Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 11
11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 Kammersveit Seltjarnarness Kammersveit Selljarnarness __________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Kammertónleikar Kammer- sveitar Seltjarnarness með verkum eftir Mozart, voru haldnir í Selt- jarnarneskirkju sl. sunnudag en sakir veikinda undirritaðs, er um- fjöllun þessi síðar á ferðinni en venja er og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á þessari töf. Það voru strengjafélagar úr Kammersveit Seltjarnarness og Blásarakvintett Reykjavíkur, sem léku á þessum tónleikum og á efn- isskránni voru kvartettar og kvint- ettar fyrir blandaða hljóðfæraskip- an og ein dúó sónata. Mozart samdi sjö kammerverk slíkrar gerðar og eina raddsetningu. Tónleikarnir hófust á Kvartett í F-dúr K. 370, sem er fyrir óbó, fíðlu, víólu og selló. Þetta er metn- aðarfullt verk, samið fyrir óbósnill- inginn Friedrich Ramm og því að mörgu leyti hreint einleiksverk fyrir óbó, þó Mozart haldi stren- gjaleikurunum við efnið og verkið talið í svipuðum gæðaflokki og klarinettukvintettinn frægi. Daði Kolbeinsson lék verkið mjög vel og sömuleiðis strengjaleikararnir, sem voru Zbigniew Dubik, Guð- mundur Kristmundsson og Ric- hard Talkowsky. Kvintett í Es-dúr K. 407, fyrir horn, fiðlu, tvær víólur og selló, var annað viðfangsefni tónleik- anna. Verk þetta er sérkennilegt. Fyrsti kaflinn er nálægt því að vera hornkonsert og að frádregn- um hæga kafianum, sem er tilfinn- ingaþrunginn, er heildarmynd verksins gamansöm og stríðin, rétt eins og hann sé á stundum að gera at í hljóðfæraleikurunum. Hvað um það, þá var flutningur verksins frábærlega vel útfærður hjá Jósef Ognibene svo og strengj- unum en til viðbótar þeim sem fyrr er getið, bættist í hópinn Hilde van Caspel. Flautukvartettinn K. 285 er frægur fyrir hinn undurfagra mið- þátt (Adagio), þar sem syngjandi tónn flautunnar er einráður en strengirnir leika „pizzicato" (plokka strengina) undir. Verkið var mjög vel leikið af Bernhard Wilkinson og strengirnir voru góð- ir en fyrir Dubik var nú mættur Andrzej Kleina. Þarna gerðist það, sennilega vegna hitabreytinga í kirkjunni, að tónstaðan (intonati- on) raskaðist hjá strengjunum, sem eðlilega var mest áberandi á lágstrengjum sellósins. Dúóinn K. 292, sem einnig er nefndur sónata, fyrir fagott og -selló var einnig markaður erfiðri tónstöðu en að öðru leyti vel flutt- ur af félögunum Hafsteini Guð- mundssyni og Richard Talkowsky. Tónleikunum lauk með klari- nettukvintettinum fræga K. 581 og þar lék Einar Jóhannesson á klarinettið af glæsibrag. Þetta er eitt af fegurstu verkum Mozart, þar sem snilldar tónhugmyndir skara hveija aðra á svo einlægan og opinskáan máta, að eindæmi er. Ekki er að finna hjá Mozart ótta við að vera „banal“ eða þörf til að dyljast, hann þolir að vera lesinn niður í kjölinn, hann upphef- ur ekki sjálfan sig eða reynir að taka sig út með frumlégum uppá- tækjum, hann var aðeins opinskár og hjartahreinn snillingur. Fyrir þau meistaraverk, sem leikin voru á þessum tónleikum, svo og ágætan flutning, voru þess- ir tónleikar stórkostleg búbót á annars mjög gjöfulli tónleikaver- tíð, sem senn fer að ljúka. ■ SÆNSKI gítarleikarinn og tónskáldið Christer Persson mun flytja tvö tónverk, er hann hefur sjálfur samið, í Nýiistasafninu sunnudaginn 9. júní kl.20. Tónverk Persson verða flutt við texta eftir sænska skáldið og mynd- listarmanninn Bengt Adlers. Pers- son, sem er sjálfmenntað tónskáld, lærði á klassískann gítar við Tón- listarskólann í Malmö en þaðan útskrifaðist hann árið 1975. ■ SÉRA Ingólfur Guðmundsson hefur verið ráðinn héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmum. Hann verður settur inn í embættið við messugjörð nk. sunnudag, 9. júní, kl. 11.00. Hin nýi héraðsprestur prédikar, en prófastarnir í Reykja- víkurprófastsdæmum ásamt sr. Jakobi Ágúst Hjálmarssyni þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur und- ir stjórn Dómorganistans Marteins H. Friðrikssonar. (Fréttatilkynning-) ■ ORLOF húsmæðra i Hafnar- firði verður á Laugarvatni dagana 8. til 14. júlí nk. Laugarvatn hefur verið orlofsstaður í nokkur ár fyrir húsmæður frá Hafnarfirði og hefur aðsókn verið mjög góð, enda sótt af húsmæðrum á öllum aldri. Tekið verður á móti greiðslu og umsókn- um 19. júní í safnaðarheimili Frí- kirkjunnar við Austurgötu, kl. 18-20. Verð kr. 9.000 með ferðum. ■ JÚNI hraðskákmót Taflfélags Kópavogs verður hald- ið sunnudaginn 9. júní kl. 14.00. Teflt verður í sal TK að Hamra- borg 5, 3. hæð. ARC 754 MW/FM sterió útvarp með segulbandi, sjálfvirkur stoppari á snældu. Bassa og hátóna stilling. Magnari er 2x10 wött. Stafrænn gluggi sem sýnir bylgjulengd og fleiri upplýsingar. Tengi að framan fyrir CD geislaspilara. ARC439 M W/FM sterió hágæða útvarp með segulbandi. Spólar sjálft til baka. Sjálfvirkur leitari á bylgju og „skanner“ sem finnur allar rásimar og spilar brot af hverri þeirra. - Stafrænn gluggi er sýnir bæði bylgjulengd og klukku. ARC 710 MW/FM sterio útvarp og segulband. Sjálfvirkur leitari og „skanner", magnari 2x12 wött. Frábær hljómgæði. Tækið er með klukku og sérstaklega skemmtilegri lýsingu í tökkum. % ARC180 Alvöru tæki MW/FM sterió útvarp og segulband. 2x25 wött. Upplýstur stafrænn gluggi. Sjálfvirk spólun á snældu. Tenging fyrir CD geislaspilara. Útgangur fyrir fjóra hátalara með fullkomið steró innbyrgðis. (09 njót'ð ^ að hl , gó& ' verslanir oM* Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 .ismriym rarera»m kiilý íbúóar- og sumarhús byggö af traustum aðilum. Leitaöu upplýsinga og fáóu sendan bækling. S.G. Einingahús hf. Selfossi, sími 9S-22277

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.