Morgunblaðið - 08.06.1991, Síða 10
í t _________________________íeeí IMÚl. .8 HU0A051A0UAJ 6iaA>iaHU0H0M
Rj” „ — ----- .... WRGTMbÍKSÍö" DÖÓGXRDXGtÍK^: ‘JÚNÍ 1991
Nægar birgðir til af
innlendum kartöflum
SAMKVÆMT könnun landbúnaðarráðuneytisins eru eftir um tvö þús-
und tonn af góðum matarkartöflum af uppskeru síðasta árs, og ætti
því að verða nóg til af innlendum kartöflum í allt sumar. Haldi áfram
sem liorfir ættu síðan nýjar kartöflur að koma á markað um 20. júlí.
I fréttatilkynningu frá landbúnað-
arráðuneytinu og Neytendasamtök-
unum kqmur fram að í stefnu Neyt-
endasamtakanna sé fallist á bann
við innflutningi á landbúnaðarvörum
þegar nægt framboð sé á innlendri
gæðavöru. Miðað við þær upplýsing-
ar sem þessir aðilar hafi aflað sé
ekki ástæða til að ætla annað en
hægt verði að bjóða upp á innlendar
gæðakartöflur í sumar, en þó sé ljóst
að dreifingaraðilar verði að gera
miklar kröfur til þeirra kartaflna sem
markaðssettar verða. Stærstur hluti
kartöflubænda hafi komið sér upp
góðum geymslum og geti því auð-
veldlega geymt kartöflur fram á
þennan tíma. Þá eigi að verðlauna
með því að kaupa þeirra vöru, en
ekki eigi að líða að markaðssettar
verði kartöflur sem byijaðar séu að
skemmast.
t
Trutmfih
4 fsi T > « M fi T I O M A I
VORLINAN
Sérhæfir sig í brjóstahöldurum í
stórum númerum
HÁRPRÝÐI - FATAPRÝOI
HÁALEITISBRAUT 58 - 60. OG BORGARKRINGLUNNI
1 KA 91 97H LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I lOU'fclÚ/U KRISTIMN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Góð eign í Garðabæ
steinh. ein hæð m/tveimur íb. 150 fm og 32 fm einstaklíb. m/sérinng.
Bílsk. - gott vinnuhúsn. 50 x 2 fm: Nýr sólskáli 40,4 fm. Glæsil. lóð
1018 fm. Eignin er vel byggð og að mestu leyti sem ný.
Á móti suðri og sól
Glæsilegt raðhús við Hrauntungu Kóp. með 5 herb. íb. á hæð. 50 fm
sólsvalir. Á jarðhæð er gott íbhúsn. sem gæti verið sér einstaklíb.
Góður innb. bílsk. með vinnuplássi. Eignin er öll eins og ný. Mikið
útsýni. Skipti mögul. á góðri 4ra herb. ib. með bílsk.
Á besta stað á Högunum
6 herb. glæsil. séreign rúmir 180 fm nt. 1 herb. hefur sérinng. og
sérsnyrt. Stór, ræktuð lóð. Teikn. á skrifst.
Skammt frá „Fjölbraut" í Breiðholti
5 herb. góð íb. á 3. hæð í þriggja hæða blokk v/Hrafnhóla. 4 svefn-
herb., sjónvskáli, þvottavél á baði. Góð sameign. Mikið útsýni. Skipti
æskil. á raðhúsi.
Á góðu verði með stórum bílskúr
3ja herb. rúmg. íb. 86,8 fm á 2. hæð í 3ja hæða blokk við Blikahóla.
Ágæt sameign. Innb. bílsk. 31,7 fm nettó. Laus fljótl. Tilboð óskast.
Skammt frá Landspítalanum
Stór og góð 3ja herb. kjíb. 89,9 fm töluvert endurn. Sérhiti. Sérinng.
Verð aðeins kr. 5,3 millj.
