Morgunblaðið - 11.04.1991, Side 67
ÍÞfémR
FOLX
■ ELLERT B. Schram, varafor-
seti ÍSÍ, var eftirlitsmaður UEFA
á leik Bröndby og Roma í gær-
kvöldi.
■ ÍTALIRNIR kvörtuðu yfir vell-
inum fy.rir leikinn, sögðu að hann
væri það minnsta, sem hægt væri
að bjóða upp á og kæmist fyrir í
einu horni ólympíuleikvallarins í
Róm.
■ ELLERT sagði að völlurinn
væri á mörkunum að uppfylla öll
skilyrði, en áhorfendur eiga mjög
auðvelt með að hlaupa inn á. Það
gerðu þeir hins vegar ekki og urðu
engin vandræði.
■ JOHAN Cruyff, sem er að ná
sér eftir hjartaslag fyrr í vetur, sat
á bekknum hjá Barcelona og hvatti
sína menn til dáða.
■ TEDDY Sheringham var með
þrennu í 3:1 sigri Millwall gegn
Charlton í gærkvöldi og er marka-
hæstur í Englandi með 33 mörk.
I DERBY tapaði í gærkvöldi og
hefur leikið 16 leiki í röð án sigurs.
M KÖLN hefur tryggt sér hinn
efnilega miðvörð Andreas Spyrka
frá Saarbriicken.
■ ARIE HAAN, þjálfari Niirn-
berg, hefur fengið Willi Enten-
mann, fyrrum aðstoðarmann sinn
og eftirmann hjá Stuttgart, sem
aðstoðarmann sinn hjá Nurnberg.
ÚRSUT
Knattspyrna
Evrópukeppni meistaraliða
Undanúrslit, fyrri leikir:
Spartak Moskva-Marseille......1:3
Igor Shalimov (65.) — Abedi Pele (27.),
Jean-Pierre Papin (32.), Philippe Verc-
ruysse (88.)
Áhorfendur: 90,000.
Bayern Miinchen-Rauða Stjarnan.1:2
Roland Wohlfarth (24.) — Darko Pancev
(45.), Dejan Savicevic (71.)
Áhorfendur: 65,000.
Evrópukeppni bikarhafa
Legia Varsjá-Manchester United.1:3
Jacek Cyzio (37.) — Brian McClair (37.),
Mark Uughes (54.), Stcve Bruce.(68.)
Áhorfendur: 19,000.
Barcelona-J uventus...........3:1
Kristo Stoichkov (55., 59.), Juan Goikoet-
xea (74.) — Pier Luigi Casiraghi (12.)
Áhorfendur: 120,000
Evrópukeppni félagsliða
Bröndby-Roma....................0:0
Áhorfendur: 18,000.
Sporting-Inter Milan............0:0
Áhorfendur: 80,000.
England
1. deihl:
Everton-Wimbledon...............1:2
Cottce (12). — Fashanu (29)., Clarke (71).
Leeds-Manchester City............1:2
McAllister (39.) — Hill (26.), Quinn (79.).
Norwich-Tottenham...............2:1
Power (12)., Crook (81.) — Hendry (44.).
Nottingham Forest-Derby.........1:0
Keane (66.).
Queen’s Park Rangers-Aston Villa.2:1
Allen (76.), Tillson (78.) - Platt (32.).
2. deild:
Brighton-West Ham..................1:0
Bristol Rovers-Ipswich.............1:0
Leicester-Oldham...................0:0
Millwall-Charlton..................3:1
Newcastle-Oxford...................2:2
Sheffield Wednesday-Blackbum.......3:1
West Bromwich-Hull.................1:1
Reykjavíkurmótið:
Þróttur-Víkingur...................2:2
Páll Einarsson, Ingvar Ólafsson — Helgi
Sigurðsson, Ásmundur Helgason (sjálfsm.).
Valur-Fylkir...............í kvöld kl. 20
FELAGSLIF
Aðalfundur
Aðalfundur Stjörnunnar verður
í kvöld, fimmtudag, kl. 20 í
Garðaskóla. Dagskrá: Venjuleg að-
alfundarstörf og önnur mál.
Árshátíð FH
Árshátíð Fimleikafélags Hafnarfjarð-
ar (FH) verður haldin í íþróttahúsinu
Kaplakrika laugardaginn 13. apríl kl.
19.00. Forsala miða verður í Sjónar-
hól, Kaplakrika, á morgun, föstudag.
