Morgunblaðið - 02.06.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.06.1991, Blaðsíða 32
% íeer iviui .s huoa --MORGUNBEAÐIÐ QIÖAJHVIUOHOM SUNNOT5A'GUR'2r3ÚNrT9<rr 1 © 1991 Jim Unger/Dislribuled by Universal Press Syndicate 'Éq er c*.h le.)to~ ICorti scm Likist /wcr- • ömcrklLegt og biUcgt." POLLUX A FÖRIMUM VEGI Aðalbjörg Valdimarsdóttir Helga Pétursdóttir Kristrún Hauksdóttir Ástin blómstrar í fríunum Rætt við sjómannskonur í Grindavík Grindavík. Á SJÓMANNADAGINN hugsa víst flestir til sjómaimanna sem þurfa oft og tíðum að dvelja lang- dvölum fjarri heimilum sínum og ástvinum. En hvernig skyldi þeim sem heima sitja liða? Er ekki ein- manalegt að vera gift sjómanni? „Jú, sérstaklega þegar þeir eru á útilegubátum sem eru kannski viku til tíu daga á sjó og stoppa síðan í 36 tíma í landi á milli," sagði Helga Pétursdóttir en eiginmaður hennar, Andrés Haukur Friðgeirsson, er 1. vélstjóri á Skarfí GK 666. „Eg sé alveg um rekstur heimilis- ins og er stundum bæði pabbi og mamma barnanna meðan hann er á sjó. Samt tel ég að sjómannskonur standi oft betur að vígi en aðrar konur því þær verða að vera sjálf- stæðar og oft að taka ákvarðanir upp á eigin spýtur. Aftur á móti er mjög gaman þegar maðurinn kemur í land og við erum eins og nýtrúlof- uð. Við notum tímann eins vel og við getum og einbeitum okkur að fjölskyldulífinu meðan hann er heima.“ Farsíminn breytti miklu „Já, auðvitað er oft einmanalegt þegar maðurinn er á sjónum," sagði Aðalbjörg Örlygsdóttir en eiginmað- ur hennar, Arnór Valdimarsson, er stýrimaður á Eldeyjar-Hjalta GK 42. „Eg fínn mikinn mun á því að maðurinn minn skuli vera á útilegu- bát núna en hann var á dagróðrabát fyrir áramót og það var mikil breyt- ing bæði fyrir mig og börnin þegar hann fór að vera í burtu í heila viku og síðan heima í 12 tíma þegar kom- ið er í land. Þá ætla allir að eiga hann á heimilinu, hver vill sinn skammt. Marsmánuður var alveg sér á parti en þá var hann heima í hálf- an sólarhring því að báturinn fór í siglingu erlendis. Það var mikil breyting að fá far- símann þegar hann kom og mikið betra að tala út á sjó sem ég geri stundum. Annars skerpir þetta líka ástina á móti þegar við hittumst eftir langa fjarveru." Höfum helgarnar saman „Á dagróðrabátunum eru menn oft komnir heim um kaffíleytið þann- ig að hann er oft kominn heim á undan mér og jafnvel sofnaður," sagði Kristrún Hauksdóttir. Hún vinnur í banka en eiginmaður henn- ar, Guðmundur Karl Tómasson, ger- ir út og er skipstjóri á Vörðufelli „Ég sé alveg um rekst- ur heimilisins og er stundum bæði pabbi og mamma barnanna með- an hann er á sjó. Samt tel ég að sjómannskon- ur standi oft betur að vígi en aðrar konur því þær verða að vera sjálf- stæðar og oft að taka ákvarðanir upp á eigin spýtur.“ GK 205 sem er í dagróðrum. „Það var mikil breyting þegar hann fór á sjóinn því áður unnum við svo að segja hlið við hlið í landi en sjálf- sagt venst þetta eins og annað. Hann fer á sjó snemma á morgnana og er yfírleitt kominn heim seinni- partinn nema á hávertíðinni, þá er hann lengur og vinnudagurinn oft langur. Eg sé því um heimilið og reyndar sé ég einnig um bókhaldið fýrir útgerðina. Við eigum helgarnar yfírleitt fyrir okkur fjölskylduna þannig að hann er ekki eins lengi fjarri heimili sínu og ef hann væri á útilegubát. Farsíminn kemur sér Víkverji skrifar Loksins er jafnt á komið í svona nautaati... HÖGNI HREKKVÍSI „éG H8Vf2E>l AÐ þú HEFÐII? UN\/(Ð." Víkveiji dagsins horfði um síð- ustu helgi á sjónvarpsfrétt af nýju og