Morgunblaðið - 08.06.1991, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ I/AU,GARDAGIIR/ 8. JJJNÍ 1991
Námsmenn undrandi og reiðir
- segir formaður Stúdentaráðs um skerðingu námslána
ÓLAFUR G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, hefur staðfest
breytingar á úthlutunarreglum
Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
sem samþykktar voru á fundi
stjórnar sjóðsins á fimmtudaginn.
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að ummæli
Johns Gummer, sjávarútvegsráð-
herra Breta, um hvalveiðar fs-
lendinga séu móðgun við íslenzku
þjóðina. Gummer sagði í ræðu í
brezka _ þinginu að hann „vildi
halda íslendingum í hópi sið-
menntaðra þjóða“ og að afstaða
íslendinga til Alþjóðahvalveiðir-
áðsins væri „ótæk“.
„Þetta er afar ósmekkleg og óvið-
eigandi yfirlýsing og móðgun við ís-
lenzku þjóðina,“ sagði Þorsteinn
Pálsson í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Það er full ástæða til þess
að Gummer biðji afsökunar." Þor-
Fulltrúar námsmanna í sljóm
Lánasjóðsins hafa mótmælt þess-
um breytingum harðlega og segir
Siguijón Þorvaldur Arnason,
formaður Stúdentaráðs Háskóla
íslands, að það valdi mikilli furðu
steinn sagðist ekki búast við að ís-
lenzk stjómvöld færu fram á slíka
afsökunarbeiðni, Gummer ætti sjálf-
ur að sjá sóma sinn í því.
„Þetta lýsir viðhorfum manna, sem
hafa blásið á vísindaleg rök og láta
stjómast af tilfinningahita til að
þóknast öfgasinnum sem hafa litla
sem enga þekkingu á íslenzkum að-
stæðum," sagði Þorsteinn. Hann
sagði að Gummer færist að tala um
siðmenningu í þessum efnum. Það
þætti til dæmis ekki sérlega sið-
menntað á íslandi að skjóta spör-
fugla, eins og menn leyfðu sér í Bret-
landi.
að menntamálaráðherra hafi ekki
gengið til samninga við náms-
menn, því þeir hafi lýst sig reiðu-
búna til að semja um skerðingu
lána.
„Við metum það svo, að hér sé
verið að samþykkja skerðingu upp á
um einn milljarð króna,“ segir Sig-
uijón Þorvaldur Árnason. „Og það
er ekki nóg með að það eigi að fram-
kvæma svona gríðarlega skerðingu,
heldur á að skerða lánin á eins óskyn-
samlegan hátt og hægt er með því
að ráðast á grunn námslánakerf-
isins.“
Siguijón segir að námsmenn séu
bæði undrandi og reiðir vegna þess
að ekki hafi verið reynt að semja við
þá um breytingarnar. Þeir hafi fyrr
í vikunni lýst sig reiðubúna til við-
ræðna um breytingar á kerfinu sem
gætu leitt sparnaðar upp á mörg
hundruð milljónir króna. Fulltrúar
námsmanna hefðu jafnvel verið til
viðræðu um tillögur, sem fæli í sér
spamað upp á 550 milljónir króna.
Siguijón segir að haldinn verði
útifundur á Lækjartorgi næsta
fimmtudag vegna málsins. Mennta-
málaráðherra hafí verið boðið að tala
á þeim fundi og skýra þar sjónarmið
sín.
Ummæli Gummers
móðgun við Islendinga
- segir sjávarútvegsráðherra
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 8. JÚNI'.
YFIRLIT: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.025 mb hæð en um 500
km austur af landinu er 1.000 mb smálægð á hreyfingu norðvest-
ur. Grunnt lægðardrag við suðvesturströndina grynnist smám sam-
an.
SPÁ: Austlæg átt við suðurströndina en norðlæg eða norðaustlæg
í öðrum landshlutum. Skúrir eða slydduél á Norður- og Austur-
landi, skúrir á Suðurlandi, en þurrt og sums staðar léttskýjað vest-
anlands. Fremur svalt áfram.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðaustlæg átt, rigning
suðaustan- og austanlands og víða við norðurströndina. Víðast
þurrt vestanlands. Fremur svalt í veðri.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
s, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
•J0 Hrtastig:
10 gréóur á Celsius
o
■4
m
ttafnu og fjaðrirnar • Skúrir Él
Heiðskirt vindstyrk, heil fjoður er 2 vindstig. V * V
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / — Þokumóða
Hálfskýjað * / * 9 5 Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
# * * —j- Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * •# K Þrumuveður
VEÐUR VIBA UM HEIM
kl, 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri S skýjaé
Reykjavik 8 úrkomaigr.
Bergen 7 alskýjað
Helsinki 17 hálfskýjað
Kaupmannahöfn 10 súld
Narssarssuaq 13 skýjað
Nuuk 4 skýjað
Óstó 1S skýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 8 skúr
Algarve 21 skýjað
Amsterdam 17 rigningás. klst.
Barcelona 19 skýjað
Berlín 19 hálfskýjað
Chlcago 17 heiðskírt
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 16 skúr á s. klst.
Glasgow 14 skýjað
Hamborg 17 skýjað
London 16 skýjað skýjað
LosAngeles 13
Uixemborg 12 rigningós. klsL
Madn'd 20 skýjað
Malaga vantar
Mallorca 23 alskýjað
Montreal 17 léttskýjað
NewYork 19 helðskút
Orlando vantar
París 14 rigning ð s. klst.
Madeira 20 skýjað
Róm 20 þokumóða
Vfn 20 skýjað
Washíngton 18 heiðskfrt
Winnipeg 18 skýjað
Morgunblaðið/PPJ.
