Morgunblaðið - 02.06.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MAIMNLIFSSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1991
C 13
____J_;__
LÆKNISFRÆÐI///vaó ergáttatíff
Gangtruflun í mótornum
vinstri hjartahelmingur — 1. Slegill, 2. gátt.
asta eign þjóðarinnar svo lengi sem
hann varir. Hagur okkar allra er
undir því kominn að hafið í kringum
landið haldist ómengað. Það er þess
vegna sem ólíkir aðilar eins og ís-
landsnefnd Norræna umhverfisárs-
ins, Landvernd, LÍÚ, Vita- og hafna-
málastjórn, hafnir landsins og fleiri
hafa tekið höndum saman um að
koma upp skilti við hafnir landsins
fyrir sjómannadaginn í ár með
áminningu til sjófarenda um þessa
einföldu staðreynd. Okkur ber að
ganga vel um landið okkar en ekki
síður ber okkur að hirða vel um
hafið því eins og stendur „Föðurland
vort hálft er hafið“.
Talsverð hugarfarsbreyting hefur
átt sér stað síðustu ár meðal sjó-
manna, útgerðarmanna og annarra
sem nálægt sjávarútvegi koma.
Umgengni við hafið er nú önnur og
betri en hún var fyrir nokkrum árum.
Þar er m.a. að þakka aðgerðum á
vegum LÍÚ fyrir 3 árum, uppsetn-
ingu gáma við hafnir landsins fyrir
rusl frá skipum og bátum og áróðri
og umræðu um þessi mál á vegum
samtaka eins og Landverndar o.fl.
Uppsetningu skiltisins við hafnir
landsins er ætlað að styrkja þessa
hugarfarsbreytingu í sessi og gefa
sjófarendum jákvæða ábendingu um
einfaldleik málsins.
Okkur íslendingum er ekki annað
sæmandi en að taka þetta mál alvar-
lega og vinna að því á öllum víg-
stöðvum. Allt bendir til þess að á
næstunni getum við ekki eflt hag
okkar með því að afla meira úr sjó.
Aðstæður í vistkerfi sjávarins hafa
ekki getið af sér stóra árganga
helstu nytjastofna síðustu árin. Það
verða því gæði sjávaraflans sem
geta eflt hag íslands fyrst og fremst.
Undirstaða þeirra gæða er hreinleiki
sjávarins. Það er því vel við hæfi í
lok Norræns umhverfisárs að merkja
helstu snertifleti lands og sjávar
þeim boðskap að „Hreint haf sé
hagur íslands".
HJARTAÐ VERÐUR að ganga
rétt, eins og klukkan. Annars
er hætt við ruglingi í riminu.
Hólfin þess fjögur, vinstri og
hægri slegill (afturhólf) og
vinstri og hægri gátt (fram-
hólf), eru vöðvapokar sem drag-
ast saman og þenjast út til skipt-
is. Sleglarnir eru þykkveggjað-
ir, og sterkir vöðvar þeirra
þrýsta blóðinu í gusum út í slag-
æðanetið sem hríslast um allan
líkamann. Gáttaveggirnir eru
þynnri og kraftminni enda ekki
annað af þeim heimtað en að
slakna þegar taka þarf á móti
bláæðablóðinu og skila því svo
niður í sleglana sem eru næstu
herbergi, og til þess þarf ekki
mikið átak.
Rafstraumurinn sem hleypt er
á við hvern hjartslátt berst
um gáttaveggina og veldur sam-
drætti þar, en síðan niður í slegl-
ana sem nú eru fullir af blóði og
bíða eftir skipun
um að spýta því
út í æðarnar. Þeg-
ar allt er með
felldu gerist þetta
70-80 sinnum á
mínútu eins og
finna má og heyra
ef púlsinn er tal-
inn eða eyra lagt
að hjartastað.
Margskonar bilanir geta orðið í
leiðslukerfi hjartans, sumar alvar-
legar og jafnvel lífshættulegar,
aðrar meinlitlar eða meinlausar.
