Morgunblaðið - 02.06.1991, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 02.06.1991, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ vtTt iv'!. rr•;i. Valgerður Gísladóttir hinsvegar vel þegar ég þarf að hafa samband við hann og hann var eig- inlega bylting þegar hann kom. Við tölum aldrei saman í talstöðina; held- ur skrifa ég honum bréf en að tala í hana. Það er eins og að tala við allan flotann. Þrjá mánuði í burtu. Valgerður Gísladóttir sem er gift Willardi Ólasyni skipstjóra á Grind- víkingi GK 606 var á sama máli, að það væri oft á tíðum einmanalegt að vera gift sjómanni. „Það var sérs- taklega hér áður á síldarárunum þegar við sáumst kanski ekki allt sumarið allt upp í 3 mánuði. Willard sá t.d. elsta son okkar, Gísla, ný- fæddan í gegnum glerið á fæðingar- deildinni og síðan ekki fyrr en hann var orðinn þriggja mánaða. Þetta breyttist síðan þegar sumarsíldin datt niður og einnig þegar lögskipað- ir frídagar komu í hveijum mánuði. Hann hefur líka tekið sér lengri frí nú undahfarin ár en áður. Þrátt fyr- ir það eru þessi skip eins og Grind- víkingur lengi úti á sjó í einu og stoppa stutt á milli eins og þegar loðnuvertíðin er í fullum gangi og eins á rækjunni. Maður var náttúrulega allt í öllu hér áður fyrr og sá um allt heimilis- hald í landi og síðan þegar hann kom í land þá stjórnaði maður honum líka. Þegar við vorum að byggja hér í Grindavík þá sá ég um flestallt sem því viðkom. En þetta hefur breyst nú síðustu ár eftir að Willard var meira í landi og samveran aukist." FÓ Haustnótt á hafinu Eg hlustaði á viðtalsþátt Svan- hildar Jakobsdóttur á Rás 1 fyrir skömmu en viðmælandi henn- ar var Jón Óskar. Hann minntist á kvæði, sem hann kunni aðeins fyrstu ljóðlínuna úr: Er vaggar skip á úthafs breiðu öldum. Þetta kvæði heitir Haustnótt á hafinu, er eftir Sigfús Elíasson og birtist í ljóðabók hans Urðir, 1923. Þetta ljóð er tengt sjómannadegin- um í hugum margra ásamt laginu sem það var sungið við. Haustnótt á hafinu Er vaggar skip á úthafs breiðu ðldunum og undraljóma á sæinn máninn slær. En bjart er yfir báru hvítu fðldunum, er brosir máni á himni unaðs skær. Þá fannann dreymir um fortíð horfna. Hann fær vart blundað þó taki að morgna. - Dreymir - En andvörp hans öldugjálfri hljóðna þá, er Eygló morgunljóma á hafið slær. Svo þegar morgunsól, í austri, úr sævi ris og sveipar gullnri blæju um haf og lönd. Á haffletinum minninganna dansar dís. En degi fagnar sjómanns fósturströnd. Þá fæsta grunar hvað farmann dreymir, sem fólgna minning í huga geymir. - Dreymir - í minninganna djúpi hyljast draumar þá, er dagsljós þerrar klökkva af farmánns brá. Opinberun Guðs Reiði Guðs opinberast af himni yfir öllu guðleysi og rangsleitni þeirra manna, er kefja sannleikann með rangsleitni, með því að það, er vitað verður um Guð, er augljóst meðal þeirra. Guð hefur birt þeim það. Því að hið ósýnilega eðli hans, bæði, hans eilífi kraftur og guðdóm- leiki er sýnilegt frá sköpun heims- ins, með því að það verður skilið af verkum hans. Menn eru því án afsök- unar.“ (Róm. 1,18-120.) Við vitum að menn á öllum öldum trúðu, skv. röksemd Páls postula um verk sköp- unarinnar, á tilveru yfirnáttúrlegra * Eg fór í hjartaaðgerð Mér er þakklæti efst í huga nú þegar ég kem heim eftir 72 daga samfellda sjúkrahúsvist. Ég hefi ástæðu til að þakka frá- bærum læknum Borgarspítalans og Landspítalans lífsbjörg, hjúkr- unarfræðingum á hjartadeildum E-6 og G-ll ótrúlega þolinmæði og umönnun og öðru starfsfólki góða þjónustu og þjálfun. Kæru vinir Fyrrverandi vinnufélögum í lög- regluliði Reykjavíkur, Rannsókna- lögreglu ríkisins og Félagi yfírlög- regluþjóna auk annarra vina, þakka ég heimsóknir, góðar kveðj- ur og blómagjafír sem veittu mér gleði og styrk á erfiðu veikind- atímabili svo sem óþolandi biðtíma. Víst mun gróa meinið mitt, - þú manst hve lífið blakti - Ef hjartað mitt og hjartað þitt halda jöfnum takti. Daglegar heimsóknir stórrar fjölskyldu minnar voru að sjálf- sögðu ómetanlegar og verða ekki þakkaðar með orðum, það mun ég best gera með því að vera dugleg- ur að æfa upp þrek á ný, svo við sjáum sameiginlegan árangur þeirrar fjölskyldu- og ástvinahjálp- ar sem ég er aðnjótandi. Hver veit nema handtök snör henti enn og aftur. Ef á ný mér færist fjör, fimi, snerpa og kraftur. Ég hefi svo mörgum mikið að þakka að mér fannst ég ekki ná til allra sem eiga hjá mér hlýtt handtak og því greip ég til penn- ans og