Morgunblaðið - 11.04.1991, Page 58

Morgunblaðið - 11.04.1991, Page 58
58 moröunblÁðið fimmtudAgur' íi:'áPRÍL 1991 fclk í fréttum BILDUDALUR: Fimmtán skrifstofu- tæknar útskrifast Námskeiði í skrifstofutækni, sem haldið var á vegum Tölvufræðslunnar á Akureyri, lauk 21. marz sl., eftir tæplega fimm mánaða nám. Nemendur voru 15 talsins og var það haldið í Félags- heimilinu Baldurshaga. Námskeiðið hófst um miðjan nóv- ember og hefur verið kennt þrjú kvöld í viku auk laugardaga. Meðal kennslugreina voru,: launabókhald, bókhald, enska, íslenska og meðferð ritvinnsluforrita og tölva. Kennari var Benedikt Friðbjörnsson. Skólaslit fóru fram föstudags- kvöldið 22. marz í Baldurshaga. Framkvæmdastjóri Tölvufræðsl- unnar, Helgi Kristinsson, afhenti nemendum prófskírteini og veitti sérstök verðlaun fyrir hæstu meðal- einkunn nemenda. Verðlaunin hlaut Áslaug Garðarsdóttir. Flestir nem- Nemendur og kennarar. Af fimmtán nemendum voru aðeins þrír karlmenn. Morgunblaðið/Róbert Schmidt Áslaug Garðarsdóttir tekur við verðlaunum fyrir hæstu meðal- einkunn nemenda úr hendi Helga Kristinssonar, fram- kvæmdastjóra Tölvufræðsl- unnar. endur voru fegnir að námskeiðinu væri loksins lokið, og slegið var á létta strengi og sagt að nú gætu þeir farið að kynnast bömunum sín- um aftur. R. Schmidt Ivana flytur nú fyrir- Iestra um viðskipti. VIÐSKIPTI Ivana Trump flytur nú fyrirlestra um viðskipti Ivana Trump. moldríka glæsikvendið fræga, hefur nú tekið sér það fyrir hendur að ferðast vítt og breitt um Bandaríkin. og flytja fyrir- lestra hjá fyrirtækjum, félögum og stofnunum. Hún hefur þegar hafið þessa iðju og getur vart annað eftirspurninni. Það mætti spyija hvort að hún flytji tölur um hjónabönd og framhjáhald, en svarið er nei. Hún þykir slyngur kaupsýslumaður og fyrirlestrar hennar eru um stjórnun fyrirtækja. Ivana, sem er fyrrum tékknesk skíðadrottning, hefur ráðið sig til William Morris fyrirlestramiðlunarinnar sem er ein hin virtasta í vestur- heimi. Robert Gottlieb, umboðsmaður ungfrúarinnar hefur þráfaldlega neitað að gefa upp þóknunargjald Ivönu, en menn telja það ekki þurfa snilling til að gera sér grein fyrir því að um formúgu er að ræða. Þá er það að frétta af þessari eftirsóttu piparsveinku að hún er með stofnun á útgáfufyrirtæki í undirbúniningi. Fyrst um sinn mun fyrirtæk- ið einbeita sér að því að gefa út verk, skáldsögur, eftir Ivönu Trump. Síðar kemur til greina að færa út kvíarnar eftir því sem eftir henni er haft. Meira en þú geturímyndað þér! ■ „HOT FUDGE BROWNIE ROCK“ Sætur súkkulaóikökubotn m/vanilluís. súkkulaóisósu og rjóma. Velkomin á Hard Rock Cafe, sími 689888 Gestir njóta lífsins á Trúbadornum. VEITINGAR Rómantík o g rólegheit Nýlega opnaði lítill og nettur veitingastaður að Laugarvegi 73 og ber staðurinn heitið „Trúbad- orinn“. Þetta er ekki nýr staður í þeim skilningi að innandyra hafi aldrei verið veitingastaður áður, en „staðurinn hefur verið innréttaður upp á nýtt með rómantík og rólegheit í fyrirrúmi,“ að sögn Haraldar Kristjánssonar markaðsfulltrúa staðarins. „Við munum leggja áherslu á ljúffengan mat á viðr- áðanlegu verði fyrir allan almenning og eins og nafn- ið gefur til kynna verður lifandi tónlist nokkur kvöld í viku, ekki í tónleikaformi heldur á rólegu nótunum þannig að andrúmsloftið verði afslappað,“ segir Har- aldur. Matseðill hússins er ekki á fastri línu, þar er bland- að saman ítölskum og mexíkönskum réttum, auk hefðbundnari þjóðlegheita á borð við lamba- og naut- asteikur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.