Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 13

Morgunblaðið - 08.06.1991, Page 13
u MöttGtáöiÁÐ&’-iÆákKúÁíÆk 'Má'iiM verða fjármuni, sem viðkomandi er tilbúinn að greiða með því að fórna einhverju öðru af lífsins gæðum vegna þess að það skipti máli að hinn sjúki fái umönnun og þjónustu, sem óskað er eftir og þær óskir geta verið afar ein- staklingsbundnar." (Leturbreyting mín, S.J.) Hér er nú heldur betur hugsað upphátt. Eftir að búið er að vara okkur við því, að óbreytt kerfi geti leitt til þess að hinni almennu heilbrigðisþjónustu hraki mjög full- yrðir blaðið, að í mörgum tilvikum myndu hinir öldruðu (sem heim eru sendir vegna sumarlokana sjúkra- húsa) eða aðstandendur þeirra greiða einhvem kostnað ef það gæti tryggt fólkinu viðeigandi heilbrigðisþjón- ustu. Hafi þeir sem á aðgerðum þurfa að halda ekki sjálfir efni á að greiða, „mundu einhverjir aðstandendur áreiðanlega vera tilbúnir til að fórna einni sólarlandaferð fyrir einn fjöl- skyldumeðlim til þess að standa und- ir greiðslu af slíkri læknisaðgerð." Ef hugmynd Reykjavíkurbréfsins um val kemst á, er ljóst að þeir sem geta sjálfír greitt eða eiga ættingja eða vini sem eru reiðubúnir til þess að fórna t.d. sólarlandaferð til þess að kaupa aðgöngumiða að fyrsta plássi fyrir fátækan ættingja sinn, þeir eiga að fá góða þjónustu og gott atlæti á sjúkarstofnunum ríkis- ins, en ekki er farið nánar út í það, hvað á að verða um hina, sem ljóst er að skipa skal á annað eða þriðja pláss. Eftir þessari kenningu ætti að nota sjúkrastofnanir landsins sem reistar hafa verið fyrir almannafé til þess að standa undir mismunun landsins bama eftir efnahag þeirra eða því, hvort þeir ættu ættingja eða vini sem vildu sýna þeim góðvild. Þó að mér sé nánast óskiljanlegt að slíkar og þvílíkar hugmyndir hrjóti undan íslenskum penna nú á dögum þá þykist ég skynja þama einhveija sérstaka útgáfu af fijálshyggju, sem ráði ferðinni, en því viljandi gleymt, að þær stofnanir, sem nota á við þessa mismunun, em sameign þjóð- arinnar en ekki einkafyrirtæki. Hér er í raun lagt til, að sjúkratrygginga- kerfíð verði afnumið og ríkisfram- færsla þurfandi sjúklinga tekin upp. Ég býst við að mér verði núið um nasir, að ég sjái svo mjög eftir því að missa ellilaunin, að það hafi rekið mig til þess að rita þessar línur. Ég leyfi mér að svara því til að svo er ekki. Ellilaunin gefa mér rúmlega 6.000 krónur á mánuði að sköttum greiddum og þau skipta mig og mín fjármál ekki meira máli en það, að ég myndi ekki hafa nennt að standa í stímabraki við Morgunblaðið út af því. Það hendir, sjaldan að vísu, að mér fínnst eitthvað sem ég rekst á á lífsleiðinni svo mikilsvert eða fela í sér svo mikið ranglæti að mér finnst að ég verði að láta mig það skipta, og sting þá niður penna, en það er talsvert átak fyrir latan mann. Sú er ástæðan fyrir þessu greinarkomi og fram skal tekið að mér er enn meira niðri fyrir út af heilbrigðis- málaþættinum en elli- og örorkulíf- eyrisþættinum. r~. : \ NYTTOG SPENNANDI FYRIR ELDRI BORGARA ÍRLAND - EYJAN GRÆNA með Hermanni Ragnari Stefánssyni Brottfför 5. júlí - 2 vikur Aðeins 2ja klst. beint flug til Cork með nýrri þotu Flugleiða. Gisting á glæsilegu 4ra stjörnu hóteli. Verð kr. 57.400 fyrir manninn í tveggja manna herbergi THE SILVER SPRINGS með öllum þægindum, í stórum garði rétt hjá ánni Lee, og stutt frá