Morgunblaðið - 02.06.1991, Síða 27

Morgunblaðið - 02.06.1991, Síða 27
Minningaí eigum við margar úr sameiginlegum ferðalögum fjöl- skyldnanna bæði innan- og utan- lands. í þessum ferðum naut sín einstök frásagnargáfa Joels enda var hann víðlesinn maður. Sérstakt lag hafði hann á að ná óskertri athygli okkar strákanna við slík tækifæri. Joel gaf sér alltaf tíma til að ræða við okkur málin, hvort sem við vorum tveggja ára eða tvítugri og segir það mikið um þennan mæta mann. Knattspyrna var þá oftar en ekki umræðuefnið og nutum við þess að hlusta á frá- sagnir hans af leikjum og mönnum. Margar lýsingar fengum við úr ferð Joels, Fríðu og foreldra okkar á HM í knattspyrnu 1966. Goðar minningar eigum við af töfra- manninum Joel, sem gat sagað af sér putta og tínt úr eyrum okkar smápeninga. Alltaf höfðum við jafn gaman af þessu og hann líka. Eftir að við eltumst sýndi hann börnum okkar töfra þesssa við mikla hrifn- ingu. Joel var einstaklega glettinn maður og vorum við nú ekki alltaf vissir um hvort hann væri að spauga eða að tala í alvöru. Kennsluhæfileikum var Jóel gæddur enda rólyndur maður og þolinmóður með afbrigðum. Þessir hæfileikar nýttust honum i starfi hans sem ökukennari og nutum við bræðurnir góðs af er við lærðum að aka bíl hjá honum. Minningarnar eru svo ótal marg- ar. í 45 ár viðgekkst sú venja for- eldra okkar og Joels og Fríðu í millum að hittast alltaf fyrsta vetr- ardag, síðasta vetrardag og á gaml- árskvöld og auk allra hinna tæki- færisskiptanna. Þetta voru fastir punktar í tilverunni og er eitt dæmi um einstakt samband þessara tveggja ijölskyldna. Nú er Joel horfinn svo snögglega óskiljanlega. Við treystum á tilgang alls þessa og trúum á endurfundi og þökkum honum samfylgdina. Elsku Fríða og fjölskylda, sökn- uður ykkar er sár og tómleiki mik- ill. Megi minningarnar um Ijúfan mann styrkja ykkur í sorginni. Guðmundur, Krislján, Asgeir og Birgir Asgeirssynir. Andlátsfregn Jóels Blomkvist Jacobsonar kom undirrituðum á óvart. Joel var ímynd hins stælta og drengilega íþróttamanns, en svona er lífsins gangur sem enginn fær breytt. Joel stundaði ungur fímleika hjá Ármanni, en frægastur var hann fyrir hnefaleik sinn og var hann einn af burðarásum í stórveldi hnefaleikadeildar Ármanns á sínum tíma. Eins og flestir vita voru hnefa- g 67 U 70 Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Simaþjónusta - kreditkortaþjónusta - sendingarþjónusta BLOM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070. MORGUNBLAÐIÐ MINIMIIMGAR SUNNUDAGUR 2. JUNÍ 1991 C 27 leikar bannaðir með valdboði frá Alþingi árið 1956. Við það lagðist öll starfsemi hnefaleikadeildar Ár- manns niður. Hættu þá margir hnefaleikamenn afskiptum af al- mennu félagsstarfi Ármanns, en ekki Joel. Árum saman var Joel ötull í starfi fyrir hússtjórn og í aðalstjórn Ármanns og eru margir úr okkar röðum sem syrgja Joel í dag. Joel var ávallt reiðubúinn að fórna frítíma sínum fyrir starfsemi hinna ýmsu íþróttagreina hjá Ármanni og eru margir í þakkarskuld við hann. Glímufélagið Ármann sendir ekkju Joels Blomkvist Jacobsonar, frú Málmfríði Bergljótu Jónsdóttur svo og öllum aðstandendum dýpstu samúðarkveðjur. Grímur Valdimarsson, formaður Glímufélagsins Ármanns Þann 26. maí barst okkur sú harmafregn að Jóel Jacobson hefði orðið bráðkvaddur, en Jóel varð nýlega 67 ára. Jóel frændi fæddist í Vestmannaeyjum en flutti á unga aldri til Reykjavíkur ásamt foreldr- um og bræðrum. Við vissum að hann gekk ekki heill til skógar, en áttum ekki von á að hann yrði kall- aður frá ástvinum sínum svona fljótt. Jóel var ávallt mikill félagi og vel liðinn af öllum er áttu við hann samskipti, enda var hann ávallt í góðu skapi og vildi láta jákvæðu hliðar hvers og eins njóta sfn. Jóel kvæntist Málfríði Jónsdóttur og eignuðust þau tvo syni, Ríkhat'ð, sem er blikksmiður, og Jóhann sem er matreiðslumaður. Barnabörnin eru orðin fjögur. Hugur Jóels var ávallt hjá Glímu- félaginu Ánnanni, en bæði Jóel og Fríða voru í fimleikaflokki félags- ins, og tóku þau þátt í sýningum bæði hérlendis og erlendis. Jóel tók virkan þátt í íþrótta- og félags- starfí Ármanns og ófáar stundirnar fórnaði Jóel fyrir Ármann. Á stríðsárunum var Jóel í fremstu röð íslenskra hnefaleikara og margfald- ur meistari, en þá var keppt á Há- logalandi, hin mikla fimi kom að góðum notum í hnefaleikunum, og að sjálfsögðu keppti Jóel fyrir Ár- mann. Lengst af starfaði Jóel við öku- kennslu, en á því sviði var hann