Morgunblaðið - 02.06.1991, Síða 29
MOKGUN'BLAÐIÐ SUNNIjDAGUR 2. JUNI 1991
C 29
Lögum um leikskóla fagnað
Á VORFUNDI fulltrúaráðs
Fósturfélags íslands var eftir-
farandi ályktun um lög leik-
skóla samþykkt:
„3. vorfundur fulltrúaráðs Fóst-
urfélags íslands haldinn 27. apríl
1991 fagnar nýjum lögum um leik-
skóla og telur að samþykkt hafí
verið tímamótalög sem hvergi eiga
sér hliðstæðu og þar með hafi
stjórnvöld á íslandi skipað sér í
fremstu röð meðal þjóða hvað
varðar uppeldi og menntun yngstu
barnanna.
Lögin skilgreina leikskólann
sem sérstakt skólastig fyrir börn
og þar með hluta af menntakerfi
þjóðarinnar.
Leikskólinn er fyrsti skóli
barnsins og er í lögunum undir-
strikað hið menntunarlegá hlut-
verk hans. Með menntun er átt
við uppeldi, umönnun, þjálfun og
kennslu sem á leikskólanum fer
fram gegnum leik. Jafnframt er
leikurinn helsta uppeldis- og
kennsluaðferð fóstrunnar.
Þessum áherslum ber sérstak-
lega að fagna.
Ennfremur lýsir fundurinn yfír
ánægju sinni með þróunarsjóð
leikskóla og rétt leikskólabarna til
sérstakrar aðstoðar og þjálfunar.
Uppeldisáætlun frá 1985 er nú
lögfest og mun það styrkja uppeld-
isstarf leikskólabarna.
Leita þarf leiða til að fjármagna
uppbyggingu og rekstur leikskól-
anna þannig að leikskólinn verði
í reynd fyrir öll börn eins og kveð-
ið er á um í lögum um leikskóla.
Fundurinn bendir á að forsenda
leikskólastarfs er að fá fleiri fóstr-
ur til starfa. Er því hér með beint
til stjórnvalda að gera stórátak i
menntunarmálum fóstra og launa-
kjörum þeirra.“
Gerð Compact 350
Haeð, srr......................67
Breidd, sm.....................46
Dýpt, sm (meðtengingum)........43
Þyngd, kg......................36
Þvottahringur, min..............63
Rafmagnsnotkun (95”C)kWh......1,1
Vatnsnotkun, lítrar.............62
Þvottakerfi..................Frjálstval
kr. 47.405,- stgr.
Rafbraut
BOLHOLTI4 2? 681440
„BABY NOVA“
litla frábæra
þvottavélin fyrir þig
Tölvu
- ÞAR SEM PAPPÍRINN FÆST
HÖFÐABAKKA 3 112 REYKJAVÍK
ATH: NÝTT SÍMANÚMER 683366
ÆUMENIAX
Vegna aukinnar eftirspurnar eftir
mínni vélum er „Baby Nova" hönnuð
með mjög miklum gæðum.
Til dæmis eru allar hosur þrýstiprófað-
ar og belgurinn er gerður úr 18/8
staðal krómstáli.
Niðurstaðan af þessum staðreyndum
er að þú getur fullvissaö þig um góða
endingu.
sem þú getur treyst
Tölvupappír þarf að vera gæddur ákveðn-
um eiginleikum. Hann þarf að vera hæfi-
lega sterkur og stinnur, nákvæmlega rétt
skorinn og gataður. Brot úr millimetra getur
skipt sköpum.
ODDI hefur á lager íjölmargar gerðir af tölvupappír,
m.a. bókhalds- og ritvinnslupappír, launaseðla,
reikninga, yfirlit og sérhannaðan pappír, svo sem
tölvulímmiða og yfir 30 mismunandi útfærslur af
A4 (12") tölvupappír.
Láttu fagmenn ODDA tryggja þér rétta
tölvupappírinn.
H SKÓLAGARÐAR borgarinnar
starfa á sjö stöðum í borginni. Við
Sunnuveg í Laugardal, í Árbæ,
Ásenda, við Jaðarsel og Stekkjar-
bakka, í Skildinganesi og í Folda-
hverfi (Kotmýri) fyrir austan
Logafold. Innritun í þessa garða
fer frarn dagana 3. og 4. júní og
hefst hún kl. 8.00 í hveijum garði.
Skólagarðarnir eru ætlaðir fyrir
börn fædd árin 1978 til 1983. Inn-
ritunargjald verður kr. 600.
h2o
EKKI BARA VATN
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
£3000000*
gólfflísar- kverklistar
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
ALLIR
geta verið með
í heilsuhlaupi
Krabbameinsfélagsins
8. jum
ili
ALÞJÓÐA
LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