Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 08.06.1991, Blaðsíða 33
33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1991 RagnhHdur Oskars dóttir - Minning Fædd 21. desember 1935 Dáin 31. maí 1991 Afi minn og amma, Óskar og Guðrún í Bjarnabænum á Sauðár- króki, eignuðust þijú börn. Elst er mamma mín Ingibjörg, næstur Bjarni Páll og yngst Ragnhildur, alltaf kölluð Lóa. Þegar ég var lítill lést amma Guðrún aðeins 55 ára gömul úr krabbameini en þá var Lóa frænka 20 ára gömul, nú 35 árum síðar fellur dóttir hennar úr þessum sjúk- dómi á svipuðum aldri. A þessum árum bjó fjölskylda mín í suðurbænum, bræður mínir tveir_ nokkrum árum yngri en ég og Óskar bróðir nokkrum árum eldri. íbúðarbyggð var þá í mótun þarna í syðri bænum og þótti mér fýsilegra að leika mér í ytri bænum á Króknum þar sem afi bjó og sótti ég þangað seint og snemma. Lóa frænka og Palli frændi bjuggu þá heima hjá afa í gamla Bjarnabæn- um við Skógargötuna og þaðan eru mi'nar bestu minningar barnæsk- unnar. Mín fyrsta minning um Lóu frænku, sem ég minnist í þessari grein í dag, var þegar hún hafði farið á kvennaskóla á Laugalandi í Eyjafirði heilan vetur og kom heim um vorið með geislandi hlátur og glampa í augum, forfrömuð og full- vaxta kona. Ég laðaðist snemma að henni og fór daglega gangandi úr syðri bæn- um út í Skógargötu 7 til Lóu sem sá um allt heimilishald í litla húsinu sem fósturfaðir afa, Bjarni Jónsson formaður, hafði byggt og búið {til dauðadags. Þeir sem muna Lóu á þessum árum minnast þess að hún var glæs- ileg stúlka með dularfulla reisn í allri framkomu og stundum svolítið fjarrænan svip í augunum. Mér fannst hún fallegasta kona í heimi og þar sem mamma hafði yfrið nóg með að sinna bræðrum mínum tveimur á unga aldri leitaði ég sí- fellt til afa, Palla og Lóu og átti þar mitt annað heimili árum sam- an. Það voru því þau þijú sem tóku þátt í uppeldi mínu að stórum hluta og það var t.d. Lóa sem kenndi mér á klukku. Sérstaklega man ég eftir sunnu- dagsborðhaldi í gamla Bjarnabæn- um; Lóa steikti læri, blandaði sam- an gosi og malti, bjó til búðinga og allskonar eftirrétti og tertur og lát fyrir það eitt að hafa fengið að kynnast honum. Hann hefur nú sagt skilið við þennan heim en minningin um góðan og glaðlyndan frænda mun lifa með okkur afram. Halla og ívar Þann 29. maí sl. var okkur til- kynnt það að Össi, eins og hann var ætíð kallaður, væri fallinn frá. Þessar fregnir komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Össi var kær vin- ur og frændi, hress og lífsglaður, alltaf með glens og grín á vörunum, þess vegna er það mikið áfall fyrir okkur öll að hann skuli vera tekinn frá okkur svona unggr, það veit enginn hvenær tekapárinn kallar okkur til sín. Þess'vegna spyr mað- ur, af hvetju hann, af hvetju ekki þeir sem vilja1 fara? Þessari spurn- ingu verður ekki svarað. Össi var nýbúinn að Iæra það sem hann hafði áhuga á og var bytjaður að vinna við það þegar kallið kom. Hann spilaði mikið fótbolta, stund- aði júdó og tefldi skák. Össi stóð sig alltaf vel í því sem hann tók sér fyrir hendur og vildi ávallt gera betur. Hann var alltaf tilbúinn