Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 11.04.1991, Blaðsíða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ IÞROt IIR FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991 KORFUKNATTLEIKUR/URSLITAKEPPNI URVALSDEILDAR „Ekki hægt að afskrtfa Keflvíkinga - segja Einar Bollason og Gunnar Þorvarðarson u „NJARÐVIKINGAR eru gífur- lega sterkir þegar þeim tekst upp og þá stenst ekkert lið á landinu þeim snúning. En það þýðir ekki að hægt sé að af- skrifa Keflvíkinga, þeir hafa bæði unnið KR og Njarðvík í tvígang f úrslitakeppninni og með réttri leikaðferð gætu þeir allt eins staðið uppi sem ís- landsmeistarar," sagði Einar Bollason fyrrum þjálfari og landsliðsmaður f körfuknattleik í samtali við Morgunblaðið um úrslitaleik Njarðvíkinga og Keflvíkinga sem fram fer í íþróttahúsinu f Njarðvík í kvöld kl. 19.30. Það verðurfimmta viðureign liðanna og hreinn úrslitaleikurum íslandsmeist- aratitilinn. Liðin hafa nú leikið fjóra leiki í úrslitakeppninni. { fyrsta leikn- um sigruðu Njarðvíkingar stórt, 96:59, síðan sigruðu Keflvíkingar í IHHi tveim leikjum í röð Björn fyrst 75:73 íKeflavík Blöndal og síðan 82:78 í skrifarfrá Njarðvík. Njarðvík- Keflavík jngar sigrugu svo j fjórða leiknum sem fram fór í Keflavík 91:81. Teitur Örlygsson UMFN hefur skorað flest stig í leikj- unum 99 og Rondey Robinson hefur skorað 89 stig. Stigahæstir í liði ÍBK eru Tairone Thornton með 70 stig og Falur Harðarson 63 stig. Kef Ivíkingar verða að breyta um leikaðferð „Eg tel að Keflvíkingar verði að breyta um leikaðferð ef þeir ætla sér að sigra,“ sagði Einar Bollason. „Það gengur ekki hjá þeim að treysta ein- göngu á að skora með langskotum - það vinnur ekkert lið úrslitakeppni eða mót með þeirri leikaðferð einni. Þeir verða að sækja inn í teig og það geta þeir Falur Harðarson og Jón Kr. Gíslason báðir. Thairone Thorn- ton hefur einnig verið vaxandi og mætti fá boltann oftar því hann hef- ur sýnt afburðahittni. Síðan en ekki síst er það svo spumingin hvernig Jóni Kr. tekst að gæta Teits Örlygs- sonar. í síðasta leik átti Teitur af- burðaleik og það var engu líkara en hann hefði losnað úr álögum. Njarðvíkurliðið er sterkt á því er enginn vafi þar er valinn maður í hveiju rúmi. Liðinu fellur best að leika hraðan leik, liðsmenn hafa mikla reynslu og fyrir utan Teit má nefna þá Rondey Robinson, Kristin Einarsson sem átti afbragðs leik í Keflavfk og ísak Tómasson. Síðan en ekki síst vil ég nefna leikstjórn Friðriks Rúnarssonar þar fer maður sem ég vil taka ofan fyrir. Njarðvík- ingar hafa átt í villu vandræðum og ef þeir ætla sér að bera sigur úr bítum verða lykilmenn þeirra að tolla inná.“ Getur farið á hvom veginn sem er „Leikurinn getur farið á hvorn veginn sem er og það er rétt sem Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmað- ur ÍBK sagði að það er ekki nóg að vera yfir í 39 mínútur. Liðin hafa nú leikið í 160 mínútur í fjórum leikj- um í úrslitakeppninni og mér telst til að Njarðvíkingar hafi verið með forystuna í um 156 mínútur í leikjun- um. Þetta sýnir glöggt hversu mikil- vægt það er að missa ekki niður ein- beitinguna á síðustu mínútunum," sagði Gunnar Þorvarðarson