Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 65
■VÍOKdt^BLADli) ÍÞRÓTTM
M5
IÞROTTIR UNGLINGA
Meistarar HK í 2. flokki karla. Fremri röð frá vinstri: Kristján Sveinbjörns-
son, Þorleifur Hreiðarsson, Ýmir Björgvin Arthúrsson, Bjarni Benjamínsson.
Aftari röð frá vinstri: Albert H.N. Valdimarsson form. blakdeildar HK; Stefán
Þ. Sigurðsson fyrirliði, Jón Ó. Bergþórsson, Jóhann Sigurðsson, Stefán Sigurðs-
son, Skjöldur Vatnar Bjömsson þjálfari.
2. FLOKKUR KARLA:
HK-strákar
óstöðvandi
PILTARNIR í liði HK úr Kópa-
vogi tryggðu sér íslandsmeist-
aratitilinn í 2. flokki pilta nokk-
uð örugglega. Liðið vann alla
sína leiki sem það spilaði, og
var í nokkrum sérflokki hvað
getu varðar. Liðið er skipað
ungum og efnilegum strákum
sem hafa æft saman í liðlega
sjö ár og er þjálfun þeirra
greinilega að koma fram.
Skjöldur Björnsson, þjálfari liðs-
ins, þjálfar jafnframt meist-
araflokk félagsins. Hann er mjög
ánægður með árangur strákanna
■HH og segir að hann
Guðmundur geti tæpast verið
Þorsteinsson betri. HK-liðið vann
skrífar gp jjölliðamótin sem
það tók þátt í - á
Neskaupstað og Akureyri örugg-
lega, og nú síðast í Kópavoginum.
Skjöldur sagði að uppbyggingar-
starfið hjá HK væri að skila sér og
framtíðin væri mjög björt ef félag-
inu tækist að halda Albert H.N.
Valdimarssyni áfram sem formanni
blakdeildar HK. „Hann hafi borið
hita og þunga starfseminnar og það
væri hans starf sem væri að skila
sér að miklu leyti í dag. Albert
hafi nánast verið allt í öllu, staðið
í stjórnunarstörfum, þjálfað og
einnig haft hönd í bagga með ráðn-
ingu kínversku þjálfaranna sem
hafi lagt grunninn að tækni strá-
kanna að stærstum hluta.“
Skjöldur sagði að strákarnir
æfðu fjórum sinnum í viku, og allir
nema einn æfðu einnig með meist-
araflokki. Það hefur sýnt sig í vetur
að strákarnir keppnisreynslu úr 1.
deildinni fram yfir aðra jafnaldra
sína í öðrum liðum og það hefur
fleytt þeim yfir þá kafla þegar liðið
hefur spilað illa í vetur. Það má
með sanni segja að komandi tíð sé
björt í Kópavoginum, því úr HK eru
í'jórir piltar í unglingaiandsliðinu
og jafnframt hefur einn þeirra ver-
ið valinn til æfinga með A-landslið-
inu og segir þetta talsvert um ávöxt
unglingastarfsins hjá HK.
Morgunblaðið/Guðmundur
Morgunblaðið / Frosti
Jón Finnbogason og Guðmund-
ur Þór Brynjólfsson.
Jón vann
einvígið
við Guð-
mund Þór
FÉLAGARNIR úr Gerplu, Jón
Finnbogason og Guðmundur
Þór Brynjólfsson börðust um
Unglingameistaratitiiinn í pilta-
flokki og hafði Jón betur og
varði þar með titilinn frá í fyrra.
Við erum alltaf mjög jafnir á
mótum og skiptumst á að
vinna. Eg er ánægður með sigurinn
en Guðmundur hefði ailt eins getað
unnið,“ sagði Jón
eftir að ljóst var að
hann hafði orðið
hæstur í samanlögð-
um stigum, hann
hlaut 45,75 stig, 0,25 stigum meira
en félagi hans Guðmundur Þór.
Þeir félagar voru þeir fyrstu sem
byrjuðu að æfa fimleika hjá Gerplu
eftir að félagið byijaði aftur með
fimleika pilta. Jón og Guðmundur
eru báðir átján ára og því á síðasta
ári í þessum flokki. „Framtíðin er
á huldu hjá okkur í fimleikunum,
báðir ætlum við í háskólanám eftir
menntaskólann en líklega æfi ég
fimleika þangað til,“ sagði Guð-
mundur sem stefnir á háskólanám
eftir tvö ár.
