Morgunblaðið - 02.06.1991, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.06.1991, Qupperneq 4
X I MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1991 i i'! 1/' !'. .‘! !l T'7',!M/ • 'i 0:1 lagsins á ótal sýningnm og keppn- um og færa félaginu marga glæsta sigra. í júní 1941 var haldið fyrsta innanfélagsmót Ármanns í hnefa- leikum og var það jafnframt fyrsta opinbera hnefaleikamót sem haldið hafði verið frá árinu 1936. Keppt var í fjórum þyngdarflokkum og urðu úrslit þau að Björn R. Einars- son, sem síðar varð einn þekktasti tónlistarmaður landsins, sigraði í léttvigt, Jón Þorsteinsson sigraði í veltivigt, Amar Jónsson í létt- þungavigt og Hrafn Jónsson í þungavigt. Þama vann Hrafn með- al annars það afrek að sigra einn andstæðing sinn á „knock out“ í fyrstu lotu, sem var fremur sjald- gæft hér á landi. Mótið þótti ta- kast mjög vel og í kaffísamsæti í Oddfellowhúsinu að mótslokum sagði Peter Wigelund meðal ann- ars að þetta mót hefði án nokkurs vafa verið skemmtilegasta og besta hnefaleikamót, sem haldið hefði verið á íslandi. Haustið 1941 var aðsókn að hnefaleikaæfíngum Ármanns svo mikil að við lentum í húsnæðis- skorti og var fjölda manns vísað frá vegna aðstöðuleysis. Annað innanfélagsmót Ármanns var svo haldið vorið 1942 og fór það mjög vel fram eins og hið fyrsta. Blaða- dómar vom mjög jákvæðir og bæði Morgunblaðið og Vísir höfðu til dæmis á orði að drengileg fram- koma keppenda hefði vakið at- hygli áhorfenda. Jákvæð umfjöllun varð mikil lyftistöng fyrir íþróttina á næstu árum enda naut hún mik- illa vinsælda áhorfenda. Iðulega var uppselt á sýningar og keppnir og við sem stóðum framarlega í flokki lentum oft í vandræðum með að útvega vinum og kunningjum aðgöngumiða. Mér er til dæmis minnisstætt að á hnefaleikamóti Ármanns í febrúar 1943, sem hald- ið var í íþróttahúsi Jóns Þorsteins- sonar, seldust rúmlega 400 að- göngumiðar upp á rúmum klukku- tíma og fengu mun færri miða en vildu.“ Kennaranum til sóma Hér gerum við hlé á frásögn Guðmundar og gluggum aðeins í blaðafrásagnir af hnefaleikum frá þessum árum. Þannig segir til dæmis í Morgunblaðinu þann 22. júní 1943: „Hnefaleikameistaramót íslands fór fram í íþróttahúsi Jóns Þor- steinssonar síðastliðið laugardags- kvöld. Ármann stóð fyrir mótinu, sem er eitt af meistaramótum ÍSÍ. Keppendur, sem allir eru Ármenn- ingar, voru 12 í 6 þyngdarflokkum. Húsið var troðfullt af áhorfendum og urðu margir frá að hverfa ... Það var sérstaklega eftirtektar- vert, hve vel og drengilega kepp- endur komu fram. Leikur þeirra var prúður og fallegur og hinum ágæta hnefaleikakennara Ár- manns, Guðmundi Arasyni, til mik- ils sóma.“ Meistaramót íslands í hnefaleik- um árið 1944 fór fram að Háloga- landi 3. maí og var fyrsta meistara- mótið hér á landi þar sem keppt var við fullkomlega löglegar að- stæður. Mótið var vel sótt og seld- ust um 1.700 aðgöngumiðar upp á örskömmum tíma. Morgunblaðið fjallaði um mótið 4. maí 1944 og segir þar meðal annars: „Guðmundur Arason varð Is- landsmeistari í þungavigt á hnefa- leikameistaramóti Islands, sem fór fram í gærkveldi í íþróttahúsi ameríska hersins við Hálogaland. _Keppendur voru úr Ármanni og ÍR. Húsfyllir var og þrengsli mikil og hiti illþolandi. Guðmundur var í sókn allan leikinn og vann yfir- burðasigur. Mótið fór vel fram.“ Eg spyr Guðmund nánar út í þennan leik en hann vill sem minnst gera úr afreki sínu, segir þó að andstæðingur sinn hafí verið Skemmtileg kennslustund bæði mun hærri og þyngri en hins vegar hefði hann ráðið yfír meiri högghraða og tækni, sem ráðið hefði úrslitum í þessari viðureign. Um samvinnuna við bandaríska herinn segir Guðmundur hins veg- ar m.a.: „Eftir meistaramótið 1943 komu þrír liðsforingjar úr ameríska hemum að máli við mig og kváð- ust þeir hafa áhuga á að fá nokkra Ármenninga til að halda sýningar fyrir ameríska hermenn í íþrótta- húsi hersins að Hálogalandi, sem þá hét Andrews Fieldhouse. David Zinkoff hafði orð fyrir þeim og kvaðst hann vera einn af meðlim- um