Morgunblaðið - 02.06.1991, Side 10

Morgunblaðið - 02.06.1991, Side 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1991 Þorlákur Þórðarson hefur alltaf unnið baksviðs í leikhúsinu, en á knattspymuvellinum var hann ósjaldan í aðalhlutverki enda þjóð- sagnapersóna í hlut- verki dómarans. eftir Kristínu Marju Baldursdóttur / Ljósmyndari Kristjón Arngrímsson HVAÐ gera menn á morgnana í leikhúsi? „Þeir æfa auðvitað," segir leiksviðsstjórinn Þorlákur Þórðarsson og gengur mjúklega um Litla sviðið á klossunum sínum rauð- brúnu. Þú ert alltaf baksviðs, hefur þig aldrei langað til að vera í sviðsljósinu? „Eg er í sviðsljósinu í daglega lífinu, finnst það sterkara. Nú? „Já, með því að vera til. Hins vegar fór sonur minn Randver fram fyrir járntjald- ið. Ég var nú ekkert hrifinn af því, en það er hans mál. Ég er bara óbreyttur borgari sem hefur fengið að vera hér í rúm 40 ár.“ eiksviðsstjóri Litla sviðsins æfir ekki á morgnana enda í öðru að snúast. Hann er einnig sýningarstjóri, dyravörður, og sviðsmaður á staðnum. Þorlákur Þórðarson, Víkingur og knattspyrnudómari hefur starfað við Þjóðleikhúsið síðan það hóf starfsemi sina fyrir rúmum 40 árum, og síðustu 17 árin hefur hann verið leiksviðsstjóri Litla sviðsins. „Ég hef nú oft reynst yfirmönn- um mínum óþægur ljár í þúfu, hef verið að skipta mér af hlutum sem mér kemur ekki við,“ segir hann, „enda hef ég verið rekinn sjö sinn- um, hef bara aldrei farið. En ég lofaði nú bæði Sveini Einarssyni og Gísla Alfreðssyni að fara þegar ég yrði rekinn í áttunda sinn.“ Yfirsópari Þorlákur er grannur og hefur þetta kæruleysislega göngulag knatt- spyrnudómarans, en minnir annars á virðulegan leikara í fasi og klæða- burði. Kannski fá menn svona yfir- bragð þegar þeir hafa verið lengi í leikhúsi. Litla svið Þjóðleikhússins hefur verið til húsa í fyrrum íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við Lindargötu síðustu fimm árin, og í kjallararn- um er sviðið og reyndar skrifstofa Þorláks líka. Merki Víkings er í beinu sjón- máli þegar setið er í sófanum á skrifstofu hans, og kort af íslandi hangir á veggnum og á það er ís- lenska fánanum úr taui tyllt. Þor- lákur er sennilega orðinn mikill þjóðernissinni eftir að hafa staðið svona oft undir íslenska þjóðsöngn- um þegar landsleikir eru leiknir. Málverk af leikurum eru á veggjum og á gólfi í stöflum, og litlu líkani af leiksviði er tyllt ofan á möppur með blaðaúrklippum. „Upphafið að starfi mínu má rekja til þess þegar Þjóðleikhúsið var vígt árið 1950,“ segir hann. „Ég var þá leigubílstjóri og fékk út með hörku tvo túra með leikhús- gesti. Það var lítið að gera 'á þeim árum og til að tryggja að ég fengi viðskiptavini að sýningu lokinni, beið ég í bílnum fyrir framan leik- húsið. Ég hlustaði á vígsluna í út- varpinu og fyrir mér opnaðist ævin- týraheimur." Þriðja kvöldið var Þorlákur kom- inn bak við járntjaldið, eins og hann segir, því vin hans úr Víkingi sem vann baksviðs í leikhúsinu vantaði einmitt aðstoðarmann. „Þetta var ágætis kvöldvinna, og síðan ílentist ég hér. Ég hef fengið allt sem ég sóttist eftir, góða vinnu, vinnustað, vinnufélaga — verst hvað tíminn hefur liðið hratt. Mér finnst alltaf vera föstudagur." Þegar Þorlákur talar um járn- tjald, á hann við eldvarnartjaldið sem fellur fram fyrir rauðu tjöldin að sýningu lokinni. Það tjald sér áhorfandinn aldrei. Hann segist hafa verið yfirsóp- ari á stóra sviðinu í mörg ár, farið af efra sviði niður á hið neðra. „Þegar ég er spurður hvernig gangi í vinnunni svara ég því til, að þeir sem komast vel áfram séu alltaf á uppleið, en ég sé alltaf á niðurleið! Ég er feginn meðan þeir fara ekki með mig neðar,“ bætir hann við glottandi og bendir á gólf skrif- stofu sinnar. Átök „Tilgangurinn með litla sviðinu var í upphafi sá, að Leiklistarskól- inn hefði tilraúnaleikhús. Síðan hefur reynslan sýnt að Litla sviðið hefur verið mikil upplyfting fyrir íslenskt leiklistarlíf," segir Þorlák- ur, „Flest leikritin sem hafa verið sýnd hér eru íslensk.“ — Þú hefur séð mörg verk á þessu sviði, hvert er nú uppáhalds- verkið? „Ég á ekkert uppáhaldsverk, þau eru hvert öðru ólíkara. Ég er án- ægðastur þegar fólk kemur á sýn- ingarnar. Jú, ég var ánægður með „Bílaverkstæði Badda“. Við sýnd- um það hundrað sinnum fyrir fullu húsi.“ — Er einhver leikari eftirminni- legur? „Nei, menn koma og fara. En þetta er engin hallelújasamkoma hérna. Hér eiga sér stað mannleg átök og ég fer ekkert varhluta af þeim. Ég hef alltaf haft ákveðna skoðun á hlutunum og læt hana fara. Er kannski ekkert vinsæll fyrir bragðið. En oftast er ég með hagsmuni stofnunarinnar í huga. Heyrðu, ég ætla að skreppa upp í -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.