Mikill hörgull var á dómurum í
karlaflokki og aðeins tveir dómarar
dæmdu hveija æfingu í stað fimm
eins og eðlilegt er. Eitt vafaatriði
þurfti að útkljá með myndbandi því
að öðru dómaraparinu yfirsást ein
æfing Jóns á svifránni. „Það erieið-
inlegt þegar að maður leggur mikla
vinnu í æfingar og hún er svo ekki
metin rétt þegar maður keppir á
móti,“ sagði Jón.
Alls kepptu tíu keppendur í karla-
flokki á mótinu og voru sjö þeirra
frá Gerplu.
Morgunblaðið/GuÖmundur
íslandsmeistarar Þróttar R. í 3. fl. pilta. Aftari n frá v.: Guðmundur
E. Pálsson Þjálfari, Ólafur H. puðmundsson, Valur G. Válsson, Ólafur D. Jó-
hannesson, Þröstur Gestsson, Ólafur D. Jónsson. Fremri r. frá vinstri: Eiríkur
Sturla, Árni M. Guðlaugsson, Eiríkur Áki Eggertsson fyrirliði, Bjarni G. Magn-
ússon, á myndina vantar þá Valdemar H. Hilmarsson og Hjört Valgeirsson.
Frosti
Eiðsson
skrifar
Unglingameistaramót í fimleikum:
Nína hreppti gullið
Misheppnuð f ramkvæmd
Framkvæmd mótsins var í höndum
Fimleikadeildar KR og var hún deild-
inni til lítils sóma. Aðeins tveir dómar-
ar dæmdu æfingar í karlaflokki, í stað
þeirra fimm sem ráðgerðir eru á
stærri mótum og mótslok voru tæpum
tveimur klukkustundum síðar en áætl-
að var.
Þá var það algeng sjón eftir verð-
launaafhendinguna að sjá keppendur
skiptast á verðlaunapeningum vegna
þess að þeim höfðu ekki verið afhent-
ir réttir peningar.
Mestu mistökin voru þó þegar sigur-
vegari í samanlögðu í karlaflokki var
kynntúr sem Guðmundur Þór Bi-ynj-
ólfsson, Guðmundur lét til leiðast og
tók við bikarntrm en var kallaður upp
stuttu síðar til þess að skila honum,
eftir að þjálfari Gerplu hafði frætt
mótshgldara um úrslitin.
Það þarf að huga að mörgu þegar
fimleikamót eru haldin og það er vel
skiljanlegt að ekki gangi allt að ósk-
um. En að ekkert gangi að óskum, —
það er óskiljanlegt.
Morgunblaðið / Frosti
Nína Björg Magnúsdóttir, ellefu ára gömul úr Björk, hefur verið sigursæl
í vetur.
SHELLMÓT TÝS1991
(ÁÐUR TOMMAMÓT)
Þau lið sem óska eftir að taka þátt í SHELL-
MÓTI TÝS 1991, er verður haldið í Vestmanna-
eyjum 26. júní til 1. júlí n.k. tilkynni þátttöku
eigi síðar en 20 apríl til:
Knattspyrnufélagið Týr
Pósthólf 395
902 Vestmannaeyjar
eða
Knattspyrnufélagið Týr
Símbréf 98-12751
í þátttökutilkynningu skal koma fram nafn
félags, nafn þjálfara og símanúmer, áætlaður
fjöldi þátttakenda.
Einnig nafn, heimili og símanúmer ábyrgðar-
manns hópsins.
Allar nánari upplýsingar veitir Ævar Þórisson,
framkvæmdastjóri Týs í síma 98-12861.
FÓTBOLTI
ER SKEMMTUN
EINS og búist hafði verið við
voru fimleikastúlkur úr Björk
atkvæðamiklar f stúlknaflokki.
Nína Björg Magnúsdóttir sigr-
aði og Þórey Elíasdóttir hafn-
aði íöðru sæti.
Nína Björg, sem er aðeins ellefu
ára gömul og á því fimm ár eftir
í unglingaflokki, hefur sigrað á tveim-
ur stærstu unglingamótum vetrarins,
en hún vann einnig
Frosti sigur á Unglingamóti
Eiðsson íslands í febrúar.
skrifar Fimleikastúlkur frá
Gróttu voru óskrifað
blað fyrir mótið þar sem þær hafa
ekki keppt á mótum í rúm tvö ár og
veittu þær stúlkunum úr Hafnarfirði
verðuga keppni.
Alls voru 25 keppendur í kvenna-
flokki, frá sex félögum sem kepptu á
mótinu sem haidið var í Laugardals-
höll sl. laugardag. Mótið getur skipt
miklu máli hvaða stúlkur verða valdar
á NM unglinga í fimleikum sem fram
fer um aðra helgi.