Morgunblaðið - 02.06.1991, Blaðsíða 25
£§Ci i
ivims HAMUAlRrrcs
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1991
3
C
25
Kveðjuorð:
Svava Valfells
Ég og systkinaböm Svövu Val-
fells kölluðum hana aldrei annað
en Svövu frænku.
Svava fæddist 5. september árið
1913 í Haganesvík í Fljótum. Hún
var ein af fjórum bömum hjónanna
Sigurðar J. Fanndal og Soffíu
Gísladóttur.
Svava var uppalin í Haganesvík,
á Akureyri og á Siglufirði en tií
Sigluíjarðar fluttist fjölskylda
hennar þegar hún var átta ára
gömul.
Svava giftist Jóni Valfells kaup-
manni á Siglufirði, árið 1930. Þau
eignuðust Bjarnþór (Baddó) árið
1932, en hann lést á fimmtugasta
og sjötta aldursári.
Svava og Jón fluttu frá Siglu-
firði árið 1937 og áttu heimili á
Kjalarnesi, í Ameríku og í
Reykjavík. Lengst af bjuggu hjónin
þó í Uthlíð 3. Mann sinn missti
Svava árið 1960. Hún giftist 13
ámm síðar Stefáni J. Björnssyni
skrifstofustjóra á Skattstofu
Reykjavíkur.
Þegar ég var strákur á Siglu-
firði kom Svava þangað í heimsókn
og kynntist ég henni fyrst þar.
Mér þótti mikið til þess koma að
sjá þessa fallegu og hlýlegu konu,
ekki síst vegna þess, að á þeim
tíma, ók hún eigin bíl frá Reykjavík
til Sigluijarðar. Baddó kom með
móður sinni og brölluðum við ýmis-
legt saman. Ég man helst eftir
veiðiferðum inn í Fljót, á seinni
ámm fóram við iðulega í kvik-
myndahús, nú og á stundum sátum
við bara og spjölluðum um lífið og
tilveruna.
rLls"! SA%YO Tú^
Samstæða sem seiðir að 25% ^
1
Á námsárum mínum bjó ég hjá
Svövu og reyndist hún mér afar
vel. Hún stuðlaði m.a. að því að
ég kæmist eins og „fínn maður" í
ferðalag til Spánar með skólafélög-
um mínum. Ógleymanlegt er mér
þegar hún útvegaði mér smóking
með einu símtali þannig að ég
komst á nemendamót þar sem ég
kynntist eiginkonu minni Hrönn
Ágústsdóttur. Allt var þetta henni
í einlægni eðlilegt. Sendum við
hjónin Stefáni samúðarkveðjur því
við vitum að þú, kæri Stefán,
reyndist Svövu svo vel í alla staði.
Friður fylgi Svövu.
Sigubjörn Fanndal
2x80 watta magnari með 7 banda tónjafnara og „Suround". Plötuspilari, hólfsjólfvirkur. Tvö-
falt segulband með sjálfvirkri upptöku. Útvarp með 36 föstum minnum, vekjara, svæfara og
sjálfleitara. Geislaspilari 18bits/8, með 5 forvölum og 18 titla minni o.fl. Hátalarar 80W, þre-
faldir með tveimur 160 mm „woofers“ og 50 mm „tweeter". Fjarstýring með 50 aðgerðum o.fl. o.fl.
- Var á kr. J
“ Gunnar Asgeirsson hf. 7Q Qnn
| u.hISÉÉi Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780 Tilboðkr. / \J.OUU,”stgr.
Sjáðu
Evrópu í sumar
meðSAS!
Velkomin til spennandi borga i
Mið-Evrópu.
Besti ferðamátinn er þægilegt
dagflug að hætti SAS.
Með SAS kemstu samdægurs*
að heiman og heim, í gegnum Kaupmannahöfn, til allra
ofangreindra staða.
Brottfarardagar: Mánudagar, miðvikudagar og
laugardagar. Komudagar: Sunnudags-, þriðjudags- og
föstudagskvöld.
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða ferða-
skrifstofuna þína.
M/JMS
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegí 3 Sími 62 22 11
Ekkl er floglð tll Hannover og Genf á Eaugardógum.
YDDA F42.12 / SÍA