Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 við hefðum ekki fengið þennan fisk hefði orðið að stöðva vinnslu vegna hráefnisskorts í næstu viku. Við lán- um Seyðfirðingum 12 tonn í dag og fáum borgað í sama eftir viku,“ sagði Ölver. Klakkur VE mun landa á Seyðis- firði í næstu viku og þá verða 12 tonn flutt tii Þórs á Eskifirði. KHB mun einnig lána fisk til Fáskrúðs- fjarðar og fá borgað þegar um hæg- ist hjá þeim á Reyðarfirði. Adolf Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Gullbergs, sem gerir út Gullver, sagðist mjög ánægður með verðið sem þeir hefðu fengið. Hjá aflamiðlun fengust þær upplýs- ingar að meðalverð á þorski á fisk- mörkuðum í vikunni væri 88 krónur en á Englandi hefði verðið verið um 130 krónur. Landsvirkjun: Boðið í afla Gullvers: Landaði á Reyðarfirði í staðinn fyrir að sigla SKUTTOGARINN Gullver frá Seyðisfirði landaði í gær á Reyðarfirði, en til stóð að skipið seldi í Englandi í næstu viku. Kaupfélag Hérðasbúa á Reyðarfirði (KHB) bauð 103 krónur fyrir kílóið af þorski og tók útgerð Gullvers því. Þetta er í fyrsta sinn sem tilboð berst í afla skips sem ætlar að sigla frá því reglum aflamiðlunar var breytt fyrir mánuði. Það voru KHB og Þór hf. á EsÍtí- hf. á Eskifirði sagði að HKB fengi firði sem komu sér saman um að 140 tonn en Þór hf. 30 tonn. „Ef bjóða í afla Gullvers, 170 tonn sem er að mestu þorskur. Samkvæmt nýjum reglum aflamiðlunar, frá því í byrjun maí, skal fískvinnslufyrir- tækjum gefinn kostur á að bjóða í afla þeirra skipa sem hyggjast sigla. Þetta var í tólfta sinn sem afli sem sigla á með er auglýstur og í fyrsta sinn sem tilboð berst. Ölver Guðnason, verkstjóri hjá Þór Skeiðarár- jökull fær- ist fram SKEIÐARÁRJÖKULL hefur hlaupið fram um tugi metra. Vatnskerfið undir jöklinum hefur breyst og vatn safnast nú þar fyr- ir. Talið er að samhengi sé á milli þessara atburða og lítils rennslis í Skeiðará en allt þetta bendir til að nýtt Grímsvatnahlaup sé í að- sigi. Almannavarnir telja ekki ástæðu til að grípa til sérstakra öryggisráðstafana út af þessu en ætla að fylgjast vel með ánni og jöklinum. Fulltrúar Almannavama ríkisins og Vegagerðarinnar fóru í kynnisferð um Grímsvatnasvæðið í gær ásamt vísindamönnum og í framhaldi af því munu fara fram mælingar á jöklinum næstu daga. Hann hefur skriðið fram um tugi metra og einnig hækkað verulega. Einnig hafa orðið talsverð- ar breytingar á vatnskerfinu undir jöklinum sem hafa áhrif á rennsli Skeiðarár og þetta þykir benda til að Skeiðarárhlaup sé í vændum. Vatnsborð í Grímsvötnum er nú orð- ið hærra en í seinustu Skeiðarár- hlaupum, hefur ekki verið hærra síðan reglubundnar mælingar hófust árið 1954. í samtali við Morgunblaðið kvaðst Helgi Björnsson jöklafræðingur ekki búast við stóru hlaupi enda hafí kóln- að í eldstöðinni undir Grímsvötnum seinustu þijá áratugi og rúmmál vatns minnkað. Þó gæti hlaupið orð- ið mikið ef það fer að gjósa norðan við Grímsvötn. Helgi er nú á ieið upp á Grímsvatnasvæðið til að kanna aðstæður. Guðjón Petersen forstjóri Al- mannavarna segir að vandlega verði fylgst með svæðinu næstu vikur. Hann tók fram að Grímsvatnahlaup verði yfirleitt hægt og sígandi. Ennþá er engin ástæða til að loka veginum um Skeiðarársand en er til kemur munu Almannavamir gera viðeig- andi öryggisráðstafanir. ^ Morgunblaðið/Bjarni Gámastöð við Ananaust Starfsmenn gatnamálastjóra unnu við það í vikunni að koma upp nýrri gámastöð á vegum Sorpu við Ánanaust. Þar verða sérstakir gámar fyrir stærra rusl, sem ekki kemst í ruslatunnuna, annar fyrir garðaúrgang og enn aðrir fyrir timbur, járn og dagblöð. Gámastöðvar eru þegar komnar upp við Miklagarð í Sundum, í Breiðholti, við Sléttu- veg, Njarðargötu og við Gufunesbæinn. Banaslys við Aust- urbrún 85 ÁRA gömul kona lést