að veita hjálparhönd þegar til hans var leitað. Elsku Hanna, Arnar og fjöl- skylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð við þennan mikla missi. Guð veiti ykkur styrk, blessuð sé minning hans. Jón Geir, Laufey og Sigrún við sátum svo saman öll fjögur inni í stofunni og borðuðum ósvikinn sunnudagsmat. Þetta þróaðist þannig að ég hélt meira og minna til hjá þeim í Bjarnabænum á hveijum degi fram á unglingsár og á þeim árum var Lóa frænka einn minn besti vinur. Aðdáun mín á henni var ótakmörk- uð enda hafði hún svo margt til brunns að bera. Hún var ekki bara glæsileg kona heldur líka góð manneskja. Stundum sat hún og saumaði eða hún tók fram gítarinn og söng dægurlög upp úr heftinu „Nýir danslagatextar“ og nokkra vetur lék hún með Leikfélaginu á Sauðárkróki. Það kom auðvitað engum á óvart sem til þekktu að Lóa gæti leikið svo eftirminnileg sem amma Guðrún var gömlum Króksurum í margskonar leikhlut- verkum. Og Lóa fór að leika og alltaf fékk ég að skröltast með henni á æfingar og „general“-pruf- ur. Og þetta tókst allt vel hjá henni og afí sem sótti allar leiksýningar var ánægður með frammistöðuy hennar og ég ... mér fannst hún bera af á öllum sýningunum. Meðan Lóa var ógift og bjó enn heima í Bjarnabænum gerðist það eitt sinn að vinkonur af kvennaskól- anum hennar komu í heimsókn sem ekki væri í frásögur færandi ef ekki hefði hún uppgötvað að her- bergið hennar var skammarlega lít- ið svo að stúlkurnar ætluðu varla að geta sest þar inn vegna þrengsla. Herbergi þetta var inn af eldhúsinu og mun hafa verið herbergi þeirra Ingu og Páls, foreldra ömmu Guð- rúnar. En nú missti Lóa þolinmæð- ina og heimtaði bara breytingar á gamla húsinu og það sem fyrst! Og á undraverðum hraða byggðu afi og Palli viðbyggingu við Bjarnabæinn með stóru herbergi fyrir Lóu, góðu baðherbergi og stóru þvottahúsi. Gerði Lóa svo herbergið vistlegt og þægilegt á smekklegan hátt þeirra tíma. „Þetta er eins og í útlöndum, þetta er svo fínt,“ sagði Þórður á Stöðinni, og svo bætti hann við „hvaða vitleysa er þetta, fer stelpan ekki að gifta sig og flytja burtu.“ Ég hafði aldrei tekið það með í reikninginn að Lóa tæki upp á því að gifta sig. Þegar ein aðal matvöruverslun Kaupfélags Skagfirðinga var á Freyjugötunni starfaði Lóa þar inn- anbúðar. Daglegar ferðir eftir mjólk og fískstykki enduðu ávallt í búð- inni hjá Lóu sem oftar en ekki renndi upp í mig mola af sælgæti. Þar var þá verslunarstjóri Sveinn Guðmundsson og þótti mér ávallt reisn yfir honum og fasið öruggt og ákveðið, ég var því svolítið mont- in þegar ég uppgötvaði samdrátt þeirra Lóu og Sveins. Þar sem ég var eins og skugginn hennar Lóu fór ég nokkrum sinnum út að keyra með þeim í tilhugalífi þeirra. Þessi ráðahagur var mér að skapi og Fæddur 11. febrúar 1910 Dáinn 29. maí 1991 Mig langar í örfáum orðum að minnast vinar míns Guðmundar Valdimarssonar og þakka honum samvinnuna. Gummi var búinn að vera veikur lengi og lést í Landspítalanum 29. maí. Guð gefur og Guð tekur segir máltækið og nú hefur vinur minn Gummi kvatt þennan heim. Ég, sem þessar línur rita, kynntist honum fyrit- rúmum 12 árum, eða