fyrrum leikmaður UMFN og þjálfari hjá ÍBK • • SLYS A BORNUM FORVARNIR SNÚUM VÖRN í SÓKN OG FORÐUM BÖRNUM OKKAR FRÁ SLYSUM Fræðslumiðstöð Rauða kross íslands gengst fyriy tveggja kvölda námskeiði um algengustu slys á börnum, hvernig bregðast, á við slysum og hvernig koma má í veg fyrir þau. Námskeiðið fer fram á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, dagana 16. og 18. apríl n.k. kl.20-23. Vinsamlega skráið ykkur í síma 91-26722 fyrir kl. 12 mánudaginn 15. apríl FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ RAUÐA KROSS ÍSLANDS Rauðarárstíg 18 - Reykjavík - sími: 91-26722 Morgunblaðið/Einar Falúr Teitur Örlygsson og Falur Harðarson betjast hér í fjórða leiknum. Þeir hafa báðir staðið sig vel og mætast að nýju í kvöld, í Njarðvík. á árunum 1987-8. „Eg tel að Njaðrvíkingar eigi meiri möguleika ef þeir ná að leika sinn bolta og svo eru þeir á heimavelli. Ég tel að möguleikar Keflvíkinga felist í því hvernig skyttum þeirra tekst upp í leiknum þeir hafa nú sýnt að þeir geta unnið í Njarðvík og þeir gætu hæglega endurtekið þann leik á góðum degi.“ Óvíst með dómara Dómaranefnd KKÍ hefur neitað að setja dómara á leikinn nema ör- yggisgæsla verði hert. Þeir hafa sent Njarðvíkingum lista yfír ýmislegt sem þarf að laga og Njarðvíkingar hafa frest til kl. 11 í dag til að kippa málunum í lag. Þeir hafa leitað hóf- anna til Keflvíkinga og einnig er hugsanlegt að Grindvíkingar leggi þeim lið við öryggisgæslu. Þá verða brunaverðir með slökkviliðsbíl á vakt við húsið og lögreglumenn verða til taks ef á þarf að halda. Verið er að kanna möguleika á að senda leikinn beint út til Keflavík- ur þar sem þá yrði komið upp risaskjá í íþróttahúsinu. Hætt er við að færri komist að en vilja í íþróttahúsið í Njarðvík sem tekur aðeins um 800 manns, en talið er að um 1400 manns hafi séð síðast leik liðanna í Keflavík og var uppselt. Forsala verður í íþróttahúsunum í Keflavík og Njarðvík frá kl. 14 í dag. BLAK Guðmundur ráðinn lands- liðsþjálfari Karla- og kvenna- landsliðin valin GUÐMUNDUR E. Pálsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari karla i blaki til tveggja ára. Hann tekur við af Zhao Shan- wen, en kínverskir þjálfarar hafa stjórnað liðinu undanfarin fjögur ár. Fyrsta verkefni liðsins undir stjórn Guðmundar, sem er margfaldur íslands- og bikarmeist- ari með Þrótti Reykjavík og á 50 landsleiki að baki, verður keppni á Smáþjóðaleikunum í Andorra í lok maí. Sigurður Á. Þráinsson, sem lék með og þjálfaði ÍS í vetur og hefur leikið 36 landsleiki, tók við kvenna- landsliðinu í fyrra og verður einnig með lið sitt í Andorra. Þeir hafa valið landsliðin sem fara á Smá- þjóðaleikana og eru þau þannig skipuð: Karlalandsliðið: Haukur Valtýsson, KA Stefán Magnússon, KR Hafsteinn Jakobsson, KA Þröstur Friðfinnsson, KA Sigurður A. Ólafsson, KA Vignir Hlöðversson, HK Stefán Þ. Sigurðsson, HK Leifur Harðarson, Þróttir R. Jón Árnason, Þrótti R. Örn Kr. Arnarson, Þrótti R. Matthías Bjarki Guðmundsson, Þrótti R. Einar Ásgeirsson, Þrótti R. Kvennalandsliðið: Oddný Erlendsdóttir, UBK Sigurborg Gunnarsdóttir, UBK Elín Guðmundsdóttir, UBK Hrefna Brynjólfsdóttir, KA Særún