eftir alvarlegt umferðarslys sem varð um níuleytið á fimmtudagskvöld við Austurbrún í Reykjavík. Kon- an var á leið yfir götuna þegar bíll kom aðvífandi og hún varð fyrir honum. Hún var flutt með- vitundarlaus í sjúkrahús þar sem hún lést. Bifreiðin var leið á vestur Austur- brún og varð konan fyrir bílnum við gangbraut á móts við Hrafnistu. Aðstæður til aksturs vom ágætar en kvöldsólin skein beint á móti ökumanni bifreiðarinnar. Hugsan- legt er talið að hann hafi blindast af sólinni. ' Ekki er hægt að birta nafn hinn- ar látnu að svo stöddu. Slysarann- sóknardeild lögreglunnar í Reykjavík óskar eftir að hafa tal af vitnum að slysinu. Raforkuverð til almenning'sveitna hækkað um 5% um mánaðamótin LANDSVIRKJUN hefur ákveðið að hækka gjaldskrá sína gagnvart almenningsveitum um 5% frá og með 1. júlí næstkomandi. Lands- virkjun hækkaði gjaldskrá sína síðast um áramótin og þá einnig um 5%. Að sögn Aðalsteins Guðjo- hnsen, rafmagnsveitustjóra í Reylqavík, hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um hvaða breyt- ingar verði gerðar á verði til al- mennings í kjölfar hækkunarinn- ar nú. I fréttatilkynningu frá Landsvirkj- un vegna hækkunarinnar segir að um síðustu áramót hafi Þjóðhags- stofnun mælt með því að gjaldskrá Heilsuhælið í Hveragerði: Samkomulag um skipun nýrrar rekstrarstjórnar SAMKOMULAG náðist í gær um að skipa til bráðabirgða nýja rekstrar- sljórn á Heilsuhælinu i Hveragerði. Að samkomulaginu stóð fráfarandi rekstrarstjórn hælisins, sljórn Læknafélags íslands og landlæknis- embættið. Ný rekstrarstjórn hefur það hlutverk að endurskoða ýmsa þætti í rekstrinum, þar á meðal starfsmannahald. Hallgrímur Guðmundsson, bæjar- stjóri í Hveragerði, hafði milligöngu í viðræðum þeirra aðila, sem deilt hafa um rekstur Heilsuhælisins. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði hann að eignaraðilar hælisins hefðu í gær fallist á skipun hinnar nýju rekstrarstjómar, og hún nyti stuðn- ings allra málsaðila. Meðal annars myndi hún ræða endurráðningu yfir- læknanna tveggja, sem sagt var upp fýrir skömmu og yfírlýsingar Lækna- félagsins um brottrekstur þeirra lækna, sem sæktu um störf á hælinu. í rekstrarstjórn Heilsuhælisins sitja nú Pétur Jónsson, deildarstjóri hjá stjórnunarsviði Ríkisspítalanna, Matthías Halldórsson, aðstoðarland- læknir, og Gunnlaugur K. Jónsson, sem sæti átti í fráfarandi rekstrar- • stjóm hælisins. fyrirtækisins yrði hækkuð um 8 til 9% gagnvart almenningsrafveitum, en gjaldskráin hefði þá verið óbreytt ailt síðan í nóvember 1989. Stjórn Landsvirkjunar hefði hins vegar ákveðið að hækka gjaldskrána aðeins um 5% þá um áramótin og láta frek- ari hækkanir bíða þar til síðar á ár- inu. Á grundvelli þeirrar umsagnar Þjóðhagsstofnunar og að höfðu sam- ráði við stofnunina, hafi stjóm Landsvirkjunar á fundi sínum á fimmtudag ákveðið að hækka gjald- skrána um 5% frá og með 1. júlí. I fréttatilkynningunni segir jafn- framt, að gjaldskrárverð fyrirtækis- ins hafi Iækkað vemlega að raun- virði á síðastliðnum árum og verði áætlað meðalverð ársins 1991, komi ekki til frekari hækkana, 46% lægra en meðalverð ársins 1984. Vægi raf- magns í framfærslukostnaði heimil- anna hafi í febrúar síðastliðnum ver- ið 1,2% samkvæmt vísitölu fram- færslukostnaðar, samanborið við 2,6% í febrúar 1984. Aðalsteinn Guðjohnsen, rafmagn- sveitustjóri í Reykjavík, segir að gjaldskrárhækkun Landsvirkjunar hafi mismikil áhrif á almenningsveit- umar í landinu enda séu orkukaup misjafnlega stór hluti útgjalda þeirra, allt frá því að vera um 60% útgjald- anna upp í 70 til 80%. Venjulega hækki veiturnar orkuverðið þegar gjaldskrá Landsvirkjunar sé hækkuð og þá stundum meira en sem nemur hækkun gjaldskrárinnar til að standa straum af aukningu annarra útgjalda sinna, til dæmis vegna dreifikerfis. Aðalsteinn segir að stjórn veitu- stofnana borgarinnar hafi fjailað um gjaldskrárhækkunina á fundi sínum í gær, en ekki hafi þar verið tekin nein ákvörðun um breytingar á gjald- skrá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Búast megi við, að afstaða til þess verði tekin á fundi stjórnarinnar síðar í þessum mánuði. 