Góð eign - hagkvæm skipti
Einbýlishús á einni hæð við Háabarð í Hafnarfirði 130 fm með 5 herb.
ib. góður bílsk. 36 fm. Ræktuð lóð 630 fm. Eignask. mögul.
Ný einstaklingsíbúð við Vindás
Eins herb. ib. 33,8 fm auk geymslu og sameignar. Sólsvalir. Húsnlán
kr. 1,7 millj. Laus strax.
Á söluskrá óskast strax
m.a. vegna fjársterkra kaupenda:
3ja herb. íb. á 1. hæð miðsvæðis i borginni t.d. i Fossvogi.
4ra-5 herb. íb. helst í Laugarnesi, Heimum eða nágrenni.
Sérhæð miðsvæðis í borginni eða Vesturbænum.
3ja-4ra herb. íb. í lyftuhúsi með bílsk. Ekki í úthverfi.
Miklar og góðar greiðslur. Útborgun í boði fyrir rétta eign.
Opið í dag frá kl. 10-14. ALMENNA
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 592. þáttur
Magnús Lyngdal Stefánsson é
Akureyri skrifar mér mikið bréi
og gott. Birti ég hér úr því væna
bjóra með bestu þökkum til bréf-
ritara. Hann segir fyrst, að sleppt-
um hlýlegum inngangsorðum:
„Þannig er mál með vexti, að
fyrir skömmu kom að máli við
mig gamall skólabróðir og félagi,
Helgi Valdimarsson, og spurði
hvort ég kannaðist við orðið „þyn-
ur“, kvenkynsorð í fleirtölu,
líklega skrifað með „y“. Hann
hafði þá nokkru áður heyrt þetta
orð af vörum eldri konu, ættaðrar
af Vestfjörðum. í hennar huga
hafði þetta orð merkinguna ofsa-
kláði. Prófessorinn hváði við að
vonum, en konan sat við sinn
keip og sagði orðið hafa verið
notað í sinni sveit um þá tegund
útbrota, sem hún leitaði méð til
prófessorsins.
Nú er því á þann veg háttað,
að íslenska býr í dag ekki yfir
neinu góðu nafni á þeirri gerð
útbrota, sem á læknamáli eru
kölluð „urticaria" eða „urtica".
Þá er átt við misstórar, rauðar
hellur, oft skærrauðar í jaðarinn
en ljósari inn við miðju. Þeim fylg-
ir hiti í húð, þroti og venjulega
mikill kláði. Þessi útbrot geta
komið sem hendi væri veifað, og
margvísleg önnur óþægindi fylgt
með. Hellumar hjaðna stundum á
einum stað á meðan aðrar koma
annars staðar. Útbrotin standa
yfirleitt við í tvo til þijá daga en
hverfa síðan, og þau eiga sér
margvíslegar orsakir, sem allar
eiga það þó sameiginlegt að koma
af stað ofnæmisviðbrögðum í
líkamanum."
Hér sleppi ég kafla um sumt
það er veldur „urticaria“, en svo
heldur Magnús áfram:
„Guðmundur Hannesson kallar
„urticaria" ofsakláða eða upp-
hlaup í bók sinni íslensk læknis-
fræðiheiti og út kom 1954.
í íðorðasafni lækna sem að vísu
er ensk/íslensk orðabók er
„urtica" þýtt þannig: rauðkláða-
þot, sjá „wheal“ og það orð þýtt
með sama hætti. „Úrticaria" er
talið enskt samheiti við „hives“
og bæði þýtt sem ofsakláði...
Með mér vinnur rpálglögg
kona, Svala Steinþórsdóttjr, fædd
í Dýrafirði og dvaldi þar í æsku.
