Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 17 Afmæliskveðja: Yala Thoroddsen Vala er fædd 8. júní 1921. Ég kynntist henni 1938 er við vorum á sex vikna námskeiði á Laugar- vatni, 42 stúlkur, allt ungar heima- sætur og flestar lofaðar og voru víðs vegar að af landinu. Mat- reiðslukennari var fröken Ólöf Jóns- dóttir mjög flink í matargerð enda kenndi hún matreiðslu á mörgum bestu húsmæðraskólunum og mikil- hæfur kennari, kunni að stjóma vel sínum nemendum og fékk allt það besta út úr öllum stúlkunum, hverri fyrir sig. Eins og gefur að skilja þá vorum við ólíkar og ólumst upp við misjöfn skilyrði, bæði í sveit, bæjum og sjáv- arþorpum. Elsta stúlkan var 25 ára, yngstar voru þær Ólöf Guð- mundsdóttir frá Fáskrúðsfirði og Ingibjörg Finnsdóttir frá ísafirði. Bárum við mikla virðingu hver fyr- ir annarri og skólastjóra og hjúkr- unarkonunni Ólöfu sem var siða- meistari við borðhaldið og kenndi okkur að þvo þvott og ganga frá honum eftir kúnstarinnar reglum, en það þætti ekki gott nú til dags. Þá þekktust ekki frystikistur eða ísskápar, snjó og salti var blandað saman og voru búnir til fínir ísbúð- ingar úr því. Vala var alltaf þessi prúða og góða stúlka og kom alltaf góðu til leiðar, og ef eitthvað mistókst við matreiðslu eða uppvartingu, þá tók Vala alltaf öll mistök á sig. Vala giftist 4. apríl 1941 hinum mikla hæfíleika- og stjórnmála- manni Gunnari Thoroddsen, sem er yngsti þingmaður sem hefur ver- ið hér á alþingi, og var oftast þing- maður til 1983 að undanskildum þeim árum sem hann var sendi- herra í Danmörku og hæstaréttar- dómari í nokkur ár. Gunnar heitinn var ábyrgur og mikilhæfur stjórn- málamaður og sá besti sem íslenska þjóðin hefur átt fram á þessa daga og er þá mikið sagt. Því við höfum átt marga góða eins og Jónas frá Hriflu, Bjama Ben. og Ólaf Thors. Jónas lét byggja alþýðuskóla og húsmæðraskóla og bjó unga fólkið lengi að því og var það gott vega- nesti út í lífíð. Og væri bara óskandi að eins mikil kennsla væri í skólum nú og var áður. Þá fóru nemendur í skóla af því þeir höfðu áhuga, en núna eru margir píndir í skóla upp á sport og ríkið hjálpar til á öllum sviðum og allt of mikið. Vala á fjög- ur efnileg börn og átta barnabörn og eru mikið tengsli á milli heimil- anna. Vala hefur ekkert unnið úti síðan hún giftist, enda em bömin hennar miklir og góðir þjóðfélags- þegnar og hafa aldrei verið með lykla um hálsinn. Gunnar Thorodd- sen lést 1983. Ég óska Völu allra heilla í nútíð og framtíð. Regína Thorarensen STÓLAR, BORÐ LEGUBEKKIR, HJOLABORÐ OG FLEIRA Gullfalieg garðhús- gögn í sumarbú- staðinn, blómagarð- inn eða garðstof- una. Sterk og góð. Þau eru litekta og þola að standa úti allan órsins hring. Gœðavara ó góðu verði. Þriggja óra óbyrgð. Opið laugardaga kl. 10-16. • FAXAFEN 12 • SÍMI 38000 • REYKVISK HEIMILI, FLOKKIURGANGINN Þetta fer á gámastöðvar en alls ekki I sorptunnuna: I sumarbyrjun tóku íbúar höfuöborgarsvæöisins upp nýja umgengni við úrgang - ný vinnubrögð og nýjar reglur. Fullkomin flokkunarstöö úrgangs - SORPA - er tekin til starfa. • Málmhlutir • Grjót og steinefni (smærri farmar, stærri farmar fara á „tippa") • Spilliefni hvers konar (þau má einnig afhenda í efnamóttöku og á öörum viöurkenndum stöðum s. s. lyf hjá apótekum og rafhlööur á bensínstöðvar) Þetta má afhenda á gámastöðvum en er óæskilegt í sorptunnuna: • Prentpappír • Garðaúrgangur sem ekki er notaður í heimagarði | • Timbur (smærri farmar) | Hvert heimili og hver vinnustaöur þarf aö temja sér strax nauösynlegar flokkunaraöferöir ef árangur á aö nást. Viö höfum skyldum aö gegna gagn- vart iífríkinu og komandi kynslóðum. Ellilífeyrisþegar í Reykjavík geta hringt í hverfisbækistöðvar gatnamála- stjóra ogfengið sóttan garöaúrgangsem erí pokum við aðkomu lóöar. Sorppokar veröa hirtir eins og áöur ef þeir eru settir endrum og eins viö hliö sorpíláta. Þeir sem þurfa hins vegar oft aukapoka veröa aö nota sér- merkta poka frá Reykjavíkurborg sem eru til sölu á bensínstöðvum. Upplýsingar fást hjá skrifstofu borgarverkfræðings í Reykjavík, sími 1 80 00, hjá hreinsunardeild Reykjavíkurborgar, sími 1 32 10 og hjá SORPU, sími 67 66 77. Tökum á fyrir hreinní framtíð Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.