Jóhannsdóttir, Víkingi Jóhanna Kristjánsdóttir, Víkingi Jóna Lind Sævarsdóttir, Víkingi Sigrún Sverrisdóttir, Víkingi Björk Benediktsdóttir, Víkingi Ingibjörg Arnarsdóttir, ÍS Þórey Haraldsdóttir, IS Jóna Harpa Viggósdóttir, Þrótti N. SKIÐI / ICELANDAIR CUP Besti skíðamaður Tekka mætir til leiks 27 ERLENDIR skíðamenn frá 9 þjóðum taka þátt í alþjóð- legu mótaröðinni, lcelandair Cup, sem Skíðasamband ís- iands stendur fyrir hér á landi næstu daga. Fyrsta tvö mótin af sjö verða á Isafirði, en síðan verður keppt á Akur- eyri, Daivík og endað í Reykjavík. Að sögn Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra SKÍ, eru 27 erlendir keppendur skráðir í mólaröðina, sem nefnist Ieelandair Cup og gefa alþjóðleg fis-stig. Þetta mót var einnig haldið hér á landi í fyrra og tókst vel. Keppt er bæði í karla- og kvennaflokki. Á morgun verður keppt í svigi á Isafirði og einnig á laugardag. Síðan verður tvö stórs- vigsmót á Akureyri á mánudag og þriðjudag. Á miðvikudag er keppt í stórsvigi á Dalvík og endað á tveimur svigmótum í Bláfjöllum á föstudag og iaugardag í næstu viku. Besti skíðamaður Tékka, Peter. Jurko, er stigalægsti keppandinn á mótinu. Hann hefur 19,96 fis-stig í svigi og er númer 52 á heimslist- anum. Hann varð m.a. í 20. sæti í svigi á síðasta heimsmeistaramóti sem fram fór í Saalbch í Aust- urríki f byijuri mars. Af þessum 27 erlendu keppend- um er aðeins ein kona, Mogore Tlalka frá Frakklandi, en hún keppti einnig í samhliðasvigi Ár- manns í Bláfjöllum fyrir páska. Hún er með 26,32 fis-stig í svigi og 53,60 fis-sfig í stórsvigi. Norðmenn koma með fjölmenn- asta liðið hingað, 9 keppendur. Svíar senda 6, Bretar 7 og Holl- and, Kanada, Tékkóslóvakía, Ástr- alía og Frakkland einn keppanda hver þjóð. 40 íslenskir keppendur taka þátt í mótinu, 10 í kvennaflokki og 30 í karlaflokki. Örnólfur Valdimars- son er með bestu punktastöðu ísiensku karlanna í svigi, 54,61 fis- stig. Arnór Gunnarsson er með bestu stöðuna í stórsvigi, 71,02 stig. Ásta Halldórsdóttir er með bestu punktastöðuna í svigi kvenna, 64,97 stig, Guðrún H. Kristjánsdóttir er með bestu stöð- una í stórsvig, 105,02 fis-stig. GOLF / BANDARISKA MEISTARAMOTIÐ „Þarf að fá nýjan jakka - segir Faldo sem stefnir að þriðja titlinum Bandaríska meistaramótið, Mast- u u 1 ers, hefst í dag á National Au- gusta-vellinum í Georgíu. Allir bestu kylfingar heims taka þátt í mótinu, sem er eitt af fjórum risamótum árs- ins, en flestir veðja á Nick Faldo. Hann hefur unnið tvisvar í röð, bæði skiptin eftir bráðabana á 11. holu. Faldo stefnir að því að verða fyrst- ur til að sigra þrisvar í röð. „Ég get ekki sett pressu á sjálfan mig með því að hugsa bara um það. Ég get hinsvegar einbeitt mér og nýtt reynsl- una,“ sagði Faldo. Hann hefur æft vel að undanförnu og t.a.m. verið mikið í lyftingum og bætt á sig tíu kílóum: „Maður þarf að vera sterkur og nú veitir mér ekkeit af nýjum jakka,“ sagði Faldo. Ian Woosnam og Jose-Maria Olazobal eru taldir helstu keppinaut- ar Faldos auk Bandaríkjamannanna Jack Nicklaus, Tom Watson, Curtis Strange, Mark Calcavecchia, Larry Mize og Paul Azinger.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.