Morgunblaðið - 02.06.1991, Page 28

Morgunblaðið - 02.06.1991, Page 28
628 OC 1 Likamsrækt eróbikk - iú< - þrekhringur - - karafte - taiji Mörkin 8 v/Suðurlandsbraut - 108 Reykjavík - sími 67 94 00 TIL HAMINGJU MEÐDAGINN ítilefni sjómannadagsins verður kaffihlaðborð frá kl. 14.30 í dag, sunnudag. Verið velkomin. FLUGLEIÐIR !HD íí líííhMl Reykjavíkurflugvelli, sími 22322. Minning: Eiríkur Einarsson frá Hlíðarhúsum Eiríkur Einarsson frá Hlíðarhús- um var jarðsettur frá Sleðbrjóts- kirkju 26. apríl sl., en hann andað- ist í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 17. apríl eftir langvarandi veikindi. Eiríkur Einarsson var fæddur 5. október 1912 í Hlíðarhúsum. Foreldrar hans voru: Einar Sveinn Einarsson frá Götu og Guðný Sól- veig Eiríksdóttir frá Hafrafelli. Eiríkur var yngstur fjögurra bræðra: Elstur var Einar bóndi á Ormastöðum fæddur 1898, Halldór dó barn, Sigurbjörn drukknaði árið 1930 á Flateyri við Önundarfjörð 28 ára gamall. — Eiríkur varð snemma stoð og stytta foreldra sinna við búskapinn, sem á þessum árum var mjög erfiður t.d. með alla aðdrætti. Faðir Eiríks var annálaður ferðagarpur og oft til hans leitað, þegar sækja þurfti lækni um langan veg. Einar Sveinn dó 1940. Guðný var kona hress og fróð og heimilið gestkvæmt. Haustið 1929 kom í Hlíðarhús 4 ára snáði, Amgrímur Magnússon, og ílengdist þar hjá Guðnýju og Einari þar til 1945 eða þangað til hann fluttist til Borgarfjarðar eystri. Guðný dó 1945. Árið 1946 fluttist í Hlíðarhús Björg Runólfsdóttir frá Ásbrands- stöðum í Vopnafírði1. Hófu þau Eiríkur búskap saman og eignuð- ust þijú börn: Sigurbjörn Hlíðar, Guðmund og Guðrúnu. Synirnir eru enn í föðurgarði en Guðrún er búsett á Akureyri. Um tíma voru hjá Eiríki og Björgu Aðalbergur Þórarinsson, sem nú býr í Keflavík, og Kristín sonardóttir Eiríks Kri- stóferssonar skipherra. í höndum Eiríks stækkaði búið í Hlíðarhúsum umtalsvert: íbúðarhús og útihús endurnýjuð. Ég man vel eftir Eiríki frænda mínum, þegar ég var í Fögruhlíð, enda var' stutt á milli bæjanna. Hann var glaðlyndur og tók þátt í störfum ungmennafé- lagsins og fylgdist vel með þjóð- málum. Sannast sagna þótti manni ætíð nauðsyn að stoppa í Hlíðar- húsum í Hlíðarferðum seinni ára. Sömu sögu var að segja af Eiríki að þá * sjaldan hann kom til Reykjavíkur þá leit hann við hjá foreldrum mínum og hafði frá mörgu að segja. Þannig var hann í huga okkar nokkurs konar tengi- liður við fortíð og nútíð austur á Héraði. Við hjónin sendum Björgu og fjölskyldu hennar okkar innile- gustu samúðarkveðjur. Hilmar Jónsson Templarar: Tækifærum til áfengis- neyslu verði fækkað Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi ályktun vorþings Templara á Suðurlandi, sem haldið var þann 26. maí sl.: „Vorþing Umdæmisstúkunnar nr. 1 minnir á alvarlegt ástand vímuefnamála á mörgum sviðum og leggur megináherslu á eftirfar- andi atriði: 1. Sérstaklega verði varað við öllum tilraunum og hugmyndum í þá átt að bijóta niður aðhald og hömlur, afnám ríkiseinkasölu áfengis og fijálsa sölu áfengis í almennum matvöruverslunum. 2. Þingið telur fullsannað að auk- in þjónustusemi og eftirlæti við drykkjuhneigð landsmanna, svo sem fjölgun veitingastaða og sölu- staða áfengis, eykur drykkjuna og þar með það böl og vandræði sem vímuefni valda. 3. Þingið telur það fullreynt að ekki vinnst umtalsverður sigur í vímuefnamálum fyrr en stefnt er að meiri bindindissemi og unnið að því að fækka þeim tækifærum og tilefnum að verið sé með áfengi en fjölgað þeim heimilum og öðrum stofnunum sem hafna allri vímu- efnaneyslu. Telur þingið skýlaua skyldu stjómvalda að gefa gott for- dæmi í þeim efnum.“ WOODEX VIÐARVÖRN 4 3 FYRIR AUHD-FYRIR VIDINN WOODEX viðarvörnin frá Hygæa er frábærlega endingargóð og áferðarfalleg auk þess sem hún fellur vel að íslenskum aðstæðum. Woodex fæst bæði sem grunn- og yfirborðsefni úr acryl- eða olíuefnum. WOODEX MULTITRÉGRUNNUR er vatnsblendin grunnviðar- vörn á allt tréverk. Hann gengur vel inn í viðinn og eykur stöðugleika hans og endingu. WOODEX HYDRA er hálfþekjandi, vatnsblendin, lyktarlítil viðar- vörn með Ijósþolnum litarefnum sem nota má úti sem inni. rfff« WOODEX ACRYL er yfirborðsefni á allt tréverk. Það myndar þunna en seiga og mjög veðrunarþolna húð. WOODEX ACRYL þekur mjög vel og er létt að vinna með. WOODEX INTRA smýgur djúpt í viðinn og veitir góða vörn gegn fúa, sveppum og raka. Góð grunnvörn. WOODEX ULTRA er lituð en gagnsæ viðaravörn úr olíuefnum sem nota má innanhúss sem utan. Fæst í flestum málninga- og byggingavöruverslunum um allt land. - Rétti liturinn! urlnn Síðumúla15, sími 33070

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.