Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 32
32 MÖRÓUNBLAÐID lAÚGARDAtíUR 8. JÚKÍ Í991 Minning: Bæring Elísson frá Bjarnarhöfn Fæddur 9. maí 1899 Dáinn 30. maí 1991 Þá hefir nú þessi góði vinur minn leyst hinar jarðnesku landfestar. Farinn á vit nýrrar veraldar, sem hann trúði og treysti á og var ekki í vafa um að biðu sín verkefni á æðri vettvangi. Það var ekki langt í milli þeirra hjóna og eftir að hún lést voru mikil umskipti á honum. Bæring verður ekki lýst í fáum orðum. Saga hans og fjölskyldu er svo samofin þjóðlífinu, samofin því að vinna landi og lýð gagn að betur varð ekki á kosið. Vinnulúnar hend- ur hans og hugurinnn þar á bak við, sögðu samtíðinni margt og þeg- ar hann var í Bjamarhöfn var gæfa margra að eiga þau hjónin í ná- grenni. Blómaskeið Bærings var á þeim tíma sem menn urðu að láta hendur standa fram úr ermum ef þeir áttu ekki að verða undir í kreppunni og einmitt þá lyfti hann björgum og það mun Bjamarhöfn lengi sýna. Og þegar hann flutti til Stykkishólms, naut samfélagið þar hans og fjölskyldu í ríkum mæli. Þeir verða ekki taldir sem urðu þeirra gæfu aðnjótandi að eiga hann að vini, hafa leiðsögu hans og hjálp gegnum árin og mun það ekki tí- undað og ekki víst að það þjónaði nokkrum tilgangi. Eitt veit ég að það sem hann og þau hjón gátu orðið nágrönnum sínum að liði, var aldrei alheimt að kvöldi. Og ekki veit ég til þess að hann skildi við ævinnar æðsta verk í annars hönd og ekki meir um það. Hvort sem ég heimsótti þau hjón í Bjamarhöfn, Borg eða dvalar- heimilið var góðvildin og hlýjan sama. Þegar þau fóru á dvalarheim- ilið vissu þau að dagsverkinu var lokið. Hann átti að vissu leyti erfitt með að trúa því að svo væri, en undir handleiðslu og hendi Guðs var sjálfsagt að beygja sig. Drottinn hafði verið þeim góður frá fyrstu tíð. Bæring var aldrei í vafa um að mesta hamingjusporið var stigið þegar fundum þeirra Árþóm Frið- riksdóttur bar saman, gæti hann aldrei þakkað til fulls. Fyrir aðra og sveitarfélagið vann Bæring með því hugarfari að eng- inn tapaði á vinnunni hans og væri gaman að hægt væri að segja slíkt um sem flesta. Opinbemm störfum sinnti hann bæði hér og í Helgafellssveit, var í hreppsnefnd og mörgum öðrum nefndum og skyldurækinn var hann. Þetta er nú í fáum orðum mynd- in sem ég á í huga mér af honum. Góð mynd af sönnum þegni. Um allt að hálfri öld naut ég hans sam- fýlgdar og hlýju og það var ábyggi- lega okkur báðum unaðarauki. Nú við þessi tímamót, vil ég þakka Bæring trausta og góða sam- fylgd. Ég kveð hann þeirri kveðju sem hann sagði svo oft: Guð veri með þér. Þökk og aftur þökk. Drottinn blessi minningu góðs samferða- manns. Arni Helgason í dag kveðjum við afa minn Bæring Elísson. Hann andaðist á St. Franciskusspítalanum í Stykkis- hólmi 30. maí, eftirrúmlegatveggja mánaða legu. Örþreyttur og slitinn leggst hann nú til hinstu hvíldar. Já, löng er orðin leiðin hans afa, rúm 92 ár. Farsæl lífsganga á enda runnin. Afi minn og amma Árþóra Frið- riksdóttir hófu sinn búskap í Reykjavík. Þar stundaði afí þá vinnu sem til féll hverju sinni. Þar til sumar eitt hann fer í vegavinnu upp í Borgarfjörð. Þá kemur þar til hans maður sem afa var ókunn- ugur nema mvað hann vissi nafn hans og að hann byggi í Reykjavík. Sá ókunnugi biður afa að geyma fyrir sig leðurskjóðu eina er hann hafði með sér. Afí tekur við skjóð- lést 7. júní sl. t STEFÁN BJÖRNSSON fyrrum bóndi á Grund t Svarfaðardal, Dagbjört Ásgrímsdóttir. t Ástkær unnusti minn, faðir, bróðir, son- ur og stjúpsonur, KARL JÓHANN SIGHVATSSON, tónlistarmaður, sem lést af slysförum 2. júni síðastlið- inn, verður jarðsettur frá Dómkirkjunni mánudaginn 10. júní kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á einkareikning Orgel- sjóðs Þorlákskirkju nr. 7817 í Landsbankanum, Þorlákshöfn. Sigríður H. Pálsdóttir, Orri Grtmur Karlsson, Sigurjón Sighvatsson, Sighvatur Karlsson, Ragnar Ingólfsson og vandamenn. t Elskulegur, ÞORLÁKUR EYJÓLFSSON, Hryggjarseli 11, áður Bragagötu 23, andaðist í Landakotsspítala fimmtudaginn 6. júní. Aðstandendur. unni og bindur hana á sig innan klæða. Þar var skjóðan svo um