Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 43
JOHOM y Asgeir Zelezny ÍÞRÖmR FOLK ■ ÁSGEIR Sigurvinsson knatt- spyrnukappi úr Vestmannaeyjum hefur stofnað ferðaskrifstofu í Þýskalandi ásamt Davíð Jóhanns- syni. Ferðaskrifstofan nefnist Lundi Tour Reisen og hefur aðset- ur í Hamborg og er Davíð fram- kvæmdastjóri. Þetta kemur fram í blaðinu Fréttir sem gefið er út í Eyjum. ■ JÓHANNES Guðmundsson, 88 ára, úr HSK, mun taka þátt í Kappamóti öldunga í Laugardal í dag. Jóhannes keppir í 100 m htaupi, en hann á íslandsmet í í 80 ára flokki, 19,6 sek. og í 85 ára flokki^ 19.8 sek. ■ PETUR Óskarsson úr 2. deild- arliði Fylkis var úrskurðaður í eins leiks bann af Aganefnd KSÍ á fundi á þriðjudaginn vegna brottvísunar í leik Fylkis og Grindavíkur 30. maí. Hann tekur út leikbann í bikar- leiknum gegn Bolungarvík í dag. ■ KARL Guðlaugsson, sem leik- ið hefur með ÍR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, hefur ákveðið að leika með Snæfelli í Stykkishólmi í úrvalsdeildinni næsta vetur. ■ BIRGIR Öm Birgisson, sund- maður úr Vestra, hlaut Gíslabikar- inn fyrir besta afrekið á Gíslamót- inu sem fram fór á ísafirði 25.-26. maí síðastliðinn. Mótið er árlegt og er haldið til minningar um Gísla Kristjánsson sem var forstöðumað- ur Sundhallar ísafjarðar og sund- kennari um áraraðir. ■ JAN Zelezny frá Tékkósló- vakíu náði í vikunni fjórða besta árangri eftir að spjótinu var breytt — er hann kastaði 90,40 m á móti í Bratislava. Þetta er tæpum metra lengra en heimsmet Tékkans, sem hann átti í sex daga í fyrrasumar, en Finninn Seppo Raty á nú heims- metið, kastaði 96,96 m um sl. helgi. ■ RÁTY notar nýtt sænskt spjót, en Zelezny ungverska Nemeth-svo- kallaða. „Hið ótrúlega kast Ratys ' hræddi mig ekki. Það er ekki víst að það met verði staðfest," sagði Zelezny eftir mótið. ■ RON Atkinson, framkvæmda- stjóri Sheffield Wednesday, sagði í fyrradag starfí sínu lausu og tók síðan við stjóminni hjá Aston Villa > gær. ■ atkin- FráBob SON skrifaði undir Hennessy nýjan samning, sem ÍEnglandi gilti til 1993, við Wednesday, í síðustu viku og forráðamenn flags- ins lýstu því yfir í gær að þeir myndu fara í mál við hann. ■ DAVID Pleat hefur ákveðið að taka tilboði Luton um að geras' framkvæmdastjóri liðsins á ný. ■ LEEDS hefur boðið Derby þijár milljónir sterlingspunda í framheijann Dean Saunders hjá Derby. Mörg félög hafa áhuga á honum, en Howard Wilkinson, stjóri Leeds, hefur tjáð forráða- -mönnum Derby að hann sé tilbúinn að hækka hvert það tilboð sem fé- laginu berist annars staðar frá — hann sé staðráðinn að næla í Saunders. ■ LEEDS hefur þegar keypt Wallace-tvíburana, Rodney og Ron, frá Southampton og Tony Dorigo frá Chelsea. ■ CARL S/intíhefur skrifað undir nýjan samning við Leeds til tveggja ára. ■ NORWICH borgaði metupp- hæð þegar félagið keypti miðheij- annDarren Beckford frá Port Vale í gær á eina milljón stelings- pund. Hann er 24 ára og skoraði 22 mörk sl. keppnistímabil. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 Morgunblaðið/SigfOs G. Guðmundsson Ágúst Gylfason, leikmaður Vals, í baráttu við Eyjamanninn Elías Friðriksson. Ágúst leikur gegn fyrrum félögum sínum í Fram á Laugardalsvellinum á mánudagskvöldið. „Leikgleðina hefur vantað hjá leikmönnum Fram“ - segir Hólmbert Friðjónsson, sem spáir í leiki helgarinnar í 1. deild „BYRJUNARSPENNA hefur sett sinn svip á leikina í fyrstu tveimur umferðunum í 1. deild- arkeppninni. Leikmenn liða- anna eru í mjög góðri leikæf- ingu, en það hefur ekki komið fram íleikjum liðanna enn sem komið er,“ sagði Hólmbert Friðjónsson, þjálfari 21 árs landsliðsins, sem spáir f leiki helgarinnar. Hólmbert sagði að upp úr þessu færu