Sú þeirra sem fréttnæmust hefur
þótt að undanförnu vegna lasleika
Bandaríkjaforseta er nefnd gátta-
tif og kemur til af því að smáknippi
í gáttavöðvunum fara að dragast
saman upp á eigin spýtur og án
samráðs við hin knippin. Þetta
samdráttartif er ótt og títt,
kannski 3-400 sinnum á mínútu
og veldur því að gáttirnar tæmast
ekki sem skyldi. Sum boðin en
hvergi nærri öll komast niður í
sleglana og því verða samdrættir
þeirra óreglulegir og stundum
mjög hraðir.
Oftast ásækir þessi leiðslutrufl-
un þá sem eru haldnir einhverjum
hjartasjúkdómi svo sem kransæða-
þrengslum eða óþéttum lokum
milli hólfa. Einnig er fólki með
ofvirkan skjaldkirtil hættara en
öðrum við gáttatifi og loks eru
þess dæmi að engin ástæða finn-
ist, tifið byijar hreinlega upp úr
þurru. Áhrif svona hjartsláttaró-
reglu á líkamsstörf og heilsu eru
af ýmsu tagi. Sem dæmi má nefna
að stöðupollar myndast gjarnan í
gáttunum þegar tæming þeirra
verður ófullkomin og ber þá stund-
um við að blóðið storknar þar og
hleypur í kekki, en ef slíkir tappar
fljóta burt og festast í viðkvæmum
líffærum, t.d. heila eða lungum,
geta þeir reynst skaðræðisgripir.
— Annars veldur gáttatif ekki
ævinlega einkennum, að minnsta
kosti ekki það miklum að sjúkling-
urinn verði þeirra áþreifanlega var
og leiti læknis. Þetta er líka kvilli
sem á það til að koma í köstum
og birtist þá ef til vill sem óþæg-
indi fyrir hjarta, aðsvif eða jafnvel
meðvitundarleysi um stund, en svo
kemst regla á sláttinn að nýju og
eigandi hjartans kennir sér ekki
meins.
Þarf nokkuð að lækna þetta
fólk? Sumt og sumt ekki, eins og
þegar mun ljóst af framansögðu.
Ymis lyf kunna að vera æskileg
eða nauðsynleg til hjálpar þeim
sem bera orsök gáttatifs í hjartanu
sjálfu. Aðrir þurfa ráð sem að
gagni koma þegar skjaldkirtillinn
gerist athafnasamari en þörf er
á; bóndinn í Hvíta húsinu mun
vera einn þeirra. Fyrir kemur að
grípa verður til sterkari raf-
straums en þess sem á upptök sín
í hjartanu og er sjúklingnum þá í
skyndisvæfingu gefið rafstuð á
bijóstið sem venjulega nægir til
að kippa hjartslætti hans úr villu
síns vegar, að minnsta kosti í bili.
Sú læknisaðgerð hefur verið nefnd
hjartastilling.
Eins og nærri má geta verður
því seint slegið föstu hversu al-
gengur sá kvilli muni vera sem
getur um langa hríð farið svo leynt
að hvorki sjúklingur né læknir
verði hans varir. Þeir sem mest
fjalla um hjartans mál giska þó á
að varla færri en Tjórir af hveiju
þúsundi hafí einhvern tíma fengið
hann í heimsókn.
eftir Þórarin
Guónoson
I skólagarðinum — Bráðnauðsynlegt er að foreldr-
ar gefi sér tíma til að sinna samstarfinu með bömum
og skóla.
að þessi mál hafi byr um þessar
mundir.
rjármál fólks eru jafnan viðkvæm
og flestir vilja láta líta út fyrir að
þeir hafi meiri fjárráð en raun er á
og af því trúi ég að mörgum sé full-
laust fé í hendi. Láti t.d. böm sín
hafa meiri peninga en þeim er hollt.