einkar. laginn og náði að yfirvinna hræðslu hjá mörgum nemandanum, með sinni einstöku ró og miklu kennsluhæfileikum. Síðustu árin starfaði hann einnig sem húsvörður við Réttarholtsskóla og naut Jóel sín mjög vel, enda hafði hann mikla ánægju af að umgangast börn og unglinga. Við vitum að mikill verður missir- inn hjá Fríðu, því Jóel var mikill íjölskyldumaður, þá munu barna- börnin örugglega sakna afa síns. Á þessari kveðjustund eigum við margar góðar minningar um Jóel frænda, en hann kenndi okkur m.a. á bíl og ávallt var gaman að rök- ræða við Jóel, sem haggaðist sjald- an. Elsku Fríða og fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð við þennan mikla missi, en það er nú svo að þegar missirinn er mik- ill, þá skilur hinn látni eftir sig í sama hlutfalli af góðum minning- um. Guð veiti ykkur styrk. Blessuð sé minning hans. Hilmar og Steingrímur Viktorssynir + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐRÚNAR HALLDÓRU SVEINSDÓTTUR frá Viðfirði. Jón Björn Árnason, Hulda G. Sigurðardóttir, Aðalsteinn Finnbogason, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar og ömmu, RAGNHEIÐAR JÓNASDÓTTUR, Hrannargötu 1, ísafirði. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund og séra Sigfinns Þorleifssonar. Jónasína Þ. Guðnadóttir, Guðni R. Ólafsson, i Njörður Sigurðsson. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýju. og vinarhug við fráfall og útför ARNÞÓRS SIGTRYGGSSONAR, Litlubæjarvör 25, Álftanesi. Aðalheiður Guðjónsdóttir, Björg Arnþórsdóttir, Andri Björgvin Arnþórsson, Björg Arnþórsdóttir, Gunnþórunn Sigurjónsdóttir, Jósef Rúnar Sigtryggsson, Gerður Sigtryggsdóttir, Þórunn Sigtryggsdóttir, Friðgeir Sigtryggsson. Páll Heiðar Pálsson, ' Sigtryggur Arnþórsson, Sigtryggur Jósefsson, Guðjón Guðmundsson, Margrét Haraldsdóttir, Magnús Kjartansson, Gísli Sigurðsson, + Innilega þökkum við auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa- langömmu, SIGURRÓSAR SVEINSDÓTTUR, fyrrumformanns Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar i Hafnarfirði. Sérstakar þakkir flytjum við Verkakvennafélaginu Framtíðinni. Sveinn Magnússon, Kristín Magnúsdóttir, Erna Fríða Berg, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. + Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför HILMARS ÁRNASONAR, Brekku við Vatnsenda. Hjörleifur Hilmarsson, Hafdís Magnúsdóttir, Hilmar Hjörleifsson, Baldur Hjörleifsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför KRISTÍNAR MAGNÚSDÓTTUR, Einimel 11. Magnús Tryggvason, Guðrún Beck, Anna L. Tryggvadóttir, Heimir Sindrason, barnabörn og barnabarnabarn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför elskulegrar móður, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu okkar, ÁGÚSTUGUÐRÚNAR ÁRNADÓTTUR, Hábæ, Þykkvabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks 4. hæðar hjúkrunarheimilisins Skjóls fyrir frábæra umönnun. Árný Elsa Tómasdóttir, Valdimar Jónsson, Halldóra Óskarsdóttir, Tómas Guðmundsson, Jóna Birta Óskarsdóttir, Gísli Jónsson, Sigurlín S. Óskarsdóttir, Margrét H. Júlíusdóttir, barnabörn og langömmubörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför sonar okkar, bróður, dóttursonar og sonarsonar, GUÐMUNDAR RAFNS KAABER Gerðhömrum 13. Sérstakar þakkir eru færðar öllu starfsfólki deildar 1 1-E á Land- spítatlanum. Svanhildur E. Guðmundsdóttir, Sverrir Ö. Kaaber, Erna Guðrún Kaaber, Katrín Kaaber, Berglind Guðný Kaaber, Guðný S. Sigurðardóttir, Guðmundur Rafn Einarsson, Guðrún S. Kaaber. Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför VALGERÐAR ELÍASDÓTTUR, Bröttuhlíð 12, Hveragerði. Sérstakar þakkir færum við því góða fólki, sem leit til með henni meðan hún dvaldi heima og þeim, sem önnuðust hana á deildum E-6 og B-5, Borgarspítalanum. Álfheiður Unnarsdóttir, Elsa A. Unnarsdóttir, Unnur V. Ingólfsdóttir, Jóhann Ingólfsson, Valgerður Stefánsdóttir, Auðbjörg Stefánsdóttir, Ingólfur Jóhannsson, Stefán Valdimarsson, Guðjón Magnússon, Jónína Dam'elsdóttir, Gunnar Þorsteinsson, og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föð- ur, tengdafööur og afa, GÍSLA ÓLAFSSONAR, húsvarðar, Hamrahlíð 17. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu Krabbameinsfélags- ins fyrir ómetanlegan stuðning og umönnun. Sigrún Þorsteinsdóttir, Þóra G. Gísladóttir, Haukur Hafsteinsson, Margrét Gísladóttir, Gísli Gislason, Ágústa Guðmarsdóttir, Ólafur Gíslason, Guðrún Gísladóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.