liðin að leika betri knatt- spyrnu. „Blikunum tókst það ágæt- lega gegn KA á dögunum, en þess má þó geta að mótspyman var ekki ekki mikil." Tveir toppleikir verða um helgina. Víkingar fá KR-inga í heimsókn og Valsmenn sækja Framara heim á Laugardalsvöllinn. ÚRSLIT Knattspyrna Mjólkurbikarkeppnin - 2. umferð: Akranes - Árvakur.............5:0 Bjarki Gunnlaugsson (27.), Karl Þórðarson (28.), Alexander Högnason (34.), Amar Gunnlaugsson (42.), Brandur Siguijónsson (78.). BStaðan [ leikhléi, 4:0. Áhorfendur: Um 400. Yfirburðir Skagamanna voru miklir, sem sést best á þvf að að Árvakur komst næst marki þeirra þegar þeir fengu sina einu homspyrnu í leiknum, í síðari hálfa- leik. Besti maður vallarins var Karl Þórðar- son, 36 ára. Dalvík - Völsungur............2:1 Gísli Davíðsson, Ágúst Sigurðsson - Hörð- ur Benónýsson. ■ Staðan var, 1:0, fyrir Dalvík í leikhléi. Áhorfendur: 120 greiddu aðgangseyri. Tennis Opna franska meistaramótið Einliðaleikur karla - undanúrslit: 4-Andre Agassi (Bandaríkj.) vann 2-Boris Beeker (Þýskalandi) 7-5, 6-3, 3-6, 6-1. !Wim Courier (Bandaríkj.) vann 12-Michael Stich (Þýskalandi) 6-2,6-7 (8-10), 6-2,6-4. ■Andre Agassi og Jim Courier em fyrstu Bandarikjamennimir sem leika til úrslita f opna franksa meistaramótinu 37 ár. Báðir unnu þeir Þjóðveija, sem vom í sigurliði V-Þýskalands í Davis Cup. KR með sterkan hóp „KR-ingar eru með mjög jafnan og sterkan hóp leikmanna. Pétur Pétursson er kominn á ferðina á ný og styrkir hann KR-liðið mikið. Þá er Ragnar Margeirsson að ná sér á strik eftir meiðsli. Þessir tveir leikmenn skipta KR-liðið miklu máli og gera sóknarleik liðsins grimmari. Víkingar eru með skemmtilega blöndu af leikmönn- um. Varnarleikur liðsins er þó ekki nægilega sterkur," sagði Hólmbert. Spáin: 0:1. Leikgleóina vantar hjá Fram „Það hefur verið dauft yfir leik Framliðsins og sóknarmenn þess hafa ekki náð að skora. Leikgleðina hefur vantað hjá íslandsmeisturun- um, þannig að Framárar hafa ekki náð að sýna hvað í þeim býr. Þeir mæta örugglega grimmir til leiks gegn Valsmönnum, enda skiptir leikurinn miklu máli fyrir þá. Þor- valdur Örlygsson mun styrkja Framliðið, en spurningin er hvort að hann falli inn í leik liðsins í fyrstu leikjum sínum með því. Það tekur alltaf tíma að aðlaga sig nýj- um aðstæðum og það er erfitt fyrir Þorvald að byija gegn Val. Vals- menn hafa sýnt mikla baráttu og hafa nælt sér í öll þau stig sem hafa verið í boði, en stigin skipta miklu máli í harðri baráttu eins og er í 1. deild. Valsmenn eru með marga mjög góða einstaklinga, en þeir hafa þó ekki sýnt þá knatt- spyrnu sem þeir geta og hafa hæfi- leika til að leika.“ Sþáin: 2:1. Vantar samvinnu hjá KA „Leikmenn KA ætla sér örugg- lega sigur gegn Stjörnunni - til að sitja ekki eftir. Þeir verða að vinna hvernig svo sem þeir fara að því. KA-liðið hefur ekki verið nægilega samstillt og leikmenn verða að vinna saman til að ná árangri. Stjörnumenn eru á uppleið, eftir að meiðsli hafa háð leikmönnum." Spáin: 1:0. Hólmbert spáir jafntefli í leik FH og ÍBV. „FH-ingar hafa ekki náð sér á strik og Eyjamenn verða þeim erfiðir á Kaplakrikavellinum. Þeir koma til leiks til að ná í stig til að halda áfram að vera með í topp- slagnum." „Víðismenn hafa átt í vandræð- um eins og leikmenn Fram og FH og þurfa þeir sigur til að sitja ekki eftir. Þeir eru alltaf erfiðir heim að sækja og hef ég trú að heimavöllur- inn verði þeim dýrmætur í baráttunni við vaxandi lið Breiða- bliks,“ sagði Hólmbert, sem spáir Víði sigri, 2:1. Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson Hólmbert Fridjónsson, þjálfari 21 árs landsliðsins. KNATTSPYRNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.