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
to\c ir ■nou
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
67
OLYMPIUNEFND
Stuðningsyfirlýsing við
Ólympíunefnd Litháens
Glímusambandiðfæraðild að Ólympíunefnd. Níu sérsambönd styrkt um 4,8 milljónir
ÓLYMPÍUNEFND íslands sam-
þykkti á aðalfundi sínum í gær,
að lýsa yfir stuðningi við
Ólympíunefnd Litháens varð-
andi þátttöku íþróttamanna
Eystrasaltsríkisins í Ólympíu-
leikunum í Barcelona á næsta
ári. Þá var samþykkt styrkveit-
ing til níu sérsambanda, alis
4,8 milljónir króna.
Stjóm Ólympíunefndar sam-
þykkti eftirfarandi á fundi
sínum 5. apríl, og var samþykktin
síðan staðfest á aðalfundinum í
gær: „Vegna óska Ólympíunefndar
titháens í bréfi dagsettu 27. mars
1991 og með tilliti til þess, að Al-
þingi staðfesti 11. febrúar síðastlið-
inn að viðurkenning íslands frá
1922 á sjálfstæði lýðveldisins Lithá-
ens er í fullu gildi, og þar^sem Al-
þingi fól jafnframt ríkisstjórninni
að taka upp stjórnmálasamband við
lýðræðislega kjörin stjórnvöld í Lit-
háen svo fljótt sem verða má, sam-
þykkir stjórn Ólympíunefndar ís-
lands, að mæla eindregið með því
við Alþjóðaólympíunefndina, að
íþróttamönnum frá Litháen verði
leyft að taka þátt í Ólympíuleikun-
um í Barcelona 1992, annað hvort
undir þjópðfána Litháens eða
Ólympíufánanum.“
Frjálsíþróttasambandið fær
milljón
Þau sérsambönd sem fá styr-
kveitingu að þessu sinni eru: Bad-
mintonsambandið, Fimleikasam-
bandið og Handknattleikssamband-
ið 200.000 krónur hvert, Körfu-
knattleikssambandið og Knatt-
spyrnusambandið 300.000 krónur
hvort, Júdósambandið 800.000
krónur, Skíðasambandið og Sund-
sambandið 900.000 krónur hvort
og Ftjálsíþróttasambandið eina
miiljón króna.
Glímusambandið fær aðild að
nefndinni
Einnig var samþykkt á aðalfund-
inum í gær að Glímusamband ís-
landsi verði fullgildur aðili að
Ólympíunefnd íslands eftir að GLÍ
hefur haldið aðalfund sinn og breytt
þar lögum sínum í samræmi við iög
og reglur ÍSÍ og íþróttahreyfingar-
innar.
KNATTSPYRNA / EVROPUMOTIN
Bikarhafar:
„Man-
chester
United
férí
úrslit“
- sagði þjálfari Legia
MANCHESTER United og
Barcelona unnu sannfærandi,
3:1, ífyrri leikjum liðanna í
undanúrslitum Evrópukeppni
bikarhafa ígærkvöldi. Barce-
lona sigraði Juventus á heima-
velli, en United tók Legia í
Varsjá. „United fer í úrslit,"
sagði þjálfari Pólverjanna, en
enska liðið lék síðast í úrslitum
í Evrópukeppni fyrir 23 árum —
og hefur aldrei tapað á heima-
velli í Evrópukeppni.
Pólveijarnir voru mjög hug-
myndasnauðir í leik sínum og
áttu varla skot að marki. Gestirnir
sóttu, en gegn gangi leiksins náðu
heimamenn óvænt forystunni á 37.
mínútu, rétt eftir að einum þeirra
hafði verið vikið af velli. United
jafnaði í næstu sókn og innsiglaði
öruggan sigur eftir hlé.
Gestirnir voru ákaft studdir af
800 stuðningsmönnum, en heima-
menn, sem voru án fimm fasta-
manna og einum færri að auki lengi
vel, áttu aldrei möguleika.
Barcelona á réttri leið
Spænska liðið Barcelona, sem er
efst í deildinni og enn með í
spænska bikarnum, heldur í vonina
að sigra þrefalt í ár. Liðið sigraði
síðast í Evrópukeppni bikarhafa
1989 og á góða möguleika á að
lyfta bikarnum í fjórða sinn.
Gestirnir skoruðu í byijun, en
heimamenn gerðu út um leikinn á
20 mínútum í seinni hálfleik. Þeir
komust lítt áleiðis gegn sterkri vörn
Itala fyrir hlé, en skiptu um gír og
uppskáru eins og til var sáð.
Barcelona byijaði af miklum
krafti og var eins og heimamenn
ætluðu hreinlega að komá gestun-
um út af Nou Camp leikvanginum
sem fyrst. En ítalirnir vörðust vel
og mark Casiraghis tók allt loft úr
Spánveijunum út hálfleikinn. En
dæmið snerist við eftir hlé og eftir
að Búlgarinn Stoichkov hafði gefið
tóninn var ekki aftur snúið.