þegar móðir mínn flutti með mig pínulít- inn í Fannborg 1 í íbúð við hliðina á Gumma. Við urðum miklir vinir og gerðum margt skemmtilegt. Oft gat hann brosað þegar ég kom til glæsileg voru þau saman. Það gerist síðan í lífí Lóu frænku að hún gengut- í hjónaband með Sveini Guðmundssyni, síðar lands- þekktum hestamanni, og eignast þau tvo drengi, Guðmund og Oskar Pál. Það var örugglega vel ígrunduð ákvörðun hjá þeim báðum að ganga í hjónaband og farsæl því jöfnuður var þeim og gagnkvæm virðing og djúp ást. Þetta segi ég því að svo vel fylgdist ég með lífí þeirra hjóna vegna hins sterka sambands okkar Lóu og Iíka vegna hins að bærinn var lítill á þeim árum og samskipti nokkuð náin. Alltaf þegar Lóa sagði mér af Sveini var aðdáun hennar fölskvalaus á lífsstarfi hans með hestunum og þó skulu þeir sem þetta lesa vita að hrossin tóku mik- inn tíma frá hefðbundnu fjölskyldu- lífi og ekki alltaf auðvelt að stilla saman samverustundirnar. En sam- hent voru þau hjónin og það fundu þeir fjölmörgu hestamenn sem heimsóttu þau í þeim erindum að ræða við Svein unt hesta. Ekki veit ég hversu vel og náið Lóa fylgdist með hrossunum en hún vissi nóg fyrir sig. Lóa frænka hafði meðfæddan listrænan streng í hjartanu. Þessi listræni strengur var sterkur og traustur og hann þandist og styrkt- ist með þátttöku Lóu í söngstarfí í kirkjukór Sauðárkrókskirkju á síð- ustu árum en þar var hún aflmikill drifkraftur. Með kirkjukórnum söng hún í fjölda mörg ár og einsöngur hennar með kórnum er eftirminni- legur okkur sem hann heyrðum. Þátttaka hennar í sönglífinu á Króknum var henni afar mikils virði. Fyrir ári sátum við á veitinga- húsi í Reykjavík og ræddum um sönginn. Lóa hafði komið til Reykja- víkur til að kaupa húsgögn í nýja íbúð sem hún var að flytja í ásamt Sveini eiginmanni sínum. Þá barst talið að tilteknu lagi sem ég til- greindi en mundi ekki hvernig hljómaði, raulaði þá Lóa þetta norð- lenska lag fyrir okkur það hátt að allir heyrðu á nærliggjandi borðum og allt datt í dúnalogn. Rödd Lóu var mjúk og áferðarfalleg með dill- andi titringi. Við gleymdum stað og stund við þennan flutning og söngurinn er greiptur í minningunni um ókomin ár. Lóa frænka hafði geislandi fína kímnigáfu, gat verið stríðin og glettin og hafði skemmtilega frá- hans á morgnana á náttfötunum til að ná í jólakökusneiðina mína og kókið og sátum við síðan og spjöll- uðum saman. Hann var alltaf ljúf- ur, góður og nærgætinn. Mínum elskulega vini þakka ég fyrir allar yndislegu stundirnar á liðnum árum. Þær munu geymast í hjarta mínu um ókomin ár. Þér ástvinir eyðið nú hörntum og afþerrið tárin af hvörmum. Við endalok útlegðar nauða hið algjöra líf vinnst í dauða. (Ur Skólaljóðum) Ástvinum Gumma sendi ég hug- heilar samúðarkveðjur og bið algóð- an Guð að lýsa-þeim og varðveita þau um ókomin ár. N Hilmar Þór Reynisson sagnargáfu þegar spaugileg atvik voru til frásagnar. Meðan Lóa vann á símanum á Króknum, spjölluðum við saman oft í viku og þá sggði hún mér oft af broslegum atvikum á Króknum og þá var oft rnikið hlegið og flímað með menn og málefni. Fyrsta Sæluvikuballið setn ég sótti var vorið 