Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 50

Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991 MÚSÍKTILRAUNIR VAXTARBRODDUR íslenskra rokk- og dægurtónlistar er í árlegri hljómsveitakeppni félagsmiðstöðvarinnar Tónabæjar, sem kallast Músíktilraunir. Þar keppa árlega á þriðja tug hljómsveita um hylli áheyrenda og dóm- nefndarmanna og hlýtur sigursveitin að launum meðal annars hljóðverstíma og ráðningu við spilamennsku á vegum Reykjavíkurborgar. Sveitum tekst misjafnlega að halda á frægðinni; sumar nýta sér sigurinn vel líkt og Greifarnir sem sigruðu 1986, en aðrar sveitir hafa horfið sporlaust og að því er virðist án eftirsjár líkt og sigurvegararnir 1989, Laglausir. Síðustu tvö ár hafa hafnfirskar sveitir farið með sigur af hólmi, en dreifing sveita um landið er venju fremur mikil að þessu sinni, þó enn bóli ekki á sveitum af Vestfjörðum. tvær sveitir koma úr Hafnarfirði, þrjár úr Borgarnesi, þar sem gróska virðist mikil, sex úr Reykjavík, ein af Suðurnesjum, tvær af Austurlandi, tvær úr Kópavogi, ein úr kaupstöðunum The Evil Pizza Delivery Boys lllu pizzasendlarnir úr Borgarnesi tóku einnig þátt í síðustu Músíktilraunum, en með smávægilegum manna- breytingum. Gísli Magnússon leikur á gítar og syngur, Símon Olafsson leikur á bassa og Guðmundur S. Sveins- son á trommur sem fyrr. Ný í sveitinni er söngkonan Guðveig Anna Eyglóardóttir. Meðalaldur pizzasend- lanna er rúm sextán ár. Víbrar Víbrar er hafnfirsk sveit sem leikur gleðirokk að hætti Stuðmanna og ámóta sveita, en þeir félagar leggja ríka áherslu á að þeir fari sínar eigin leiðir og taki sjálfa sig ekki of alvarlega. Sveitina skipa Óskar I. Gíslason trommuleikari, Guðmundur Aðalsteinsson bassaleikari, Gunnar Þ. Jónsson gítarleikari, Hákon Steinsson hljóm- borðsleikari og Númi sem syngur. Meðalaldur sveitar- manna er um 19 ár. sunnar Reykjavíkur, ein úr Eyjum, tvær frá Akureyri og þrjár frá Akranesi. Athygli vekur hvað Borgnesingar eru iðnir við spilamennsku, en þaðan koma þrjár sveitir með tólf manns innanborðs og væri sambærileg tala fyrir Reykjavík væri 150 sveitir með um 600 meðlimum. Akurnesingar eru einnig iðnir við spilamennskuna að vanda, en undanfarin ár hafa þeir á fjölmargar sveitir í Músíktilraunum og reyndar varð Skagasveitin Frímann í öðru sæti í síðustu Músíktilraunum. Ekki hafa fleir sveitir tekið þátt í Músíktilraunum en að þessu sinni, því alls keppa 24 sveitir um efstu sæt- in og vildu þó fleiri vera með, því biðlisti er nokkur. Rokk í þyngri kantinum hefur sótt í sig veðrið í Músíktilraun- um, líkt og víðar á tónlistarmarkaðnum, en gleðipopp- sveitir eru á sínum stað. Fyrsta tilraunakvöld Músíktilrauna er í kvöld, og koma þá fram átta hljómsveitir sem áheyrendur gefa stig til frekari þátttöku, en sérstök dómnefnd tryggir að verðug- ,ar sveitir komist áfram að auki. Gestahljómsveit leikur þetta kvöld eins og önnur kvöld, og í kvöld verður það Síðan skein sól, sem hefja mun leik sinn uppúr átta. Annað tilraunakvöld verður svo fimmtudaginn 18. apríl nk. og loka tilraunakvöldið verður svo 25. apríl, en úr- slitakvöldið daginn eftir, föstudaginn 26. Þá gilda at- kvæði áheyrenda til jafns við atkvæði sérstakrar dóm- nefndar Fyrstu verðlaun eru hljóðverstímar eins og jafn- an. Að þessu sinni er samstarfsaðili Tónabæjar við fram- kvæmdina útvarpsstöðin Stjarnan, sem mun kynna til- raunirnar eftir föngum og að auki senda úrslitakvöldið út beint. Pax romania Akranessveitin Pax Romania er önnur tveggja Akranes- sveita sem keppa í kvöld, en frá hvorugri sveitinni barst Ijósmynd. Sveitina skipa Einar Harðarson gítarleikari, Sigurþór Þorgilsson bassaleikari, Svanfríður Gísladóttir söngkona og Óskar Pétursson troimmuleikari. Pax Rom- ania leikur rafblús. Durkheim Durkheim er hin Akranessveitin sem fram kemur í kvöld. Hana skipa Einar Harðarson gítarleikari, sem leikur einnig á gítar í Pax Romanis, Guðmundur Klaxton trommuleikari, Einar Viðarsson söngvari, Steinn Arnar Jónsson básúnuleikari, Grétar Einarsson bassaleikari. Ekki tókst að afla upplýsinga um hvernig tónlist sveitin leikur. Infusoria Infusoria er reykvísk sveit, sem hefur víða leikið undan- farið. Sveitina skipa Fróði Finnsson gítarleikari, Gísli Sigmundsson bassaleikari sem einnig syngur, Guðjón Óttarsson gítarleikari og Karl Ágúst Guðmundsson trommuleikari. Infusoria leikur dauðarokk, en meðalald- ur sveitarmanna er tæp sautján ár. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Dagfinnur dýralæknir Dagfinnur dýralæknir er sveit úr Reykjavík. Hana skipa Franz Gunnarsson gítarleikari, Matthías Matthíasson söngvari, Haukur Már Einarsson trommuleikari, Sveinn Bjarki Tómasson bassaleikari og Guðmundur Jón Ottós- son gítarleikari. Meðalaldur sveitarmanna er tæp sextán ár og sveitin leikur rokk með þungarokkívafi. Nir-Vana Nir-Vana er önnur tveggja hafnfirskra sveita sem þátt taka í Músíktilraunum og keppa báðar sama kvöldið. Sveitina skipa Gísli Sigurjónsson gítarleikari, Valdimar Gunnarsson gítarleikari, sem lék einnig á gítar í sigur- sveit síðasta árs, Nabblastrengjum, Vilhjálmur Gissurar- son trommuleikari, Bogi Leiknisson bassaleikari og Páll Óskarsson söngvari. Ner-Vana leikur rokk og ról og meðalaldur sveitarmanna er um sautján ár. Diddi Diddi heitir sveit úr Reykjavík; sem skipuð er Rafni Marteinssyni trommuleikara, Einari Tönsberg bassaleik- ara, Haraldi Jóhannessyni gítarleikara og Þorri Jónsson söngvari. Meðalaldur sveitarmanna er tæp átján ár, en sveitin leikur örbylgjupopp. Bréf til páfans eftirMagnús Guðmundsson Virðulegi Jóhannes Páll páfi II. í Morgunblaðinu 20. mars 1991 birtist grein eftir biskup kaþólskra á íslandi, Alfreð J. Jolson, undir fyrirsögninni Quo Vadis ísland? eða hvert ætlar þú ísland? „Biskup“ þessi virðist vera útsendari frá EB, enda kemur fram í greininni að biskupsfræði mannsins hafa verið sótt í Business school í gráðunum S.J., PH. og MBA. Það er vægast sagt smán og skömm af biskupi, sem á .að teljast kirkjunnar Jijónn, að ráðast á smáþjóð eins og Islend- inga með lævísum hætti til þess eins að reyna að draga úr kjarki þjóðarinnar við að halda efnahags- legu fullveldi. „Biskupinn" boðar úr sinni svörtu hempu að ísland verði hinn fátæki sveitafrændi ef við göngum ekki i EB. Dettur nokkrum lifandi manni í hug að EB vilji að við göngum í bandalag- ið af mannúðarástæðum? Nei, markmiðið er að sölsa undir sig ísland og þjóðina með lögum EB, ef Islendingar yrðu það heimskir að ganga í EB. Þegar ég sá fyrir- sögn greinarinnar frá „biskupi", Quo Vadis, datt mér í hug að Evr- ópa væri að brenna, en eins og all- ir vita sagði Kristur þetta við Pétur þegar hann gekk út úr brennandi Rómarborg. Aftur á móti veit ég að sumir brenna í skinninu, að við göngum í EB. Island er í Evrópu og verður það væntanlega áfram þótt við göngum Magnús Guðmundsson ekki í EB. Biskupinn telur upp í grein sinni eftirfarandi: „Ísland á auðuga menningu, auðug fiskimið, „ísland á gæfuríka framtíð utan EB — er svar við spurningri biskups.“ getur framleitt feiknamikla raf- orku“, þetta vill hann að við leggj- um á altari EB með inngöngu. Síð- an spyr biskup: „Hver mundi fram- tíð íslands vera utan EB?“ Á meðan ísland á þær auðlindir sem biskup- inn taldi upp, og þær sem hann nefndi ekki, er íslendingum borgið utan EB, það eru nefnilega til fleiri samtök í heiminum en EB. ísland á gæfuríka framtíð utan EB — er svar við spurningu biskups. Ég veit að Guð vakir yfir íslandi og íslend- ingum en ég veit ekki hvað gerist ef íslendingar afneita sjálfum sér pg afsala sér sínu ástkæra landi íslandi, ég læt sérhvern íslending um að spá í það. Loks fer „biskup" mörgum orðum um NATO og gefur • í skyn að þjóðin hafi lifað á herstöð- inni á Miðnesheiði og hann boðar að stöðin verði lögð niður, og þá sé vá fyrir dyrum hjá íslendingum. Hafa Islendingar heyrt aðra eins predikun frá kirkjunnar manni? Ég veit ekki betur en íslendingar hafi fætt herinn á skattftjálsum mat og nauðþurftum síðan hann steig hér á land 1951. Þegar sálin umhverfist í líkama biskups birtist Iiún í grein Alfreðs J. Jolson. Að lokum vil ég segja biskupi að það er betra að vera fátækur sveitafrændi, heldur en þær þjóðir sem safna í hlöðurnar og geta ekki séð af brauði til svelt- andi barna þessa heims, í stað þess að framleiða vítisvélar. Ég sendi páfanum eintök af þessum greinum, þar sem ég tel svona skrif ekk sæmandi embætti biskupi kaþ- ólskra á íslandi. llöfundur er fyrrverandi lögregluþjónn i Reykjn vík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.