Hún kannaðist strax við þynur
en kveðst ekki hafa heyrt þeirra
getið frá því hún fór alfarin úr
Dýrafirði um tvítugt og þar til
nú. Hún man ekki rithátt orðsins
og segir sig minni, að þynur hafi
verið nefndar litlar, þéttstæðar,
rauðleitar bólur, sem þutu upp
snögglega og fylgdi kláði.“
Þá tekur Magnús að velta fyrir
sér hugsanlegum uppruna orð-
myndanna „þynur/þinur“ og vitn-
ar í ýmsar orðabækur í því sam-
bandi, segir síðan:
„Mig langar til að heyra álit
þitt á þessu máli. Ekki veitir af
að auka íslenskan orðaforða í
læknisfræði.
Með bestu kveðjum."
★
Orðabók Háskólans hafði ekki
dæmi um *þynur í fyrrnefndri
merkingu. En í orðabókum er að
finna nafnorðið þina (kvk.), í flt.
þinur, meðal annars í merking-
unni sár með hrúðri eða skorpu.
Eg verð því að ætla að þar sé
komið orðið sem vestfirsku kon-
urnar notuðu. Það orð er skylt so.
þenja og þinur/þinull í merking-
unni netteinn, lóðarás. Mér sýnist
þetta orð hið gagnlegasta í sam-
setningum. Magnúsi Lyngdal
Stefánssyni leist að vonum ekki
á samsetningarromsur eins og
*lyfjaofsakIáði eða *stroku-
rauðkláðaþot. Þá finnst okkur
Magnúsi betra að segja Lyfjaþin-
ur (urticaria medicamentosa)
og strokuþinur (urticaria factit-
ia).
★
Svo er oft að staka stekkur
stolt og frjáls sem lax í hyl,
meðan blaðið blekið drekkur,
brosandi hún verður til.
(Jón Bjarnason frá Garðsvík, f. 1910;
nýhenda.)
★
Tíniugur
1) Menn sölsa eitthvað undir
sig, ef þeir taka það til sín með
valdi og yfirgangi. Sennilega er
þessi sögn skyld sala og selja.
Aftur á möti söðla menn um, ef
þeir skipta rækilega um athafnir
eða afstöðu. Þetta er líkingamál,
og sögnin að söðla (um) er sjálf-
sagt dregin af söðull, í honum
sitja menn hesta. Þetta lítilræði
er hér rifjað upp vegna þess að í
fréttum hefur heyrst að þessi eða
hinn hafi „sölsað um“, ef hann
hefur gjörbreytt lífsháttum
sínum. Bið ég nú alla góða menn
að rugla ekki saman sögnunum
að sölsa og söðla, enda eru þær
ekki svo líkar, að þar veitist nokk-
ur afsökun.
2) Kristinn R. Ólafsson fær
stig fyrir að segja í fréttum frá
næstu leiktíð í spænsku knatt-
spyrnunni. Nógu mikið er búið að
nauðga orðinu vertíð um alls
konar tímabil, þau sem Englend-
ingar nefna season.
3) Orðslyngur maður í stétt
geistlegra sagði um farandpresta
að þeir fengju veitingu fyrir
hrökkbrauði.
★
Hlymrekur handan kvað:
í Hattarvík Geirhildur glæra
(forgömul og argvítug sværa)
með lánaðan klút af
Linu valt út af
og nú liggur í djúpinu væra.
Og enn kvað hann:
Hann Steinmóður Gilsson hjá Geysi
(ég greitt úr mér limrunum þeysi)
er ekki sér líkur.
og ekst varla í flikur
af langstæðu brennivínsleysi.
P.s. Eru engin takmörk fyrir
vitlausum línuskiptingum í blöð-
um? Maður skilur varla „öskut-
unnur“, sjá Dagfara-grein í DV
nýlega.
EIGNABÆR
Bæjarhrauni 8, sfmi 654222
Opnum í dag fasteignasölu í Bæjarhrauni 8,
Hafnarfirði.
Við byggjum á reynslunni og bjóðum ábyrga
og góða þjónustu.