fyrir aldraða senn lokið í Stykkishólmi HINAR 6 íbúðir aldraða sem nú eru í smíðum í Stykkishólmi eru senn að verða tilbúnar og hefur þeim þegar verið úthlutað. Við það hafa komið í sölu vel með farin lítil einbýlishús, sem ungt fólk og þá ekki síður brottfarnir Hólmarar hafa sýnt áhuga á að kaupa. En nú virðist æ vinsælla að eign- ast lítil hús hér til sumardvalar í Stykkishólmi. Það má geta þess að nýlega hefur verið úthlutað lóðum undir 6 raðhús í Tjarnarmýrahverfinu og er þessi úthlutun til Tré^yiiðju Stykkishólms. — Árni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.