Það fer ekki á milli mála að traustur
ljárhagur einstaklinga og fjölskyldna
er ákveðin forsenda velfamaðar þótt
hann einn og sér nægi ekki til. Ekki
ætti því að vera álitamál að æskilegt
er að kenna bömum að fara vel með
fé.,
Á hveiju ári hef ég gert mér að
reglu að fá nemendur til umræðna
um fjármál heimilanna, Hvað kostar
að reka meðalheimili. Hef sagt sem
svo, þið farið út í búð og kaupið í
matinn og aðrar náuðsynjar. Þau
greina frá því helsta sem þarf til lífs-
viðurværis og hvað það kostar. Ég
dreg hiklaust frá
10-20%. Spyr síðan
hvað þau haldi að
rafmagn, hiti, sími,
tryggingar og önn-
ur slík þjónustu-
gjöld séu há upp-
hæð í heimilishald-
inu og lækka hana
niður í þægilega
reiknitölu. Skyldi
nú fjölskyldan fara
út að skemmta sér,
í bíó, leikhús, árs-
hátíð, út að borða
eins og það heitir
eða kosta einhveiju
til sumarleyfisins?
Jú, ætli það ekki.
Eitthvað þarf nú að
borga í skatta. Ekki
er ósennilegt að bíll
sé á heimilinu. Ekki
fékkst hann ókeypis
eða bensínið á hann
og annar rekstur.
Eru gefnar jóla- og
afmælisgjafir? Að
sjálfsögðu. Þetta er
lagt saman, upp-
hæðin kemur
harkalega á óvart
og er þó ekki allt
tínt til.
Síðan spyr ég. Hver em svo mán-
aðar/árslaun Meðaljóns? Jafnvel
Aðaljóns? Sums staðar er aðeins ein
fyrirvinna á heimili. Annars staðar
vinna báðir foreldrar utan heimilis.
Jafnvel þótt svo sé, þarf Ofuijóna
og Ofuijónur til að jafna metin.
Debet - kredit. Lögmálið sem öll
ijármál lúta.
Að síðustu gefa nemendur mér
upp hversu miklu fé þeir veiji til
kaupa á sælgæti í viku hverri. Enn
beiti ég frádráttaraðferðinni - en
samt tókst nemendum í stórum skóla
að éta sælgæti og drekka ropvatn
fyrir andvirði eins strætisvagns á
einum vetri!
Peningar eru í sjálfu sér keppi-
kefli einir sér en það er erfitt að
hugsa sér að vera án alls þess sem
hægt er að-kaupa fyrir þá.
O
VERZLUNARSKÓU ÍSLANDS
ÖLDUNGADEILD
Innritun á haustönn öldungadeildar
Verzlunarskóla íslands fer fram dagana
31. maí kl. 09.00-16.00 og 3.-6. júní kl.
090.00-18.00.
í boði verða eftirfarandi námsgreinar:
Bókfærsla: BÓK 204, BÓK 404, BÓK613
Bókmennta- og listasaga: SBL 214
Danska-. DAN 204
Efna- og eðlisfræði: EFN 204
Enska: ENS 204, ENS 604
Farseðlaútgófa: FAR 114
Ferðaþjónusta: FER 214
Franska: FRA 204
Hagfræði: REK 203, REK 415
íslenska: ÍSL 102, ÍSL 202, ÍSL 604
Ritvinnsla: VÉL 403
Saga: SAG 203, SAG 402
Stjórnun: STJ 214
Stærðfræði: STÆ 204, STÆ 604, STÆ814
Tölvubókhald: TÖB 214
Tölvufræði: TÖL113, TÖL 203, TÖL 403
Utanríkisviðskipti: UTV 214
Vélritun: VÉL 102, VÉL 201
Verslunarréttur-. VER 203
Þýska: ÞÝS 204, ÞÝS 604, ÞÝS 814
Áföngum ofangreindra
hægt að safna saman
eftirtalin prófstig:
Próf af bókhaldsbraut
Próf af ferðamólabraut
Próf af skrifstofubraut
námsgreina er
og láta mynda
Verslunarpróf
Stúdentspróf
Umsóknareyðublöð og námslýsingar
fást á skrifstofu
skólans, Ofanleiti 1.