sum- arið. Um haustið kemur sá ókunn- ugi aftur að sækja skjóðuna. Hann spyr þá afa hvort hann viti hvað skjóðan hafí að geyma. Nei, það vissi afí ekki. Sá ókunnugi opnar þá skjóðuna og sýnir honum. Var hún þá full af peningum. Svo er það um veturinn að afí sér Bjamarhöfnina auglýsta til sölu. Hann fór þá að velta fyrir sér hvar hann fengi peninga til kaupanna ef af þeim gæti orðið. Þá kom skjóð- an góða upp í huga hans. Jú, afí leitar þennan ókunnuga mann uppi og strax fékk hann lánaðar \ þús- und krónur en það var kaupverð býlisins. Þessi saga segir meira en mörg orð um það traust sem afí hafði áunnið sér, þá ungur maður. Árið 1932 fluttu þau síðan til Bjamarhafnar í Helgafellssveit. Þar bjugga þau ásamt bömum sínum pg reyndar oft mörgum öðmm. Störf til sveita voru önnur í þá daga, ekki vom stórvirkar vinnuvélar eða önnur nútímaþægindi. Þar var mik- il erfíðisvinna, bæði á jörðinni og einnig heyfong í eyjum. Það er erfítt fyrir ungt fólk í dag að setja sig í spor þeirra er þá hófu búskap, með hendumar einar að vopni. Afí og amma áttu 19 góð ár í Bjamarhöfn en þaðan lá leiðin að Borg í Stykkishólmi. Þar héldu þau áfram búskap. Auk þess stundaði afí oft aðra vinnu samhliða bú- skapnum. Nú þegar afí hefur kvatt okkur er margs að minnast frá bamsaldri og til dagsins í dag. Við afí áttum góðar stundir uppi á Stebbabletti við leik og störf. I kringum lömbin sem voru honum svo hugleikin, ég þá smá stelpa. Fyrsta sinn sem ég vann launaða vinnu var hjá afa við afskurð á netum. Reyndar skar ég nú ekkert af. Ég hélt í einhveija spotta og fékk útborgað. Að fá út- borgað í fyrsta sinn var stór stund. Mörg aðfangadagskvöld áttum við hjá afa og ömmu á Borg. Ég man þann spenning sem fylgdi því rétt fyrir jólin, hvort búið væri að bjóða. Já, við áttum margar góðar stundir á Borg. Afí var athafnamaður mikill, vann öllum stundum. Enda vildi hann að hlutimir gengu. Hann sagði oft „ég vil að það gangi“. Þetta höfum við systkinin oft sagt á góðri stundu og síðan fýlgir mik- ill hlátur. Þá hugsum við öll til afa og um okkur fara hlýjar tilfínning- ar. Hann hafði yndi af því nú síð- ustu stundir að sjá fólk vinna, svo rík var vinnan í hans huga. Fyrir 3 árum fluttu þau afí og amma á Dvalarheimili Stykkis- hólms. En fyrir rúmu ári kvaddi amma okkur. Þegar amma mín dó missti afí mikið, stór hluti af afa fór með ömmu. Nú síðustu 8 mánuði sem afí bjó á dvalar- og hjúkrunarheimilinu eyddum við afí saman hluta úr degi. Sá tími var okkur báðum mikils virði. Þökk sé þeim sem á bakvið það stóðu. Síðasta ár var afa mínum erfítt. Þess vegna vil ég hér þakka sér- staklega öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til þess að gera honum ævikvöldið ánægjulegra. Afí átti sér uppáhalds vísu sem hann hafði mikið dálæti á. Vísan er svona. Ofærðin er alltaf jöfn óðum kraftar dvína blasir nú við Bjamarhöfn og bráðum fer að hlýna. Kannski segir þessi vísa okkur eitthvað um það hversu sterkar rætur hann átti úti í Bjamarhöfn. Hafí elskulegur afi minn hjartans þökk fyrir allt sem hann var mér. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.“ (V. Briem.) Hanna Jónsdóttir Það er orðin fost venja hjá mér að helga fæðingardag formæðra og forfeðra minna minningunni um framliðna vini mína. Ég hef séð gleðina ljóma í augum þeirra, vegna þess, þeir fínna mjög vel að þeim er ekki gleymt, þeir Minning: • • Om Amarsson Fæddur 20. mars 1969 En þegar þið hlægið og syngið með glöðum Dáinn 29. maí 1991 hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóssins: Það var hringt í okkur á miðviku- dagsmorgun og okkur tilkynnt að besti vinur okkar væri dáinn. Við sátum sem lömuð og spurðum okk- ur sjálf „af hveiju Össi“? Við gátum ekki trúað því og vonuðumst til að hann myndi ganga inn um dymar og heilsa okkur, hress eins og ævin- lega. En hann kemur ekki aftur, hans tími var kominn. Þeir deyja ungir, sem guðimir elska mest. Ljúfur drengur hefur verið tekinn frá okkur, drengur sem allir elsk- uðu. Við skiljum ekki þegar svona ungt fólk er tekið frá okkur. En Erni er ætlað að sinna mikilvægum verkefnum annars staðar. Elsku Amar, Hanna, Guðni, Gunna, Keii, Steinunn og Siggi minn, við styrkjum ykkur í ykkar miklu sorg. Öðrum aðstandendum Amars okkar sem einnig eiga um sárt að binda sendum við innilegar vinarkveðjur. Þó ég sé látinn harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta; ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snert- ir mig og kvelur, þótt iátinn mig haldið... Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur. Og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfír lífínu... (Neistar frá sömu sólu.) Vinarkveðja, Finnur og Hulla. Össi frændi er dáinn. Þegar við fréttum um lát hans og gerðum okkur grein fyrir að hann kæmi ekki aftur til okkar fóra minning- amar að streyma. Allar þær stund- ir sem við áttum með honum, komu til okkar ljóslifandi. Við minnumst tímanna sem við eyddum með hon- um heima á Ytra-Hrauni og göngu- ferðanna sem hann fór með okkur um landareignina. Þar fræddi hann okkur um allt sem hann vissi um landið og hafði greinilega áhuga á sögu þess og náttúrunni í heild sinni. Lífsgleði, skopskyn og einlægni eru þeir þættir sem koma fyrst upp í huga okkar er við minnumst Össa. Alltaf sjáum við hann fyrir okkur með bros á vör, enda er varla hægt að segja að við höfum hitt hann öðruvísi. bindast manni enn traustari bönd- um hreinnar og fölskvalausrar vin- áttu. Framliðnir þrá þetta samstarf við okkur, ég tel þetta fagurt dæmi einlægni við framliðna ástvini, en fe^urst er að biðja fyrir sálum fram- liðinna. Umhirða leiðanna í kirkjugarðin- um skiptir líka verulega miklu máli og vitjun að leiðunum. Þar dveljast margir jarðbundnir andar og með skyggnigáfunni má sjá á annað- hvort reika fram og aftur hvíldar- lausa, frá einu leiðinu til annars, eða sitja á leiðum sjálfra sín, og stundum er eins og þeir séu sár- hryggir, Fyrir nokkru varð mér gengið fram hjá leiði, í einum af kirkju- görðum Reykjavíkur, sem var mjög úr sér gengið. Ég gat séð, að einu sinni hafði það verið fallegt, en nú virtist svo sem allir hefðu gleymt hinum framliðna. Ég sá, með skyggni minni, mann, 50-60 ára, stóð við leiðið. Ég færði mig nær honum og hann virtist skilja að ég gæti séð hann og heyrt til hans. Það er algengt um framliðna menn, að þegar þeir séu orðnir lausir við ringlið, sem kemur á eftir andlát- inu, þá geti þeir séð, hvort sá mað- ur, sem er frammi fyrir þeim, sé miðill eða ekki. Maðurinn sagði við mig: „Það eru allir búnir að gleyma mér.“ Þetta varð mér umhugsunar- efni. Hvað það er algengt að svipað gerist: engu er jafn auðvelt að gleyma og manneskjunum, af því að ævinlega er einhver þess albúinn að koma í stað þess framliðna og þeir eru fáir, sem hugsa sér, að sá, sem svo mikið gerði fyrir þá einu sinni, sitji oft á leiði sínu, eftir að hann er vaknaður í andaheiminum, og sjái það, að þeir, sem hann lagði sig í sölumar fyrir í jarðneska líf- inu, hafí nú gleymt honum. Ég spurði, hvort hann hefði heimsótt konu sína og börn á heimilum þeirra, hann játaði því. Við íslensk- ir spíritistar og fyrram fundargestir miðilsins Hafsteins Björnssonar vit- um að menn flytja allt með sér inn í eterheiminn nema jarðlíkamann: alla hæfileika sína, skapgerðina, persónuleikann, minnið, vináttu- böndin, þetta eru allt eiginleikar eterlíkamans, sem voru líka eigin- leikar hins jarðneska líkama. Þessi grein er skrifuð í minningu góðvinar míns, sem flutti yfír til hærri sviða hinn 30. maí sl. nýlega orðinn 92 ára að aldri. Eg sendi honum kveðju hér í Morgunblaðinu 9. maí 1989, vegna níræðisafmælis hans og vísa til hennar um nánasta hið jarðneska umhverfís hans. Ég votta börnum hans og öðrum nánum ættingjum mína dýpstu samúð. Helgi Falur Vigfússon Eftir að hann hóf nám við Iðn- skólann í Reykjavík fengum við að sjá hann oftar. I göngum sínum um höfuðborgarsvæðið bankaði hann oft upp á hjá okkur og gladdi okk- ur með nærveru sinni. Oft fengu margir brandaramir að fjúka í þeim heimsóknum. Einnig rákumst við oft á hann óvænt í bænum og allt- af gaf hann sér tíma til að stoppa og spjalla. Þó svo við hefðum kosið að eiga mikið fleiri stundir með honum Össa okkar erum við innilega þakk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.