Reuter
Neil Webb, Paul Ince og Brian McClaire fagna marki þess síðast nefnda í
3:1 sigri Manchester United í Varsjá í gærkvöldi.
Keppni meistaraliða:
IMýir meistar-
ar í augsýn
Marseille og Rauða stjarnan hafa
aldrei leikiðtil úrslita íkeppninni
FRANSKA liðið Marseilie og Rauða stjarnan frá Júgóstavíu eru
með pálmann í höndunum í Evrópukeppni meistaraliða. Hvorugt
liðið hefur leikið til úrslita í keppninni, en bæði sigruðu á útivelii
í fyrri leikjum undanúrslitanna í gærkvöldi. Fari sem horfir verð-
ur það í fyrsta sinn, sem franskt lið spilar um titilinn.
Chris Waddle var allt í öllu hjá
Marseille og lagði upp tvö
fyrstu mörk franska liðsins gegn
Spartak í Moskvu. Heimamenh
mættu ákveðnari til leiks eftir hlé
og náðu að minnka muninn, en
varamaðurinn Vercruysse gerði
vonir þeirra að engu undir lokin.
Marseille vann 3:1 og er fyrsta
liðið, sem gerir þijú mörk gegn
Spartak á heimavelli og sigrar með
tveggja marka mun í 24 ár.
Meistaramörk
Áhorfendur í Múnchen fengu að
sjá góð.mörk, en úrslitin voru llest-
um ekki að skapi, þar sem Bayern
Múnchen tapaði 2:1 fyrir Rauðu
stjörnunni. Heimamenn náðu for-
ystunni, en gestirnir léku mjög vel,
tvíefldust við mótlætið og nánast
tryggðu sér sæti í úrslitum i fyrsta
sinn. Þjóðverjarnir fengu samt gull-
in tækifæri til að jafna, en lánið lék
ekki við þá.
Jupp Heynckes, þjálfari Bayern,
sagðist ekki vera búinn að gefa upp
alla von um úrslitasæti. „Auðvitað
er Rauða stjarnan með pálmann í
höndunum, en allt getur gerst í
knattspyrnu og við gefumst ekki
upp.“
Ljubomir Petrovic, þjálfari Júgó-
slavanna, var varkár varðandi
seinni leikinn. „Ég yrði ánægður
með jafntefli í Belgrað," sagði hann.
„En það sem var svo frábært að
þessu sinni, var hvernig leikmenn
mínir brugðust við eftir að hafa
fengið á sig mark.“
UEFA-bikarinn:
skjrum
í Róm“
- sagði Morten Olsen
BRÖNDBY sótti án afláts, en
varð að sætta sig við marka-
laust jafntefli gegn Roma í
Kaupmannahöfn ífyrri leik lið-
anna í undanúrslitum Evrópu-
keppni félagsliða í gærkvöldi.
Morten Olsen var samt ánægð-
ur með frammistöðu sinna
manna hjá Bröndby og var
bjartsýnn fyrir seinni leikinn:
„Við sigrum þá í Róm.“
Oisen sagði fyrir leikinn að það
væri aðeins eitt verra en að
tapa í undanúrslitum Evrópukeppni
og það væri að tapa í úrslitum. Því'
fóru Danirnir í leik-
inn með því hugar-
fari að ná jafntefli,
en þegar upp var
staðið voru það
gestirnir, sem sluppu með skrekk-
inn og máttu þakka fyrir að tapa
ekki með tveggja eða þriggja marka
mun.
Frá
Hákoni
Gunnarssyni i
Kaupmannah.
Bröndby, sem er fyrsta danska
liðið til að leika í undanúrslitum í
Evrópukeppni, náði fljótlega undir-
tökunum. Danirnir léku vel og sköp-
uðu sér ágæt marktækifæri, en
þetta var ekki þeirra dagur uppi
við mark mótherjanna. Miðheijarn-
ir, Frank Pindel og Bent Christens-
en, fóru sérstaklega illa að ráði sínu
í upplögðum færum.
Leikurinn var mjög góður og
sHemmtilegur. „Þeir gerðu allt sem
búast mátti við af þeim nema
skora,“ sagði Olsen um menn sína.
Ottavio Bianchi, þjálfari Roma,
sagði að leikaðferð Dananna hefði
komið mönnum sínum úr jafnvægi,
en heimavöllurinn í seinni leiknum
ætti að vega þungt. „Þeir verða
sjálfsagt erfiðir, en aðstæður verða
aðrar og okkur í hag og við eigum
þá að geta stjórnað ferðinni."
Tvö ítölsk lið í úrslitum?
Inter Milan gei’ði markalaust
jafntefli við Sporting í Lissabon í
hinum undanúi-slitaleiknum. Því
bendir margt til þess að tvö ítölsk
lið leiki til úrslita í keppninni annað
árið í röð.