Feðgarnir í Flugstöðinni hf., Elíeser Jónsson og Jón E. Elíeser-
son, við flugvél fyrirtækisins, Rockwell Turbo Commander TF-
ERR, nýlentir eftir fjögurra mánaða dvöl á Spáni þar sem þeir
voru við ljósmyndaflug fyrir þarlenda aðila.
Víðförlir heim
úr myndaflugi
ÍSLENSKIR flugmenn fara
víða í starfi sínu og oft dvelja
þeir langtímum heiman frá sér.
I flestum tilfellum eru flug-
mennirnir starfandi á vegum
íslenskra eða erlendra flugfé-
laga við farþega- og vöruflug.
Fleiri flugmenn fara þó víða
vegna starfa sinna, þeirra á
meðal Elíeser Jónsson aðaleig-
andi Flugstöðvarinnar hf. Nú í
vikunni kom hann heim til
Reykjavíkur ásamt Jóni syni
sinum eftir fjögurra mánaða
dvöl á Spáni. Þar voru þeir
feðgar við störf á flugvél fyrir-
tækisins TF-ERR.
Flugstöðin hf. keypti flugvélina
TF-ERR sem er skrúfuþota af
gerðinni Rockwell Turbo Com-
mander, árið 1980. Gerðar voru
á vélinni ýmsar kostnaðarmiklar
breytingar til að gera hana hæfa
til loftljósmyndaflugs, en Flug-
stöðin hefur um margra ára skeið
annast allt ljósmyndaflug fyrir
Landmælingar íslands. Hérlendis
er einungis mögulegt að stunda
landmælingaflug um hásumar og
hefur Elíeser því leitað fyrir sér
um verkefni erlendis. Frá því
haustið 1981 hefur hann flækst
víða um lönd við ljósmyndaflug á
TF-ERR og hefur hann m.a. verið
fjórum sinnum við verkefni í Nep-
al. Han hefur einnig verið fjórum
sinnum við ljósmyndaflug í Líber-
iu í Afríku, nokkrum sinnum í
löndum við Persíuflóa, í Guineu í
Afríku, í Mið-Afríkulýðveldinu, í
Bretlandi, Curacao í Karíbahafi
og í vesturhluta Kanada.
NýjaSta erlenda verkefni Flug-
stöðvarinnar var á Spáni, en
þangað fóru feðgamir Elíeser og
Jón í febrúar sl. Höfðu þeir fram-
an af bækistöðvar sínar í Madrid
en færðu síg síðar um set til
Malaga. Jón, sem er einnig at-
vinnuflugmaður, hefur hin síðari
ár oft verið með föður sínum í
, verkefnum erlendis og lagðist
flugmannsstarfið að mestu á hans
herðar meðan á Spánardvöl þeirra
stóð. Þeir feðgar létu vel af dvöl-
inni á Spáni, en höfðu á orði að
verkefnið hefði tekið lengri tíma
en gert var ráð fyrir. „Loftljós-
myndaflug krefst þess að hvergi
sé skýjahnoðri á Iofti á því svæði
sem flogið er um og geta menn
þurft að bíða dögum og jafnvel
vikum saman eftir réttum skilyrð-
um,“ sagði Elíeser. „Það getur
verið alveg ágætis veður til að
stunda sólböð og stinga sér í sund-
laugina á sama tíma og ófært er
fyrir ljósmyndaflug."
Reykjavík:
Vandi skólafólks vegna
sumarvinnu að leysast
Atvinnuástand betra en 1 fyrra
Atvinnumálanefnd Reykjavík-
urborgar ákvað á fundi sínum á
flmmtudag að ráða 120 skóla-
nema til starfa á vegum borgar-
innar til viðbótar þeim 1.063 sem
áður höfðu verið ráðnir. Jóna
Gróa Sigurðardóttir, formaður
atvinnumálanefndar, segir að
vonir standi til að þessi aukning
fullnægi þörf skólafólks fyrir
sumarvinnu. Komi hins vegar til
þess að svo verði ekki muni at-
vinnumálanefnd reyna að leysa
þann vanda.
Að sögn Jónu Gróu eru þetta um
það bil eitt hundrað færri störf en
í fyrrasumar enda hefur skólafólki
nú gengið betur að fá vinnu á al-
mennum vinnumarkaði. Jóna Gróa
sagði að atvinnuástand í borginni
væri líka mun betra en undanfarin
ár. Þannig væru nú í kringum 800
manns á atvinnuleysisskrá í borg-
inni en hefðu verið rúmlega 1.200
á sama tíma í fyrra.
Hvert hinna nýju starfa hjá borg-
inni kostar tæpar 300 þúsund krón-
ur að jafnaði. Inni í þeirri upphæð
eru kostnaður við verkstjórn, verk-
færi og efniskaup auk launa. Alls
sagði Jóna Gróa að varið yrði rúm-
um 34 milljónum úr borgarsjóði
vegna þessa nýja sumarfólks hjá
borginni.
Verkefni skólafólksins verða
svipuð og áður. Flestir verða við
ræktun og hreinsun þeirra rækt-
aðra svæða sem ekki er unnt að
vinna á með vélum. Þá mun allstór
hópur vinna við hellulagnir og önn-
ur verkefni á vegum gatnamála-
stjórnar.
Jóna Gróa gat þess sérstaklega
að 59 fatlaðir yrðu við störf á veg-
um borgarinnar í sumar. Mörg
dæmi væru þess að fatlaðir störfuðu
í almennum vinnuflokkum og einnig
hefðu tilraunir með sérstaka vinnu-
flokka fatlaðra undanfarin sumur
gefið góða raun.