25 merkjaduflum eytt árlega Landhelgisgæslan telur ástæðu til að vara fólk við merkjaduflum sem finnast við strendur landsins. í duflunum er rauður fosfór en hluti þess breytist I hvítan fosfór sem kviknar í þegar efnið kemst í samband við súrefni. Fólki sem finnur merkjaduflin er bent á að hafa strax samband við lög- reglu eða Landhelgisgæslu sem eyðir duflunum. Landhelgis- gæslan eyðir að mcðaltali um 25 merkjaduflum árlega. Auk þeirra finnast hlutir eins og djúpsprengjur og tundurdufl við strendur landsins. Duflunum er hent úr flugvélum við leit og björgun eða æfíngar og rekur þau að landi. Mörg duflanna rekur að landi á Reykjanesi og norður á Snæfellsnes en einnig norðanlands og annars staðar við Morgunblaðið/Sverrir Þrjár tegundir merkjadufla. strendur. Yfirleitt eru merkjaduflin ekki hættuleg meðan þau eru á ströndinni en ef duflin þorna er hætt við að hvítur fosfór í þeim komist í samband við súrefni og tendrist. Erlendis hafa orðið alvar- leg slys þegar fólk hefur átt við duflin og í sumum tilfellum reynt að opna þau en enn hafa ekki orð- ið alvarleg slys af þessu tagi hér á landi. Engu að síður er ástæða til að vara við duflunum og benda fólki á að hafa samband við lög- reglu eða Landhelgisgæslu sem eyðir duflunum. Landhelgisgæslan eyðir duflunum með því að sprengja þau. í hafinu umhverfis ísland er einnig töluvert af djúpsprengjum og tundurduflum frá því í seinni heimsstyijöldinni en ástæða er til að benda fólki á að efnin í þessum hlutum eru enn virk. Öryggisbún- aður þeirra gæti aftur á móti verið skemmdur. Landssamband fiskeldis- og hafbeitarstöðva: Tillögur ráðherra valda ómældu tjóni í ÁLYKTUN félagsfundar Landssambands fiskeldis- og hafbeitar- stöðva í gær um tillögur landbúnaðarráðherra um aðgerðir í fisk- eldi segir að tillögurnar leysi ekki vandann en valdi ómældu tjóni. Deilt er á ályktanir af skýrslu, sem lögð er til grundvallar ákvörðun- um í málinu, og sagt að höfundur missi af meginkjarna málsins sem sé ófullnægjandi fjármögnun á föstum birgðum, þ.e. bústofni fyrir- tækjanna. Oskað er eftir fundi með forsætis-, landbúnaðar-, og fjár- málaráðherra um stöðu atvinnugreinarinnar. unnar er að höfundur missir af meginkjarna málsins en hann er og hefur verið ófullnægjandi fjármögn- un á föstum birgðum, það er bú- stofni fyrirtækjanna." Þá segir í ályktuninni að Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, hafi lýst því yfir að vandamál fiskeldis- ins yrðu leyst í samráði við fiskeldis- menn. Síðan hafi það gerst einu sinni enn að málið hafi verið af- greitt með einhliða tillögum án þess að nokkuð tillit væri tekið til sjónar- miða og tillagna fiskeldismanna. LFH hefur lagt fram tillögur til ríkisstjórnarinnar um nauðsynlegar aðgerðir í fiskeldi. Orðrétt segir í ályktuninni: „Rösklega unnin skýrsla sem lögð var til grundvallar ákvörðunum í málinu, er byggð á þekktum stað- reyndum, en þær ályktanir sem skýrsluhöfundur dregur af stað- reyndunum eru oft byggðar á veik- um grunni og vanþekkingu á eðli fiskeldisins þannig að ýmsar álykt- anir eru beinlínis rangar. Ályktun skýrsluhöfundar um að fiskeldi sé í heild óarðbært og verði áfram er röng. Framleiðslukostnaður í skýrslunni er byggður á niðurstöð- um síðustu ára og segir ekkert um núverandi stöðu og fyrirsjáanlega iækkun framieiðslukostnaðar. Það alvarlegasta við niðurstöður skýrsl-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.