vona að ég sýni með því að þakklátara fólk er ekki til en sjúkir og minni máttar. Úrbóta er þörf Þá óska ég þess, heilbrigðisþjón- ustunni til handa, að nýskipaður heilbrigðisráðherra, Sighvatur Björgvinsson, beri gæfu til þess að beita áhrifum sínum á meðan hann hefir aðstæður til, að bæta heilbrigðisþjónustuna í landinu. Það virðast vera til peningar hjá ríkinu í fánýt verk á sama tíma og mannslífum er fórnað vegna uppsafnaðra biðlista af fársjúku fólki sem mörgu mætti bjarga ef skilnings nyti við á réttum stöðum. Snobbið á að víkja fyrir raunveru- leikanum. Það er skýlaus krafa hinna sjúku að allt sé gert sem hægt er til að bæta kjör og fjölga starfsfólki á sjúkrastofnunum svo ekki komi til lokunar á því plássi sem til er fyrir sjúka. Og enn Að síðustu en ekki síst er mér bæði ljúft og skylt að þakka þeim sjúklingum sem voru mér samferða á spítölunum um skemmri eða lengri tíma, góða viðkynningu með ósk um góðan bata. Ég endurtek þakklæti mitt sem einn af þeim heppnu. Guðmundur Hermannsson vera, það sem við köllum fjölgyðis- trú. En Guð hjálpaði mannkyninu að öðlast eingyðistrú. Hann kaus um tvö þúsund árum f.Kr. einn mann, Abraham, og eina þjóð, gyðinga, til að opinbera sig skírt. Frá þeim höf- um við, kristnir menn og einnig múhameðstrúarmenn eingyðistrú. Opinberun Guðs varð síðan enn full- komnari í persónu Jesú Krists. JÓ- hannes postuli segir: „Orðið varð hold. Hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurn- um. Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð, Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föðurins, hann hefur birt föð- urinn.“ (Jh. 1,14.18.) En Pétur postuli varar oss við því, að falsspámenn muni koma fram: „Falskennendur munu líka verða á meðal yðar, er smeygja munu inn háskalegum villukenning- um og jafnvel afneita Herra sínum, sem keypti þá“ (2 Pt. 2,1.) Hafa þá hinir fremstu grískra heimspekinga, Artistóteles og Platón, ekki sett fram skynsamlegri kenningu um Guð en aðrir heiðingjar? Við getum játað. því. Aristóteles (384-322 f.Kr.), sem lagði grunninn að mörgum fræði- greinum, einkum formlegri rök- fræði, skrifar í riti sínu „Frumspeki" (Metaphysica) um tilveru Guðs (1072b): „Til er vera, sem veldur hreyfíngu, án þess að eitthvað annað hreyfi hana“ (Immotus movens). Svo segir hann einnig (1074b), að „sá, sem þekkir og það sem er þekkt, séu eitt í guðlegum anda“. í sömu máls- grein spyr hann líka hvort þessi vera sé samansett eða ekki, í tíma eða eilíf. Með því að beita skynseminni kemur Platón einnig auga á eigin- leika, sem heimspekin tileinkar Guði, þegar hann talar um hina æðstu frummynd, hið góða. Tómas frá Aquino (1225-1274), upphafsmaður Tómismans, gat sameinað (skírt, eins og það er kallað) heimspeki Aristótelesar og kristna kenningu um Guð. Skv. Tómasi og kennslu kirkjunnar getur þekking mannsins ekki hnekkt opinberun trúarinnar, heldur fullkomna trú og vísindi hvor aðra. Heimspekin beitir aðeins skyn- semi til að kynnast Guði, en guð- fræði gengur út frá Guði, sem opin- beraði sig í sköpunarverkinu og hjá Gyðingum, og að lokum í Jesú Kristi, annarri persónu heilagrar Þrenning- ar. Séra Jón Habets GUR 2. JÚNÍ 1991 •■ita;unv ■ f Reiðskólinn Hrauni Grímsnesi - sími 623020 Reiðskóli fyrir 10-15 ára unglinga Utreidar og bókleg kennsla um hesta og hestamennsku. 9 daga námskeið með fullu fæði. Reiðskólinn Hrauni Þarsem hestamennskan hefst! Sýning og sala á handavinnu Hraínistufólks á sjómannadaginn frá kl. 13.30-17.00. Kaffisala frá kl. 14.30-17.00. Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði. TILBOÐ ÓSKAST íToyota 4 Runner EFI 4x4, árgerð ’87, Mazda RX-7 GTU, árgerð '88 og aðrar bifreiðar er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 4. júní kl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í Sindra malarvagn, burðar- geta 25.000 kg., árgerð '85 og Davey loftpressu 125 C.F.M. m/dieselvél, árgerð ’79. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. Sala varnarliðseigna SELENA FERÐATÆKIN ertoc et^iccr Tilvalið í eldhúsið, bústaðinn eða bátinn. Fyrir rafhlöður og 220 volt. Innbyggt loftnet. Mið-, long- og fimm stuttbylgjur og FM. Verð oðeins kr. 5.562,- i D f ■- 1 ?■ 1 SÍilSiSI o Qi W" o <3» SJONAUKAR 8x40 Taska fylgir. Verð aðeins kr. 3910.- BIFREIDAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. Ármúla 13 - 108 Reykjavík - ® 681200 Saúvrlanástraut 1i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.