miðborg Cork, þar sem hægt er að gera ótrúlega góð kaup í stórum vöruhúsum eða tískuverslunum. Kynnisferðir með þaulkunnugum fararstjórum Veraldar, Ásu Maríu Valdimarsdóttur og Andrési Eiríkssyni. Meira en helmingur sæta er þegar seldur - takmarkað sætamagn. FLUGLEIDIR FIRBAMIQSIBIIM AKUREYRI Tölvutækni - Bókval hf., Kaupvangsstræti 4, simi 96-26100 VESTMANNAEYJAR Friðfinnur Finnbogason, Eyjobúð, sími 98-11450/11166. KEFUVVÍK Aðalstöðin hf., Hafnargötu 86, sími 92-11518. ÍSAFJÖRÐUR AKRANES Bílasalan Elding sf., Ásgeir R. Guðmundsson, Skeiði 7, Garðalundi 2, sími 94-4455. sími 93-12800. SELFOSS Austurgarður, Austurvegi 56, sími 98-21626/22556. Höfuadur er fyrrverandi hæstarétUirdómari. VIÐSKIPTA- OG REKSTRARNAM - Endurmenntunarnefndar Háskóla íslands haustið 1991 Þriggja missera nám með starfi Frá því að Endurmenntunarnefnd Háskóla íslands hóf starfsemi árið 1983 hefur stöðugt betur komið í Ijós þörfin fyrir heildstætt nám í rekstri fyrirtækja og stofnana fyrir starfandi háskólamenn. Nám, sem hægt væri að stunda með starfi. Nám á háskólastigi, þar sem gerðar væru miklar kröfur bæði til nem- enda og kennara. Endurmenntþnarnefnd hefur frá ársbyrjun 1990 boðið upp á þriggja missera nám fyrir aðra en viðskipta- og hagfræðinga. í þessu námi eru tekin fyrir helstu undirstöðuatriði hagfræða og rekstrar og þess freistað að gera þeim betri skil en hægt er á styttri námskeiðum. Forgang hafa þeir, sem lokið hafa háskóla- námi, en einnig er tekið inn fólk með stúdentspróf, er hefur töluverða reynslu í rekstri og stjórnun. Stjórn námsins skipa þrír háskólakennarar, þeir Logi Jónsson, dósent, fulltrúi Endurmenntunarnefndar HÍ, Stefán Svavarsson, dósent, fulltrúi viðskipta- og hagfræðideildar HÍ, og Pétur Maack, prófessor, fulltrúi verkfræðideildar HÍ. Helstu efnisþættir námsins eru: Rekstrarhagfræði, reikningshald og skattskil, fjármálastjórn, stjórnun og skipulag, starfsmannastjórnun, upplýsingatækni í rekstri og stjórnun, sölu- og markaðsmál, réttarregiur og viðskiptaréttur, þjóð- hagfræði og haglýsing, stefnumótun. Viðbót eða val fyrir þá, sem þess æskja: Framleiðslustjórnun. Kennarar m.a.: Alexander G. Eðvarðsson, viðskiptafræðingur og lögg. endur- skoðandi hjá Endurskoðun hf. og stundakennari HÍ. Bjarni Ingvarsson, starfsmannastjöri og stundakennari HÍ. Bjarni Þór Óskarsson, hdl. og aðjúnkt viðskiptadeild HÍ. Gísli S. Arason, rekstrarráðgjafi og lektor Hl. Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, stundakennari HÍ og fjármálastjóri Hagvirki hf. Magnús Pálsson, viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi. Páll Jensson, prófessor, verkfræðideild HÍ. Tryggvi Sigurbjarnarson, ráðgjafaverkfræðingur. Næsti hópur hefur nám í byrjun september 1991. Kennslutími er þrisvar sinnum 120 klst. eða 360 klst. auk heimavinnu. Þetta samsvarar um 18 eininga námi á háskólastigi. Kennd er ein námsgrein í einu og henni lokið með prófi eða verkefni áður en sú næsta hefst. í lok námsins fá þátttakendur prófskírteini er vottar þátttöku og frammistöðu þeirra í náminu. Verð fyrir hvert misseri er kr. 65.000,-. Allar nánari upplýsingar um nám þetta, ásamt umsóknareyðublöðum (sendist inn fyrir 20. júní 1991), er hægt að fá hjá: Endurmenntunarnefnd Háskóla íslands - Tæknigarði - Dunhaga 5, 107 Reykjavík, símar 694923/24/25.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.