forvitnilegu síldarminja- safni norður í Siglufírði. Daginn eftir kom góður vinur að norðan í heimsókn. Og talið barst að þeim gömlu og góðu dögum þegar silfur hafsins gerði Siglufjörð að höfuð- stað síldarævintýrisins, fyrstu „stóriðjunnar“ í þjóðarbúskap ís- lendinga. Þegar íbúar Siglufjarðar voru flestir töldust þeir um 3.100. í land- legum, þegar siglutré erlendra og innlendra síldveiðiflota mynduðu samfelldan „skóg“ um fjörðinn þveran og endilangan, og síldar- bæðslur og söltunarstöðvar stóðu undir nafni, gat „íbúatalan" þre- faldast eða vel það. Á þessum árum var enginn námslánasjóður til. En lunginn úr þeim, sem þreyttu langskólanám, sótti námseyri sinn í silfur hafsins, fyrst og fremst norður í Siglufjörð, í margvísleg störf bæði til sjós og lands. Þá voru tengsl skólakerfisins og atvinnulífsins mikil og náin. XXX En síldarstofninn hrundi, trúlega vegna ofveiði, erlendra flota og innlends. íbúatala Siglufjarðar, sem fór vel yfír 3.000 þegar bezt lét, er komin niður undir 1.700. Og enn hallar undan fæti í síldarbæn- um, þótt þar sé þróttmikil bolfískút- gerð og vinnsla. Við ræddum saman um þessa íbúaþróun í Siglufírði - og raunar víðar á landsbyggðinni - Víkveiji dagsins og vinurinn að norðan. Norðlingurinn sagði að rökvís, ald- inn kaupmaður, norður þar, héldi því hiklaust fram, að Siglfírðingar væru ekki rúmlega 1.700, eins og tölur Hagstofu tíunduðu, heldur sex, sjö þúsund. Þeir byggju að vísu vítt og breitt um landið, máski eink- um á suðvesturhorninu, en einu sinni Siglfirðingur væri alltaf Sigl- firðingur, og það í nokkra ættliði! Þetta minnir okkur á að mikill fjöldi fólks á höfuðborgarsvæðinu er fluttur af landsbyggðinni, eða rekur þangað rætur, og hefur taug- ar til sinna æsku- eða uppruna- byggða. Það er því út í hött að tala um „tvær þjóðir" í landinu. Annað mál er að sporna þarf gegn frekari byggðaröskun, eftir því sem hægt er, og það með marktækari byggða- stefnu en fylgt hefur verið undan- farið. Mergurinn málsins er að búaj undirstöðuatvinnuvegum, landbún- aði og sjávarútvegi, sem vega mun þyngra í afkomu lanösbyggðarfólks en höfuðstaðarbúa, rekstrarlega stöðu til að skila hagnaði. „Jöfnuð- ur“ í almennu verðlagi, samgöngum og félagslegri þjónustu skiptir einn- ig miklu máli. En atvinnulífíð og afkomumöguleikamar vega þyngst. Kauptún og kaupstaðir á lands- byggðinni, sem byggja jöfn- um höndum á sjávarútvegi og land- búnaði, það er úrvinnslu landbúnað- arafurða og verzlunar- og iðnaðar- þjónustu við blómlegar sveitir um- hverfis, hafa verulega betri stöðu en „hreinir" útgerðarstaðir. Nefna má staði eins og Akureyri og Sauð- árkrók nyrðra. Þéttbýli, sem byggja nær eingöngu landbúnaðarþjón- ustu, eins og Egilsstaðir og Selfoss, hafa og dafnað vel næstliðna ára- tugi. Samdráttur í hefðbundnum búgreinum hefur þó og hlýtur enn að segja til sín í þessum sveitarfé- lögum. Víkveiji dagsins hyggur að fjórð- ungssambönd sveitarfélaga og aðrir hagsmunaaðilar hljóti að leggja rík- ari áherzlu á endurskipulagningu þessara undirstöðugreina, sjávarút- vegs og landbúnaðar, hér eftir en hingað til, þann veg, að þær lagi sig betur að efnahagslegum veru- leika í samfélaginu og umheiminum - og verði byggðarlögunum þeir hornsteinar í framtíðinni sem efni standa til, ef rétt er að málum stað- ið. Það sem máli skiptir er að gera atvinnuvegina arðbæra í stað þess að ausa fjármunum í viðvarandi taprekstur, sem er meðorsök lakari lífskjara í landinu en vera þyrfti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.