1966, þá sextán ára gamall. Eftir að hafa fylgst með dansleiknum og hljómsveitinni fór ég niður í Græna sal. Þar sat Lóa við borð með glatnpa í augum, bros- andi og hún bauð ,mér og drykk í glas. Fór hún síðan að benda mér á að syngja hressilega nteð „kórn- um“ í Græna salnum en þar sem ég kunni ekki textana fylgdist ég þess betur nteð þeint sem sungu með. Lóa tók þátt í söngnunt af mikilii glettni fannst mér. Hún söng gjarnan einhverja rödd í laginu og hélt þá tóninum titrandi mjúkum og með nokkrum „víbrasjónum" sem enduðu í sveiflum. Lagði ég þetta vel á minnið og Iék síðan fyr- ir bræður mína margsinnis við ntikla kátínu þeirra. llafði ég þá munninn lokaðan og lygndi aftur augunum og söng innaní mér með lokaðan munninn og löngum víbra- sjónum sem gerðu lagið óþekkjan- legt. Frétti Lóa af þessu og bað mig einu sinni, kankvís á svip, að lofa sér að heyra hvernig ég hermdi eftir henni, sem ég gerði og hló hún að þessu gríni mínu. En lífið er ekki bara Græni salur- inn og Sæluvikan, það er alvaran og lífsbaráttan og tilgangurinn með þessu lífi sem er spurning sem brennur á mér þegar ég skrifa þess- ar línur. Þótt Lóa væri oft brosandi og glettin var hún í tali varkár í dómum sínum um fólk og málefni. Mér fannst hún afar mannglögg og næm á þann þokka sem hver og einn býður af sér. Mér er minnis- stætt hversu hlýlega hún talaði um tengdadætur sínar við mig og tengdaforeldra sona sinna. Það hef ég lært af henni og það hefur hún haft eftir Óskari afa, að vera sann- gjarn og réttsýnn og sýna samferð- afólkinu skilning og hlýju. Sonum sínum var hún hlý, skilningsrík móðir og frábær félagi, eiginmanni traust eiginkona og lífsförunautur. Okkur öllum, sínum nánustu, var hún sönn og ósvikin samferðarkona í þessu lífi. Nú er hennar vegferð lokið á meðal okkar, alltof stutt var þessi ferð, svo margs var að njóta og lifa fyrir. Eiginmanni, sonum, tengdadætr- um og nánustu ættingjum óska ég að góður Guð styðji og styrki í sár- urn söknuði. Bjarni D. Jónsson Kaupmenn, innkaupastjórar SÓL- GLERAUGU Otrúlegt úrval af dömu-, herra-, unglinga- og barnasólgleraugum. Einnig skíðasólgleraugu. Frábært verð HOLLENSKA VERSLUN ARFÉLAGIÐ Borgartúni 18 Sími 61 88 99 Fax 62 63 55 Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi Qg hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. t Eiginmaður minn, YNGVI MARKÚSSON, Oddsparti, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands þann 5. júnf. Sigríður Magnúsdóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför BENEDIKTS ÁG. GUÐJÓNSSONAR, Nefsholti. - Kristin Benediktsdóttir, Málfríður Benediktsdóttir, Auður Ása Benediktsdóttir, Teitur Benediktsson, Einar Benediktsson, Jóna Veiga Benediktsdóttir, Guðný Finna Benediktsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Jón Guðfinnsson, Vigdís Jónsdóttir, Ragna Ólafsdóttir, Karl Þórðarson, Olgeir Engilbertsson, t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar og móðursystur, GEIRÞRÚÐAR J. ÁSGEIRSDÓTTUR KÚLD. Margrét Ásgeirsdóttir, Aðalbjörg Björnsdóttir. Guðmundur Valdi- marsson - Kveðjuorð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.