íþróttaráðs Pennsylvaníu, hafði verið þulur á mörgum helstu hnefa- leikamótum í Bandaríkjunum auk þess sem hann var ritstjóri „Hvíta fálkans“, sem var blað sem bandar- ískir hermenn gáfu hér út á stríðs- árunum. Mála- leitan þessari var vel tekið af okkar hálfu og skömmu síðar var efnt til sýningar fyrir hermenn að Hálogalandi og við betri aðstæður en áður höfðu tíðkast hér. Pallur var upp- hækkaður, lýs- ing fullkomin, homstólpar fóðraðir og fóðraðar dýnur á gólfi. Ár- menningar héldu sýningar fyrir herinn næstu árin á eftir, einu sinni til tvisvar í mánuði og varð þetta mikil lyfti- stöng fyrir íþróttina.“ Þátttakendur Armanns í hnefaleikamótinu 1928, sem var hið fyrsta sem haldið var hér á landi. Björn Eyþórsson (til hægri) kemur inn „hægri handar húkki“ eftir vel útfærða vörn í keppni við Pál Valdi- marsson að Hálogalandi 1950. Rögnvald Kjellevold (til vinstri) og Guðjón Mýrdal 1936. Ekki er rúm til að rekja hér í smáatriðum þá þróun sem varð í hnefaleikum á íslandi á næstu ámm. Guðmundur Arason lét af störfum sem þjálfari og forystu- maður hnefaleikamanna í Ármanni vegna anna árið 1947 en hélt þó áfram að styðja við bakið á starf- seminni eftir því sem tími hans leyfði og allt fram til þessa dags hefur hann verið ötull baráttumað- ur fyrir hagsmunum Ármenninga enda heiðursfélagi þar. Stefán Jónsson og Jóel B. Jacobsen tóku við hnefaleikakennslunni af Guð- mundi. Árið 1949 tók Þorkell Magnússon við þjálfuninni og var þjálfari og formaður deildarinnar þar til hnefaleikar vom bannaðir 1956. Af minnisstæðum atburðum þessara ára nefnir Guðmundur heimsóknir erlendra hnefalei- kakappa: „Mér verður alltaf minnisstæð heimsókn Ottos von Porat frá Nor- egi en hann var heimsþekktur hnefaleikakappi á þeim ámm. Hann var Noregsmeistari og síðar Ólympíumeistari í þungavigt og varð síðan atvinnumaður í Banda- ríkjunum. Hann komst á lista yfír fjóra bestu hnefaleikara í heimi í þungavigt. Ferill von Porats var glæsilegur og eftir að hann hætti keppni stofnaði hann hnefaleika- og fímleikaskóla í Ósló. Ármenn- ingar fengu hann hingað til lands í júní 1948 til að leiðbeina hnefa- leikamönnum félagsins og dvaldist hann hér í rúmlega mánuð. í tengslum við komu hans héldu Ármenningar meistaramót í Aust- urbæjarbíói í júlí og ávarpaði Otto von Porat áheyrendur við upphaf mótsins. Hann minntist á reynslu sína af hnefaleikum, en þá íþrótt taldi hann vera einna skemmtileg- Morgunblaöid/Ol.K.M. Frá keppninni frægu við Danina að Hálogalandi 3. mars 1950. Guðmundur Arason hringdómari og Wemer Rasmusen, fararstjóri dönsku hnefaleikaranna, stumra yfir danska keppandanum Frede Hans- en eftir að Jón Norðfjörð sló hann í gólfið. ustu og drengilegustu íþróttina, ef hún væri tekin réttum tökum. Hann lýsti yfir ánægju sinni með heimsóknina til Reykjavíkur og að fá tækifæri til að kynnast hnefa- leikamönnum Ármanns, sem hann sagði að stæðu framar hvað kunn- áttu og leikni snerti en hann hafði átt von á. Otto von Porat varð við þeirri ósk að sýna hnefaleika og var það síðasta atriði mótsins. Ég varð fyrir valinu sem mótheiji og í fyrstu lotu gerðum við lítið annað en að þreifa fyrir okkur. Ég sló mest beina vinstri, hátt eða djúpt, mest alla lotuna, en von Porat hugði eingöngu að vöminni. Áhorf- endur voru ekki ánægðir með þetta og vildu fá að sjá meiri keppni. Ósk þeirra rættist þegar í annarri lotu. Ég hóf sókn og bein hægri og vinstri dundu á nefi og kjálka von Porats sem svaraði fyrir sig og kom vel útfærðu höggi undir hökuna á mér. Tvær síðari lotum- ar voru svo skemmtileg kennslu- stund í hnefaleikum og þökkuðu áhorfendur fyrir sig með dynjandi lófataki. Sló eftir að bjallan hringdi Önnur erlend heimsókn verður mér einnig minnisstæð þótt ekki sé það fyrir hæfni gestanna. í þetta sinn voru það ljórir hnefaleika- menn frá Danmörku, sem hingað komu í boði KR. í tilefni af heim- sókn þeirra efndu Ármann og KR til sameiginlegs hnefaleikamóts. Fararstjóri Dananna, Werner Ras-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.